Þjóðviljinn - 12.04.1985, Síða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími; 81348. Helgarsírríi: 81663.
DIÓÐVIUINN
Föstudagur 12. apríl 1985 82. tölublað 50. örgangur
Grímsey
Allur aflakvótinn búinn
Alvarlegt atvinnuástand blasir við eyjaskeggjum það sem eftir lifir afárinu.
Hannes Guðmundsson verkstjóri: Hörmungarástand efenginn viðbótfœst
Þrír af fjórum bátum sem gerð-
ir eru út frá Grímsey eru bún-
ir með aflakvóta sinn fyrir þetta
árið og sá fjórði er að klára sinn
kvóta. Ljóst er að mjög alvarlegt
atvinnuástand verður í eynni það
sem eftir er ársins verði bátunum
ekki tryggður viðbótarkvóti, en
um 95% atvinnubærra íbúa í
Grímsey starfa á einn eða annan
hátt við fiskvinnslu og útgerð.
„Þetta verður alveg hörmung-
arástand ef engin viðbót kemur
og ég tala nú ekki um ef trillu-
kvótinn verður langt upp étinn
þegar smærri bátarnir hérna
komast loks á sjó“, sagði Hannes
Guðmundsson verkstjóri í fisk-
Alþýðubandalagið
Nýir sóknartónar
Frjóar umrœður áfundi ABR ígœrkvöldi
Miklar umræður voru á fjöi-
mennum fundi hjá Alþýðubanda-
laginu í Reykjavík í gærkvöldi
þar sem þeir Svavar Gestsson og
Ólafur R. Grímsson fluttu fram-
sögu. Þeir ræddu báðir um þann
vanda sem Abl. væri sýnilega
komið í, fylgi flokksins hefði farið
minnkandi í skoðanakönnunum,
sundrung væri innan verkalýðs-
hreyfingarinnar og tengsl flokks-
ins og hreyfingarinnar hefðu
minnkað.
Svavar sagði að fyrir landsfund
í haust yrði að fara fram gagnger
umræða í flokknum. Hann
minnti á stefnuskrárumræðu
meðal flokksmanna og taldi að
mikilvægustu málin væru
breytingar á atvinnukerfi og nýj-
ar áherslur í kjara- og utanríkis-
málum.
Ólafur Ragnar flutti harða
ádrepu um stöðu Abl. og stefnuá-
herslur undanfarin misseri. Hann
taldi að flokkurinn þyrfti í næstu
framtíð að tryggja tengslin við
verkalýðshreyfingu, koma á nýrri
stefnumótun í byggðamálum og
markvissari boðskap í fjölmiðl-
um og huga vel að tækifærum al-
þýðuhreyfingar í nýrri framtíð.
Nánar verður sagt frá fundinum í
helgarblaði Þjóðviljans.
-m/lg.
Sjómenn
Brotið blað á Patró
Samið ífyrsta sinn um starfsaldurshœkkanir
Verkalýðsfclag Patreksfjarðar
náði um hádegi í gær samn-
ingum við útvegsmenn og er þar í
fyrsta sinn kveðið á um
kauphækkun til sjómanna með
auknum starfsaldri.
Starfsaldurinn er helsta bit-
beinið í sjómannadeilunni á
Vestfjörðum þarsem ísfirskir sjó-
menn eru í verkfalli, og starfsald-
urshækkun í launum hefur um
langa hríð verið eitt af
aðalbaráttumálum Sjómannas-
ambandsins. Sigurður R. Ólafs-
son formaður Sjómannafélags
ísafjarðar um Patrósamningana:
„Við erum mjög ánægðir enda
hvöttum við til að samningar
yrðu gerðir á þessum grundvelli,
- þetta er svipuð stefna og hjá
okkur.“ Óskar Vigfússon for-
maður Sjómannasambands ís-
lands: „Spor í rétta átt, og má
segja að þarna sé brotið blað.
Þetta hefur verið reifað lengi við
okkar viðsemjendur í LÍU og
ekki fengist viðurkennt. Ég sé
ekki betur en að þarna hafi orðið
töluverð breyting í herbúðum
útvegsmanna.“
í Patreksfjarðarsamningunum
er að sögn Hjörleifs Guðmunds-
sonar formanns verkalýðsfélags-
ins kveðið á um starfsaldurs-
hækkun ofaná kauptryggingu en
vinnslu KEA í Grímsey í samtali
við Þjóðviljann í gær. Fiskur er
verkaður í tveimur öðrum húsum
í eynni en þeim er báðum búið að
loka og vinna hefur dregist mikið
saman hjá Kaupfélagshúsinu.
Grímseyjarbátarnir fjórir sem
falla undir kvótareglur fengu út-
hlutað um 150 tonn hver en
öfluðu fyrir kvótareglur 300-400
tonn að jafnaði á ári að sögn
Hannesar. Ljóst er að einungis
stærsti báturinn hefur möguleika
á að komast á rækjuveiðar í sum-
ar, hinir verða verkefnalausir.
Mikill urgur er í eyjaskeggum
vegna þessa ástands og eins er
óvíst hve smábátarnir fá að veiða
mikið í sumar þar sem heildar-
kvóti smábáta í landinu er langt
upp veiddur.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans munu sjómenn í Grímsey
nú vera að undirbúa ferð suður á
fund sjávarútvegsráðherra til að
skýra út fyrir honum stöðu mála
og óska eftir úrlausn svo atvinnu-
ástand verði tryggt í eynni í sum-
ar, haust og vetur.
-lg-
utan hlutaskipta þannig að
hluturinn „eyðir" ekki muninum.
Eftir tvö ár (þaraf eitt hjá sama
útgerðarfyrirtæki) bætast við
2%, eftir fjögur ár (tvö hjá sama)
31/2%, eftir fimm ár (þrjú hjá
sama) 6%. Að öðru leyti eru
samningarnir svipaðir og hjá öðr-
um. Hlífðarfatapeningar hækka
þó í 1500 krónur (750 almennt),
og frítími að lokinni siglingu utan
lengist.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari er nú á leið vestur á
ísafjörð og stjórnar þar sátta-
fundi um helgina eða á mánudag-
inn.
- m
Sauðfjárbœndur
Landssamband í
burðarliðnum
Nokkrir tugir bænda víðs vegar
að af landinu komu saman á
Hótel Sögu í gær til undirbúnings-
fundar Landssambands sauðfjár-
bænda. Hafa 53 bændur þegar
gengið í undirbúningsfélagið.
Framhald málsins yrði það að
stofna einstök félög út um land er
síðan mynduðu með sér
Landssamband.
í drögum að lögum fyrir vænt-
anlegt landssamband segir m.a.
að tilgangur þess sé „að móta
sölumarkað fyrir sauðfjárafurðir,
skapa tengsl og samstöðu fram-
leiðenda til eflingar sauðfjárrækt
og koma til móts við óskir
neytenda um vöruval og vöru-
gæði“.
- mhg.
ARGUS<€>
þjóðarinnar
Markmiðið með sölu á rauðu fjöðrinni
er söfnun fyrir LÍNUHRAÐLI, tæki sem
bjargar mannslífum.
Sameinumst öll í þessu þjóðarátaki.
12.-14. APRÍL1985
IANDSSÖFNUN
UONS