Þjóðviljinn - 14.04.1985, Page 14
MINNING
SOFINN BÆLDUR
Annie B.
Friðríksdóttir
fœdd 30.3. 1939 dáin 5.4. 1985
Mánudaginn 15. apríl verður
til moldar borin Annie B. Frið-
riksdóttir sjúkraliði. Ég kynntist
Annie árið 1975 en þá fórum við
báðar í stjórn Sjúkraliðafélags ís-
lands. Það sem gerði einkum þá
stjórn samstillta var kannski það
að enginn í hópnum hafði starfað
áður í stjórninni, og flestir höfðu
litla reynslu af félagsmálum.
Annie var oftast ritari félagsins á
þessum árum og sá um að rita
bæði á stjórnarfundum og félags-
fundum, og fórst það vel af
hendi. Hún hætti í stjórn félags-
ins árið 1982.
Það var oft létt yfir okkur, enda
yngri og kannski bjartsýnni og
jafnframt reynslulausari um hve
erfitt er að koma málum í fram-
kvæmd. Annie hafði þá sérstöku
kímnigáfu að geta komið öllum í
gott skap því hún var mikill
mannþekkjari og sá líka hvernig
öðrum leið.
Annie var tilfinninganæm og
listræn kona, hafði mikið form-
skyn og unni því að hafa fallega
hluti í kringum sig. Hún hafði
mjög gaman af að ferðast, og
minnist ég þess eitt sinn þegar
stjórn félagsins fór vestur á firði
að Annie var hrókur alls fagnað-
ar og vissi mikið um landið og
sögu þess.
Við Annie höfðum oft per-
sónulegt samband á þessum árum
og vil ég þakka henni hlýhug og
velvild í minn garð og fjölskyldu
minnar.
Annie vargift Jóni Ingólfssyni
málarameistara og áttu þau þrjú
börn, Sólveigu, Sigrúnu og Frið-
rik, en þau slitu samvistum. Börn
hennar eru nú uppkomin og hún
búin að eignast barnabörn.
Seinast þegar ég hitti hana í vetur
ræddi hún um litlu barnabörnin
og sagði mér frá framförum
þeirra, en því miður hittumst við
alltof sjaldan þessi síðustu ár.
Annie' átti við veikindi að
stríða seinustu ár ævi sinnar og
lagði mikið á sig til að ná bata,
sýndi mikla einbeitni og dugnað.
Én í haust veiktist hún af þeim
sjúkdómi sem dró hana til dauða
og virðist erfitt að berjast við
þann vágest.
Ég var beðin að skila þakklæti
og kveðju frá Sjúkraliðafélagi ís-
lands fyrir öll þau störf sem hún
innti þar af hendi. Þá vil ég senda
aðstandendum hennar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Sigríður Kristinsdóttir
Allir
sem
einn
MorgunblaJift/Ól.K.M.
Þorsteinn Pálsson, Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins, Oskar Gudmundsson, ritstjómarfulltrúi
Þjóóviljans, og Ingibjörg Rafnar, borgarfulltrúi, eiginkona
Þorsteins.
Það er svo mikill æðibunu-
gangur og læti í fólkinu að ég veit
ekki hvað. Aldrei friður. Nú síð-
ast sá ég það í forsíðufrétt hjá NT
að Póstur og sími ætli að leggja
glerþráð út um allar þorpa-
grundir til að menn geti talað
saman á ljóshraða! Ég á ekki orð.
Er ekki nóg rifrildið og vitleysan
þótt menn tali saman á mál-
hraða? Sjálfur tala ég aldrei
nema á gönguhraða, því þá er ég í
takt við sjálfan mig og hugsanir
mínar og umhverfið.
Nei, þessir angurgapar, þeir
vilja tala saman á ljóshraða um
eitthvert hneykslið, um bank-
astjórana sem fá bflastyrk eða
eitthvað svoleiðis. Það er annars
auma málið þessi bflastyrkur.
Það er eins og aldrei hafi gerst
annað eins. Ég segi nú bara eins
og Bjartur í Sumarhúsum um
kaupmanninn sinn: Skyldi hann
ekki mega hafa turn karlhólkur-
inn? Það er nefnilega það. Eru
það bara heildsalar og einka-
braskarar sem mega aka um á
flottum bflum, ég bara spyr?
Hvað eiga opinberir banka-
stjórar að gera? Fá sér hjól kann-
ski? Nei takk. Agi verður að vera,
sagði góði dátinn Sveik þegar
hann var laminn í hernum. Virð-
ing verður að vera fyrir banka-
stjórum segi ég. Jóhannes Nor-
dal, hann er minn maður.
Mín mesta huggun þessa dag-
ana er líka landsfundur Sjálfstæð-
isflokksins. Það er indæl sam-
koma, sem byrjar á stóriðju og
endar á grasafjalli með Jónasi
Hallgrímssyni. Og yfir öllu stend-
ur ránfugl og blakar vængjum í
kristilegum anda og segir: Allir
sem eitt. Þetta er svo hugnæmt
allt, að mér liggur við að tárast.
Þarna er nú ekki ósamkomulagið
og frekjan eins og hjá mörgum
öðrum. Þegar ég sá Moggann
minn í gær fannst mér ég vera
kominn til Rússlands þar sem
menn hafa líka vit á því, að vera
ekki alltaf með kjaftinn opinn á
fundum en standa saman allir
sem einn og birta ræðu formanns-
ins á forsíðu blaðsins (sem heitir
víst Pravda) og ræðuna alla í heild
á bls. 24-27 (í Prövdu eru svona
ræður á síðu eitt til fjögur, enda
er það blað miklu minna en
Mogginn).
Það var sérstaklega ein mynd í
Morgunblaðinu frá Landsfundin-
um sem gladdi mitt friðelskandi
hjarta. Þeir stóðu saman þar þrír
höfðingjar, Þorsteinn Pálsson
formaður, Kjartan Gunnarsson
framkvæmdastjóri og Óskar
Guðmundsson Þjóðviljagaur.
ALÞÝDUBANDALAGK)
Allir sem einn. Sjálfstæðisfor-
ingjarnir í nýju fötunum sínum og
með hvítt um hálsinn og kannski
slaufu, og Óskar með skeggið af
Stalín og Gúnther Grass og í ör-
eigaskyrtu, sem er víst ættuð úr
kúrekabyggðum vestanhafs.
Litrík samstaða og elskuleg og
boðar gott. Óskar lítur spyrjandi
á málvini sína og innir þá eftir því
forystuhlutverki sem Sjálfstæðis-
flokkurinn vill gegna og þeir
horfa svo fram í ljósmyndara og
lesendur blaðsins og segja sem
svo með svipnum: Skotil, meira
að segja kommarnir standa með
okkur.
Allir sem einn.
Vel á minnst - Landsfundurinn
fékk þetta fallega vígorð að láni.
Hann fékk það að láni hjá ágæ-
tum vinstrimanni Jónasi Árna-
syni. í Jörundarleikritinu er þetta
einmitt viðlag á vinsælum söng.
Hífum upp seglin, allir sem einn!
Eitthvað svoleiðis, eitthvað held
ég að þeir hafi verið að hífa upp
allir saman. Ef það var segl, þá
var það náttúrlega hið táknræna
segl þjóðarskútunnar sem nú fær
greiðan byr til framtíðarlandsins
þar sem allar hugsjónir rætast.
Allar sem ein.
Hilmir.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Spilakvöld - lokaslagur
Síðasta spilakvöld vetrarins verður
þriðjudagskvöldið 16. apríl á Hverfisgötu 105
og hefst kl. 20 stundvíslega. Gestur
kvöldsins verður Svavar Gestsson
formaður Alþýðubandalagsins.
Kvennafylkingin
Morgunrabb á laugardegi
Hittumst í morgunkaffi kl. 11-14 á laugardaginn.
Kjördæmisráð AB Reykjanesi
Sveitarstjórnarmál
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins í Reykjavík heldur fund um
sveitarstjórnarmál í Þinghóli laugardaginn 13. apríl nk. kl. 13.00.
Dagskrá: 1) Frumvarp til sveitarstjórnarlaga. Framsögumenn
verða Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi, Logi Kristjánsson for-
stöðumaður tölvuþjónustu sveitarfélaga og Skúli Alexandersson
alþingismaður. 2) Samstarf sveitarstjórnarmanna
Alþýðubandalagsins í kjördæminu. Framsögumaður Jóhann Geir-
dal bæjarfulltrúi.
Áhugamenn um sveitarstjórnarmál hvattir til að koma á fundinn.
Stjórn Kjördæmisráðs AB
Alþýðubandalagið
Suðurlandi
Ráðstefna um atvinnu- og efnahagsmál verður haldin í Hveragerði
12.-13. apríl. Ráðstefnan verður sett í Gagnfræðaskólanum föstu-
dag 12. apríl kl. 20. Þá mun Svavar Gestsson ávarpa samkomuna
ásamt fleiri góðum körlum og konum. Áfram verður síðan haldið á
laugardagsmorgun kl. 9, en þá í félagsheimili Ölfusinga. Unnið
veröur svo til sleitulaust fram til 18.30, en þá er kominn timi til að
bregða sér í betri búninginn, gleyma öllu amstri og skemmta sjálf-
um sér og öðrum á margrómaðri árshátíð Alþýðubandalagsins á
Suðurlandi. Sjáumst. Stjórn kjördæmisráðs.
ABH og ÆFH
Félagsmálanámskeið
Alþýðubandalagið í Hafnarfirði og
Æskulýðsfylkingin í Hafnarfirði efna til
félagsmálanámskeiðs dagana 17.,
20., 24. og 27. apríl n.k. í Skálanum,
Strandgötu 41.
Leiðbeinendur verða Kristín Á.
Ólafsdóttir og HallgrímurG. Magnússon.
Námsefni verður fundarsköp,
ræðumennska, framsögn og
raddbeiting.
Námskeiðið hefst miðvikudaginn
17. apríl kl. 20.30.
Við sem höfum áhuga erum beðin
að hafa samband við Eggert (54799)
eða Katrínu (50308) sem fyrst.
Stjórnin
Suðurland - Suðurland
Alþýðubandalagsfólk
Suðurlandi
Kveðjum veturinn með glæsibrag í
Félagsheimili ölfusinga, laugardag-
inn 13. apríl nk.
Skemmtiatriði:
Helgi Seljan syngur
Kristín Á. Ólafsdóttir syngur
Hljómsveit Stefáns P. leikur fyrir
dansi til kl. 3 um nóttina.
Húsið opnað kl. 20.00 stundvís-
lega. Skemmtiatriði hefjast kl. 21.30.
Fljótandi veitingar seldar á staðn-
um. Miðaverð er 500 kr. Félagar fjöl-
mennið og takið með ykkur gesti!
Árshátíð Alþýðubandalagsins á Dalvík
Árleg árshátíð AB á Dalvík verður haldin laugardaginn 13. apríl í
Bergþórshvoli og hefst kl. 20.30. Allt verðurmeð hefðbundnu sniði,
létt borðhald, skemmtiatriði og dans.
Þátttakendur láti gjarnan af sér vita fyrir 13. apríl í síma 61411 (og
61460 Svanfríður). Nefndin.
Kjördæmisráð á Blönduósi
Næstkomandi sunnudag koma forystumenn Alþýðubandalagsfé-
laga í Norðurlandskjördæmi vestra saman til fundar á Blönduósi.
Fundurinn verður haldinn á hótelinu sunnudaginn 14. apríl og hefst
kl. 14. Ragnar Arnalds alþingismaðurkemuráfundinn. Rættverð-
ur um niðurstöður af atvinnumálaráðstefnum sem haldnar hafa
verið víða í kjördæminu að undanförnu - og um önnur verkefni
kjördæmisráðs.
Allir Alþýðubandalagsmenn eru velkomnir á fundinn.
Stjórn kjördæmisráðs.
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Hvað er marxisminn?
4. fundur í fundarröð ÆFR um sósíalismann verður haldinn þriðju-
daginn 16. apríl kl. 20.30 að Hverfisgötu 105.
Á fundinn kemur Pétur Tyrfingsson og mun hann halda stutt
inngangserindi áður en umræður hefjast. Fyrir þá sem vilja kynna
sér efni fundarins betur hafa verið teknar saman nokkrar stórmerk-
ar greinar um málefnið og getur fólk nálgast þær á skrifstofu ÆFAB
að Hverfisgötu 105.
Félagsmálanefnd ÆFR
StofnfundurverðurhaldinnaðH-105 miðvikudag 17. aprílklukkan
20.30. Fyrsta mál á dagskrá verður að skipuleggja ferð sem áætl-
að er að fara hvítasunnuhelgina 24.-27. maí nk.
Kaffi og kökur, - allir velkomnir.
Félagsmálaráðherra ÆFR
Æskulýðsfylkingin í Reykjavík
Stjórnarfundur
verður haldinn sunnudaginn 14. apríl kl. 17.00 að Hverfisgötu 105.
Nauðsynlegt að rukkarar mæti og skili af sér. Stjórnin
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 31. mars 1985