Þjóðviljinn - 29.01.1985, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 29.01.1985, Blaðsíða 9
MANNLIF Hvorki voru það Matthildar-muffins né Mannlífs-muffins sem gestir Jóns Páls gæddu sér á um helgina. I veislu sterkasta manns í heimi var auðvitað rjómaterta eins og þær gerast bestar og stærstar á boðstólum. Enda fjöldi manns mættur til að samgleðjast Jóni Páli. Mynd-E.ÓI. Meira muffins í uppskrift frá Matthildi Guð- mundsdóttur í Grundarfirði sem birtist í síðasta Mannlífi varð prentvilia hjá okkur. Höfðum við bæði 3 dl af hveiti og einnig 100 gr af því, en áttum að sjálfsögðu við smjörlíki sem ekki var annars staðar nefnt í uppskriftinni. Muffins Matthildar er því rétt svona: Efni: 2 egg 2 dl strásykur 1 dl mjólk 100 gr. smjörlíki 3 dl hveiti 2 tsk. lyftiduft 2. tsk. vanilludropar 2 msk. kakó Aðferð Hitið ofninn í 200°C. Bræðið smjörlíkið. Hrærið saman eggj- um og sykri. Blandið mjólk og smjörlíki saman við. f>á er þurr- efnunum blandað í. Deiginu hellt í lítil pappírsform (muffins), sem raðað er á plötu úr ofninum. Úr þessu verða um 40 kökur. Bakað í miðjum 200°C heitum ofni í 12 mínútur. Mannlíf á einnig aðra útgáfu af muffins (sem eru kökur í litlum pappírsformum). Hún er eins og muHins Matthildar nema helm- ingi meira er af hveiti, lyftidufti og mjólk í Mannlífs-muffinsinu: Efni: 100 gr. bráðið smjörlíki 2 dl sykur 2 egg 6 dl hveiti 4 tsk. lyftiduft 2 dl mjólk 2 tsk. vanilludropar Deigið passar í 24-28 mót. Aðferð: 1) Hitaðu ofninn í 175°C (350°F) 2) Bræddu smjörlíkið við lítinn hita. 3) Láttu smjörlíkið og sykurinn í skál og hrœrðu það vel. 4) Brjóttu eggin, láttu út í og hrœrðu aftur vel. 5) Helltu mjólkinni með vanillu- dropunum út í. Láttu hveitið út í. Blandið vel saman. 6) Raðaðu pappírsmótunum á plötu og láttu deigið í þau með skeið. Þau mega vera hálffull. 7) Láttu plötuna neðarlega í ofn- inn og bakaðu í 15 mín. Tilbreyting: Uppskriftina má bæta með ýmsu móti og þá verður hver að velja fyrir sig. Mannlíf mælir með eftirfarandi tilbreytingum: 1) 1 dl afrifnu súkkulaði blandað síðast í deigið. 2) 1 dlaf rúsínum sem hristar hafa verið upp úr svolitlu hveiti (í plastpoka eða skál) bœtt í deigið. 3) V2 dlafkakó bœtt við hveitið og sett með því í deigið. 4) l/2 tsk. af góðu ávaxtamauki látin ofan á hverja köku. -jp Gangur lífsins! Táknmál umferðarmer- kjanna hefur löngum verið tal- ið ótvírætt. Nýja merkingu má þó finna eins og textinn hér að ofan sýnir. Við rákumst á þennan „gang lífsins" í JC fréttum sem bárust á ritstjórn Þjóðviljans. Húmorinn höfðaði til meginþorra blaða- manna-var það vegna kynferðis þeirra, karlrembusví....?? -ÍP Kvöldvaka Astin eykst... Þaðvaraðeins um eitt hugsað... ... að halda burt. Égbauðuppá tjald... Það var dama framundán. orlofskvenna Orlofsnefnd húsmæðra kynnir starfsemina og heldur upp á 25 ára afmæli sitt á fimmtudaginn. Þá verður kvöldvaka á Hótel Sögu, Súln- asal. Verður hún með hætti oriofsvöku þar sem söngur og hljóðfærasláttur, kvæðalestur, samtalsþættir og danssýning- ar hafa verið þátttakendum til skemmtunar. Húsmæður hafa á sumrin farið í viku ferðir og gist í heimavistar- skólum víða um land, síðustu tvö sumur á Hvanneyri í sjö hópum. Um 60 konur dvelja þar saman eina viku í senn. Á hverju ári hafa um 400 konur farið í sumarfrí á vegum orlofsnefndar húsmæðra. „Sérhver kona, sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu, á rétt á að sækja um orlof“, segir í lögum um orlof húsmæðra sem sett voru fyrir 25 árum síðan. Or- lofsnefndin skorar á allar hús- mæður að mæta á kvöldvökuna og rifja upp gömul kynni. -jP Þriðjudagur 29. janúar 1984 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 13 Hún sagðist vera á pillunni. Með fullu trukki. Hún sagði stopp... .. .svo hinn. ... það var hætta á ferðum. Þaðvarðekki Tólin á loft... aftur snúið. Húnlaug. Hún Heimurinn nrundi var ekki á pillunni. yfirmig. 9 mánuðum seinna hringdi ég á Það urðu tvíburar... .. .og erfiðið hófst. Hverersvo sjúkrabíl. tilgangurinn?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.