Þjóðviljinn - 29.01.1985, Síða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
MÓDVIUINN
Þriðjudagur 29. janúar 1985 23. tðlublað 50. árgangur
LÍÚ
Vill afnema
helgarfrí
LÍÚ vill lengja
kauptryggingar-
tímabilið úr einum
mánuði í tvo mánuði
Landssamband ísl. útvegs-
manna lagði á dögunum fram
kröfur um breytingar á núver-
andi sjómannasamningum.
Tvö aðal atriðin í kröfum LÍÚ
eru að helgarfrí sjómanna á neta-
bátunum verði afnumin, en nú
eiga sjómenn frí frá því að þeir
koma að landi síðdegis á laugar-
degi og fram á sunnudagskvöld.
Þetta vill LÍÚ afnema.
Hin aðal krafan er að
kauptryggingartímabilið verði
lengt úr einum mánuði í tvo. Nú
er kaup gert upp mánaðarlega.
Ef vel veiðist í einn mánuð, þá fá
sjómenn hlut eins og vera ber. Ef
gert væri upp á tveggja mánaða
fresti gæti svo farið að vel veiddist
annan mánuðinn en illa hinn og
væru sjómenn þá allan tímann
bara á kauptryggingu. Hér áður
fyrr var gert upp við sjómenn í
vertíðarlok en þeir fengu þessu
breytt 1977, þeim til mikils hægð-
arauka. Nú vill LÍÚ breyta þessu
aftur.
Báðar þessar kröfur LÍÚ eru
kröfur um beinar kauplækkanir
hjá sjómönnum, eins og Óskar
Vigfússon formaður SSÍ hefur
bent á. -S.dór
Vinnuaðstaða
Við byggingarframkvæmdirnar komu sprungur f loftplöturnar og þar bæði rignir
og snjóar inn. Búið er að leggja plast yfir svo skiptiborðin fari ekki á flot.
Ingibjörg Hinriksdóttir bendir á loftið en við skiptiborðið sitja þær Birna Björns-
dóttir og Sigrún Brún. Mynd-eik.
Ingibjörg Hinriksdóttir sagði í hefði ekki ennþá fengist nein
gær að þrátt fyrir ítrekaðar kvart- staðfesting á úrbótum.
anir við stjórnendur spítalans -lg.
Heldur hvorki
vatni né vindi
Starfsstúlkur á skiptiborði Landspítalans
látnar vinna í kulda og trekki í allan vetur
Kvörtunarbréfifrá því í haust í engu svarað
Símon Steingrímsson forstjóri
Ríkisspítalanna: Vissulega bagaleg aðstaða en
þetta er að ganga yfir
Petta húsnæði heldur hvorki
vatni né vindi og sú vitleysa
sem hér hefur verið látin við-
gangast hefði aldrei þurft að
koma til ef hlustað hefði verið á
okkur og starfsemin flutt héðan
meðan á þessum byggingarfram-
kvæmdum stendur, sagði Ingi-
björg Hinriksdóttir vaktstjóri á
skiptiborði Landspítalans er hún
lýsti þeim aðstæðum sem starfs-
stúlkurnar á skiptiborðinu hafa
orðið að búa við í allan vetur.
Frá því í haust hafa staðið um-
fangsmiklar byggingarfram-
kvæmdir við móttöku Land-
spítalans. Hefur orðið bæði að
brjóta niður loft og veggi þannig
að um tíma ýmist rigndi eða snjó-
aði inrtá skiptiborðið. Þar fyrir
utan hefur ekki verið hægt að
opna glugga á vistarverunum og
starfsfólkið orðið að þola mikið
loftleysi.
f október var stjórnarnefnd
ríkisspítalanna ritað bréf þar sem
kvartað var undan vinnuaðstöðu-
nni og óskað skjótra úrbóta. Því
bréfi hefur enn ekki verið svarað
þrátt fyrir eftirgangsemi.
„Þetta er vissulega bagaleg að-
staða sem starfsfólkið býr við en
þetta er nú óðum að lagast",
sagði Símon Steingrímsson for-
stjóri ríkisspítalanna í samtali við
Þjóðviljann í gær. Hann sagði að
kvörtunarbréfi starfsfólksins yrði
svarað á næstu dögum en það
hefði ekki verið hægt að svara því
formlega þar sem menn hefðu
ekki getað sagt nákvæmlega til
um hvernig leysa ætti þetta
vandamál. „Ef við hefðum vitað
að þetta myndi valda svona mik-
illi truflun á starfseminni þá hefði
verið brugðist við á einhvern
máta en þetta er að ganga yfir“,
sagði Símon.
Hagnýt hagfræði 40 st.
Birgir Bjöm Sigurjónsson
Mánud. ogfimmtud. kl. 20-21:30
Bókhald fyrir byrjendur 40 st.
Örn Guðmundsson
Laugardaga kl. 10-13
Fjárreiður og skattaskil heimila 40 st.
Mánud. og fimmtud. 17:30-19
Stofnun og rekstur
smærri fyrirtækja 20 st.
Þórður Vigfússon
Mánud. 20-21:30
Ættfræði 40 st.
Þorsteinn Jónsson
Þriðjud. og fimmtud. 17:30-19
Þjóðháttafræði 40 st.
Guðný Gerður Gunnarsdóttir
Mjöll Snæsdóttir
Mánud. og föstud. 17:30-19
Listasaga og listfræði 40 st.
Guðbjörg Kristjánsdóttir
Miðvikud. og föstud. kl. 20-21:30
Mannréttindi og siðfræði 40 st.
Karl Sigurbjörnsson
Mánud. og fimmtud. kl. 17:30-19
Hagnýt sálarfræði 40 st.
Gunnar Gunnarsson
Þriðjud. og föstud. kl. 17:30-19
Trúfræði20 st.
BirgirÁsgeirsson
Miðvikud. kl. 20-21:30
Hagnýt lögfræði 40 st.
Skúli Thoroddsen
Þriðjud. og fimmtud. kl. 17:30-19
Garðrækt 40 st.
Hafsteinn Hafliðason
Miðvikud. og föstud. kl. 20-21:30
Hönnun og bygging eigin
húsnæðis 40 st.
Björn Helgason
Mánud. og fimmtud. kl. 17:30-19
Skrautritun 20 st.
Þorvaldur Jónasson
Miðvikud. kl. 17:30-19
Frjáls útsaumur 40 st.
Kristín Jónsdóttir
Þriðjud. ogföstud. kl. 17:30-19
Kórmennt, nótnalestur og fleira 40 st
Smári Ólason
Mánud. og fimmtud. kl. 20-21:30
Videótaka og myndbandagerð 40 st.
Karl Jeppesen
Laugard. kl. 10-13
Fjölmiðlun og blaðamennska 40 st.
Guðrún Birgisdóttir
Jón Ásgeir Sigurðsson
Mánud. og Miðvikud. kl. 20-21:30
Ræðumennska, framsögn
og fundarsköp 40 st.
Gunnar Rafn Sigurbjörnsson
Mánud. og föstud kl. 20-21:30
Ritsmíðarog skapandi skrif 40 st.
Sveinbjöm I. Baldvinsson
Þriðjud. og föstud. kl. 20-21:30
Myndlist fyrir byrjendur 40 st.
Ingiberg Magnússon
Þriðjud. og fimmtud. kl. 20-21:30
Modelteiknun 40 st.
Ingiberg Magnússon
Miðvikud. og föstud. kl. 21 -21:30
Málun 40 st.
Ingiberg Magnússon
Laugard. kl. 13-16
Leiklist fyrir áhugafólk 40 st.
Þórhildur Þorleifsdóttir
ArnarJónsson
Miðvikud.ogföstud. kl. 17:30-19
Framsögn og upplestur 40 st.
Þórhildur Þorleifsdóttir
ArnarJónsson
Mánud. og fimmtud. kl. 17:30-19
Leikrit og leikhús 40 st.
ÞórhildurÞorleifsdóttir
ArnarJónsson
Þriðjud. og fimmtud. kl. 20-21:30
Farsæll ferðaundirbúningur.
- Land, þjóð og tunga,
Danmörk 20 st.
Anna S. Ámadóttir
Miðvikud. kl. 17:30-19
Þýskaland 20 st.
Unnur Úlfarsdóttir
Þriðjud. kl. 17:30-19
Spánn 20 st.
Fimmtud. kl. 20-21:30
Ítalía
Ólafur Gíslason
Þriðjudkl. 20-21:30
Holland
Miðvikud. kl. 17:30-19
Vorönn: 4. febrúar til 20. apríl
Staður: Laufásvegur7 (Þrúðvangur)
Innritun: frá 23. til 29. janúar í síma 621488 og að Pósthússtræti 9 (Galleri Borg v./Austurvöll)
frá kl. 12:30-19:30.
Þátttökugjald: Greiðist við innritun
Þátttaka: Minnst 10 þátttakendur þarf til að námskeið verði haldiö en hópar verða ekki
stærri en 15 í hverjum.
Próf: Þátttakendum verður gefinn kostur á að taka próf í lok anna ef þeir æskja þess.
Félagslíf: Að sjálfsögðu.
Geymið auglýsinguna
1ÓM5TUNDA
SKOUNN
Sími 621488