Þjóðviljinn - 31.01.1985, Blaðsíða 15
Gunnlaugur Hjálmarsson - fimm
mörk gegn Keflvíkingum.
Handbolti
Labbi enn
á ferð!
Gunnlaugur „Labbi“ Hjálm-
arsson, sá gamalkunni landsliðs-
maður sem kominn er á
fímmtugsaldurinn og farinn að
grána í vöngum, er enn í fullu
fjöri. Hann þjálfar 3. deildarlið
Selfyssinga og vegna forfalla lék
hann með liðinu sl. föstudags-
kvöld. Gunnlaugur stóð sig vel og
, skoraði 5 ágætis mörk en hans
menn máttu þó lúta i lægra haldi,
ÍBK vann 24-22.
Úrslit í 3. deild um síðustu
helgi urðu þessi:
A-riðill:
(A-Njarðvik
Ögri-Afturelding. Sindri-ReynirS... 6-37
Þess má geta að Eyjólfur Bragason, hinn kunni leikmaður Stjörnunnar, leiðbeinir nú liði Ögra og sjá menn þar þegar spor í rétta átt.
Afturelding IA ReynirS Njarðvik Sindri ögri ...5 5 0 0 146- 74 10 ...6 5 0 1 177-120 10 ...6 4 0 2 189-125 8 ...7 2 0 5 183-185 4 ...2 0 0 2 25- 87 0 ...6 0 0 6 61-190 0
Týr-Skallagrímur B-riðlll: 23-13
(BK-Selfoss 24-22
IR-IH
(BK
Selfoss...........
ÍH................
Skallagrímur......
7 7 0 0 143-106 14
7 6 0 1 165-135 12
7 3 0 4 160-155 6
7 2 1 4 138-140 5
7 2 0 5 131-167 4
7 0 1 6 125-159 1
Týr og ÍR hafa þegar tryggt sér
sæti í 4-liða úrslitunum. í kvöld
fer fram þýðingarmikill leikur í
A-riðli, Afturelding og ÍA leika
að Varmá og með sigri eða jafn-
tefli í þeim leik er Afturelding
nánast örugg í úrslit.
-VS
England
Jordan
skorar
Telford enn ósigrað
í bikarnum
Joe Jordan skaut Southampton
uppí 6. sæti 1. deildar ensku knatt-
spyrnunnar í fyrrakvöld með því að
skora sigurmarkið gegn Sunderland,
1-0, á The Dell. Markið kom á 35.
mín. eftir að Steve Moran hafði
skallað boltann í fætur Chris Turn-
ers, markvarðar Sunderland. Keuben
Agboola, sem Sunderland er nýbúið
að kaupa frá Southampton, var besti
maður vallarins, enda á sfnum gamla
heimavelli.
Utandeildalið Telford náði 1-1
jafntefli í Darlington og liðin mætast
að nýju í Telford á mánudaginn, um
réttinn til að leika gegn Everton í 5.
umferð FA-bikarsins. í 3. deild hlaut
Bolton sín fyrstu stig á útivelli í vetur,
eftir 11 tapleiki, vann Bristol Rovers
1-2. Orient vann Millwall 1-0 og í 4.
deild tapaði Southend 2-5 fyrir Colc-
hester.
-VS
ÍÞRÓTTIR
Frakklandsmótið
„Stórkostlegur
seinni hálfleikur“
Ungverjar lagðir að velli í Valance 28-24
Kristján Arason skoraði 15 mörk
„Þetta var stórkostlegur seinni
hálfleikur hjá strákunum eftir lé-
lega byrjun. Sigurinn er glæsi-
legur og Kristján Arason sýndi
ótrúlegan leik og skoraði 15 mörk
gegn þessu sterka ungverska
liði“, sagði Jón H. Karlsson for-
maður landsliðsncfndarinnar í
handknattleik í samtali við Þjóð-
viljann í gærkvöldi.
Islenska liðið byrjaði Tournoi
de France ’85 mótið á frábæran
hátt í Valance í Frakklandi í gær-
kvöldi með því að sigra Ungverja
28-24. Þetta er aðeins annar sigur
íslands á Ungverjalandi í 13
landsleikjum þjóðanna, sá fyrri
var í Laugardalshöll fyrir rúmum
tveimur árum.
Byrjunin hjá íslenska liðinu
var ekki góð. Að sögn Jóns voru
strákarnir góða stund að átta sig á
hálu gólfinu og voru óákveðnir
framan af og Einar Þorvarðarson
varði lítið fyrst um sinn. Ungverj-
ar skoruðu fyrsta markið og kom-
ust í 1-3 - og síðan í 4-7. Þorberg-
ur Aðalsteinsson jafnaði, 8-8, og
síðan náði íslenska liðið forystu
en staðan í hálfleik var jöfn, 13-
13. ísland tók forystuna strax í
byrjun seinni hálfleiks og hélt
henni, 1-3 mörk, út leikinn, uns
Páll Ólafsson skoraði 28. markið
rétt fyrir leikslok, 28-24.
íslenska liðið lék mjög vel, að
sögn Jóns, enginn þó betur en
Kristján sem var gersamlega ó-
stöðvandi. „Veikleiki okkai hér
er sá að við höfum engan horna-
mann vinstra megin, en það kom
ekki að sök, Þorgils Óttar
Mathiesen og Páll Ólafsson léku
þar til skiptis og skiluðu sínu hlut-
verki mjög vel.
Mörk íslands skoruðu: Krist-
ján Arason 15 (5 víti), Sigurður
Gunnarsson 3, Þorbergur Aðal-
steinsson 3, Páll Ólafsson 2, Al-
freð Gíslason 2, Þorgils Óttar
Mathiesen 2 og Þorbjörn Jensson
Þetta var fyrsti leikur mótsins sem
heldur áfram í kvöld. Þá leikur ísland
gegn a-liði Frakklands í borginni
Villafranche. Sá leikur verður vafa-
lítið mjög erfiður, Frakkar á heima-
velli og leggja örugglega allt í sölu-
Masao Kawasoe frá Japan hefur undanfarið leiðbeint karatefólki hér á landi eins og við höfum áður sagt frá. E.ÓI. tók
þessa mynd á æfingu í fyrrakvöld en Kawasoe, borgaralega klæddur, fylgist þarna með „slag“ tveggja nemenda
sinna.
Kristján Arason skoraði 15 mörk
gegn Ungverjum I gærkvöldi, einstakt
afrek gegn jafn sterkum andstæðing-
um.
rnar gegn íslenska liðinu. Á föstu-
dagskvöldið leikur fsland við fsrael, á
laugardagskvöldið gegn b-liði Frakka
og á sunnudag lýkur mótinu og þá
mætir íslenska liðið Tékkum. Varla
er hægt að byrja betur, og vonandi
tekst strákunum að fylgja þessu eftir.
Gleymum þó ekki að þetta er í raun
bara æfingamót, alvaran tekur ekki
við fyrr en í A-keppninni eftir eitt ár.
- VS
England
Forest
úr leik
Wimbledon, sem leikur í 2.
deild ensku knattspyrnunnar í 1.
skipti, sló í gærkvöldi Notting-
ham Forest út úr ensku bikar-
keppninni. Wimbledon vann 1-0í
London og skoraði Paul Fishend-
en sigurmarkið. Blackburn vann
Oxford á útivelli í sömu keppni
1-0 með marki frá Jim Quinn.
Sheff. Wed. og Chelsea gerðu
jafntefli 4-4 í ótrúlegum leik í
Mjólkurbikarnum. Sheff. Wed.
komst í 3-0 í fyrri hálfleik. Mick
Lions, Lee Chapman og Brian
Marwood skoruðu mörkin.
Chelsea skoraði 4 mörk í seinni
hálfleik. Paul Canoville gerði 2
mörk. Terry Dixon og Micky
Thomas 1 hvor. Mel Sterland
jafnaði fyrir Sheff. Wed. úr víta-
spyrnu á síðustu mínútu. Ekkert
mark var skorað í framlengingu
og liðin verða að leika í 3. sinn.
-VS
Meistaramot
í frjálsum
Meistaramót Islands í frjálsum
íþróttum, 14 ára og yngri, verður
haldið dagana 9. og 10. febrúar í
Ármannsheimilinu við Sigtún og í
Baldurshaga í Reykjavík. Frjáls-
íþróttadeild Ármanns sér um
framkvæmd mótsins.
Þátttökutilkynningar sendist á
þar til gerðum þátttökuspjöldum
til Stefáns Jóhannssonar,
Blönduhlíð 12, 105 Reykjavík,
eða á skrifstofu FRÍ, fyrir 4. fe-
brúar. Þátttökugjald er kr. 50 á
hverja grein en keppt verður í
langstökki, með og án atrennu,
50 m hlaupi og hástökki.
Körfubolti
ÍS-Haukar
Sextánda umferðin í úrvals-
deildinni í körfuknattleik hefst í
íþróttahúsi Kennaraháskólans í
kvöld. Þar mætast ÍS og Haukar
og verður flautað til leiks kl.
20.15.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Félaeaskipti
Víkingur fær markakóng
Austanmenn aftur austur - Skagastúlkur fá markvörð
Ómar Björnsson, markakóngur 3.
deildarinnar í fyrra sem skoraði 17
mörk í 16 leikjum með Reyni Sand-
gerði, er genginn til liðs við 1.
deildarlið Víkinga. Ómar lék einnig
með Víkingum 1983 og það er kær-
komið fyrir Víkinga að krækja í hann
eftir að Heimir Karlsson fór í atvinnu-
mennskuna og Ómar Torfason ákvað
að fara í Fram. Reynir hefur einnig
misst Jón Kr. Magnússon yfir til
Keflvíkinga.
Margir leikmenn hafa skipt um fé-
lög síðustu þrjár vikurnar og hér
kemur listinn yfir þá:
Ari Fossdal, Þór A.-Vaskur
Ámi Ólason, Tindast.-Valur Rf.
Björn Grótar Ævarsson, Tindast.-Austri
Bragi Björnsson, Fram-lR
Daníel Gunnarsson, Sirius (Svi)-Selfoss
Dagbjartur Pálsson (K-Neisti
Einar Á. Ólafsson, ÍBK-Víðir
Freyr Sverrisson, UMFN-lBK
Gísli Bjarnason, Aftureld.-Víkingur
Guðmundur Hreiðarsson, FH-Valur
Gísli M. Eyjólfsson, IBK-Viðir
Guðmundur Magnússon, iBl-KR
Guðgeir Magnússon, UBK-Afturelding
Heimir Guðmundsson, Þróttur R.-Ármann
Helgi Halldórsson, FH-Stjarnan
Hilmar Sighvatsson, Valur-Siegen (VÞ)
Jóhann P. Sturluson, Skallagr.-Aftureld.
Jóhannes Bárðarson, Þróttur N.-Vikingur
Jón S. Ólafsson, (BK-UMFN
Jón Óskar Sólnes, Valur-KS
Jón Kr. Magnússon, Reynir S.-lBK
Jón Oddsson, UBK-lBl
Kristinn Björnsson, Leiftur-Valur
Loftur Ólafsson, UBK-Þróttur R.
Magnús B. Eriingsson, Stefnir-Selfoss
Óli Þór Magnússon, Þór A.-lBK
Ómar H. Björnsson, Reynir S.-V(kingur
Ómar Jóhannsson, Fram-Siegen (VÞ)
Páll Guðmundsson, IR-Víkingur
Páll V. Bjömsson, Einherji-FH
Rúnar Georgsson, IBK-Víðir
Sigurður P. Sigurðsson, (R-Ármann
Sigurjón Randversson, Augnablik-UBK
Sigvaldi Torlason, Árroðin-Vaskur
Sævar Guðjónsson, (A-HV
Vala Úlfljótsdóttir, IbI-Ia
Þorgrimur Guðbjartsson, Staðarsveit-lA
örnólfur Oddsson, Víkingur-(B(
Félagaskipti flestra þekktustu leik-
mannanna hafa áður komið fram í
fréttum. Helst vekur athygli til við-
bótar að Tindastóll missir tvo af sín-
um traustustu mönnum frá í fyrra,
Austflrðingana Árna og Björn Grét-
ar, sem báðir fara austur á ný. Þá er
Guðmundur Hreiðarsson markvörð-
ur kominn tU Vals á ný en hann fór
yfir í FH i fyrra. íslandsmeistarar í A í
kvennaflokki hafa fengið markvörð-
inn Völu Úlfljótsdóttur frá ísafirði en
Skagastúlkurnar voru í markmanns-
vandræðum i fyrra og þurftu t.d. að
láta hina markheppnu Ragnheiði Jón-
asdóttur leika í markinu í úrslita-
leiknum um meistaratitilinn. -VS
Ómar Bjömsson.
Fimmtudagur 31. janúar 1984