Þjóðviljinn - 31.01.1985, Page 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Fimmtudagur 31. janúar 1985 25. tölublað 50. árgangur
Hœkkanir
Bensínlítrinn í 28.20 kr.?
Fjármálaráðuneytið hækkar bensíngjald um 10% og olíufélögin vilja 6% hœkkun útsöluverðs
Bensínið kostar 6.500 kr. meira á meðalbílinn í ár en ífyrra
Á sama tíma lœkkar bensínverð ínágrannalöndum
Bensínlítrinn mun á næstu
dögum hækka í 28.20 kr. ef
verðlagsráð samþykkir þær
hækkunarbeiðnir sem nú
liggja fyrir frá fjármálaráðu-
neytinu um hækkun bensín-
gjalds og olíufélögunum um
6% hækkun á álagningu.
Komi til þessara hækkana hef-
ur bensínið hækkað á einu ári
um 5.50 kr. lítrinn. Á sama
tíma hefur bensínverð farið
lækkandi hjá nágrannaþjóð-
um okkar.
Fyrir ári síðan kostaði bensín-
lítrinn 22.70 kr.Þá kostaði 22.700
kr. á ári að kaupa bensín á bifreið
sem ekið er 10.000 km á ári og
eyðir 10/1 á 100 km. Nái áður-
nefndarhækkunarbeiðnir fram að
ganga mun ’oensínverðið hækka
úr 25.90 í 28.20 og bensínreikn-
ingur sömu bifreiðar því uppí
28.200 kr. miðað við árskeyrslu
eða um 6.500 kr. frá því fyrir ári
síðan.
Georg Ólafsson verðlagsstjóri
sagði í gær að beiðni fjármála-
ráðuneytisins um hækkun á bens-
ínskatti í samræmi við hækkun
byggingarvísitölu væri ekki kom-
in inn á hans borð en hann vissi að
hún væri á leiðinni.
í fjárlögum þessa árs 'er gert'
ráð fyrir að tekjumöguleikar
bensíngjaldsins verði nýttir til
fullnustu. Heimilt er að hækka
bensíngjaldið fjórum sinnum á
ári til samsvörunar við hækkun
byggingavísitölu. Á síðustu árum
hefur þessi heimild í lögum ekki
verið nýtt að fullu eins og í fjár-
málaráðherratíð Ragnars Arn-
alds.
-lg
Samæfing á ísafirði
Tónlistarskólinn á ísafirði hefur frá því að hann var stofnaður árið 1948 verið með sérstæðum brag. Á hverjum einasta sunnudegi
koma allir nemendur hans saman á heimili Ragnars H. Ragnar, sem verið hefur skólastjóri hans frá'upphafi þar til í haust að Sigríður
dóttirhans tók við, og spila á samæfingu. Allir verða að spila hvort sem þeir eru nýbyrjaðir eða lengra komnir. Myndin er tekin á
samæfingu fyrir skömmu. Krakkarnir hlýða með andagt á ungan píanóleikara og bíða eftir að röðin komi að sér. Ljósm.: GFr.
Verkamannabústaðir
Tólf nýjar íbúðir
afhentar á Húsavík
Undirbúningur hafinn að byggingu annarra
12 íbúða.
Tuttugu manns eru á biðlista yfir íbúðir
Mannshvarfið
Vísbending-
arí
Borgar-
fúí
í gær var mikil leit í Borgarfirði
að Hafþóri Haukssyni, piltinum
sem hvarf sunnudaginn 13. janú-
ar sl. á jeppa.
Ástæðan fyrir því að leitað var
sérstaklega í Borgarfirði eru tvær
vísbendingar um að etv. hafi sést
til piltsins í Borgarnesi og á þjóð-
veginum ufn Borgarfjörð. Þess
skal getið að Hafþór var í sveit í
Norðurárdal og á skyldfólk á ísa-
firði og það varð líka til þess að
leitin beinist nú að Borgarfirði og
þjóðleiðinni vestur. I gær var
leitað í sumarbústöðum og víðar
um Borgarfjörð en án árangurs.
-GFr
Stjórn Verkamannabústaða á
Húsavík tók fyrir skömmu við
12 nýjum íbúðum, sem hafln var
bygging á árið 1983. Eru íbúðirn-
ar afhentar fullfrágengnar bæði
að utan og innan. Hér er um að
ræða þrjár 4ra herbergja íbúðir
92,99 ferm. að stærð og níu 3 her-
bergja íbúðir 70,9 ferm. að stærð.
Að sögn Snæs Karlssonar hjá
Verkalýðsfélaginu á Húsavík er
þegar hafinn undirbúningur að
byggingu 12 íbúða í viðbót. Hefur
leyfi þegar fengist fyrir sex þeirra
en vonast er til að leyfi fáist fljót-
lega fyrir sex fbúðum í viðbót svo
hægt verði að byggja þessar 12
íbúðir í einum áfanga. Mikil þörf
er fyrir íbúðir á Húsavík og eru
þegar 20 manns á biðlista fyrir
utan þá sem fá þessar 12 íbúðir
sem verið var að afhenda.
Verð þeirra íbúða sem verið
var að afhenda er um 2 miljónir
króna fyrir 3ja herbergja íbúðirn-
ar, eitthvað meira fyrir 4ra her-
bergja íbúðirnar, en endanlegt
verð liggur ekki fyrir.
-S.dór
Farmgjöldin
SÍS lækkar
Ómar Jóhannsson,
Skipadeild SÍS:
Munum halda okkar
viðskiptavinum
samkeppnisfœrum
Það er alveg ljóst að við mun-
um halda okkar viðskiptavinum
samkeppnisfærum við önnur
frystihús hér á landi. Viðræður
um farmgjöldin standa nú yfir á
milli Skipadeildar SÍS og við-
skiptavinanna, þannig að ég get
ekki sagt hver farmgjöldin verða
endanlega en sem fyrr segir verða
okkar viðskiptavinir fullkomlega
samkeppnisfærir, sagði Ómar Jó-
hannsson hjá Skipadeild SÍS þeg-
ar þjóðviljinn innti hann eftir því
hvað SÍS myndi gera i ljósi þeirra
lækkana á farmgjöldum, sem SH
hefur fengið fram rrieð útboðum.
Því hefur áður verið svarað til
að SÍS mun ekki láta fara fram
útboð á þeim fiski sem það flytur
til Evrópu og Ameríku.