Þjóðviljinn - 29.01.1985, Blaðsíða 14
HEIMURINN
Til sölu íbúðarhús
á Selfossi
Tilboð óskast í húseignina Sólvelli 3, Selfossi ásamt til-
heyrandi leigulóðaréttindum. Stærð hússins er 215,8 m2
(íbúðarhús 192,5 m2, bílskúr 23,3 m2).
Brunabótamat er kr. 2.800.000.- Húsið verðurtil sýnis dag-
ana 30. og 31. janúar milli kl. 4-7. Tilboðseyðublöð liggja
frammi á staðnum á skrifstofu bæjartæknifræðings Selfoss-
kaupstaðar og á skrifstofu vorri.
Kauptilboð þurfa að hafa borist skrifstofu vorri fyrir kl. 11:30
f.h. fimmtudaginn 7. febrúar n.k.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Sjúkraliðar
takið eftir
Óskum að ráða sjúkraliða í sumarafleysingar. Uppl.
veitir hjúkrunarforstjóri í síma 96-41333 eða á kvöldin í
síma 96-41774.
Sjúkrahúsið á Húsavík
Þroskaþjálfi
Laus er staða þroskaþjálfa við vistheimilið Sólborg
Akureyri frá 1. mars n.k.
Upplýsingar í síma 96-21755 alla virka daga frá kl.
9.00- 17.00.
Forstöðumaður
Bæjarlögmaður
Keflavíkurbær óskar eftir að ráða bæjarlögmann. Þarf
að hafa umsjón með innheimtu.
Frekari upplýsingar veitir undirritaður.
Bæjarritari
SÍMNOTENDUR í
REYKJAVÍK
Símanúmer innheimtunnar er
28000
Símstöðin í Reykjavík.
Fóstrur
Búðahreppur Fáskrúðsfirði auglýsir eftir forstöðukonu
að leikskóla sveitarfélagsins. Kaup og kjör samkvæmt
nánara samkomulagi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist skrifstofu Búðahrepps Skólavegi 53, Fá-
skrúðsfirði fyrir 15. feb. Upplýsingar veitirsveitarstjóri í
síma 97-5220.
Vinum mínum, fyrrum samstarfsmönnum,
frændum mínum og fjölskyldu þakka ég inni-
lega hlýjar kveðjur og góðar gjafir á átt-
ræðisafmæli mínu þann 21. desember s.l.
Ég óska ykkur góðs og gleðilegs árs.
Þorsteinn Ö. Stephensen
• Blikkiðjan
m m Iðnbúð 3, Garðabæ
Onnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verðtilboö
SÍMI 46711
IRLANDSMAL
■ ■ ■ ■ ■
um aö írar eru reiðir yfir því að
hinni kurteislegu röksemda-
færslu þeirra hefur verið vísað á
bug eins og hverju öðru skítti.
Breska stjórnin sýnir ekki lit á
málamiðlunarvilja, hún heldur til
streitu gömlum formúlum um
innanlandsumbætur á Norð-
ur-írlandi. Flokkur kaþólikka og
stjórnin í Dublin eiga barasta að
gefast upp og styðja hið dauða-
dæmda og óstarfhæfa þing í Belf-
ast, Stormont. Um þessa fram-
göngu segir Kevin Toolis í grein í
breska blaðinu Guardian:
„Frú Thatcher og ráðherrar
hennar hafa misskilið írska þjóð-
erniskennd með svo herfilegu
ensku kæruleysi og hún hefur
niðurlægt svo opinberlega henn-
ar sterkasta hugsanlega pólitíska
bandamann (FitzGerald) að
þetta háttalag verður ekki aðeins
kallað dæmi um stórkostlega
óhæfni - það er blátt áfram glæp-
ur, glæpur sem írar, breskir her-
menn og norðurírskir lögreglu-
menn munu gjalda fyrir með lífi
sínu“.
Og það er sprengt
Og í Belfast heldur allt áfram
sem fyrr - stríðið er löngu orðið
hversdagslegt og hefur óaftur-
kræf áhrif á viðhorf og viðbrögð
yngri kynslóðarinnar. Sáttakon-
urnar Maireead Corrigan og
Betty Williams, sem fengu friðar-
verðlaun Nóbels fyrir sína við-
leitni, eru flúnar af hólmi. Og
fimmti hver maður á Norður-
írlandi er atvinnulaus, og annar
hver maður í hinum kaþólsku
hverfum Vestur-Belfast er at-
vinnuleysingi. Lögreglan er eini
aðilinn sem spyr eftir auknu vinn-
uafli. Á Norður-írlandi eru nú
starfandi átta sinnum fleiri fanga-
verðir en fyrir fimmtán árum....
ÁB
Irsk
tunga
stendur
höllum
fæti
Eins og kortið sýnir er Gaeltacht, byggðir þar sem írska er notuð hvunndags,
ekki stórt svæði.
Margir vildu
kunna málið vel en
árangurinn lœtur á
sér standa
Talið er, að um 100 þúsund
manns noti írsku í daglegum
samskiptum, en allmiklu fleiri
segjast kunna málið. Þessi
keitneska tunga var notuð af
miklum meirihluta íra fram
undir 1800, en bresk ný-
lendupólitík, hungursneyð og
landflótti lögðust á eitt um að
útrýma málinu - um 1890 var
svo komið að 85% lands-
manna kunnu aðeins ensku.
Síðan þá og ekki síður eftir að
Suður-írland varð sjálfstætt ríki
hefur barátta fyrir endurreisn
tungunnar verið mjög á dagskrá
hjá þjóðernissinnum af flestum
tegundum. En árangurinn hefur
ekki verið mikill. Það mun
reyndar rúmlega áætlað að 100
þúsundir manna noti írsku í dag-
legum samskiptum, og eru þeir
flestir í þeim byggðum á vestur-
strönd landsins sem kallast Ga-
eltach og njóta ýmiskonar fyrir-
greiðslu og styrkja.
Vafasöm miljon
írska er opinbert mál í írska
lýðveldinu og það er ljóst að
margir skammast sín fýrir að
kunna það ekki. f könnun sem
gerð var árið 1981 kom í ljós að
rúmlega miljón manns, eða
31,6% af landsmönnum, töidu
sig tala írsku. Öllum ber saman
um að þessi tala sé fjarri öllum
veruleika. í grein eftir Máirtin Ó
Murchú, sem nýlega birtist í Ire-
land Today er talið, að þessa tölu
beri að skilja svo, að margir
þeirra sem skilja sitthvað í málinu
en tali það ekki lýsi sig mælandi á
írsku. I raun og veru, segir í þess-
ari grein, gæti það legið nærri að
um 10% kunni málið allvel og
noti það þó nokkuð, önnur 30%
hafi sæmilega en fyrst og fremst
Ovirka þekkingu á málinu, en 20-
30% hafi lágmarkskunnáttu í
málinu. (Þess skal getið að flestir
munu fá einhverja nasasjón af
máli feðra sinna í skólum, en
írskuvinir kvarta mjög yfir því að
sú kennsla sé mest til mála-
mynda.)
Velviljaður
slappleiki
Nýleg könnun sýnir svofellda
afstöðu landsmanna til stöðu
írsku í skyldunámsbekkjum
skóla:
Allt sé á ensku 3%
frska sé aðeins ein námsgreina
72%
Sum fög að auki á írsku 4%
Jafnmörg fög séu kennd á
írsku og ensku 16%
Sum fög á ensku 1%
Enska sé aðeins ein af
námsgreinum 4%
Þetta er fróðleg útkoma og ír-
skuvinir geta að minnsta kosti
huggað sig við það, að mjög fáir
vilja með öllu segja skilið við mál
feðranna.
Hitt er erfiðast fyrir endur-
reisnarmenn, að þeim börnum
hefur fækkað mjög sem heyra
írsku að ráði í sínu uppeldi. Mjög
margir þeirra, sem enn teljast
nokkurnveginn írskumenn, voru
aldir upp í plássum og fjöl-
skyldum sem notuðu málið
hvunndags - en þetta svið hefur
þrengst með uggvænlegum hraða
hin síðari ár. Áb
Ritstjórar Moming Star
reknir úr breska
kommúnistaflokknum
Ritstjórar breska kommún-
istablaðsins Morning Star,
Tony Chater og David Eithfi-
eld, hafa verið reknir úr flokkn-
um og fjórir aðrir áhrifamenn í
flokknum í London.
f samþykkt
framkvæmdanefndar flokksins
um málið segir, að Morning Star
hafi verið „þröngt og sértrúar-
flokkslegt“ blað og málpípa
þeirra sem stundað hafi klíku-
starfsemi. Þá var framkvæmda-
nefndin óánægð með að Morning
Star hefur skrifað um sósíalísk
ríki gagnrýnislaust með öllu og án
þess að viðurkenna nauðsyn þess
að byggja upp sósíalískt lýðræði.
Ritstjórarnir hafa semsagt
beðið ósigur fyrir Evrópukom-
múnistum í breska flokknum en
ýmisleg skeyti hafa gengið á milli
þeirra og Sovétvina í lesenda-
dálkum blaðsins að undanförnu.
Má vera að í hönd fari kiofningur
í Kommúnistaflokki Bretlands,
sem talinn er hafa um 16 þúsund
meðlimi. Hann á ekki sæti á þingi
en nýtur talsverðra áhrifa í
sumum verkalýðsfélögum, m.a.
meðal kolanámumanna.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. janúar 1984