Þjóðviljinn - 05.09.1985, Side 5
Aðferðir
Kanntu
brauð
að baka?
Hér á eftir eru nokkrar aðferðir sem hægt er
að nota við eitt og sama deigið
Af þessari uppskrift er hægt að
fá franskbrauð og ca. 25 smá-
brauð, sem upplagt er að hafa í
skólanestispakkanum.
Grunndeigið:
50 g ger
25 g smjör eða smjörlíki
5 dl vatn og mjólk
2 tsk salt
Vi tsk malað kúmen
1 msk sykur
ca. 900 g hveiti.
Penslaðu brauðið með hrærðu
eggi-
Leystu gerið upp í skál.
Bræddu smjörið/smjörlíkið hvort
sem notað er, og kældu það síðan
niður þangað til það er orðið ca.
37 gráður. Blandaðu öllu efninu
saman og hnoðaðu - skildu smá
hluta eftir af hveitinu, þar til þú
sérð hvað deigið tekur. Hnoðaðu
þangað til deigið er orðið þétt í
sér og festist ekki við hendur eða
borð. Deigið er látið bíða í ca. 30
mínútur í stofuhita til að hefast.
Eftir ca. Vi tíma tekurðu deigið
og skiptir í 4 hluta. Af einum
hluta færðu 12 smábrauð. Af
tveim hlutum verður fransk-
brauð, og síðan er hægt að forma
síðasta hlutann eftir eigin vild.
Hér á eftir koma nokkrar hug-
myndir um hvernig hægt er að
meðhöndla deigið.
Sesambollur:
Taktu einn hluta af deiginu og
búðu til þykka pulsu. Pulsan er
síðan skorin niður í litlar bollur
sem eru lagðar á plötu með bök-
unarpappír á. Klipptu kross í
toppinn af bollunum. Síðan er
þeim gefið tækifæri til að hefast í
20-40 mínútur. Penslaðu bollurn-
ar með hrærðu eggi og stráðu yfir
þær sesamfræjum. Bakaðu boll-
urnar í 6-8 mínútur fyrir miðju í
ofni við 250 gráður.
Franskbrauð:
Helmingurinn af grunndeiginu
fer í franskbrauðið, hnoðaðu það
vel eftir að það hefur hefast.
Taktu smáhluta af deiginu frá,
síðan formarðu brauðið og setur
á ofnplötu. Taktu hlutann sem
skilinn var eftir og skiptu því í
, Framhald á bls. 6
Verðkönnun
Vísitölubrauðin á undanhaldi
Það kom í Ijós þegar verð-
könnun á milli bakaría var
gerð að gömlu malt-, rúg-
og normalbrauðinfyrirfinn-
ast ekki í bakaríum lengur,
undir þessum nöfnum. í
dag heita þau t.d. þýsk
maltbrauð, rúgsigtibrauð
og svo mætti lengi telja.
Samhliða nafnabreytingum
hef ur verðið einnig fengið
að f inna fyrir ímyndunaraf I
inu.
Að þessu sinni hafði Búsýslan
samband við nokkur bakarí, til
að gera verðsamanburð. Eins og
hefur sennilega ekki farið fram-
hjá lesendum er þörfin brýn, þeg-
ar allt verðlag er frjálst, að vita
hvar hentugast er að eyða krón-
unum.
í könnuninni kemur m.a. fram
að vísitölubrauðin rokka í verði
frá kr. 20.30 og upp í 30 krónur.
Hjá Verðlagsstofnun var Búsýsl-
unni gefið upp verð sem er fram-
leiðsluverð með 17% smásöluá-
lagningu og kosta heilhveiti-
brauðin sem eru 500 gr. 20.40
krónur, franskbrauðin form-
bökuð eru á 20.30 krónur. Verð á
snúðum er nokkuð hátt ef miðað
er útfrá efnismagni í vörunni en
þeir eru seldir á 10 krónur og allt
upp í 23 krónur.
Að bregða brauðinu undir
hnífinn getur kostað allt frá 5
krónum og upp í 8 krónur.
Þau virðast vera ófáanleg þessi
gamaldagsbrauð sem kallast bara
maltbrauð, rúgbrauð eða norm-
albrauð. Hér í verðkönnuninni
birtast þau undir grófum
brauðum, vegna mismunandi
nafnagiftar í bakaríum. Verð-
lagsstofnun hefur undir sínum
höndum viðmiðunarverð yfir
þessi brauð og smkv. fram-
leiðslukostnaði og 17% smásölu-
álagningu ætti þá 750 gr af rúg-
brauði að kosta 22.70, 675 gr
maltbrauð kostar 21.20 og norm-
albrauð ætti að kosta 18.70. Á
einum stað kosta þessi svoköll-
uðu grófu brauð frá 40 krónum
upp í 72 krónur.
-sp.
Bakaríið Bakara- Nýja
Kökuval Álfheimab. Bakar. Bridde Grímsbæ meistari kökuhús Sveinn bakari
Franskbrauð vísit. 23.- 22.50 20.30 25.- - 30.- 25,-
Heilhveitibr. vísit. 24,- 23.- 20.30 27.- - 26,- 25.-
Gróf brauð frá 39,- frá 38,- frá 30,- frá 33-49 frá 44.- 40-72 frá 45-55
3jakornabrauð 41.- 49.- 45,- 49,- 44.- 61.- 54,-
Snúður 19.- 21.- 20,- 21.- 20.- 23.- 22,-
Vínarbrauð 17,- 19,- - 19,- - 23.- -
250 gr tvíbök. 46.- 20 stk. 44.- 49.- 48.- 18-20 stk - 60,- 25 stk 70.- 26 stk
Niðursneiðing 6.- 5,- 5,- 6,- 7,- 6,- 8,-
Rúnstykki m/birki 8.- ' 9.- 9.- 9,- 8.50 11.- 12,-
Heilhveitiiangl. 15.- 14.- 14,- 10.50 21.- —