Þjóðviljinn - 05.09.1985, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
Dagvistarmál
Deilt um vandann
Anna K. Jónsdóttir fulltrúi Sjálfstœðisflokksins íStjórnarnefnd:
Fíflagangur leiðir ekki til neins
r
Ikvöld er á dagskrá í útvarpinu
fímmtudagsumræðan um dag-
vistunarmál. Meðal þátttakenda
er Anna K. Jónsdóttir formaður
stjórnarnefndar Dagvistunar og
annar af tveimur fulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins í nefndinni. Þjóð-
viljinn sló á þráðinn til Önnu og
spurði hana fyrst um megin við-
horf hennar í dagvistarmálum og
hvort hún teldi vanda eins mikinn
og starfsmenn og foreldrar halda
fram.
Hvernig finnst þér að borgar-
stjóri hafí staðið sig í þessu máli?
„Hann hefur staðið sig vel. Það
getur verið að hann hafi ekki get-
að kynnt sér málin nógu vel strax
í upphafi vegna tímaskorts, en ég
hef trú á því að hann eigi eftir að
sjá til þess að vandinn verði
leystur. Hann hefur sýnt mjög
mikinn skilning á málunum og
reynst mér vel. Það hefur alltaf
verið mikil eftirsókn í stöður ó-
faglærðra á dagheimilum, því
þetta er gefandi starf og enda þótt
laun spili inn í, þá held ég að þau
séu ekki stærsti vandinn."
Ef þetta eru svona eftirsótt
störf, hvernig stendur þá á því að
enn eru dcildir lokaðar í dag?
„Svona fíííagangur, að vera
alltaf að rífast um hve margar
deildir séu lokaðar, leiðir ekki til
neins. Þær deildir sem lokaðar
voru fyrir helgi voru opnaðar aft-
ur á þriðjudag, og það er eins og
að sumir hafi stefnt að því að
þessar deildir væru lokaðar á
mánudeginum."
Hvað áttu við með því?
„Ég vil ekkert segja um það
meira, þetta var vegna skyndi-
legra mannabreytinga og spurn-
ing um örfáar manneskjur sem
olli þessum lokunum fyrir helg-
ina. Aðgerðir foreldra og fóstra á
mánudeginum eiga kannski þátt í
þessu, ég veit það ekki,“ sagði
Anna K. Jónsdóttir að lokum.
-vd.
„Vandinn er fyrst og fremst
skortur á ófaglærðu fólki,“ sagði
Anna. „Hann stafar af offram-
boði á atvinnu fyrir þetta fólk.
Það er nýr vandi en núna kemur
betur í ljós að fóstruskortur er og
verður alltaf fyrir hendi. Þær að-
gerðir sem komið hafa upp til
þess að fá ófaglært fólk inn á
heimilin eru alls ekki nein árás á
fóstrustéttina, slík ummæli eru
bara fyrirsláttur. Og þetta nýja
námskeið sem er verið að bjóða
upp á er efnislega mjög áhuga-
vert, og ég held að það muni
koma til með að hækka laun tals-
vert, mig minnir að það séu einir
tveir launaflokkar sem bætast á
laun ófaglærðs fólks ef það fer á
þetta námskeið."
Nú vilja margir halda því fram
að þessar lausnir séu aðeins tíma-
bundnar, hvað fínnst þér um
það?
„Það er bara rugl og della. Að
sjálfsögðu óttast ég frekari hreyf-
ingar á fólki en ég held að þær
verði ekki eins miklar og í fyrra,
einmitt vegna þessara nám-
skeiða. Og að auki er öllu starfs-
fólki boðið upp á að fá pláss fyrir
börn sín á lægra gjaldi, og ég tel
að það séu miklar líkur á því að
fólk sem á sjálft börn hafi áhuga á
barnauppeldi."
Tónleikar
Tónverk
fyrir
hvali
„Við viljum fá fyrirsætukaup," sögðu smiðirnir sem eru að vinna við Alþingis húsið. Ljósm. Sig.
Alþingishúsið
Loftað út hjá Framsókn
Um þessar mundir er verið að
betrumbæta Alþingishús okk-
ar íslendinga. í gær voru smiðir í
óða önn við að brjóta glerið úr
gluggum skrifstofu Framsóknar-
flokksins. Það á að endurnýja
glerið og svo er einnig verið að
setja grindur fyrir gluggana til
þess að þeir líti út eins og upphaf-
lega.
Þetta eru engar stórvægilegar
framkvæmdir, sögðu smiðirnir,
aðeins viðhald. Einnig er verið að
gera við þakið og hleðslustein-
ana. Inni í húsinu er verið að
huga að því hvernig breyta eigi
þingsalnum þannig að hann geti
tekið við 63 þingmönnum eftir
næstu kosningar í stað 60 eins og
nú er.
SA
Er ekki bara hæfilegt atvinnu-
leysi meðal ófaglærðs fólks
lausnin á daqvistunarvandan-
um?
Félagshyggjufólk
Undirbýr
útgáfu
tímarits
Fundur að Hótel Hofi
12. sept.
í undirbúningi er stofnun fé-
lags, sem hefur það að markmiði
að hleypa af stokkunum tímariti,
er túlki hugsjónir og áform félags-
hyggjufólks. Hefur sérstök undir-
búningsnefnd þegar tekið til
starfa.
Ekki er talið tímabært að efna
til útgáfu dagblaðs. „En við vilj-
um reyna fyrir okkur með útgáfu
tímarits, eins eða fleiri, sem fjalla
um daglegt líf í landinu, s.s. af-
komu heimila, neytendamál,
húsnæðismál, hag launafólks,
jafnrétti kynjanna, menningar-
mál, umhverfismál, fjölmiðlun
og margvísleg áhuga- og tóm-
stundamál fólksins," segir undir-
búningsnefndin. Stefnt er að
mánaðarriti í stóru upplagi.
Stofnfundur útgáfufélagsins
verður haldinn að Hótel Hofi
fimmtudaginn 12. sept. n.k. Nán-
ari upplýsingar gefa meðlimir
undirbúningsnefndarinnar:
Reynir Ingibjbartsson, s. 5-25262
og 21944, Auður Styrkársdóttir,
Vilhjálmur Árnason s. 23712,
Þórður Gunnar Valdimarsson, s.
24476, Jón Á. Sigurðsson, Árni
Sigurjónsson s. 22827, Magnús
Ólafsson s. 29604 og Ásdís Ing-
ólfsdóttir s. 621968.
-mhg
Noregur
Vinstri flokkar í sókn
Útlitfyrir nauman sigur borgaraflokkana en bilið hefur mjókkað. Hanna Kvanmo úr SV
er vinsœlasti stjórnmálamaður Noregs og flokkur hennar bœtir verulega við sig.
Tónsmiðurinn og kontrafagott-
leikarinn Dr. Werner Schulze og
píanóleikarinn Elisabeth Zajac-
Wiedner eru á ferð um Norður-
lönd og munu halda þrenna tón-
ieika hér á landi. Fyrstu tónleik-
arnir verða í Valaskjálf á Egils-
stöðum sunnudaginn 8. septemb-
er kl. 17.00.
Þá verða tónleikar í Hafnar-
fjarðarkirkju þriðjudaginn 10.
september kl. 20.30 og í Lang-
holtskirkju fimmtudaginn 12.
september kl. 20.30.
Tvö verk verða frumflutt hér
„Trio fyrir Zwio“ eftir Schulze og
„Fjórir þættir fyrir kontrafagott
og nótnaborðshljóðfæri“ eftir
Helmut Neumann. Þá flytja Elis-
abeth Zajac-Wiedner og Werner
Shulze eða Zwio eins og þau kalla
sig tvíleiksverk fyrir hvali og
kontrafagott. Verkið er tileinkað
hvölum og upptaka með „söng“
hnúfubaka notaða. Hnúfubakar
eiga fjölbreytt tónamál og sömu
stefin koma fyrir á skipulegan
hátt sem leiðir líkum að því að
hnúfubakar „tali“ saman á þenn-
an hátt.
að bendir flest til þess að
borgaraflokkarnir vinni sigur
í kosningunum á mánudaginn en
hann verður naumari en útlit var
fyrir í upphafí kosningabarátt-
unnar, sagði Jan Otto Hauge rit-
stjórnarfulltrúi norska viku-
blaðsins Ny Tid í viðtali við Þjóð-
viljann í gær.
Hauge sagði að kosningabar-
áttan hefði að mestu snúist um
efnahags- og félagsmál en utan-
ríkismál hefðu verið minna á dag-
skrá. „Stjórnarandstaðan hefur
gagnrýnt það að félagsleg þjón-
usta af ýmsu tagi og þó einkum
heilbrigðisþjónusta skuli hafa
dregist saman á sama tíma og vel
árar í efnahagsmálum. Noregur á
90 miljarða dollara inneign á er-
lendum bönkum og í ljósi þess
telur andstaðan undarlegt að bið-
raðir eftir leguplássum á sjúkra-
húsum lengist dag frá degi,“ sagði
Hauge. „Einnig telja menn að
atvinnuleysi sé meira en ástæða
væri til.“
Eins og áður segir hafa vinstri
flokkarnir verið heldur í sókn
eftir því sem á líður kosningabar-
áttuna. „Ekki síst Sósíalíski
vinstriflokkurinn, SV,“ segir
Hauge. „SV er spáð umtalsverðri
fylgisaukningu og að þing-
mönnum flokksins fjölgi úr fjór-
um í 6-7.“
Þótt svo færi að Verkamann-
aflokkurinn, SV og lítill frjáls-
lyndur flokkur, Venstre, næðu
samanlagt meirihluta á þingi
sagði Hauge að ekki væri við því
að búast að þeir mynduðu sam-
steypustjórn. „Það er ljóst að
mynduð yrði minnihlutastjorn
Verkamannaflokksins sem nyti
stuðnings SV og Venstre á þingi.
SV er ekki andvígur því í grund-
vallaratriðum að ganga til stjórn-
arsamstarfs en segir sem svo að á
meðan flokkurinn er jafnh'till og
raun ber vitni sé ekki raunhæft að
ganga inn í stjórn,“ sagði Hauge.
Kosningabaráttan hefur að
sjálfsögðu snúist mest um þau
Káre Willoch forsætisráðherra og
Gro Harlem Brundtland for-
mann Verkamannaflokksins sem
yrði forsætisráðherra ef flokkur
hennar myndaði stjórn. „En það
hefur komið fram í 4 skoðana-
könnunum í röð að vinsælasti
stjórnmálamaður Noregs um
þessar mundir er Hanna Kvanmo
úr SV. Hún hefur notið vaxandi
fylgis undanfarin ár og má þakka
það því hve alþýðleg hún þykir í
máli. Hún er í framboði í
Nordland-fylki og eru horfur á
því að flokkurinn bæti við sig
manni þar og fái tvo kjörna,"
sagði Hauge.
-ÞH
2 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 5. september 1985