Þjóðviljinn - 29.01.1985, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 29.01.1985, Blaðsíða 6
VIÐHORF FLÓAMARKAÐURINN Til sölu Atonic Easy skíði 180 sm að lengd, rauð að lit ásamt stöfum og Nordica skíðaskóm. Skíðin eru svo til ónotuð og því mjög vel með farin. Sanngjarnt verð. Ath.: skórnir þurfa ekki að selj- ast með skíðunum. Upplýsingar í síma 75270. Ódýrt gólfteppi 13 ferm. til sölu, mjög vel útlítandi nælon-teppi. Verð 1000 kr. Uppl. í síma 39536. Tuskumottur Tek að mér að vefa tuskumottur. Breidd allt að 75 sm og lengd eftir pöntun. Gott verð, margir litir. Uppl. gefur Berglind í síma 39636. 4 herb. íbúð til leigu laus strax. Engin fyrirframgreiðsla. Tilboð merkt „Laugardalur" sendisttil auglýsingadeildar Þjóðviljans fyrir 31.jan. Til sölu Hókus-Pókus stóll og 3 rimlarúm með stoppuðum dýnum. Mjög vel með farin. Uppl. í síma 77783. Sófasett óskast Óska eftir litlu rauðu sófasetti og litl- um fataskáp. Uppl. í síma 31536. Óska eftir vel með förnu rimlarúmi. Hringið í síma 46348. Aukastarf Maður vanur ritstörfum og prófarka- lestri óskar eftir vel launaðri helgar- vinnu. Uppl. í síma 42109 á kvöldin og um helgar. Einbýlishús eða raðhús óskast á leigu á Rvík.-svæðinu. Reglusemi og snyrtileg umgengni. Meðmæli ef óskað er. Uppl. í síma 687507. Geymsluherbergi óskast Ung hjón vantar nauðsynleg geymsluherbergi til leigu fyrir litla búslóð. Uppl. í síma 14402. íbúð óskast á leigu 2-3 herb. á sanngjörnu verði. Uppl. í síma 20275. Reiðhjól tapaðist - reiðhjól óskast Reiðhjólið mitt „Speeder" tapaðist á Kárastíg fyrir u.þ.b. mánuði og þess vegna vantar mig reiðhjól, gefins eða á góðu verði. Hefur þú kannski séð gamla hjólið mitt? Ingólfur 5 ára, sími 38455. Myndarammar og málverkaprentanir á góðu verði. Myndabúðin Njálsgötu 44. Opið frá kl. 16-18. Til sölu frístandandi bókahillur. Um er að ræða 2 uppistöður, 3 mjóar hillur, 1 breiðhillu og blaðahillu. Verð 500 kr. (allt). Einnig 2 rúllugardínur úr basti, breidd 120x180 sm á kr. 250 stk. Sími 39917 e.kl. 18. Electrolux frystikista til sölu, 280 I. Uppl. í síma 84412. Tvöfaidur stálvaskur notaður, til sölu með áföstu 45 sm stálborði. Verð 2000 kr. Uppl. i síma 40163. Einnig fæst gefins notaður tví- breiður svefnsófi á sama stað. Yamaha YC 30 hljómsveitarorgel til sölu, 1 borð, 5 áttundir + 2 áttundir, stiglaus slide. Fæst á góðum kjörum. Uppl. í síma 81827. Bíiskúr óskast á leigu í vesturbæ eða á Seltiarnarnesi. Uppl. hjá Indriða í símum 44944 (vinna) og 28321 (heima). Prjónavél og frystikista til sölu. Electrolux frystikista 312 I á 10 þús. kr., Toyota prjónavél K-787 með öllum fylgihlutum á 14-15 þús. Má greiða í tvennu lagi. (Má greiða eftir mánaðamót). Uppl. gefur Mar- grét í síma 28321. Barnakojur Gamlar barnakojur fást gefins. Sími 43188, eftir kl. 17. Páfagauksbúr óskast til kaups, með eða án fugla. Einnig svart-hvítt sjónvarp. Uppl. í síma 79510 og 75525. Til sölu símaborð með Ijósi og skáhillu fyrir skrifborð til sölu. Smíða bókahillur og fl. eftir pöntunum. Sími 35742. Vilt þú læra tauþrykk? Komdu þá á námskeið núna. Kenns- la hefst á þriðjudagskvöldið 5. febrú- ar kl. 20 til 22.30 eða fimmtudags- kvöldið 7. febrúar á sama tíma. Hvort námskeið stendur yfir í 6 vikur. Upp- lýsingar í símum 77393 e.kl. 18 og 81699 á daginn. Óska eftir stúlku til að gæta 3 ára telpu, stöku sinnum á kvöldin. Bý í Efstasundi. Vinsam- legast hringið í Áslaugu í síma 39137 eftir kl. 17. Samtök um kvennaathvarf halda námskeið fyrir félagsmenn sína helgina 2.-3. febrúar nk.. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu samtak- anna i síma 23720 milli kl. 14 og 16 virka daga. Dekk til sölu 2 stk. negld snjódekk til sölu, stærð 13x590. Uppl. í síma 72072. Áskrifendur og aðrir lesendur Flóamarkaður Þjóðviljans er 2svar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum. Þetta er ókeypis þjón- usta fyrir áskrifendur, en kostar 200 kr. fyrir aðra, og þurfa þeir að koma á auglýsingadeild Þjv. Síðumúla 6 og staðgreiða auglýsinguna. Góð orð duga skammt. Gott fordæmi skiptir mestu máli yUMFERÐAR RÁÐ Framhald af bls. 5 lengur matur, öðru nær. Hún reynir að draga jafnaðarmerki milli hersins og NATÓ með frá- leitri túlkun á 4. grein N- Atlantshafssáttmálans. Jafn- framt fullyrðir hún að enginn greini þarna nokkurn mun. Má í því sambandi minna á málatil- búnað margra sorta marx- lenínista, t.d. í Noregi og jafnvel hér heima, auk þess sem augljóst er að herinn og NATÓ eru að- greind fyrirbæri, þótt tengd séu. Dæmin sanna að fyllsta ástæða sé til þess að óttast hernaðarí- hlutun Sovétríkjanna og fráleitt að vestræn ríki svo sem Danmörk og Noregur, sem Birna kallar sjálfsagt heimsvaldasinnuð auðvaldsríki, hafi ekki einhver samráð um það hvernig bregðast eigi við þessari hættu. Það er jafn augljóst, að skiptar skoðanir hljóta að vera uppi um það hvernig skuli að því staðið og hve mikil hættan er. Ég hygg til dæm- is, að Rússar hyggi fremur á land- vinninga í suðurátt til Indlands- hafs en vestur á bóginn. Þangað virðast þeim leiðirnar greiðari af ýmsum ástæðum, meðal annars vegna manna eins og Guðmund- ar Hallvarðssonar, sem ekki treystir sér til þess að mótmæla „lestrarherferðinni" í Afganistan með hinum óhreina „Heimdall- arskríl“. Auk þess hafa Rússar verið á þessari leið í tæp 400 ár. Þegar minnst er á að vinstri- menn láti ekki ágreining í utan- ríkismálum hamla samstarfi um lífsspursmál íslensks verkafólks, þá rísa hinir pólitísku Pavlov- hundar upp á afturlappirnar, rétt eins og til þess að árétta orð Marx um að hugmyndir lifi oft góðu lífi löngu eftir að þær hafa misst allt sögulegt inntak. Það er löngu tímabært að hætt sé að draga baráttu íslenskra launamanna fyrir mannsæmandi lífi austur á Volgubakka. Þeim fer vonandi að fækka, sem ekki vilja einu sinni tala við aðra en þá, sem hafa forkláraðar trúar- hugmyndir í stjórnmálum. Óskandi væri að þær blaðagrein- ar yrðu fátíðari sem segja í raun- inni lítið annað en: „Spegill, spegill, herm þú mér, hver rót- tækastur sé á landi hér.“ Þá neyðin er stærst er hjalpin næst Margur maðurinn hefur verið sósíalisti á trúarlegum forsend- um, en gert ýmsa góða hluti samt, sbr. Kommúnistaflokkinn sál- uga, og ekki má skilja greinar- korn þetta sem fyrirlitningu á þeim stórasannleiksmönnum, því mér er heldur hlýtt til þeirra. En ef menn geta ekki hugsað sér sós- íalisma án þess að eiga sér jarð- neskt vonarland - hið fyrirheitna land trúarinnar - þá má minna á spádóma Karls nokkurs Marx um að hið sósíalíska verkalýðsríki muni rísa á rústum háþróaðs tæknivædds auðvaldsþjóðfélags. f þeim skilningi væru Bandaríki Norður-Ameríku margfalt sósí- alískara vonarland en Rússland nokkurntíma, auk þess sem marxisminn öðlaðist aftur nýtt gildi í stað þess að bíða herfilegt niðurlag þar eystra á hverjum degi. Æfðum trúarfrömuðum ætti ekki að verða skotaskuld úr því að koma á slíkri siðbót. Við hin, sem viljum aflétta því oki fátæktar og misréttis, sem nú er verið að innleiða af öðrum stórasannleiksmönnum í nafni frelsisins, verðum að standa þétt saman og varpa fyrir borð gömlum trúarrollum, sem hafa sundrað okkur. í dag er ekki spurt um það hvað stefnan heitir né hvort stjórnmálamaðurinn sé ofan eða neðan við miðju. Krafan er árangur og ekkert annað. P.S. Þegar ég er að ganga frá þessum pistli berst mér í hendur grein ungs menntamanns með al- þýðuna í munninum, Páls Hall- dórssonar, jarðeðlisfræðings. Grein hans sver sig mjög í ætt við gjamm annarra Pavlovhunda við að verja Sovétríkin án þess að gera sér grein fyrir því, að því er best verður séð. Þessa grein mætti að öðru leyti draga saman í stutta bæn: „Ó, Guð, ég þakka þér, að ég er rót- tækari en aðrir menn“. Guðmundur Ólafsson MINNING Helgi Eggertsson F. 14. júlí 1932 - D. 18. janúar 1985 Þann 18. þessa mánaðar lést í sjúkrahúsi í Reykjavík, Helgi Éggertsson stýrimaður, en hann hafði um árabil átt við vanheilsu að stríða. Helgi var fæddur í Reykjavík 14. júlí 1932 og voru foreldrar hans ísfold Helgadóttir ættuð úr Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði og Eggert Bjarni Kristjánsson frá Bíldudal. Systkini Helga voru 10 og kom- ust 8 þeirra til fullorðinsára. Helgi tók próf frá Stýrimanna- skóla íslands 1957 og stundaði það starf til ársins 1962, en þá hóf hann störf hjá Skýrsluvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar og vann þar til dauðadags. Hann giftist sama ár eftirlif- andi eiginkonu sinni Jóhönnu Jó- hannesdóttur, sem ættuð er úr Skagafirði, og er ein af 7 dætrum Moniku á Merkigili, sem þjóð- kunn er. Helgi og Jóhanna eignuðust 6 mannvænleg börn, sem öll eru nú komin yfir tvítugt og flest búin að stofna sín eigin heimili og barna- börnin eru orðin 7. Þau hjónin reistu sér hús að Fagrabæ 16 á fyrstu árum eftir að byggð fór að rísa í því hverfi. Árið 1978 gekk Helgi fyrst form- lega til liðs við Fylki, en það ár var hann kosinn í stjórn knatt- spyrnudeildar félagsins. Á sama tíma var ég að láta af störfum sem formaður Fylkis, en þrátt fyrir það fór ekki fram hjá mér og öðrum, sem fylgdust með stafi félagsins, að til leiks var mættur liðtækur maður, sem bar titilinn „stýrimaður" með sæmd. Frá athöfnum hans stafaði ferskum andblæ, sem varð til að glæða starfsemi Fylkis nýju lífi. Hann átti frumkvæði að ýms- um nýjungum og má þar nefna fjáröfíun í formi auglýsinga, sem reynst hefur mikil lyftistöng, út- vegun á upptöku- og myndband- atækjum til upptöku á leikjum og öðru efni, sem gætt hafa húsa- kynni félagsins lífi og laðað að. Hann átti hugmynd að viður- kenningarskjölum félagsins og annaðist gerð þeirra. Hann sameinaði virka stuðn- ingsmenn Fylkis undir heitinu Jarlar Fylkis, sem nú er einskon- ar bakvarðasveit. Þá skal nefndur sá þáttur, sem hefur mest varanlegt gildi, en það snertir útbreiðslu og skipulags- mál, og er þá átt við árlega útgáfu á leikskrám, þar sem greint er frá leik og starfi í deildum félagsins og hefur ómetanlegt sögulegt gildi. Hér skal lokið upptalningu, sem gæti verið mun lengri. Helga var félagshugsjónin í blóð borin og hafði hann glögga yfirsýn yfir flest, sem snertir mannleg samskipti. Verk hans báru vitni um víð- sýni og hugkvæmni og hann lagði hlutlægt mat á aðstæður hverju sinni og brást við í samræmi við það. Hann virti hefðbundnar leikreglur, en lét ekki lagafor- skriftir hefta athafnafrelsi sitt, því að það að hjakka í sama far- inu var sama og afturför að dómi Helga Eggertssonar. Ein deild í íþróttafélagi var of þröngt svið fyrir athafnir Helga og má raunar segja, að öll starf- semi félagsins hafi verið það líka. Hann beitti sér fyrir auknu samstarfi innan Fylkis og lagði einnig rfka áherslu á samvinnu við önnur félög í hverfinu, því slík samstaða þjónaði hagsmunum okkar, sem ættum heima f „af- skekktri“ byggð. Helgi hafði fastmótaðar skoð- anir á mönnum og málefnum og gafst ekki upp við að koma því fram, sem hann taldi horfa til bóta, þó á móti blési í bili. Öll hans samskipti við aðra einkenndust af drenglyndi, og sá eðlisþáttur í fari hans aflaði hon- um trausts og virðingar sam- ferðamanna. Það er mikill sjónarsviptir að manni, sem búinn er jafn góðum kostum og Helgi Eggertsson var, en eftir standa sporin, sem vísa þeim, er við taka, fram á veginn. Kynni okkar Helga voru nær eingöngu tengd félagsstörfum, en þó leit ég á hann sem einn af mín- um persónulegu vinum og fyrir þá, sem tengjast félagsmála- vafstri, er það mikil og ánægjuleg lífsreynsla að kynnast slíkum manni og undir það munu margir af félögum mínum í Fylki taka. Jóhönnu og afkomendum þeirra hjóna sendi ég hugheilar samúðarkveðjur okkar, jafn- framt vænti ég þess, að tengslin við fjölskylduna muni ekki rofna við fráfall okkar ágæta félaga. íþróttafélagið Fylkir Hjálmar Jónsson. 6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. janúar 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.