Þjóðviljinn - 31.01.1985, Qupperneq 7
Kaffihneykslið
Innflutningur undir smásjána
Innflutningsskjölfölsuð. Umboðslaunfalin erlendis. Gjaldeyrisbrask
Kaffibaunasvindlið hjá Sam-
bandinu hefur vakið athygli
landsmanna á þeirri spillingu
sem viðgengst í innflutnings-
versiuninni. I þessu sambandi
er vert að minna á úttekt sem
Alþýðubandalagið hafði for-
göngu um að var gerð á árun-
um 1978-1980.
Þar kom í ljós, að alsiða var að
umboðslaun voru falin að veru-
legu leyti erlendis, þar sem þau
voru að sjálfsögðu notuð til að
fjármagna einkaneyslu innflytj-
enda.
stórfellt gjaldeyrisbrask einnig
þróast.
Óhagkvæmni í viðskiptum ut-
anlands frá er einnig allmikil,
samkvæmt könnuninni. Algengt
var að hinir íslensku innflytjend-
ur keyptu vöruna ekki í fram-
leiðslulandinu, heldur gegnum
umboðsaðila í öðru landi. Þetta
hækkaði að sjálfsögðu verð vör-
unnar og þarmeð álagninguna
sem innflytjandinn fékk.
Fölsuð
4-6 miljarðar
hafðir af neytendum
innflutningsskjöl
Einnig kom í ljós að innflytj-
endur fengu hinn erlenda sölu-
aðila til að falsa innflutnings-
skjöl. Kaupverðið var þá skráð
hærra, þannig að þegar varan var
komin til íslands varð álagningin
sem rann í vasa innflytjandans
hærri í krónum talið. Jafnframt
var þetta notað til að koma gjald-
eyri út úr landinu á erlenda
reikninga, þannig að í skjóli inn-
flutningsverslunarinnar hefur
Fölsun á innflutningsskjölum,
þannig að innflutta varan er
skráð undir öðru tegundaheiti,
sem minni tollar eru teknir af,
tíðkast lfka.
Niðurstaða könnunarinnar var
sú, að innflutningsverð var að lík-
indum um 10 til 15 prósentum of
hátt. Þennan kostnað ber
neytandinn að sjálfsögðu. Á yfir-
standandi ári munu þetta vera um
4 til 6 miljarðar sem innflutnings-
verslunin hefur þannig af
neytendum.
-ÖS
Nýjung
Kvennastefna
KonuríAlþýðubandalaginu halda ráðstefnu
9. og 10. mars
Konur í Alþýðubandalaginu
munu halda sérstaka Kvenna-
ráðstefnu dagana 9. og 10.
mars næstkomandi, að sögn
Kristínar Ólafsdóttur, sem
vinnur að undirbúningi stefn-
unnar.
„Enn er ekki fullljóst hvar
Kvennastefnan verður haldin, en
þó líklega hér á suðvesturhorn-
Ríkissjóður
Brambolt í
auglysingum
Lögð hefur verið fram fyrir-
spurn frá Guðrúnu Helgadótt-
ur um auglýsingakostnað
vegna spariskírteina ríkis-
sjóðs.
Guðrún spyr fjármálaráðherra
einnig hvað ætla megi að auglýs-
ingakostnaðurinn jafngildi laun-
um margra í 15. launaflokki
BSRB.
-óg
inu. Konur í Alþýðubandalaginu
hafa greinilega þörf fyrir að ræða
sín mál sérstaklega, meðal annars
störf sín og stöðu innan flokksins.
Til að mynda tel ég ekki ólíklegt
að framboðsmálin beri á góma.
Það er hins vegar ekki oft sem
konum af öllu landinu gefst færi á
að ræða sín mál innan vébanda
flokksins og þessvegna er boðað
til Kvennastefnunnar“.
Kristín sagði að Kvennastefn-
an væri ekki hugsuð til að konur
gætu sérstaklega rætt um það
hversu karlarnir í flokknum væru
slæmir. Það yrði fjallað um hug-
myndafræðilegan grundvöll sósí-
alískrar kvennabaráttu, og af-
stöðu flokkskvenna til þverpólit-
ísks kvennasamstarfs.
„En við munum einnig taka til
umfjöllunar málefni á borð við
kjaramálin, atvinnu- og efna-
hagsmál“, sagði Kristín. Hún
kvað stefnuna einnig verða not-
aða til að undirbúa fundaröð
kvenna í Alþýðubandalaginu
með vorinu, „þar sem við viljum
reyna að ná til vinstri sinnaðra
kvenna sem eru ekki í flokknum
og kanna áhuga fyrir því að
stofna kvennafylkingar víðar en á
suðvesturhominu“.
-ÖS
Á mölinni mætumst
með bros á vör
ef bensíngjöfin
yUMFHíDAR
RÁD
er tempruð.
Fimmtudagur 31. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Alþingi
Rannsókn á innflutningsversluninni
Tillaga til þingsályktunar frá þingflokki Alþýðubandalags
Tillagan, sem allir þingmenn
Alþýðubandalagsins leggja fram
á Alþingi, er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að kjósa
nefnd níu þingmanna hlutfalls-
kosningu í sameinuðu þingi til
þess að rannsaka málefni inn-
flutningsverslunarinnar og til
þess að gera tillögur til úrbóta.
Nefndin skal beina rannsókn
sinni að eftirfarandi atriðum:
1. Til hvaða ráðstafana er unnt
að grípa í því skyni að tryggja
að innflutningur til landsins
verði hagkvæmari en nú er um
að ræða?
2. Hvaða ráðstafanir er unnt að
gera til þess að koma í veg fyrir
misnotkun gjaldeyris í inn-
flutningsverslun?
3. Hvað má ætla að stór hluti
þjóðartekna tapist vegna ó-
hagkvæmrar innflutnings-
verslunar?
4. Hvaða ráðstafanir er unnt að
gera til þess að koma í veg fyrir
að þeir, sem brotið hafa reglur
um innflutnings- og gjald-
eyrismál, fái verslunarleyfi á
ný?
5. Hvemig er unnt að koma í veg
fyrir að innflutningsverslun
skipti við milliliði, heildsala,
erlendis sem taka álagningu
og umboðslaun af vörum sem
seldar em til íslands?
6. Hvemig háttar innflutnings-
verði til annarra norrænna
landa, þó einkum til Færeyja
sem ætla má að séu á margan
hátt sambærilegar við ís-
land?“