Þjóðviljinn - 29.01.1985, Síða 15
FRETTIR
Þorrí
blótaður
Þorrablót Alþýðubandalagsins
í Reykjavík verður haldið laugar-
daginn 2. febrúar að Hverfisgötu
105. Húsið verður opnað kl.
19.30 og hefst borðhald kl. 20.30.
Veislustjóri er Silja Aðal-
steinsdóttir.
Ávarp flytur Jón Hnefill Aðal-
steinsson og undir borðhaldi
leikur Guðmundur Hallvarðsson
á gítar og syngur vísur. Að borð-
haldi loknu leika Graham Smith
og Bergþóra Árnadóttir fyrir
dansi og skemmta í vestursal en í
austursal mun diskótekið duna.
Á blótið bregða sér einnig 2
leynigestir.
Verð miða er 750 kr. og þá er
hægt að nálgast á skrifstofutíma á
Hverfisgötu 105 eða með því að
hringja í síma 17500.
Laugardaginn 2. febrúar held-
ur Alþýðubandalagið í Kópavogi
árshátíð sína í Þinghól. Leikarar
frá Leikfélagi Reykjavíkur verða
með skemmtiatriði og Böðvar
Guðlaugsson les upp. Að loknum
skemmtiatriðum verður borinn
fram heitur pottréttur. Rétt er að
vekja athygli á að hér er ekki um
Þorrahlót að ræða en hins vegar
gengst Alþýðubandalagið í
Kópavogi fyrir íslandskvöldi í
mars.
Þá hefur heyrst að Alþýðu-
bandalagið í Garðabæ haldi
Þorrablót sitt um þarnæstu helgi,
10. febrúar, þannig að velunnar-
ar Alþýðubandalagsins fá mörg
tækifæri til að gleðjast saman á
næstunni. -ARÓ
Þrír taka lagið á Þorrablóti Alþýðubandalagsins í Reykjavík 1983. Frá vinstri Sigurdór Sigurdórsson, Svavar Gestsson og Sigurjón Pétursson. Ljósm.-eik.
Offjárfesting
Athugasemd Landsvúkjunar
r
Itilefni af leiðara í Þjóðviljanum
þann 26. janúar s.l. og öðrum
fréttaflutningi í blaði yðar, varð-
andi ásakanir um svokallaða of-
fjárfestingu Landsvirkjunar í
orkuöflun á undanförnum árum
og tilheyrandi hækkun á raf-
magnsverði til almenningsveitna,
fer ég vinsamlegast fram á að þér
birtjð eftirfarandi athugasemd.
Landsvirkjun hefur sent yður
margvísleg gögn þar sem sjónar-
mið stjórnenda og starfsmanna
fyrirtækisins varðandi þetta mál
eru skýrð og sýnt fram á að ofan-
greindar ásakanir eiga ekki við
rök að styðjast. í blaði yðar hefur
hins vegar ekkert verið birt af
þeirri réttmætu gagnrýni á full-
yrðingar Finnboga Jónssonar
sem þar koma fram. Þykir mér
fullmikið komið af einhliða um-
fjöllun málsins í Þjóðviljanum og
vil því upplýsa lesendur blaðsins
um helstu rök Landsvirkjunar
gegn málflutningi Finnboga.
1. Þegar vatnsafl er virkjað til
raforkuframleiðslu gerist það að
jafnaði í áföngum sem gera betur
en að anna markaði um eitthvert
árabil. Hafa verið leidd rök að
því, að fyrir hinn almenna mark-
að hér á landi sé hentugt að virkja
í meðalstórum virkjunum á borð
við t.d. Hrauneyjafossvirkjun
(850 GWst/ár) og Blönduvirkjun
(750 GWst/ár) og fyrrverandi
iðnaðarráðherra Hjörleifur
Guttormsson hélt því einnig
ákveðið fram að Fljótsdalsvirkj-
un hentaði vel fyrir hinn almenna
markað, en orkumáttur hennar
er áætlaður u.þ.b. rúmlega 1300
GWst á ári. Það er ljóst sé
reiknað með að vöxtur hins al-
menna markaðar nemi um 100
GWst/ár að það tekur markaðinn
allmörg ár að fullnýta slíka virkj-
unarkosti. Af þessu leiðir að sé
virkjað eingöngu fyrir hinn al-
menna markað hlýtur það að
leiða til þess að jafnan sé um
nokkra umframorku að ræða
nema um það leyti sem ný virkjun
á að taka til starfa. Áætlað er að
Blönduvirkjun komi í gagnið
þegar núverandi orkuöflunar-
kerfi er fullnýtt. Myndast því
fyrsta árið um 600-700 GWst um-
framorka í kerfinu ef ekki kemur
til meiri markaður en aukning í
orkueftirspurn almennings-
veitna.
getunnar sem nú er í landskerfinu
og stafar frá þeirri virkjun með
engu móti verið rakin til offjár-
festingar að mati Finnboga sjálfs.
Það er heldur ekki hægt að kenna
Landsvirkjun um orkuöflunarað-
gerðir við Kröflu, en á síðustu 2-3
árum hefur aflið þar verið aukið
um u.þ.b. 15 MW. Þá stendur
eftir að ráðist hefur verið í Sultar-
Nú eftir á séð má fallast á það, en
þegar ákvörðun um framkvæmd-
ir við Kvíslaveitu var tekin
horfðu markaðsmál öðurvísi við
en nú. Ef sanngjarnt þykir að
Landsvirkjun hefði mátt vita bet-
ur en aðrir um það hvernig mark-
aðsmál myndu þróast má halda
því fram nú að Landsvirkjun
Afhiupun ber árangur
■ K i nu pru svor I tagnaöi F.nnbog. Þes:
aaanryni þeirra sem veldur þv' rtaasliosiö 1 unar
--„„ ii iiiinii Ainmais i 9a9 . ’ . _lALcms komm tram i dagsijos i anmleat
:i^^rs,^rnem1sa,rn1al,4.,M5
■éum «ona Emung.s a-lcgur va*tak
iöut al DObsar, rongu
n„ „rona Veqna ticssara v„
na t andsvirkjunar nelur orkuvoró 1,1 lanos
, urn næstum pv. nclminq
,f auóvS o*ker. annaö on te.k.log
fa aímannatr: or, latt holu,
„ umræöur^ÞÞO.a'391™ Þar Mli) ,a„ð a
' * <|Uf,^aoq menn beðið pe,"a
gagnrvnrÞemasemv^pviaónu^usvoj
Landsvirkjunar loksins o teks, stjorn
Og paö vfðu'aASta® kostulegan hnng , knng-
Lm Slatg Hun sendrr neln.lega ira se, atykn
r par sem
bug - emu orí)'™ . d qa ur framkvæmda-
Landsvakjun hygg st d agí ^ ^ ^ ^ sem
hraða a næsta a .. raðiegast
Fmnbogi Jonsso !nrst,0rar Landsvirkjunar
Su læKkun ,semhi?rtf,SJ°Gaqnryn. F.nnboga
hafa tallist a i tfamhad 9'9 V fram-
mun leióa t.l pess aö ® an3 nvrra orku-
kvæmdum og^anhsok 9m,í,aö h|na
uppÞaflegu^a^Þun l vtölali V’ö P]OÖv,';ann, qæ,
fagnaö, F.nnbogr Þessan aKvoröun L.rnrlsvvk,
Unpr,atl lyrtr aumlegt y„rk,o, 'ors'l™;'
vtrkjunar er Ijost aö ursiitm5,',u
na'a gagnrynl hotloys, ly , '• > „ ð
skuklapagga sem olterö pess "* ',J V
,nr,Él„r stendu, sam, sem aöur ,,o
,n er enn til staðar Við ÞurU.m 1' 'm
um 40 proscnt hærra vcrö'ynr ot ^
vrö kaupum Poss, m.slok "'l '■• ■' / ,
ytirstfom Landsvirkjunar o • ,
stjorna þessu m,k,lvæqa tyr næk, lands . „
H,n rokrotta möurstaóa mals, s . .„
Skipl vcró, um menn v,ö sl|omvol La
ar
Nú má segja að um óvenjulega
mikla umframorku sé að ræða í
raforkukerfi landsmanna svona á
milli meiri háttar virkjanaáfanga
þ.e. Hrauneyjafossvirkjunar og
Blönduvirkjunar. Þetta er samt
ekki uppgötvun Finnboga Jóns-
sonar heldur staðreynd sem á sér
sína skýringu í því m.a. hve stutt
er síðan Landsvirkjun hefur lagt í
orkuaukandi aðgerðir á Þjórsár-
svæðinu þ.e. Sultartangastíflu og
Kvíslaveitu. Þó má heldur ekki
gleyma að aflaukning hefur kom-
ið til í Kröflu á sama tíma, sem
hefur aukið orkumátt landskerf-
isins um allt að 100 GWst/ár.
2. Þar sem Finnbogi Jónsson
hefur viðurkennt að Hrauneyja-
fossvirkjun hafi komið á réttum
tíma getur sá hluti umframorku-
tangastíflu og Kvíslaveitu eftir að
Hrauneyjafossvirkjun tók til
starfa. f Sultartangastíflu var ráð-
ist fyrst og fremst til að auka
rekstraröryggi Búrfellsvirkjunar.
Var sú ákvörðun staðfest af þá-
verandi iðnaðarráðherra Hjör-
leifi Guttormssyni hinn 8. jan.
1982 á þeirri forsendu að hér væri
um öryggisráðstöfun að ræða.
Þar með er ekki hægt að telja að
hér hafi verið um offjárfestingu
að ræða. Finnbogi Jónsson telur
þó að svo hafi verið vegna þess að
þessi öryggisráðstöfun hafi verið
óþörf. Þykist hann þar hafa betra
vit á hlutunum en rekstrarmenn
Landsvirkjunar.
Þá er einungis eftir eitt atriði í
ásökunum Finnboga Jónssonar,
sem sé það að fresta hefði mátt
framkvæmdum við Kvíslaveitu.
hefði getað seinkað fjárfestingu
Kvíslaveitu, sem mun nema á nú
verandi verðlagi um 860 m.kr
þegar 4. áfanga lýkur á n.k
sumri. Þessari fjárfestingu er þt
síður en svo á glæ kastað þó húi
sé fyrr á ferðinni en nauðsyn ba
til eins og reynslan hefur kenn
okkur. Aukakostnaðurinn vi,
þessa „óþörfu“ fjárfestingarflýt
ingu nemur u.þ.b. 200-250 m.ki
sem kalla mætti nú eftir á offjárí
estingu. Þó þetta sé allmikil upp
hæð er hún þó aðeins um 5-6% a
þeirri offjárfestingu upp á 4-4,4:
milljarða króna sem Finnbog
Jónsson reiknar svo ógætilega út
Allar fullyrðingar Finnboga un
50% óþarfa hækkun á orkuverð
til almenningsveitna eru síðan a<
sama skapi rangar.
3. Að síðustu skal vikið að ör
yggismálum. Landsvirkjun hefur
alla tíð lagt mjög mikla áherslu á
það að gæta fyllsta öryggis í orku-
öflunarmálum og flutningi raf-
magns til viðskiptavina sinna.
Reynslan á árunum 1979-1982
þar sem þjóðin bjó við orkuskort
varð til þess að hert var á öryggis-
kröfunum, en jafnframt var sett-
ur á fót starfshópur sérfræðinga
til þess að meta hvað hæfilegt
væ,i í þeim éfnum. Finnbogi
Jónsson getur haft þá skoðun að
Landsvirkjun geri of háar örygg-
iskröfur. Hann verður þó að
viðurkenna að slíkar kröfur
verða ætíð háðar mati. Stjórn og
starfsmenn Landsvirkjunar hafa
metið það svo að þær öryggis-
kröfur, sem nú eru gerðar, séu
réttlætanlegar og meðan sér-
fræðilegar rannsóknir í þessu efni
benda ekki eindregið til að þær
beri að lækka verða núverandi
kröfur í þessu efni látnar gilda.
Þau atriði sem Finnbogi bendir á í
gagnrýni sinni að megi verða til
þess að lækka öryggiskröfur
Landsvirkjunar hafa frá upphafi
verið til athugunar hjá Landsvir-
kjun og eru nú til sérstakrar skoð-
unar sérfræðinganna. Hér er því
engin ný ábending á ferðinni.
Reykjavík 28. jan. 1985
Jóhann Már Maríusson
aðst.forstjóri
Áskorun frá
Jafnréttisráði
Jafnréttisráð tekur undir þá
gagnrýni sem komið hefur fram á
hið gífurlega öryggisleysi sem
fiskvinnslufólk býr við.
Ráðið vekur athygli á því að
atvinnuleysi í fiskiðnaði bitnar
fyrst og fremst á konum. Skorað
er á stjórnvöld að tryggja betur
atvinnuöryggi fiskvinnslufólks.
Þriðjudagur 29. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19