Þjóðviljinn - 20.08.1985, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 20.08.1985, Blaðsíða 15
Jerúsalem Páfi með múslimum Casablanca - Jóhannes Páll II páfi lauk sjö landa Afríkuferð í gær með heimsókn til hins músiimska Marokkó þarsem hann ræddi við Hassan kon- ung sem sagður er afkomandi spámannsins Múhameðs sjálfs. Páfi sagði blaða- Bretland M5ÍBBC Annað hneyksli: leyniþjónustan fylgist með ráðningum Jóhannes Páll II blessar mannsöfnuð við messu í Bamunda í Kamerún. Tékkó Havel inni Vín - Lögregla handtók tékk- neska leikritaskáldið Vaclav Havel í Bratislava fyrir helgi og er það í annað skipti á viku sem Havel er settur í fangelsi. Havel var handtekinn eftir að hafa heimsótt Miroslav Kusy, á- hrifamann í Kommúnistaflokkn- um á tímum Prag-vorsins. Kusy var einnig handtekinn við annan mann og leitað í íbúð hans. Talið er að lögregla herji nú á Charta- 77 menn til að gera upptækt plagg sem mannréttindasamtökin ætla að opinbera á miðvikudag, þegar liðin eru 17 ár frá innrás sovét- manna í Tékkó. mönnum í flugvélinni frá Ken- ya að hann teldi að Jerúsalem ætti að fá sérstaka réttarstöðu sem trúarleg höfuðborg sam- eiginleg gyðingum, kristnum og múslimum. Páll hefur síðustu viku heim- sótt sex Afríkulönd sunnan Sa- hara, rætt við ráðamenn og mess- að yfir kristnum íbúum. Hann hefur haldið fram eindregnum kaþólskum viðhorfum, og sagði að afrískur menningarheimur verði að laga sig að þeim, ekki öfugt. Ýmsir kristnir afríkumenn hafa leyft sér að setja upp skeifu vegna hinnar hörðu páfakenning- ar, - kristni hefur undanfarið ver- ið í sókn í Afríku en evrópskt snið hefur hamlað vexti kirkjunnar í menningarheimi sem enn styðst við sérafrískt hugarfar, hefðir og siðvenjur. Heimsókn páfa til Marokkó er fyrsta opinbera páfaheimsókn til rammíslamsks ríkis. Páfi tók fram að ummæli sín um Jerúsal- em væru í samræmi við stefnu fyrirrennara sinna, og sagðist viðurkenna tilverurétt lsra- elsríkis. Gestgjafi hans í Mar- okkó, Hassan konungur, er með öðru formaður íslamskrar nefnd- ar um Jerúsalem, og eykst þar- með pólitískt gildi ummæla páfa um Jerúsalem. London - Það stormar heldur betur þessa daga um hina virðulegu „frænku“ - einsog BBC-útvarpið var kallað á barnsaldri. Ekki var veður fyrr farið að lægja eftir ríkisstjórn- arritskoðun og starfsmanna- verkfall útaf IRA-viðtali en nýj- ar hneyksliskólgur hrannast upp á breskan fjölmiðlahimin: starfsmenn eru ráðnir til BBC samkvæmt umsögn frá sér- stakri deild bresku leyniþjón- ustunnar MI5. Blaðið Observer skýrði frá því á sunnudag að MI5-menn könn- uðu pólitískar skoðanir þeirra sem sækja um störf á hinni ríkis- reknu útvarps- og sjónvarpsstöð og hefði hönd í bagga með mannaráðningum. Fyrrverandi liðsforingi stjórnaði þessum rannsóknum og hefðu ieyniþjón- ustumennirnir húspláss í höfuð- stöðvum BBC í London. Útvarpsstjórinn Alasdair Suður-Afríka Kirkjumenn vonsviknir Milne sagði hér sagt áköfum of- sögum, en í gær staðfesti fyrrver- andi yfirmaður BBC í Skotlandi, Alastair Heterhington, frásögn Observer, og sagði alla yfirmenn á BBC vita gjörla um afskipti MI5 af BBC. Hann sagði rann- sóknir leyniþjónustunnar beinast að yfirmönnum, fréttamönnum og dagskrárgerðarmönnum. Talsmenn stjórnarandastöðu- flokkanna hafa krafist yfirlýsing- ar frá ríkisstjórninni um málið. David Steel leiðtogi Frjálslynda flokksins sagði að BBC virtist vera undir stjórn innanríkisráð- uneytisins og krafðist þess að innanríkisráðherrann Leon Britt- an gerði hreint fyrir sínum dyr- um. Blaðamenn á BBC hafa beð- ið um fund með yfirstjórninni vegna þess arna, og breska blaða- mannafélagið hefur sakað yfir- stjórn BBC um að reyna að ljúga sig útúr hneykslinu. í reglugerð BBC er skýrt kveð- ið á um að stofnunin skuli óháð ríkisstjórnarafskiptum, og koma leyniþjónustufréttirnar á óhepp- ilegasta tíma fyrir innanríkis- ráðherann og yfirmann hans, Margréti Thatcher, eftir ritskoð- unmálið fyrr í mánuðinum. Tutu segir Thatcher, Reagan og Kohl styðja aðskilnaðarstefnuna. REUTER Umsjón: MÖRÐUR ÁRNASON Johannesburg/... -Níu kirkju- leiðtogar ræddu í gær við Bot- ha forseta Suður-Afríku og lögðu að honum að gjörbreyta kynþáttastefnu stjórnarinnar og lýstu vonbrigðum eftir fundinn. „Við erum langt frá því vissir um að hann hafi hlustað á þennan grundvallar- boðskap," sagði leiðtogi me- þódistakirkjunnar að loknum viðræðum. Desmond Tutu biskup neitaði boði um að vera með í sendinefndinni en endurtók tilboð sitt um að hitta Botha að máli einn saman. Botha hefur sagt að hann ræði aðeins við þá sem afneita al- Petta Uka... ...28 létust, 68 sárir eftir tvær bíla- sprengjur í Vestur-Beirút í gær. Sprengjurnar sprungu á yfirráða- svæði shíta og telja þeir kristna ábyrga. í átökum múslima í Tripoli lést einn, þrír sárir. ...Breski söngvarinn Shirley Bass- ey fær ekkl að halda tónleika í Ósló í desember vegna þess að hún hef- ur komið fram í Suður-Afríku og þarmeð brotið bann Sameinuðu þjóðanna við menningar- og íþróttasamskiptum við landið. ...Bandaríska blaðið Washington Post hefur keypt 23 kapalstöðvar víðsvegar um Bandaríkín fyrir 350 milljónir dollara. ...ísraelska stjórnin hefur sam- þykkt að flýta vetrartíma í landinu um hálfan mánuð. Ákvörðunin er tekin vegna þrýstings frá hreintrúarflokkum sem krefjast nægilegs tíma til morgunbæna. ...Lögga í Chicago handtók í gær fjallgöngumann sem ætlaði að klífa hæstu byggingu heims, hinn hundrað og tíu hæða Sear-turn. mennri óhlýðni meðal blökku- manna, og sagði Tutu þegar hann neitaði að vera með í kirkjusend- inefndinni að Botha kærði sig að- eins um að hitta svarta af eigin pólitísku sauðahúsi. í viðtali við BBC í gær sakaði biskupinn leiðtoga Bretlands, Bandaríkjanna og Vestur- Þýskalands um að styðja aðskiln- aðarstefnu hvítu minnihluta- stjórnarinnar í Suður-Afríku, vegna andstöðu Thatchers, Re- agans og Kohls við efnahagsað- gerðir. Tutu sagði undarlegt að Thatcher og Reagan væru nú á móti efnahagsaðgerðum, þarsem Thatcher hefði beitt argentínu- menn efnahagsþvingunum í Falk- landseyjastríðinu 1982 og Reag- an sett viðskiptabann á Pólland eftir herlögin 1981. 998 voru í haldi án ákæru í gær og lögreglan sagðist hafa sleppt 1081. Á þarlendan kvarða var til- tölulega rólegt í hverfum svartra í Suður-Aríku um helgina: aðeins einn skotinn til bana. Yfir 620 hafa látist í átökum síðustu 19 mánuði. Ástralíumenn hafa tilkynnt um refsiaðgerðir gegn Suður-Afríku og Jim Slater, formaður breska sjómannafélagsins hvatti í gær verkalýðsfélög í heiminum til að setja olíubann á landið. ■ - •' v '7 y\ .... _ ; ' '; ^’aÁ. « , ft. Á -i.i . Rainbow Warrior eftir tilræðið í Auekland-höfn. Rainbow Warrior Hiingurinn þrengist Frönsk blöð sammála um aðild leyniþjónustunnar. Átök við Mururoa? Holland Mælt með líknardrápum Haag - í skýrslu sem stjórn- skipuð sérfræðinganefnd kom frá sér í gær er lagt til að lækn- um verði heimilt að binda endi á líf illa haldinna og dauðvona sjúklinga biðji hinn sjúki um slíka lausn. í hollenskum lögum er kveðið á um uppundir tólf ára fangelsi þeim læknum sem sekir verða um líknardráp eða aðstoða sjúklinga við sjálfsmorð. í fyrra úrskurðaði hollenski hæstirétturinn hinsveg- ar að þegar líknardrápsmál kæmi fyrir rétt bæri að taka tillit til sið- rænnar læknisábyrgðar og hafa nokkur líknardrápsmál gegn læknum síðan verið látin niður falla. í síðasta dómsmáli þessarar gerðar var læknir þó fundinn sek- ur um morð og dæmdur í ársfangelsi og blossaði umræða um líknardráp þá aftur upp. Lítill vinstriflokkur, D-66, lagði í vor fram frumvarp á þingi um að líknardráp yrðu leyfð. Helsti stjórnarflokkurinn, kristi- legir demókratar, hafa lagst gegn Iíknardrápum og stærsti stjórnar- andstöðuflokkurinn, jafnaðar- menn, vildu láta þingumræðu bíða skýrslu nefndarinnar sem hefur verið að störfum frá 1982. Nefndin er skipuð læknum, lögfræðingum og háskóla- mönnum af ýmsu tagi öðru og komust 13 af 15 nefndarmönnum að þeirri niðurstöðu að ekki skyldi refsað fyrir líknardráp, enda hefði sjúklingurinn af frjáls- um og heilum huga lagt fram vel rökstudda beiðni um að fá að ljúka lfíi sínu á þann veg. í skýrslu nefndarinnar er einnig talað um skyldubundið samráð lækna áður en farið er að vilja sjúklings. Talsmaður jafnaðarmanna- flokksins segir að tæknilega standi nú fátt í vegi fyrir að þingið taki afstöðu til líknardrápsskýrsl- unnar, en ósennilegt væri að þingið afgreiddi slíkt viðkvæmni- smál fyrir kosningar í maí París/Wellington/... - Búist er við að sérstakur rannsóknar- maður Frakklandsforseta, Bernard Tricot, skili á fimmtudag skýrslu um tengsl frönsku leyniþjónustunnar við sprengjutilræðið í Auckland- höfn þegar skipi grænfriðunga var sökkt. Frönsk blöð eru á einu máli um að franska leyni- þjónustan DGSE eigi aðild að tilræðinu, og er talið sennilegt að varnarmálaráðherrann Charles Hernu verði að segja af sér eftir að það sannast. Grænfriðungar hafa sent nýtt móðurskip í „friðarflotann” sem nú stefnir að kjarnorkutilrauna- stöð frakka á Mururoa-rifi. Mitterrand forseti hefur gefið hernum skipun um að stöðva alla umferð að rifinu, en talsmaður grænfriðunga sagði í gær að orð forsetans yrðu virt að vettugi ef skipstjórum flotans litist svo. Átök milli franska hersins og grænfriðunga við Mururoa mundu í kjölfar Rainbow Warrior-málsins vekja gríðarlega athygli og beina kastljósum að kjarnorkuathæfi frakka í Kyrra- hafi sem kallað hefur á sífelld mótmæli í nágrenninu. Forsætisráðherra Nýja-Sjá- lands segist ekki hafá sannanir um neitt en tekur fregnum í frönskum fjölmiðlum „mjög al- varlega”. Hann segir að ef þær reynast hafa við rök að styðjast fari nýsjálenska ríkisstjórnin í mál við hina frönsku og krefjist skaðabóta fyrir sína hönd, græn- friðunga og fjölskyldu skipverj- ans sem lét lífið í sprengingunni. Stjórnaiandstaðan franska hefur hingaðtil haft hægt um sig, en einn leiðtoga nýgaullista sagði á þingi í gær að forsætisráðherr- anum bæri að segja af sér ef ábyrgðin væri frakka. Blað franska kommúnistaflokksins, l’Humanité, sagði í gær að leyni- þjónustan hefði ekki tekist á hendur slík stórvirki án vitundar forsetans sjálfs. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 Óháð ríki Kanar hóta Singapore - Vernon Walters fulltrúi Bandaríkjanna hjá SÞ gagnrýndi óháð ríki harðlega fyrir afstöðu þeirra á SÞ- þingum og hótaði þeim ríkjum sem ekki taka afstöðu með könum öllu illu. Walters sagði á fundi í Singap- ore að ríki utan hernaðarbanda- laga greiddu 86,2 sinnum af hundrað atkvæði með Sovét, og kvaðst mundu gera allt sem í sínu valdi stæði til að láta þessi ríki finna fyrir því („make them feel as bad as possible”).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.