Þjóðviljinn - 14.04.1985, Síða 4
Á BEININU
Þorf að draga úr
miðstjórnarvaldinu
Þröstur Ólafsson stjórnarformaður Kron á beininu
Aðalfundur Kaupfélags
Reykjavíkur og nágrennis er á
sunnudaginn. Hann er hald-
inn á umbrotatímum í verslun-
armálum á höfuðborgar-
svæðinu og meðan samvinn-
uhreyfingin hefur verið mjög
til umfjöllunar og umræðu í
þjóðfélaginu. Af þessu tilefni
þótti tilvalið að bjóða stjórnar-
formanni KRON og Mikla-
garðs að setjast á beinið:
A samvinnuverslun á höfuð-
borgarsvæðinu undir högg að
sækja?
- Samvinnuverslun á höfuð-
borgarsvæðinu er að ýmsu leyti í
erfiðri stöðu; þannig hafa
stjórnvöld borgarinnar löngum
neitað kaupfélaginu um lóðir
með þeirri undantekningu sem
fjögurra ára samstjórn hinna
fíokkanna t Reykjavík veitti.
Þetta leiddi til þess að farið var út
í rekstur stórmarkaðar mun
seinna en ella hefði verið gert. í
öðru lagi er skipulagsleg sundr-
ung samvinnumanna ekki hvað
síst í smávöruverslunum í
Reykjavík okkur fjötur um fót og
í þriðja lagi má segja að við get-
um sjálfum okkur um kennt, með
því að fylgja ekki þróuninni nógu
vel eftir þ.e. að standast sam-
keppni í verðlags- og gæðamálum
einsog hins vegar hefur tekist
með Miklagarði.
Oft eru uppi gagnrýnisraddir
um að KRON sé ekkert skárra en
einkagróðaverslanir, - í því sam-
bandi er talað um hraklcgar nið-
urstöður verðkannana, - hefur
orðið breyting á til batnaðar?
- Pað er rétt að nokkrar
KRON-verslanir fóru illa út úr
verðkönnunum snemma á síðasta
ári og í framhaldi af því breyttum
við um stefnu í verðlagsmálum.
Og ég fullyrði að nú eru allar
Kron-verslanirnar orðnar sam-
keppnishæfar hvað verðlag snert-
ir. Hins vegar hefur það haft áhrif
á afkomu verslananna.
A höfuðborgarsvæðinu eru
aðrar samvinnuverslanir en á
vegum KRON, er einhver sam-
vinna á milli þeirra?
- Samvinna er ekki bein á milli
þessara aðilja, sem eru alls 6 tals-
ins, þ.e. KaupfélagHafnfirðinga,
Kjalarnesþings, Mikligarður,
verslanir sambandsins auk
KRON-búðanna. Ég held að þeir
tímar séu runnir upp að við verð-
um að gera okkur grein fyrir nýrri
þróun. Stórmarkaðarnir eru orð-
nir staðreynd með tilheyrandi
vaxandi samkeppni um verð og
gæði. Með því að samræma að
einhverju rekstur stjórnar og
innkaup er hægt að standa sig
betur í þessari samkeppni með
stærri rekstrareiningum heldur
en hver á sínum bás. Sameiningu
kaupfélaganna verður að ræða af
alvöru.
Eru formlegar viðræður um
slíka samvinnu eða samruna
hafnar?
- Nei, en það er ekkert
launungarmál að innan
kaupfélaganna eru raddir uppi
um meiri samvinnu til þess að
lækka vöruverð í smásöluversl-
ununum og líka til að geta greitt
betri laun.
Deildarfundir KRON hafa ver-
ið fjölmennir, er áhugi á sam-
vinnuversluninni að glæðast eða
á að þakka Flokki mannsins?
- Við finnum vel fyrir því að
félagslegur áhugi á KRON hefur
aukist. Það kom fjörkippur með
Miklagarði sem er verslun sem
skiptir marga miklu máli. Ég er
heldur ekki frá því að eitthvert
fólk hafi komið vegna framboðs
Flokks mannsins.
Af hverju er KRON í samkrulli
við aðra um rekstur Miklagarðs?
Af því einfaldlega að kaupfé-
lagið hafði ekki bolmagn eitt til
að setja Miklagarð á laggirnar.
KRON á 52% í þessu sam-
eignarfélagi
Nú tala margir um félagslega
stöðnun, stirðbusalega þjónustu
og forstjóraveldi hjá KRON. Á að
reka af sér slyðruorðið?
- í kaupfélaginu eru tæplega 15
þúsund manns. Við rekum 9
verslanir auk aðildar að Mikla-
garði. Að undanförnu má segja
að kraftur okkar hafi farið í upp-
byggingu Miklagarðs. En nú
erum við að velta fyrir okkur víð-
tækari endurskipulagningu á
rekstri félagsins. í lok ársins
vænti ég að menn fari að sjá
niðurstöðurnar af umræðu og
umfjöllun um slíka endurskipu-
lagningu.
Á hún að miða að því að auka
áhrif félagsmanna á reksturinn?
- Já m.a. Við höfum einmitt
verið að skoða þá hugmynd að
deildarstjórnin fái aukið hlutverk
t.d. varðandi ráðgjöf í viðkom-
andi hverfaverslunum. Við vilj-
um þannig kalla á fleiri sjónarmið
og fleiri til ábyrgðar á sínum eigin
verslunum. Endurskipulagningin
á m.a. að miða að því að breyta
stjórnunaraðferðum en ekki
síður að auka hugkvæmni í
rekstri til að lækka vöruverð enn
frekar.
Fram hefur komið gagnrýni á
að starfsfólk sé alltof áhrifalítið
innan KRON og sem dæmi er
tekið að fulltrúar starfsfólks í
stjórn KRON hafi ekki atkvæðis-
rétt. Hverju svarar þú?
- í því tilefni er einfaldlega far-
ið að lögum. Þannig er að sam-
vinnulögin kveða svo á að fulltrú-
ar starfsmanna hafi ekki atkvæð-
isrétt í stjórnum. Þessu er eins
farið innan stjórnar Sambands-
ins.
Er þá ekki rétt að breyta lögun-
um?
- Jú, það kemur vel til greina.
Annars er hugsunin sú að hver
félagsmaður hafi eitt atkvæði og
félögin ráði starfsmenn. Hins
vegar held ég að fá megi virkari
þátttöku starfsmanna með ýms-
um öðrum hætti, svosem
samráðsfundi með stjórnendum.
Og það er einmitt í þá veru sem ég
vona að endurskipulagning
KRON verði.
Sagt er að konur hjá KRON fái
einungis greitt eftir kauptöxtum
en karlar séu oftast yfirborgaðir.
Er þetta rétt?
- Ég veit það ekki fyrir víst.
Yfirborganir eru ekkert bannorð
hjáKRON. Konureru ekki nógu
vel settar svosem sjá má af því að
meðal yfirmanna eru aðeins tvær
konur verslunarstjórar af 8. Það
horfir vonandi til betri vegar.
Vill Kron ekki greiða starfs-
mönnum sínum hærra kaup?
- Það vildi KRON gj arnan geta
gert - og vonandi kemur að því.
En einsog alþjóð veit þá er sam-
keppnin í versluninni afskaplega
hörð. Hjá Miklagarði vinna t.d.
130 manns og um 100 annars
staðar hjá KRON. Staðreyndin
er sú að laun þessa fólks eru
sambærileg við það sem gerist
annars staðar hjá stórmörkuðum
og verslunum og hærra kaup
myndi einfaldlega kom fram í
hærra vöruverði. Parmeð lakari
stöðu sem við megum ekki við.
í lokin: SÍS hefur að undan-
förnu verið harðlega gagnrýnt og
yfirstjórnin, forstjóraveldið talið
hafa fjarlægst hugsjónir sam--
vinnuhreyfingarinnar. Kaffi-
baunahneykslið er talið tákn
þessa. Ert þú sammála þessari
gagnrýni?
- Þarsem mikil völd á fárra
höndum fara saman, er hætta á
að ýmislegt fari úrskeiðis. Sam-
bandið hefur ekki farið varhluta
af slíkri þróun, frekar en aðrar
stofnanir s.s. verkalýðshreyfing-
in. Hins vegar býður samvinnu-
formið uppá lýðræðislegt aðhald
félaganna sem önnur rekstrar-
form hafa ekki. í því felast yfir-
burðir þess.
Ekki á það við um SÍS-
forstjóraveldið? Er ekki kominn
tími til að draga úr því?
- Ég er þeirrar skoðunar að
nauðsynlegt sé að draga úr mið-
stjórnaraflinu, dreifa því með
sjálfstæðari rekstrareiningum.
Sambandið er orðið það stórt að
óbreytt skipulag rekst á félagslegt
aðhald og áhrif. Á aðalfundi sam-
bandsins kom þessi þankagangur
skýrt fram og stjórnendur fyrir-
tækisins sýndu þessu mikinn
skilning. Sá fundur var mikill
sigur lýðræðislegra og félagslegra
áhrifa.
En þó skilningurinn sé fyrir
hendi, þá virðist það ekki hafa
mikið að segja. Þannig var t.d.
greinilega meirihluti gegn aðild
SÍS að ísfilm á aðalfundinum.
Engu að síður hefur SÍS gengið
inn í firmað. Hvar er skilningur-
inn?
- Hér skiptir framtíðin mestu
máli. Nú vita stjórnendur hver
vilji fulltrúanna á aðalfundi var.
Stjórnendurnir höfðu tekið á-
kvörðunina og töldu sig ekki geta
snúið til baka. Ég held að í þessu
felist mikilvægur lærdómur.
-óg-
4 S(ÐA - ÞJÓÐVIUINN Sunnudagur 14. apríl 1985