Þjóðviljinn - 05.09.1985, Page 16
_______________________HÚS OG INNBÚ
Innanhúss
Aðalatriðið
að fólki líði vel
Rætt við Hrönn Sævarsdóttur innanhússarkitekt
Ég lauk námi í fyrra frá
Skolen for Boligindretning í
Kaupmannahöfn en það er
þriggja ára sérskóli fyrir
innanhússarkitekta. Að
námi loknu hóf ég störf hjá
Alno-Eldhús, en þar höfum
við starfað 2-3 innanhúss-
arkitektar, sagði Hrönn Sæ-
varsdóttir, þá Þjóðviljinn
átti viðtal við hana á dögun-
um varðandi starf hennar.
Þá Hrönn hafði fengið sér
sæti á einum Sóleyjarstól-
anna í eldhúsi verslunar
Alno-Eldhúss svaraði hún
fúslega fyrirspurnum
blaðamanna.
„Starf okkar innanhússarkit-
ektanna hér er í því fólgið að
skipuleggja eldhús fyrir nýbyggð
jafnt sem eldri hús þannig að hag-
kvæmni og nýting verði sem best.
Taka þarf tillit til fjölmargra
þáttat.d. þess ef viðkomandi við-
skiptavinur er fatlaður eða hefur
einhverjar sérþarfir. Stundum
getur það tekið upp undir heilan
dag, jafnvel daga að finna viðun-
andi lausn, aðalatriðið er að sjálf-
sögðu að fólki komi til með að
líða vel í því eldhúsi sem við
skipuleggjum fyrir það.
Auk.eldhúsa þá skipuleggjum
við baðherbergi og skápa fyrir
viðskiptavini. Þá höfum við einn-
ig leiðbeint fólki varðandi gólf og
veggi. Við förum heim til fólks,
framkvæmum mælingar og kynn-
um okkur húsnæðið í því augna-
miði að geta ráðlagt því. Auðvit-
að höfum við samráð við kaup-
endur innréttinga og niðurstöður
eru háðar samþykki og vilja
þeirra. Það er nú orðið mjög al-
gengt að innanhússarkitektar
starfi hjá þeim fyrirtækjum sem
selja og framleiða innréttingar.
Sumir hverjir arkitektanna
hanna fastar innréttingar,
sérsmíðaðar fyrir hverja íbúð, en
við erum með innréttingarhluta,
innflutta, sem við síðan setjum
sainan eftir því sem við á hverju
sinni. í mörgum tilfellum marg-
borgar það sig að ráðfæra sig við
innanhússarkitekt. Fólk er al-
mennt farið að gera sér grein fyrir
þessu og kemur til okkar með op-
inn huga. Slíkt getur oft á tíðum
gert herslumuninn bæði hvað
varðar útlit, innréttingar og verð.
Smekkur fólks og kröfur eru
ólíkar og reynum við að taka tillit
til óska hvers og eins. Bæði aldur
fólks og þjóðfélagsleg staða eru
áhrifavaldar um val þess. Yngra
fólkið velur t.d. innréttingar
hverjar hafa létt yfirbragð en það
eldra er oft hrifnara af því sem er
þyngra og massívara. Við gerum
útlitsmyndir og planlausnir fyrir
viðskiptavini, berum þær undir
þá þar til góð lausn er fundin.
Öllu skemmtilegra er að vinna
við eldhússinnréttingar og böðin
þ.e. að vinna sig fram til
skemmtilegrar lausnar, bað-
innréttingar eru meira afmarkað-
ar.“
- Fylgir þú einhverri ákveðinni
stefnu Hrönn?
„Ég álít að það sé hættulegt
fyrir innanhússarkitekt að taka
einhvern ákveðinn stíl fram yfir
annan. Það eru sífellt að koma
nýir og nýir hlutir á markaðinn og
menn verða því að vera móttæki-
legir. Sumt er að vísu klassískt og
vönduð vinna t.d. hægindastóll
Le Corbusier. Hvað er ekki
klassískt verður tíminn að skera
úr um. Hvað íslenska fram-
leiðendur og hönnuði varðar þá
finnst mér þeir vera fyllilega
sambærilegir við erlenda á
sumum sviðum en ekki öðrum,
en þeir sækja í sig veðrið. Ég er
t.d. hrifin af framleiðslu Axis á
borðum og hillum, aðallega
hönnun og útliti. Hvað viðkemur
innréttingum finnst mér t.d.
Vestur-Þjóðverjar standa íslend-
ingum mun framar...
I félagi innanhússarkitekta
munu nú vera um 50-60 manns. Á
hverju ári bætast nýir í hópinn,
hvað ég veit hafa þeir allir fengið
atvinnu við sitt hæfi. Innanhúss-
arkitektar hafa starfað lengi hér á
landi m.a. fengist við innréttingar
banka, sjúkrahúsa og skrifstofu-
húsnæðis. - Að mínu áliti er hér
um mjög skemmtilegt starf að
ræða, bæði er að maður sér
eitthvað eftir sig og svo kynnist
maður fjöldamörgum", sagði
Hrönn Sævarsdóttir að lokum og
blaðamenn Þjóðviljans kvöddu.
-já
Hrönn Sævarsdóttir innanhússarkitekt: Stundum getur það tekið upp undir
heilan dag eða jafnvel daga að finna viðunandilausn.aðaiatriðiðerað
sjálfsögðu að fólki komi til með að líða vel í því eldhúsi sem við skipuleggjum
fyrir það.
Sendum blóm um allan heim
Ðlómin hjá Flóru eru í kæli allan sólarhringinn, það lengir
endingu blómanna í heimahúsum
Sjálfsagt myndi þessi fatnaður duga lítið fyrir íslenska vetrar veðráttu.
Sælgætið lokkar. Innlend sælgætis- og matvælaframleiðsla skipar æ meiri
sess á heimilissýningunum. Ljósmyndari: - sig.
Mtele.
10%
kynningarafsláttur
meöan á sýningunni stendur
Þessar heimsþekktu vestur-þýsku
hágæöa vélar eru kynntar á sýningunni
„Heimiliö 85“ í Laugardalshöll
Veldu Míele annað er málamiðlun
16 SÍÐA - ÞJÓÐVIl JiNN Fimmtudagur 5. september 1985