Þjóðviljinn - 29.01.1985, Page 7
Dansandi
í miðri
viku
Þjóðdansafélagið með námskeið í
finnskum dönsum. Læra um 5
dansaákvöldi
„Hvað kommer eftir det?“,
var oft spurt á æfingum hjá
Þjóðdansafélaginu fyrir helgi.
Þangað var Anna-Liisa Salla-
vuori þjóðdansakennari frá
Finnlandi komin og kenndi ís-
lenskum að stíga sporin á
finnskan hátt.
30 manna hópur, sem greini-
lega var í góðri æfingu, bætti
við kunnáttu sína nýjum spor-
um og snúningum og lærði um
5 dansa á kvöldi í síðustu viku
meðan Anna-Liisa var með
honum. Flóknar skiptingar;
herrar í eina áttina, dömur í
hina - sveifla í hring, þrjú skref
til hægri og sex til vinstri, aftur
til hægri o.s.frv. Þetta flókna
munstur líkamshreyfinga
sýndist okkur að þeim þætti
ofur auðvelt viðureignar. Eftir
að Anna-Liisa hafði farið tvisv-
ar sinnum yfir sporið dansaði
hópurinn samstíga við undir-
leik Wilmu Young og Þorvaldar
Björnssonar.
Hjá Þjóðdansafélaginu er fólk
á öllum aldri dansandi og sífellt
að læra eitthvað nýtt. Dans-
kennsla er fyrir hópa frá 4 ára
aldri og upp úr. Kolfinna Sigur-
vinsdóttir kennari sagði okkur að
henni fyndist skipta miklu máli
að fá nemendur unga að árum í
kennslu. „Þá eru þau svo opin og
eiga auðvelt með að tjá sig í
hreyfingum“.
Þjóðbúningasaumaskapur er
einnig stundaður af félögum, sem
eiga mikið úrval búninga. Þjóð-
dansafélagið hefur unnið að því
að safna búningum og sauma eftir
heimildum sem m.a. hafa fengist
hjá Þjóðminjasafninu.
Nú er Þjóðdansafélagið að
byggja með Farfuglum við Sund-
laugaveg. Húsið er orðið fokhelt.
Sverrir M. Sverrisson sagði okk-
ur að mikil sjálfboðavinna hefði
verið unnin þar, bæði í
byggingarvinnu og einnig við sýn-
ingar og fleira sem greiðsla hefur
fengist fyrir. -jp.
Plógmannadans. Kolfinna Sigur-
vinsdóttir, íþrótta- og þjóðdansa-
kennari, og Sverrir M. Sverrisson
endurskoðandi túlka hér í dansi
þegar bóndinn kemur bakveikur
og þreyttur heim af akrinum. í fyrri
hluta dansins hangir herrann á
dömunni og stynur þungan en
síðan hressist hann allur þegar á
líður. Þau Kolfinna og Sverrir
segja þetta ágæta samlíkingu, því
oft gerist það að þau mæti þreytt í
dansinn en hressist ævinlega á
skömmum tíma. Sverrir hefur
dansað þjóðdansa í 30 ár og Kol-
finna í 20 ár. Þau kynntust í Þjóð-
dansafélaginu og hafa síðan
dansað saman í gegnum lífið.
Hún hefur kennt dans öll þessi ár
og hann var lengi formaður fé-
lagsins. Mynd: eik.
..og halla svo til vinstri, hægt-
hægt.... Um að gera að vera jafn
léttur á sér og lundin er létt! Mynd:
- eik -
UMSJÓN: JÓNA PÁLSDÓTTIR
Þrlðjudagur 29. janúar 1984 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 7