Þjóðviljinn - 20.08.1985, Blaðsíða 9
MINNING
Þorgerður Hanna
Haraldsdóttir
Fædd 21. apríl 1926- dáin 12. ágúst 1985
Aðfaranótt 12. ágúst andaðist
á Landakotsspítala mágkona mín
Hanna Haraldsdóttir eftir langa
og erfiða sjúkdómslegu og kom
sú fregn engum á óvart er til
þekktu.
Hanna var fædd á Syðri
Rauðamel dóttir hjónanna Úlf-
hildar Hannesdóttur og Haraldar
Lífgjarnssonar er þar bjuggu.
Þau áttu fjögur börn: Lífgjarn
Inga, Hrafnhildi, Þorgerði
Hönnu og Sigurð Bjarna. Úlf-
hildur og Haraldur slitu samvist-
um, Úlfhildur hóf síðan sambúð
með Andrési Jónssyni á Eyrár-
bakka og áttu þau saman tvo syni
Kristján og Hilmar.
Sex ára að aldri var Hanna
tekin í fóstur af hjónunum Jó-
hönnu Ólafsdóttur og Þorleifi
Jónssyni er þá bjuggu á Syðri
Rauðamel og síðar í Breiðholti í
Reykjavík og hjá þeim dvaldi
hún til fullorðins ára, við mikla
ástúð og hlýju fósturforeldranna
og barna þeirra en þau voru:
Guðmundur, Þorkell, Kristján,
Jón, Sólveig, Jóhanna og Kristín.
Árið 1951 giftist Hanna,
bróður mínum, Gunnlaugi
Jónssyni veggfóðrarameistara frá
Fossi í Hrútafirði. Bjuggu þau
fyrst á Freyjugötunni og síðar
lengst af á Snekkjuvogi 23.
Börn þeirra eru: Hrafnhildur
myndmenntakennari gift Sigurði
E. Rósarssyni tannlækni, Þor-
leifur veggfóðrari og Anna Sig-
ríður auglýsingateiknari gift
Rúnari Sveinbjörnssyni raf-
virkja.
Eftir lát Þorleifs Jónssonar
flutti Jóhanna til Hönnu og
Gunnlaugs og átti þar heimili í 18
ár.
Þar sem Gunnlaugur kom
einnig úr stórri fjölskyldu var
löngum gestkvæmt á heimilinu
enda kunnu húsráðendur öðrum
fremur að blanda geði við fólk.
Að binda svo sterk vináttu- og
fjölskyldubönd er á fárra færi.
Húsmóðurstarfið var Hönnu
aðal æfistarf, hagsýn og rausnar-
leg enda var hún vel verki farin.
Á síðari árum tók hún að sér
störf utan heimilis m.a. á Hrafn-
istu í Reykjavík, fyrst sem starfs-
stúlka og síðar ræstingastjóri
meðan heilsa entist. Umhyggja
fyrir öldruðum og sjúkum var
henni eðlislæg, ásamt þroskaðri
félagshyggju. Þessir eiginleikar
komu þar að góðum notum og
ekki síður þegar hlynna þurfti að
sjúkum ættingjum og vinum.
Nú að ferðalokum er margs að
minnast, ferðalög utanlands og
innan, þaðan geymum við hjónin
dýrmætar minningar.
Ógleymanleg voru gamlárs-
kvöldin í Snekkjuvoginum. Þá
tóku þau hjónin á móti gestum
sínum, glaðværð og gamansemi
húsráðenda naut sín þá vel í sér-
stæðu samfélagi ættingja Hönnu
og Gunnlaugs.
Er á kvöldið leið bættust fleiri í
hópinn, þá voru rifjaðir upp at-
burðir frá liðnu ári, litið björtum
augum til komandi árs og minnst
þeirra sem farnir voru.
Á persónuleg samskipti fjöl-
skyldna okkar bar aldrei nokkurn
skugga og því er gott að minnast
Hönnu Haraldsdóttur.
Við hjónin og dætur okkar
söknum vinar í stað og sendum
Gunnlaugi og fjölskyldu hans
dýpstu samúðarkveðjur.
Olafur Jónsson
Enn er á ferð maðurinn með
ljáinn nú er það mágkona mín
Hanna Haraldsdóttir.
Dauðinn er óumflýjanlegur,
það vitum við mannanna börn,
en við eigum bágt með að sætta
okkur við það þegar fólk á góðum
aldri er burt kallað. Það grípur
okkur sár söknuður, ekki síst
þegar leiðir hafa lengi legið sam-
an og samskipti hafa verið með
þeim hætti sem best verður á kos-
ið. Nú þegar vegir skiljast og ég
minnist mágkonu minnar kemur
fyrst í huga minn það mikla þrek
og hugrekki sem hún sýndi í
veikindum sínum. Já, hún var
mikil hetja og stóð á meðan stætt
var. Það mun vera um tvö og hálft
ár síðan hún kenndi þess sjúk-
dóms sem var banamein hennar.
Hún dvaldi meira eða minna á
sjúkrahúsi á þessu tímabili og oft
mikið þjáð. Þó svo væri komið
var hún alltaf glöð þegar hún fékk
’neimsóknir hvort heldur var á
spítalanum eða á heimili sínu.
Hún hafði lengi óbilandi trú á því
að sigra í þessar baráttu, annað
var ekki látið uppi.
Hanna var ekki heilsusterk um
æfina, lá margar sjúkrahúslegur
og gekkst undir marga upp-
skurði. Hún var mjög vel ritfær
og lá létt fyrir henni að koma
hugsunum sínum til skila, hvort
heldur var í bundnu eða óbundnu
máli. Hanna var ákaflega félags-
lynd, hún var félagi í Kvöldvöku-
félaginu Ljóð og saga í rúm tut-
tugu ár. Það félag hefur á stefnu-
skrá sinni að halda til haga
gömlum sögnum, ljóðum og vís-
um og einnig frumsömdu efni.
Þar var hún mjög liðtæk, var um
árabil í ritnefnd félagsblaðsins.
Hún var góður ræðumaður, setti
fram skoðanir sínar á góðu máli
og flutti þær með reisn og
skörungsskap, stóð fast á skoð-
unum sínum ef hún áleit það til
heilla horfa sem um var rætt.
Hanna var formaður félagsins í
rúm tvö ár uns hún varð að láta af
formennsku sökum veikinda.
Eitt af störfum hennar þar var
stofnun Kvöldvökukórsins, sem
var henni mikið hjartans mál.
Kórinn var síðan stofnaður á
heimili þeirra hjóna. Margt fleira
mætti segja um starf hennar sem
formanns en hér læt ég staðar
numið.
Hanna var glæsileg kona í sjón
og raun. mikil húsmóðir, traustur
lífsförunautur og mikil móðir
barna sinna. Heimili þeirra
Hönnu og Gunniaugs var mynd-
arheimili, hjónin gestrisin og fjöl-
skyldan mjög samhent og var því
oft gestkvæmt á heimili þeirra.
Fjölskylda mín kveður hana
með söknuði og þakklæti fyrir allt
sem hún var okkur.
Við hjónin sendum manni
hennar, börnum, bræðrum, fóst-
ursystkinum og öðrum aðstand-
endum okkar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Björn Jónsson
Utlitsteiknari
Þjóðviljinn óskar að ráða útlitsteiknara (layo-
ut) sem fyrst. Skriflegar umsóknir sendist
framkvæmdastjóra Þjóðviljans fyrir 23. ág-
úst.
MÓDVIUINN
Síðumúla 6,
Reykjavík.
Utanríkisráðuneytið óskar að ráða ritara til starfa í
utanríkisþjónustunni.
Krafist er góðrar kunnáttu í ensku og a.m.k. einu öðru
tungumáli auk góðrar vélritunarkunnáttu.
Eftir þjálfun í utanríkisráðuneytinu má gera ráð fyrir að
ritarinn verði sendur til starfa í sendiráðum íslands
erlendis.
Eiginhandarumsóknir með uþþlýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist utanríkisráðuneytinu,
Hverfisgötu 115, 105 Reykjavík, fyrir 1. september
n.k.
Utanríkisráðuneytið
Ritari
Þriðjudagur ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
HITAMÆLINGA-
MIÐSTÖÐVAR
Si
i
fyrir báta,
skip og iðnað
Fáanlegar fyrir sex, átta, tíu, tólf, sextán, átján eöa
tuttugu og sex mælistaöi.
Ein og sama miðstöðin getur tekiö viö og sýnt
bæði frost og hita, t.d. Celcius +200+850 eöa
0+1200 o.fl.
Hitaþreifarar af mismunandi lengdum og meö mis-
munandi skrúfgangi fáanlegar.
Fyrir algengustu riö- og jafnstraumsspennur.
Ljósastafir 20 mm háir.
Þaö er hægt aö fylgjast meö afgashita, kæli-
vatnshita, smurolíuhita, lofthita, kulda í kælum,
frystum, lestum, sjó og „man ekki fleira í bili“ í einu
tæki.
Lofaöu okkur aö heyra frá þér.
cJl&in)©©©!!!) & mykjavik, iciland
Vesturgðtu 16. Simar 14680 — 13280.
M IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS
■ E óskar eftir að ráða
deildarstjóra
staðladeildar
Starfssvið staðladeildar eru:
• Ritstjórn, útgáfa og dreifing íslenskra staðla.
• Upplýsingaþjónusta og útvegun erlendra
staðla.
• Almenn stöðlunarmál.
Við leitum að framtakssömum starfsmanni með góða
skipulagshæfileika, sem getur unnið sjálfstætt og á
gott með að tjá sig og umgangast aðra. Verkfræði-
menntun eða sambærileg menntun er nauðsynleg.
í boði er fjölbreytt en krefjandi starf á sviði staðlamála.
í starfinu felst yfirgripsmikið samstarf við erlendar
staðlastofnanir, bæði í formi almennra samskipta og
ferðalaga.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendisttil Iðntæknistofnunaríslands, Keldnaholti, 110
Reykjavík fyrir 30. ágúst 1985 merkt: Deildarstjóri
staðladeildar.
Hlutverk Iðntæknistofnunar er að vinna að tækni-
þróun og aukinni framleiðni í íslenskum iðnaði
með því að veita einstökum greinum hans og iðn-
fyrirtækjum sérhæfða þjónustu á sviði tækni- og j
stjórnunarmála og stuðla að hagkvæmri nýtingu
íslenskra auðlinda til iðnaðar.
Blikkiðjan
Iðnbúð 3, Garðabæ
onnumst þakrennusmíöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiði.
Gerum föst verðtilboð
SIMI 46711