Þjóðviljinn - 29.01.1985, Síða 2

Þjóðviljinn - 29.01.1985, Síða 2
FRETTIR Singapore Mikill hagvöxtur Ásmundur Stefánssonforseti ASÍ: Nánast algert einrœði í Singapore. Japanirþjóta áfram í tœkninni. Lífskjör góð í Japan. Skýrstefna í atvinnumálum; fær leið til að ná miklum hagvexti að er augljóst mál að hagvöxt- ur hefur verið gífurlegur í Singapore á undanförnum árum. Með margvíslegum aðgerðum hafa stjórnvöld laðað að erlenda aðila til að fjárfesta í iðnaði, en erlend fyrirtæki eiga nú um 70% alls iðnaðar í landinu, sagði Ás- mundur Stefánsson forseti Al- þýðusambandsins í samtali við Þjóðviljann í gær, nýlega heim- kominn frá Japan og Singapore. Iðntæknistofnun fslands skipu- lagði nýlega hálfsmánaðar ferð til Singapore og Japan, í því skyni að gefa þátttakendum kost á að kynna sér iðnað þessara ianda. í hópnum sem fór voru meðal ann- arra þrír fulltrúar Alþýðusam- bands íslands, þau Guðríður Elí- asdóttir og Magnús Geirsson auk Ásmundar. Þá sagði Ásmundur: Japanir þjóta áfram í tæknivæðingunni á meðan vesturlönd nærri sitja kyrr. Laun eru há í iðnaði, 50.000-60.000 kr. á mánuði. Lífs- kjör eru greinilega mjög góð, húsnæði að vísu bágborið og dýrt á okkar mælikvarða. í fram- leiðslunni leggja þeir áherslu á gæði og aftur gæði. Innra samráð í fyrirtækjum er mikið og verka- fólk virðist geta treyst því að það fái ávinning af aukinni framleiðni og tækni. Laun í Singapore voru hækkuð um 20% á ári árin 1979- 1981. Verðbólga erlítilþannigað kaupmáttur hefur aukist. Félags- legt öryggi er hins vegar mjög lítið, þó að í landinu sé öflugur lífeyrissjóður með 20-25% fram- lagi frá hvorum, verkamönnum og atvinnurekendum. Sjóðurinn fjármagnar umfangsmiklar fé- lagslegaríbúðarbygginar. Ástæð- an fyrir áhuga erlendu aðilanna á fjárfestingum í landinu er góð staðsetning, öflug opinber þjón- usta við atvinnulífið og pólitískur stöðugleiki, því að í landinu er nánast algert einræði, og hagþró- unin fullkomlega ríkisstýrð. Þó að lífskjör fari batnandi eru þau að sjálfsögðu ekki á nokkurn hátt sambærileg við það sem við þekkjum. I Japan gilda allt aðrar venjur en við þekkjum. Um 20-25% vinnandi fólks vinnur í stórfyrir- tækjum þar sem æviráðning er ríkjandi hefð. Þvf fylgir vissulega atvinnuöryggi en miklir erfið- leikar á að skipta um starf. Starfs- þjálfun er mjög öflug og vinnu- verndarmálum vel sinnt í Japan. „Hvaða lærdóma er hœgt að draga af því sem þið sáuð og heyrðuð í ferðinni?" „Meðal annars að skýr stefna í atvinnumálum og breið samstaða um að hrinda henni í framkvæmd er fær leið til að ná miklum hag- vexti“, sagði Ásmundur Stefáns- son að lokum. hégé. 1345 Fulltrúar minnihlutans í útgerðarráði fengu ekki einu sinni að vita að til stæði að ræða sölu togarans á fundinum. Beiðni um frestun var hafnað. BÚR Ögurvík kaupir Ingólf Amarson Meirihluti útgerðarráðs ákvað að taka tilboði upp á 77 miljónir kr. Sigurjón Pétursson: Greinilega stefnt aðþvíað leggja útgerð B ÚR niður Utgerðarfélagið Ögurvík h.f. hefur sent Bæjarútgerð Reykjavíkur kauptilboð í skut- togarann Ingólf Arnarson RE uppá 77 miljónir króna. Trygg- ingarverð togarans er 81,2 milj- ónir. Á aukafundi hjá útgerðarr- áði BÚR í gærmorgun ákvað meirihluti Sjálfstæðismanna í ráðinu að taka þessu tilboði. Sig- urjón Pétursson fulltrúi Alþýðu- bandalagsins í ráðinu bar fram tillögu um að fresta ákvarðana- töku í eina viku en það var fellt. Ástæðan fyrir því að Sigurjón bar þessa tillögu fram er sú að þegar boðað var til þessa auka- fundar ráðsins, s.l. laugardag, fengu fulltrúar minnihlutans í ráðinu ekki að vita hvert fundar- efnið væri. Þeir fengu því engan tíma til að skoða tilboðið né mál- ið í heild. Sigurjón Pétursson sagði í sam- tali við Þjóðviljann í gær, að ljóst væri nú orðið að Sjálfstæðismenn stefndu að því að leggja útgerð BÚR niður. Hverjum vanda sem að höndum bæri væri mætt með því að skera niður og selja skip. Sem kunnugt er var togarinn Bjarni Benediktsson seldur í sumar er leið. í tilboði Ögurvíkur í togarann Ingólf Arnarson er farið fram á að seljandinn, BÚR, standi straum af öllum kostnaði sem fylgja þeim viðgerðum sem Ög- urvik h.f. vill að framkvæmdar verði á skipinu og var það sam- þykkt af útgerðarráði. Mun sá kostnaður ekki verða undir 1,5 milj. kr. Þá má að lokum geta þess að veiðikvóti skipsins er seldur með því en hann er fyrir árið 1985 3.952 lestir. -S.dór 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriaiudagur 29- janúar 1984 í Póllandi höfðu þeir líka ríkis- Isaksóknara sem þekkti tak- markanir frjálsra verkalýðsfé- laga. Þjóðviljinn vann Mogga Á sunnudag var með pompi og pragt haldið fjölmiðlamót í innanhússknattspyrnu í Haga- skóla. DV vann NT í úrslita- leiknum með 5 mörkum gegn 2, en af öðrum úrslitum ber að nefna frækilegan sigur Þjóðvilja- liðsins á Morgunblaðsmönnum, 7-2. Keppt var í tveimur riðlum og tóku DV, Alþýðublaðið, Helg- arpóstur, Frjálst framtak og Ríkisútvarpið-2 þátt í öðrum, sem DV-liðið sigraði, en í hinum Ríkisútvarpið-1, NT, Morgun- blaðið og Þjóðviljinn, og varð NT-liðið efst í þeim riðli. Þjóð- viljinn vann RÚV 6-3, tapaði naumlega fyrir NT 2-3 og gjör- sigraði Morgunblaðið. Ýmsir þekktir fjölmiðla- og knattspyrnumenn léku listir sínar í Hagaskóla, Ómar Ragnarsson (RÚV), Ingólfur Margeirsson (HP), nafni hans Hannesson (RÚV), Eiríkur safnvörður Jóns- son (DV), Magnús Ólafsson (DV), Hjörtur Gíslason (Mbl.), Ágúst I. Jónsson (Mbl.), Friðrik Indriðason (Abl.), - Jim Smart (HP) og svo framvegis. Hið frækna Þjóðviljalið skipuðu Frosti Eiðsson, Hreiðar Sig- tryggsson, Lúðvík Geirsson, Mörður Árnason og Víðir Sig- urðsson. _m Olíuverð Vill ekki olíulækkun Samband sveitar- félaga mótmœlir harðlega hugmynd forsœtisráðherra um niðurfellingu landsútsvars afolíu Samband íslenskra sveitarfé- laga hafnar alfarið þeirri hug- mynd Steingríms Hermanns- sonar forsætisráðherra að fella eigi niður landsútsvar af olíu til þess að lækka olíuverðið. Stjórn sambandsins segir í á- lyktun sem hún hefur gert um málið, að hún muni aldrei ljá máls á því að landsútsvar olíufé- laganna verði lagt niður. Segir þar ennfremur að þar sem olíufé- lögin greiða ekki aðstöðugjald til sveitarfélaga, heldur landsút- svar, þá séu engin rök fyrir því að fella það niður og olíufélögin ein fyrirtækja verði undanþegin skattgreiðslum til sveitarfélaga. Nær væri, ef forsætisráðherra vill láta olíufélögin fá sérstöðu varðandi skattgreiðslur til hins opinbera, að lækka skatta olíufé- laganna til ríkissjóðs. c j -

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.