Þjóðviljinn - 29.01.1985, Page 13
Götubardagi í Belfast: 2400 eru fallnir.
írlandsmál
Forsætisráöherrarnir Margareth
Thatcherog Garret Fitzgerald.
Fyrir skömmu hafnaöi Mar-
grét Thatcher þrennskonar
hugmyndum um framtíð Norð-
ur-lrlands, sem forsætisráð-
herra írlands, Garret FitzGer-
ald, lagði fyrir hana og allmikl-
ar vonir voru tengdar við á ír-
landi. Þetta gerðist um svipað
leyti og lögreglusveit reyndi
að rífa írska fánann af líkkistu
gamals manns í bænum Lurg-
an á Norður-írlandi. Bæði
þessi tíðindi voru túlkuð á
þann veg, að herskáir mót-
mælendur, sem mega ekki
heyra annað nefnt en að engu
verði breytt um samband
Norður-írlands og Bretlands
fari sínu fram með frekju á hin-
um ýmsu vígstöðvum írlands-
mála.
Næstum því tólf árum eftir að
borgarastríðsástand á Norður-
írlandi varð til þess að Bretar
leystu þing þessara sex sýslna upp
og tóku að stjórna bejnt frá
London, er það enn ólöglegt
frum í vissum hlutum lands þeirra
að sýna hinn þrílita fána Irland
eða jafnvel tala gelísku. Lögregl-
an sem reyndi að taka fánann af
líkkistunni var að framfylgja
lögum í ríkishluta, þar sem 40%
íbúanna telja sig fra og vilja sam-
einingu írlands.
Tillögur
frá Dublín
Neikvæð afstaða til írskrar
menningar og sérstöðu hefur vit-
anlega skapað mikla beiskju á
Norður-írlandi. Og eftir að Mar-
grét Thatcher hafnaði síðustu
sáttahugmyndum stjórnarinnar í
Dublin með nokkrum þjósti eins
og hennar var von og vísa, þá
mun gremjan verða mikil einnig í
írska lýðveldinu. Sumir frétta-
skýrendur telja að svör járnfrúar-
Frú Thatcher
hafnar tillögum
írskra
stjórnmála-
flokka
Sinn Fein og
þar með herská
þjóðernishyggja
eflist
innar muni kosta Garret FitzGer-
ald, leiðtoga borgaraflokksins
Fine Gael, forsætisráðherrastól-
inn, en hann hafði verið nokkuð
drjúgur yfir því að hann væri góð-
ur vinur Margrétar Thatcher og
gæti talað hana til.
írar lögðu til grundvallar við-
ræðna milli forsætisráðherranna
skjal sem nefnist „Nýja írlands-
skýrslan“. Þetta skjal nýtur
stuðnings þriggja helstu pólitísku
flokka írska lýðveldisins og svo
SDLP, helsta flokks kaþólskra á
Norður-írlandi. Því mátti halda
fram, að þrír af hverjum fjórum
kjósendum á samanlögðum sýsl-
um írlands stæðu á bak við til-
lögur sem í skýrslunni voru. Þetta
átti að vera lokatromp stjórnar-
innar í Dublin og „löghlýðinnar“
írskrar þjóðernisstefnu.
Þjóðarsátt
og róttækni
Hálft annað ár hefur stjórnin í
Dublin undirbúið málflutning
sinn af kappi og virðist hafa verið
farin að trúa því að Margrét
Hver er hvað
á Norður-írlandi?
Hálf önnur miljón býr á
Norður-írlandi. 60% þeirra eru
mótmælendur, flestir afkom-
endur Skota sem fluttir voru til
írlands og fengu á sínum tíma
jarðir sem írar voru flæmdir
frá. 40% íbúanna eru kaþól-
skir. Af sögulegum ástæðum
ræður uppeldi í tiltekinni kirkju
mestu um pólitísk viðhorf
manna.
Norðurírska þingið, Stormont,
starfar ekki. Einn ráðherra í
bresku stjórninni fer með mál
Norður-írlands. Þar eru kosnir
17 þingmenn á þingið í London.
Þeir skiptast með þessum hætti:
11 eru „Opinberir Sambands-
menn“ mótmælendur, miðju- og
hægrisinnaðir. Takmark þeirra er
óskert samband við Bretland.
3 eru Demókratískir sam-
bandsmenn. Mótmælendur,
lengst til hægri. Þeir vilja óskert
samband við Bretland, en heima-
stjórn og heimalöggjöf að auki. 1
þingmaður er óháður sambands-
maður.
1 kemur frá SDLP,Sósíaldem-
ókratíska verkamannaflokkin-
um, sem er kaþólskur miðju- og
vinstriflokkur. Takmark hans er
sameinað írland.
1 er frá Sinn Fein,sem er hinn
pólitíski armur ÍRA, frska lýð-
veldishersins. Tekur ekki sæti á
þinginu í London.
Yfirburðir mótmælendaflokka
í kosningum umfram skiptingu
íbúa eftir trúaflokkum, eiga sér
skýringu m.a. í því einmennings-
kjördæmafyrirkomulagi sem kos-
ið er eftir. Yfirleitt er öllum kosn-
ingum svo háttað á frlandi, að
mótmælendur fái sem allra mest
úr sínum atkvæðum en kaþólskir
sem allra minnst.
IRA, írski lýðveldisherinn,
berst É'rir sameinuðu og sósíal-
ísku lrlandi. Önnur vopnuð
samtök kaþólikka er INLA Þjóð-
frelsisher írlands.
UDF,Varnarher Ulster, heita
vopnuð samtök mótmælenda
sem berjast gegn IRA.
í RUC, lögreglunni, eru 8000
manns
í breska hernum 9500
f UDF, Varnarherfylki Ulster
700 manns.
Síðan 1968 hafa 2400 manns
fallið í átökunum. Meira en
helmingur þeirra eru óbreyttir
borgarar. Mótmælendasveitir
hafa drepið 560 þeirra, IRA og
skyldar sveitir 490, öryggissveitir
(herinn, lögreglan) 160. Ekki er
vitað um 140 óbreytta borgara,
hver þeim kom úr heimi.
(Byggt á Guardian)
Thatcher mundi fallast á ein-
hverja nýja lausn. Um leið veit
stjórnin vel af því, að máiamiðl-
anir hennar hafa vakið gremju
þeirra þjóðernissinna sem rót-
tækastir eru. Flokkurinn Sinn
Fein, sem er pólitískur bakhjarl
IRA, írska lýðveldishersins, er í
sókn og gæti kannski truflað þá
„þjóðarsátt“ sem stóru flokkarn-
ir hafa setið á í nær sextíu ár.
Allan þann tíma hafa valda-
flokkarnir tveir, Fina Gael og Fi-
anna Fail, viðurkennt í verki, að
háskinn af breskum hefndarað-
gerðum stæði í vegi fyrir samein-
ingu írlands - en ekki fyrir réttin-
um til sameiningar. Þetta þýðir
að sameiningin er stefnumál sem
ekki var talið þorandi að halda til
streitu. En ýmislegt breyttist með
átökunum áNorður-frlandi, ekki
síst þegar IRA-maðurinn Bobby
Sands var kosinn á breska þingið
meðan hann var í hungurverk-
falli. Hungurverkföllin fengu
herskáa þjóðernishyggju til að
blossa upp aftur.
Auðmýking
Ýmsir fréttaskýrendur telja að
vaxandi áhrif Sinn Fein boði ekk-
ert gott fyrir FitzGerald og kol-
lega hans, og þeir hafi viljað nota
það sem tromp á Margréti Thatc-
her að það væri þó skárra að
semja við skikkanlega borgara
írska eins og þá, heldur en ein-
hverja sem róttækari eru. En
járnfrúin brást vonum hinna
írsku stjórnmálamanna. Hún brá
við hart og títt og hafnaði öllum
þeim hugmyndum sem settar
voru fram í skýrslunni um Nýtt
írland. Hún hafnaði hugmynd-
inni um sameinað írland. Hún
hafnaði hugmyndinni um írland
sent bandalagsríki. Hún hafnaði
hugmyndum um sameiginlega
bresk-írska framkvæmd ríkis-
valdsins á Norður-írlandi.
Það var kannski ekki nema von
að Haughey, leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar á írska þinginu
segði við FitzGerald forsætisráð-
herra: „Þú hefur leitt þetta land
út í þá verstu auðmýkingu sem
við höfum þolað á seinni tímum“
„Það er glæpur“
Mörg fleiri dæmi mætti rekja
UMSJÓN: ÁRNI BERGMANN