Þjóðviljinn - 05.09.1985, Qupperneq 7
Pað verður ekki sagt að stórtíð-
indi hafi haldið uppi blaðaskrif-
um sumarið 1985; um margt
minnir þetta sumar mig á ár við-
reisnarstjórnarinnar, einkum á
miðju valdatímabili hennar. Pó
hefur eitt og annað komið fram á
þessu sumri sem hlýtur fljótlega
að valda straumhvörfum í
stjórnmálaþróun í landinu, og
mun meðal annars valda ríkis-
stjórninni verulegum erfiðleikum
og koma henni frá. Þetta sjá
menn eins og Gísli Jónsson á Ak-
ureyri, sem segir að lognið í
sumar sé undanfari stormsins
með haustinu og þegar kemur
fram á vetur.
Pað er einkum þrennt sem hef-
ur nú komið glöggt fram á þessu
sumri sem mun draga dilk á eftir
sér.
Fiskveiðistefnan
misheppnuð
Það viðurkenna allir, að það
verður að grípa til einhverra ráð-
stafana til þess að takmarka að-
gang að fiskistofnunum. Þess
vegna er kvótakerfið svonefnda
ákveðið. Nú hefur það komið í
ljós í sumar að kvótakerfið dugir í
fyrsta lagi ekki til þess að tak-
marka með eðlilegum hætti að-
gang í fiskistofnana. Þannig hefur
veiðst mun meira en gert var ráð
fyrir í upphafi ársins - sem betur
fer reyndar. Trillurnar hafa fisk-
að tvöfalt meira en gert hafði ver-
ið ráð fyrir og önnur skip hafa
einnig fiskað meira. í öðru lagi
kemur í ljós að kvótakerfið trygg-
ir á engan hátt betra hráefni en
ella. í þriðja lagi blasir atvinnu:
leysi við heilu byggðarlögunum. í
fjórða lagi er svo ljóst - sem ekki
á rætur að rekja til kvótakerfisins
að láglaunastefnan kemur þannig
oft ella hvaða meinsemd fylgir ó-
hjákvæmilega hernaði Banda-
ríkjamanna hér á landi.
Okkar afstaða er sú að lausn á
þessum málum fáist aldrei nema
herinn fari úr landinu og að ís-
land sé utan hernaðarbandalaga.
En jafnframt hefur það verið
okkar skoðun að meðan herinn
er hér eigi að einangra hann
gjörsamlega frá íslensku þjóðlífi
að öllu leyti. Þannig eigi að banna
hvers konar viðskipti við herinn
af hvaða tagi sem er.
í fljótu bragði gæti mönnum
virst af umræðu undanfarinna
vikna að það væri einnig stefna
Sjálfstæðisflokksins. En svo er
ekki í raun. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur verið aðili að hermanginu á
undanförnum áratugum og hefur
í raun stýrt stefnunni í þeim efn-
um í öllum meginatriðum. Hann
hefur haldið verndarhendi sinni
yfir því að hundruð heildsala og
annarra lifa á allskonar við-
skiptum við bandaríska herinn og
þessir aðilar eru margir hverjir
máttarstólpar og styrktarmenn
Sjálfstæðisflokksins. Væri fróð-
legt að rannsaka hve margir
framámenn í Sjálstæðisflokknum
tengjast beint eða óbeint mútu-
greiðslum bandaríska hernáms-
liðsins til íslendinga, því þessi
„viðskipti" eru vandlega lokuð
inni í leyndahjúp samtryggingar-
niður á sjávarútveginum að fólk
fæst ekki til starfa. Birgðir af
flökum á Bandaríkjamarkaði eru
að ganga til þurrðar. Frystihúsin
geta ekki svarað neyðarkalli sölu-
fyrirtækjanna í Bandaríkjunum
vegna þess að hér fæst ekki fólk
til starfa í frystihúsunum. Eina
svar stjórnvalda við þeim vanda
er að draga þurfi úr spennu - það
heitir á mæltu máli að ríkisstjórn-
in ætli að nota atvinnuleysis-
grýluna til þess að reka fólk inn í
frystihúsin á nýjan leik. Samhliða
þessum vanda sem stafar af
kvótakerfinu og of lágu kaupi
liggur fyrir að eigið fé sjávarút-
vegsins sogast yfir til milliliðanna
í þjóðfélaginu. Niðurstaðan er
því: Stefna ríkisstjórnarinnar
hefur valdið grundvallaratvinnu-
greininni umtalsverða búsifjum
og þar með þjóðarbúinu í heild.
Frá sjónarmiði þjóðarinnar væri
því best að ríkisstjórnin færi frá
sem fyrst. Hún er ekki starfi sínu
vaxin. í sjávarútvegsmálum ráða
reglustikumenn og þeir sem
leggja meiri áherslu á verslun en
framleiðslu, eyðslu en verðmæta-
sköpun.
Farsi - eða?
Það sem hefur einkum borist í
fregnum af ríkisstjórninni í sumar
eru deilur ráðherra Sjálfstæðis-
flokksins um herinn og stöðu
hans í landinu. Það liggur fyrir
Svavar Gestsson skrifar
eftir sumarið að það er bullandi
ágreiningur um herstöðvamálið
og framkvæmd þess innan Sjálf-
stæðisflokksins. Það hefur aldrei
komið fram fyrr og veldur því
kaflaskiptum í hcrstöðvamálinu.
Hernámsframkvæmdir eru nú
meiri hér á landi en nokkru sinni
fyrr og ísland er dregið þéttar inn
í vígbúnaðarbrjálæðið í Norður-
Atlantshafi en áður. Vissulega
eru það stærstu og alvarlegustu
þættir utanríkismálanna um þess-
ar mundir. Þess vegna kemur
kjötstríð ráðherranna út eins og
farsi í augum margra en þegar
grannt er skoðað glittir í viður-
styggð hersetunnar í gegnum
þetta mál; það verður skýrara en
flokkanna þriggja sem bera
ábyrgð á hernáminu, Alþýðu-
flokksins, Framsóknarflokksins
og Sjálfstæðisflokksins. Það er
einnig í mótsögn við þá stefnu
sem forystumenn Sjálfstæðis-
flokksins þykjast hafa í her-
stöðvamálinu að þeir skuli beita
sér fyrir því að bandaríkjastjórn
kosti flugstöð sem á að hálfu leyti
að minnsta kosti að þjóna íslend-
ingum. (Það er reyndar ein mót-
sögnin enn þegar utanríkisráðu-
neytið lítur á flugstöðina sem
hreint hernaðarmannvirki og
neitar að borga af henni bygging-
arleyfisgjöld!) En það er ljóst að
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki
Fiskveiðistefnan: Léieg aflameðferð, atvinnu-
leysi - og fólk fæst ekki í frystihúsin tii starfa.
Innan Sjálfstæðisflokksinser í fyrsta sinn bull-
andi ágreiningur um framkvæmd herstöðva-
málsins.
Verðbólgan ertalin 40-60%. 60% hækkun á verði
erlends gjaldeyris. 9miljarða viðskiptahaili. 2,5
miljarðar í halla á ríkissjóði á hálfu ári.