Þjóðviljinn - 05.09.1985, Blaðsíða 22
Dregið var í Landshapprdætti Ungmennafélags ís-
lands 1. ágúst 1985.
Upp komu eftirfarandi vinningsnúmer:
1 . Isler.sk húsgccn kr. 100.000= No. 20863
2 . Isler.sk húsgöcn kr. 60.000= No. 80 2_?
3. Viceoteki - 50.000= No. 11488
4 . Viceotski - 45.000= No. 1 7071
5. Málverk - 40.000= No. 169
6 . Hljómf1utningstæki - 35.000= No. 9929
7. H1jómflutnincstskj - 35.000= No. 7287
8 . Hljómflutningstskj - 35.000= No. 21217
9 . lsler.sk húsgöcn - 30.000= No. 718
1 0 . Heimilistölva - 25.000= No. 11 35
1 1 . h'eimilistölva - 25.000= No. 8231
1 2 . Otvarp / kasettutski - 20.000= No. 1 0629
13. Ctvarp / kasettutæki - 15.000= No. 974 9
14 . Ctvarp / kasettutski - 15.000= No. 71 7
15. Heimilistalva - 15.000= No. 1 2995
16 . Heimilistalva - 15.000= No. 22565
17. Heimilistalva - 15.000= No. 1 3708
18 . Landió þitt I.- V. - 9.200= No. 1 4021
1 9 . Landió þitt I.- V. - 9.200= No. 1 6060
20. Lar.dió þitt I.- V. - 9.200= No. 20857
21 . ömmu rokkur kr . 7.400= No. 22931
22. Ibróttabúningur - 2.500= No. 17163
23 . Iþróttabúr.ingur - 2.500= No. 6732
24 . Iþróttabúningur - 2.500= No. 25000
25. Iþróttabúningur - 2.500= No. 24646
26 . Iþróttabúr.ingur - 2.500= No. 1 71 98
27 . Ibróttabúr.ingur - 2.500= No. 7922
28 . Iþróttabúnincur - 2.500= No. 1 8542
29 . Iþróttabúningur - 2.500= No. 7991
30 . Ibróttabúhingur - 2.500= No. 7232
31 Iþróttabúningur - 2.500= No. 8385
32 . Rsktun lvós oq lancs - 1.000= No. 2612
33 . Rsktun lýós og lands - 1 .000= No. 8397
34 . Ræktun lvós og lancs 1.000= No. 5653
35. Ræktun lýós og lands 1 .000= No. 9912
36-. Ræktun lýós og lands 1.000= No. 9997
37 . Ræktun lýós og' lands 1.000= No. 25826
38. Ræktun lýós og lands 1.000= No. 5195
39. Ræktun lýcs og lands 1.000= No. 296
40 . Ræktun lýós og lands 1.600= No. 9915
4 1 . Ræktun lýós og lands 1.000= No. 1 5938
42 . Ræktun lýós og lands 1.000= No. 24434
43 . Ræktun lýós og lands 1.000= No. 1 1 37
44 . Ræktun lýós og ]ands 1.000= No. 16100
45. P.sktun lýós og lands 1.000= No. 25338
46 . P.æktun lýós og lands 1.000= No. 1 0230
4 7 . Pæktun lýós og lands 1.000= No. 1 5974
48 . Rsktun lýós og lands 1.000= No. 372
49 . Ræktun lýós og lancs 1.000= No. 2508
50. Ræktun lýós og lands 1 .000= No. 14104
Vinninga má vitja á skrifstofu Ungmennafélags ís-
lands að Mjölnisholti 14, 3ju hæð.
Blaðburðarfólk V • * * ress.'
Ef þú ert morgunhi
Haföu þá samband við afgreiðslu Þjoðviljans, sími 813 33
Laus hverfí:
Fossvogur A-lönd Leifsgötu-Eiríksgötu Laufásveg Efri hluta Laugavegar og Hverfisgötu
Það bætir heilsu < að bera út Þjóðvi Betrabb hag ifjann ð
Frá Borgarskipulagi
Reykjavíkur
Kynning á skipulagstillögu á stofnanasvæði í mið-
svæði Eiðsgranda.
Tillöguteikningar að stofnanasvæði við Frostaskjól/
Keilugranda hanga til kynningar á Borgarskipulagi
Reykjavíkur Þverholti 15 frá og með 5. til 14. septemb-
er.
Ábendingar eða athugasemdir berist Borgarskipulagi
Reykjavíkur fyrir 16. september 1985.
Borgarskipulag Reykjavíkur
Þverholti 15
Ástandið er heldur slæmt í
Frakklandi þessa dagana: ekki
hefur tekist að draga úr atvinnu-
leysi, heldur er það aftur tekið að
aukast, stjórnin er völt og búast
menn yfirleitt við miklum ósigri
sósíalista í kosningunum á næsta
ári og óvissu og upplausn á sviði
stjórnmála í kjölfar hans, óvin-
sældir Mitterrands og jafnvel
draumaprinsins Fabiusar (sem
fékk fyrir skömmu langflest at-
kvæði í skoðanakönnun um það
hvaða karlmann konur kysu sér
ef þær ættu aðeins eina ástanótt
eftir) fara vaxandi og frönsk
leyniþjónusta hefur svo að segja
verið staðin að verki að granda
skipi Grænfriðunga með
neðansjávar-púðurkellingum.
Mannsins megin
Þótt blaðamenn reki upp ramakvein er ólíklegt að franskir matmenn skipti á
hefðbundinni matargerð sinni og hamborgurum þegar til lengdar lætur...
Vegið að franskri
matargerðarlisf
Hefðbundin veitingahús á undanhaldi fyrir skyndibitastöðum og
„nýrri matargerð“.
En þetta virðast þó ekki vera
nema smáatriði hjá þeirri skelfi-
legu spurningu sem vikuritið „Le
Nouvel observateur“ bar fram
fyrir skömmu og brennur nú á
vörum Fransmanna: er verið að
ganga af franskri matargerðariist
dauðri?
Þeir staðir sem hafa frá örófi
alda verið aðalmusteri þessarar
hefðbundnu matargerðarlistar -
litlu hverfis- og þorpsveitinga-
húsin og knæpurnar - eru nefni-
lega á stöðugu undanhaldi og
heldur vikuritið því fram að þrjú
hundruð slíkir veitingastaðir
verði gjaldþrota og neyðist til að
loka á hverjum mánuði. Þegar
þeir eru horfnir er ekki annað
eftir en annars vegar „skyndibita-
staðir", þar sem á boðstólum eru
hamborgarar og slíkir réttir, sem
franskir gastrónómar telja varla
til fæðutegunda, og hins vegar
rándýr lúxusveitingahús, sem eru
pyngju venjulegra manna ofviða
og hafa auk þess á boðstólum
hina svokölluðu „nýju matar-
gerð“ („la nouvelle cuisine"),
sem margir smekkmenn hafa
mikinn ýmugust á.
Á undanhaldi
Ástæðurnar fyrir því að þess-
um hverfis- og þorpsveitingahús-
um fer fækkandi eru margvísleg-
ar. Yfirleitt er hér um að ræða lítil
fjölskyldufyrirtæki, þar sem fjöl-
skyldan vinnur sjálf, kannski
með fáeinum launuðum starfs-
mönnum, og á boðstólum eru
hefðbundnir - og oft líka stað-
bundnir - réttir. AHar aðstæður
nú til dags virðast andsnúnar slík-
um atvinnurekstri. Þessir staðir
eru nefnilega, eins og stundum
hefur verið sagt, bæði of dýrir og
ekki nógu dýrir. Þeir eru of dýrir
fyrir unglinga sem vilja helst
ryðja í sig hamborgurum sýknt og
heilagt, en þeir eru ekki nógu
dýrir og fínir fyrir þá sem eru að
leita að einhverri sérstakri gast-
ronómískri upplifun: þeir komast
ekki inn í leiðarvísa yfir fín
veitingahús og svo hafa ýmsir sér-
fræðingar í matargerðarlist og
blaðamenn sem sérhæfðir eru í
slíkum málum háð linnulausan
áróður árum saman gegn þeim
mat,sem þareráboðstólum. Síð-
ast en ekki síst verður að nefna að
nútímareglur um söluskatt,
sjúkrasamlagsgreiðslur o.þ.h.,
sem fylgt er af meiri og meiri
harðneskju, eru þessum veitinga-
húsum mjög í óhag. Eigendur
þeirra höfðu löngum þann sið að
kaupa inn matvælin bak við tjöld-
in án þess að borga söluskatt og
hafa starfsmenn í „svartri vinnu“,
og versnaði afkomugrundvöllur
þeirra mjög, þegar farið var að
fylgjast með því að reglum væri
hlýtt.
Skyndibifastaðir
og lúxusstaðir
En með þessum veitingahúsum
hverfur mikill hluti af hefðbund-
inni matargerðarlist franskri, því
að þeir veitingastaðir sem nú
blómstra koma engan veginn í
staðinn fyrir þau. Síðan í kringum
1980 hafa „skyndibitastaðir"
sprottið upp eins og gorkúlur, og
standa á bak við þá voldugir
hringar. Einn helsti forsprakki
þeirra er monsjör Casino, sem
búsettur er í borginni Saint-
Etienne og stjórnar þaðan mikl-
um sæg veitingahúsa, sem heita
„Quick“, „Hippopotamus“
o.þ.h. í þeim eru seldar hvorki
meira né minna en 35 miljónir
máltíða á ári, og færa þeir stöðugt
út kvíarnar. Þessir skyndibita-
hringar eru reknir eftir ströng-
ustu reglum nútímabisness og er
hver biti staðlaður til hins ýtrasta:
sams konar hamborgarar í sams
konar umbúðum, hvert sem litið
er.
Þótt undarlegt megi virðast
stuðla rándýr lúxusveitingahús,
sem blómstra við hliðina á hamb-
orgarastöðunum, ekki að því að
halda við hefðbundinni franskri
matargerðarlist. Til þess að vera
talinn maður með mönnum og fá
margar stjörnur í leiðarvísum yfir
fín veitingahús verður sá sem rek-
ur slíka staði að hafa bæði um-
hverfi og borðbúnað sem allra
fínast: kristalsskálar, silfurgaffla
o.þ.h. Kostnaðurinn verður þá
svo mikill að hann neyðist til þess
að hafa einungis sem dýrast hrá-
efni - lax, kavíar, feita lifur
o.þ.h. - til að álagningin verði
sem mest. Veitingamaðurinn
margfaldar með þremur
innkaupsverð vínflöskunnar,
þegar hann setur hana á vínlist-
ann, og þess vegna er það honum
í hag að kaupa inn sem og dýrust
vín, og láta svo kjallarameistara,
sem spígspora um salinn með
sams konar svip og lögregluþjónn
í lögtakserindum, pranga þeim
inn á gesti. Þetta leiðir vitanlega
til þess að maturinn, sem er á
boðstólum, verður mjög sér-
stakur og alls ekki dæmigerður
fyrir það sem best er í franskri
matargerðarlist.
„Ný matargerö“
Við þetta allt bætist að
veitingamenn í þessum dýru stöð-
um eru gjarnan fylgismenn hinn-
ar svokölluðu „nýju matargerð-
arlistar", sem nú er mjög um-
deild. Þetta fyrirbæri hófst
skömmu eftir 1960, þegar Frakk-
ar fóru að rétta úr kútnum eftir
þrengingar eftirstríðsáranna og
byrjuðu loks að geta látið
eitthvað eftir sér í mat. Einn
helsti „páfi“ þessarar matargerð-
ar var Christian Millau, sem hef-
ur óralengi verið ritstjóri fræg-
asta leiðarvísis um veitingahús í
Frakklandi, sem kemur út árlega
í 200.000 eintökum, og jafnframt
ritstjóri tímarits um matargerðar-
list og veitingahús, sem kemur út
mánaðarlega í meira en 100.000
eintökum. Christian Millau barð-
ist harkalega gegn þykkum og fit-
andi sósum, sem hefðbundnar
voru í Frakklandi, og gegn stór-
um skömmtum af mat; - þess í
stað vildi hann einfaldara matar-
æði, þar sem hráefnin fengju að
njóta sín á eðlilegan hátt. En af-
leiðingin af þessum kenningum,
sem hljóma svosem ágætlega,
hefur verið stöðugt meiri sérviska
í gerð rétta og alls kyns undarleg-
ar blöndur, sem fá hárin til að rísa
á höfði hefðbundinna franskra
matmanna. Einnig hafa þessar
kenningar leitt til meiri sýndar-
mennsku og áherslu á útlit rétt-
anna, -meðan skammtarnir, sem
framreiddir eru, minnka stöðugt.
Það er ekki nema von að blaða-
menn „Le Nouvel observateur“
séu örvæntingarfullir: ef ekki er
lengur hægt að fá saltað svínakjöt
með linsubaunum, eins og bænd-
ur í Auvergne matbjuggu það,
hvert er þá heimurinn eiginlega
að fara?
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 5. september 1985