Þjóðviljinn - 07.07.1985, Blaðsíða 17
LEIÐARAOPNA
þér um einkaskóla?
Ekki tekinn
réttur frá neinum
Segir Inga Jóna Þórðardóttir aðstoðarmaður
menntamáiaráðherra um stofnun einkaskóla
Inga Jóna Þórðardóttir: Einkaskólinn leiðir einungis til þess að fólk hefur
fjölbreyttara val.
Það er ekki verið að mismuna
unglingum með stofnun
einkaskólanssagði Inga Jóna
Þórðardóttir aðstoðarmaður
menntamálaráðherra. Þá
væri hægt að nota sömu rök-
semdafærslu um allt það ann-
að sem boðið er upp á og fólk
geturkeypt.
Það er ekki verið að taka rétt
frá neinum. Tilvera einkaskólans
leiðir einungis til þess að fólk hef-
ur fjölbreyttara val.
Það er ekki ráðuneytisins að
setja reglur um inntöku nem-
enda. Það sem að ráðuneytinu
snýr er að skólinn starfi í sam-
ræmi við lög og uppfylli þær
skyldur sem á grunnskólann eru
lagðar. Skólaþróunardeild
menntamálaráðuneytisins hefur
farið yfir námsefni og tillögur
Tjarnarskólans og heimild til
skólareksturs veitt út frá því.
Sem svar við því hvort þetta er
betri lausn vil ég segja að ég held
að það sé betra ef fólk hefur kost
á fleiri en einum möguleika. í því
er fólgin hvatning.
Ég óttast ekki að skólakerfið
leggist í rúst vegnaþessa.
Það hefur alltaf verið stór
hluti kennslu sem fer fram utan
ríkisskólanna, bæði í einka-
skólum og á vegum einkaaðila.
Sú kennsla hefur alla tíð verið til
staðar og því ekkert að óttast þó
fleiri kennarar fylgi í kjölfarið og
stofni einkaskóla.
Með einkaskólanum er verið
að gera tilraun. Hingað til hefur
ekki verið neinn einkaskóli í
þessum bekkjum, enginn lagt útí
að spreyta sig.
Ef einhverjir nemendur kjósa
heldur að sækja sinn lærdóm ann-
að þá er það bara gott að þeir eigi
kost á því. Ríkisrekna skólakerf-
ið mun halda áfram að vera til, til
að tryggja að allir eigi kost á
námi. Einkaskólinn leiðir fyrst og
fremst til þess að fólk hefur val-
möguleika. Að vísu er þetta val
takmarkað því aðeins 100 nem-
endur verða teknir inn en það er
eftir að sjá hver reynslan verður.
Hvort foreldri sendir barn sitt í
einkaskóla eða ríkisrekinn skóla
fer ekki eftir launum, það fer eftir
því hvaða forgang'sverkefni menn
kjósa sér. Börn njóta einka-
kennslu í ýmsum greinum, sjáðu
bara dansskólana það er ábyggi-
lega dýrt að hafa barn í dansskóla
og þetta er fyrst og fremst spurn-
ing um hvað fólk vill setja á
oddinn.
Allt þetta tal um stéttaskipt-
ingu í framhaldi af stofnun einka-
skólans er ástæðulaus og einungis
til þess fallið að gera myndina
dekkri.
Einkaskólar og ríkisreknir
skólar geta starfað hlið við hlið og
haft stuðning hver af öðrum.
Það hefur ekki ríkt nein leynd í
sambandi við stofnun skólans.
Það hittist bara svo á að þegar
stofnendur skólans héldu blaða-
mannafund til að tilkynna um
stofnunina var enginn annar til
viðtals. Umsóknin var afgreidd
hér í ráðuneytinu í byrjun júní og
þær ásakanir að farið hafi verið
leynt með stofnun skólans eiga
ek-ki við nein rök að styðjast.
Sótt var um leyfi til að stofna
einkaskóla. Menntamálaráðu-
neytið athugaði hvort skólinn
uppfyllti þau skilyrði sem sett eru
um skólastarf og í framhaldi af
því kvaðst ráðherra beita sér fyrir
að útvega fjármagn sem er
sambærilegt við það sem aðrir
einkaskólar njóta.”
-aró
Pór Jóhannsson 15 ára
Ég er
algjörlega
á móti
„Ég er algerlega á móti ein-
kaskóla, vegna þess að þeir
geta borgað kennurunum
betri laun, og geta því valið úr
bestu kennurunum.
Sennilega geta einkaskólar
boðið upp á betri þjónustu. Það
er staðreynd að það eru ekki allir
foreldrar sem geta kostað börnin
sín í svona skóla svo hvers eiga
þeir krakkar að gjalda?
Ég t.d. kæmist ekki í einka-
skóla vegna þess að ég get ekki
borgað 30.000 krónur á ári,“
sagði Þór Jóhannsson 15 ára.
-*P
Elvar Davíð Eiríksson 13 ára
Ég er ánœgður
með minn skóla
„Einkaskólar eru vitleysa
og „snobb“ þarsem krakkar
eru flokkaðir í dilka. Ég er
sannfærður um að ef það
kæmu margireinkaskólar, þá
mynda þeir stéttaskiptingu.
Égþekki engan sem feríTjarn-
arskóla, og get ég ekki ímyndað
mér að kennslan verði nokkuð
betri. Ég er ánægður með minn
skóla, og myndi ég ekki vilja fara
úr hverfinu í annan skóla, það
skiptir nefnilega miklu máli að
vera alltaf með sömu félögunum í
bekk“.
-sp
Ella Geirsdóttir 18 ára
Einkaskólar
ýta undir
stéttaskiptingu
„Mér finnst fáránlegt að
stofna einkaskóla hér á landi,
þeir ýta bara undir stéttaskipt-
ingu. Þetta er „prinsip“ atriði,
við eigum ekki að hafaslíkan
flokkara, þar sem peningar
foreldra ráða hvort unglingur
fær betri kennslu eða ekki.
Ég þekki engan sem mun sækja
um Tjarnarskóla. Það er skortur
á kennslutækjum í sumum grunn-
skólum og finnst mér að
stjórnvöld ættu að sýna sóma sinn
í því að byggja upp grunnskóla-
kerfið þannig að allir geti verið
stoltir af, svo ekki þurfi að grípa
til slíkra ráða“.
-sp
Ásta Einarsdóttir 14 ára
Grunnskólinn
eins og
vitleysingahœli
„Ég myndi hiklaust fara í
einkaskóla ef ég ætti kost á
því. Ég er mjög óánægð með
kennslu í þeim grunnskóla
sem ég er í, og finnst mér
kennararnir koma fram við
okkur eins og við séum
skepnur. Þaðmásegjaað
þessi skóli sé eins og vitleys-
ingahæli.
Ég ætla að sækja um vist í
Tjarnarskólanum vegna þess að
ég vil leggj a mikið í sölurnar tii að
fá góða grunnskólamenntun og
komast síðan í menntaskóla“.
-sp
Sunnudagur 7. júlí 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17