Þjóðviljinn - 05.07.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 05.07.1985, Blaðsíða 2
DV/Vikan Neituðu baunadisknum Samningar við FF um y,vinnufriðarábótu fékk ekki stuðning Afundi starfsmanna hjá Frjálsri ijölmiðlun (DV, Vik- an) í gær var samningsuppkasti um „vinnufriðarábót" hafnað. Nííján greiddu atkvæði með samningum og tólf gegn, en til samþykktar þurfti tvo þriðju hluta atkvæða og er baunadisks- samningurinn því úr sögunni að sinni. Um 160 eru í Starfs- mannafélaginu. í samningsdrögunum var kveð- ið á um típrósent álag á kaup gegn loforði starfsmanna um að nýta ekki verkfallsrétt sinn í þrjú ár. Fengist samningurinn sam- þykktur skyldi leitað samþykkis Félags bókagerðarmanna, Blaðamannafélagsins, VR og Framsóknar. Ekkert þessara stéttarfélaga hafði fjallað formlega um samn- ingsdrögin, en þess má geta, að á aðalfundi Blaðamannafélags ís- lands fyrir skömmu var borin upp ályktunartillaga gegn vinnufrið- arábótarsamningnum. Þeirri til- högun var vísað frá á þeim for- sendum að það væri ekki sam- boðið virðingu fundarins að taka ntálið á dagskrá. Þórunn Gestsdóttir formaður stjórnar Starfsmannafélagsins sagði að hugsanlegt framhald á innanhússamningum yrði rætt á næsta stjórnarfundi. -m Innflutningur 37.100 úr á einu ári Mikil aukning ísölu úra. Þing Norðurlandasamtaka úrsmiða á íslandi Innflutningur úra til íslands er orðinn gífurlegur, og á árinu 1984 voru flutt inn hingað til lands ríflega 37.100 úr. Innflutn- ingur úra milli áranna 1983-1984 jókst um rúmlega 1500 úr og í Ijós hefur komið, að aukningin hefur verið mest á sölu vandaðri og veg- legri úra. Algengt er orðið, að fólk eigi úr til skiptanna, þ.e. eigi úr til hversdagsnota og til spari. Þá er tískan á hverjum tíma farin að hafa áhrif á úrakaup fólks í ríkari mæli en áður, fólk velur gerð og lit úra í samræmi við fatnað sinn o.s.frv. Það verður allt að vera í stfl. Þetta kom fram á þingi Norð- urlandasamtaka úrsmiða, sem haldið var hér á landi dagana 21.- 23. júní sl. Norðurlandasamtök úrsmiða voru stofnuð árið 1913, en Úrsmiðafélag íslands gerðist aðili að þeim árið 1957. Þing sam- takanna eru haldin árlega og skiptast úrsmiðafélögin á um að halda þingin. Á þingum þessum er fjallað um ýmis hagsmunamál úrsmiða og starfsskilyrði fyrirtækja í greininni. Á nýafstöðnu þingi samtakanna var aðallega fjallað um fræðslumál og sölu- og mark- aðsmál. -gg Bœkur Höfuðprýðin Paris París, heimsins höfuðprýði heitir ferðamannahandbók eftir Jónas Kristjánsson ritstjóra, rauðvínsdrykkjumann og atvinnuferðalang. í ritinu er túr- hestum leiðbeint um ýmsa heima Parísarborgar, bent á gistihús, veitingastaði og kynntir fyrir Leiðsögurit eftir Jónas merkilegum stöðum og uppá- komum í heimsborginni. Fjölvi gefur út, og er þetta fjórða borgarbók forlagsins eftir Kaupmannahöfn, London og Amsterdam. I handraða útgáf- unnar leynist síðan svipað rit um New York. Höfundur Parísarbókarinnar dvaldi á sögustað margar vikur og lék almennan ferðamann. „París, heimsins höfuðprýði“ er 96 síður í vasabroti, geymir tvö kort og hálft annað hundrað litljós- mynda. Þeir segja að ríkisstjórnin láti bensínið vera svona dýrt til að bif- reiðaeigendur setji franskt koníak á tankana sína. Ný sókn Reglumar ákveðnar Rannsóknarráði ríkisins falið að úthluta 50 millj. Rannsóknarráði ríkisins hefur verið falið að hafa umsjón með úthlutun styrkja til rannsókna og tilrauna í þágu ný- sköpunar í atvinnulíflnu á árinu 1985, og á að verja 50 milljónum króna í þessu skyni á þessu ári. Framkvæmdanefnd Rann- sóknarráðs ríkisins gerði tillögur um reglur um úthlutun og að fengnum þeim tillögum hefur menntamálaráðherra nú sett reglur þar um. Þar segir meðal annars, að styrkfé á þessu ári skuli einkum verja til verkefna á nýjum og álitlegum tæknisviðum. Þar er lögð sérstök áhersla á fisk- eldi, upplýsinga- og tölvutækni, líf- og lífefnatækni, nýtingu orku til nýrrar eða bættrar framleiðslu og framleiðni og gæðaaukandi tækni. -gg Vigdís til Spánar og Hollands Forseti íslands Vigdís Finn- bogadóttir fer í opinbera heim- sókn til Spánar 16. til 18. sept- ember nk. í boði spænsku kon- ungshjónanna. Einnig hefur forseti fslands þegið boð Hollandsdrottningar um að koma í opinbera heimsókn til Hollands 19. til 20. september nk. Raufarhöfn Atvinnulífið í blóma að hefur verið nóg að gera hjá okkur síðan frystihúsið hóf starfsemi sína að nýju í febrúar eftir að hafa verið lokað frá því það skemmdist í bruna í desemb- er sl., sagði Gunnar Hilmarssop, sveitarstjóri á Raufarhöfn í stuttu 'samtali við Þjóðviljann Það hefur enginn verið á atvinnuleysisskrá á Raufarhöfn síðan í febrúar og nú er heldur skortur á vinnuafli en hitt. Um 450 manns búa í þorpinu og starfa aðallega við fiskvinnslu og sjó- sókn. Einn skuttogari, Rauði- núpur ÞH 160, og tveir bátar eru gerðir út frá Raufarhöfn, en auk þess landar togarinn Stakfell hluta afla síns í þorpinu. Fisk- vinnsla er þó ekki það eina, sem Raufarhafnarbúar hafa lífsviður- væri sitt af, þar er einnig rekin saumastofa, svo eitthvað sé nefnt. Miklar framkvæmdir eru nú í gangi hér nyrðra, sagði Gunnar. Kaupfélagið, hreppurinn og fleiri aðilar eru að reisa nýtt frystihús. Verið er að byggja fóður- blöndunarstöð í eigu bænda í N- Þingeyjarsýslu, sem mun að öllum líkindum taka til starfa í lok júlí eða byrjun ágúst. Þá stendur ungmennafélagið að gerð nýs íþróttavallar. Þar er nú verið að ganga frá hlaupa- brautum. Félagar í ungmennafé- laginu hafa tekið myndarlegan þátt í því starfi, bæði með sjálf- boðavinnu og öflugri fjáröflunar- starfsemi og hyggst félagið standa undir allt að þriðjungi kostnaðar við mannvirkið, sem er óvenju hátt hlutfall. Gunnar sagðist að lokunt vilja geta þess, að Raufarhafnar- hreppur á 40 ára afmæli á þessu ári og í tilefni þess verður haldin ljósmyndasýning í félagsheim- ilinu þar sem 40 ára saga hrepps- ins verður rakin í gömlum ljós- myndum. Sýning er nú í Ljós- myndasafni Islands í Reykjav. en verður komin norður um miðjan mánuð. -gg Gunnar Hilmarsson sveitarstjóri. 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 5. júlí 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.