Þjóðviljinn - 29.01.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 29.01.1985, Blaðsíða 3
FRETTIR Alþingi Byrja eftir jólaleyfi Efnahagstillögur ríkisstjórnarinnar ífœðingu. Alþingi kom saman til reglu- legra funda á ný eftir jólaleyfi þingmanna í gær. Mjög deyfðar- legt var yfir stjónarliðinu og virt- ust tillögur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum ekki enn hafa séð dagsins ljós. Eftir stuttan fund var boðað til þingflokksfunda þarsem tillögurnar munu hafa verið kynntar þingflokkum stjórnarliðsins. Jón Kristjánsson tók sæti Tóm- asar Árnasonar Seölabanka- stjóra sem sagt hefur af sér þing- mennsku. Þá tók Margrét Frí- mannsdóttir sæti áfram á þingi í veikindaforföllum Garöars Sig- urðssonar, t>órður Skúlason sveitarstjóri tók sæti Ragnars Arnalds sem er erlendis, sömu- leiðis Vigfús Jónsson fyrir Hall- dór Blöndal og-Kristín S. Kvaran tók sæti sitt að nýju (eftir fæðing- arorlof) af Kristófer Má Krist- inssyni. f gær var talið líklegt að Fram- sóknarmenn færu langt með að samþykkja athugasemdalaust til- lögur ríkisstjórnarinnar, en að þær myndu enn standa að ein- hverju leyti í Sjálfstæðisflokkn- um. Albert Guðmundsson fjár- málaráðherra hefur verið er- lendis og mun ekki hafa haft tæki- færi til að gera ítarlegar athuga- semdir við tillögurnar. -óg Nú byrjum við aftur. Þingmenn Kvennalista, Guðrún Agnarsdóttir, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir og Kristín Halldórsdóttir, heilsa Guðmundi J. Guðmundssyni þingmanni Alþýðubandalagsins. (E.ÚI.). Nýja Dehli Grikkir ætla að losa sig við kjamoiioivopnin Yfirlýsing Papandreú áfriðarfundi sexþjóðarleiðtoga. Framhald affrumkvœði alþjóðlegra þingmannasamtaka undir forsœti Ólafs Ragnars Grímssonar Afundi sex þjóðarleiðtoga um starfsáætlun sem miðast að því að stöðva kjarnorkuvígbún- aðarkapphlaupið lýsti Papand- reú forsætisráðherra Grikklands því yfir, að ríkisstjórn sín ætlaði að koma öllum kjarnorkuvopn- um af grísku landi. Vopnin væru þar í óþökk Grikkja og mundi þeim komið burt með einhliða að- gerðum ef ekki næst um málið samkomulag. í Nýju Dehli eru samankomnir leiðtogar Argentínu, Grikk- lands, Indlands, Svíþjóðar, Mex- íkó og Spánar. Þetta „Friðar- frumkvæði fimm heimsálfa“ er skipulagt af alþjóðlegum sam- tökum stjórnmálamanna, PWO, en forseti þeirra er Ólafur Ragn- ar Grímsson. Fundurinn, sem fram fer undir forsæti Rajivs Gandhi, er niður- staða sex mánaða undirbúnings- vinnu fulltrúa þjóðarleiðtoganna fimm. Hann er og framhald af yfirlýsingu sem leiðtogarnir gáfu út í maí í fyrra, þar sem þeir hétu því að leita í sameiningu færra leiða til að stöðva vígbúnaðar- kapphlaupið í trú á að „þriðju að- ilar“, þ.e.a.s. ýmis smærri og meðalstór ríki, geti haft veiga- miklu hlutverki að gegna í samn- ingaviðræðu um kjarnorkuvíg- búnað. í yfirlýsingunni sagði m.a. á þá leið, að leiðtogarnir vildu gera það sem í þeirra valdi stæði til að auðvelda samkomu- lag milli kjarnorkuvelda, og um leið var það tekið fram að „þetta vandamál er of mikilvægt til að hægt sé að láta kjarnorkuveldin ein um það“. Að loknum fundinum í Dehli munu a.m.k. þrír leiðtoganna halda til Aþenu og hitta þar að rháli um 40 áhrifamenn af ýmsum sviðum. Þeim fundi er ætlað að treysta alþjóðlegan stuðning við áform leiðtoganna sex og til að efla samstarf milli þjóðarleiðtoga og hinna ýmsu hópa og samtaka sem vinna að afvopnunarmálum. Meðal þeirra sem hafa með já- kvæðum hætti tekið undir „Frið- arfrumkvæði fimm heimsálfa“ eru Jóhannes Páll páfi, Felipe Gonzales forsætisráðherra Spán- ar, Helmut Schmidt fyrrum kanslari og de Cueillar, fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna. f samtökunum „Þingmenn með nýrri heimsskipan", POW, eru þingmenn frá 31 landi. Bæki- stöðvar samtakanna eru í New York og forseti þeirra er sem fyrr segir Ólafur Ragnar Grímsson. -áb Kaffihneykslið Rannsoknin áSÍS langt komin Rannsókn gjaldeyriseftirlits Scðlabankans á gjaldeyrisskilum vegna umboðslauna fyrir kaffi- baunakaup SÍS á liðnum árum er komin vel á rekspöl, að sögn Sig- urðar Jóhannessonar hjá Seðla- bankanum. Sigurður sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að rannsókninni væri ekki að fullu lokið en komið væri að síðari hluta hennar. Hann vildi ekki gefa neitt upp varðandi niður- stöður rannsóknarinnar, sagði að málið yrði sent skattrannsóknar- stjóra og hann myndi vísa málinu áfram teídi hann ástæðu til. -•g- Sjómannasambandið Umboð til verk- fallsboðunar Formannaráðstefna Sjómannasambandsins samþykkti að veita samninganefnd SSIfullt umboð til verkfallsboðunar til 18. febrúar Fiskvinnsla Ný frystiaðferð Tekur aðeins 8 mínútur að hraðfrysta við 195° kulda Sjómannasamband íslands boðaði til formannaráðstefnu á sunnudaginn var og þar var sam- þykkt cftirfarandi tillaga: Fund- ur haldinn með formönnum og starfandi sjómönnum sam- bandsfélaga SSÍ, að Borgartúni 18 sunnudaginn 27. janúar 1985, samþykkir að beina þeim tilmæl- umi til allra sambandsfélaga innan SSÍ að þau gefi nú þegar samn- ingancfnd SSÍ umboð til verk- fallsboðunar. Mun umboðið gilda til 18. febrúar n.k.. Þetta þýðir að sögn Hafþórs Rósmundssonar hjá Sjómanna- sambandinu að samninganefndin hefur heimild til að boða til verk- falls fram til 18. febrúar. Hafi hún ekki boðað verkfall fyrir þann tíma munu félögin aftur taka þetta umboð til sín og beita því þá eins þeim þykir réttast. Hafþór sagði að nákvæmlega ekkert hefði mjakast í kjara- samningamálum sjómanna. Nýr sáttafumdur hefur verið boðaður í dag. -S.dór Fram til þessa hefur lausfryst- ing með fljótandi köfnunarefni aðallega verið notuð við frystingu á , kjötáleggi, hamborgurum, skelfiski og grænmeti en nýlega keypti Skarbjörns Fryseri í Ála- sundi í Noregi köfnunarefnis- frystivél sem notuð er aðallega við lausfrystingu á sfid, laxi og rækju. Fram að þessu hefur þessi frystiaðferð verið talin dýrari heldur en að frysta með ammoní- aki eða freon, en nýja aðferðin er mun fljótvirkari. Köfnunarefnisfrystivélin laus- frystir um 3500 kg á klst.. Afurð- irnar ganga á færibandi í gegnum frystivélina. Fyrst ganga þær í gegnum fljótandi köfnunarefni þar sem kuldastigið er 195° á sels- íus. Þaðan ganga þær áfram á færiböndum og heldur frystingin áfram með hjálp hinnar niður- kældu lofttegundar sem myndast eftir köfnunarefnisbaðið. Áð síð- ustu vatnsúðar vélin það sem fryst hefur verið og koma afurð- irnar með 1 millimeters klakhúð út úr vélinni 8 mínútum eftir að þær fóru inn á færibandinu. Köfnunarefnisnotkunin er sögð 0,8-1,0 kg á hvert kg sem fryst er. Köfnunarefnið breytist í fljótandi form við mínus 195 gráður. Vélinni fylgja tveir ein- angraðir geymar sem samanlagt taka 90 tonn af fljótandi köfnun- arefni. Geymarnir og leiðslur frá þeim í vélina eru sögð hafa svo góða einangrun að rýmun í kulda sé aðeins 0,2% á sólarhring. Fiskets Gang/-J.J.E. Kúld Þriðjudagur 29. janúar 19841 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.