Þjóðviljinn - 21.09.1985, Blaðsíða 1
SUNNUDAGS-
BLAÐ
Bœjarvaktin
60% kauphækkun lækna
Læknarnir sem nú annast
bæjarvaktina í Reykjavík
munu fá 50-60% kauphækkun
verði samningur TR við læknafé-
lögin staðfestur í tryggingaráði.
Þá tekur gildi bráðabrigðasamn-
ingur um óbreytt kerfi á bæjar-
vaktinni þar til aðalsamningur-
inn um verktakaþjónustu lækn-
anna tekur gildi.
Þetta upplýsti Adda Bára Sig-
fúsdóttir á borgarstjórnarfundi í
fyrrinótt og sagði kostnaðarauka
•Adda Bára Sigfúsdóttir: Grafið undan heilsugœslukerfinu í
Reykjavík. •EggertG. Porsteinsson: Spurning hvort
framkvœma á heilsugæslulögin íReykjavík eða ekki
sjúkrasamlagsins vegna bráða-
birgðasamningsins vera 280 þús-
und krónur á mánuði.
Adda sagði það alvarlegasta
við samninginn að með honum
væri verið að grafa undan heilsu-
gæslukerfinu í Reykjavík. Nær
hefði verið að semja við lækna á
heilsugæslustöðvunum um
vaktþjónustuna en þann tak-
markaða hóp sem nú annast hana
ogfær að hennar sögn20% hækk-
un fyrir hverja vakt og enn meiri
hækkun fyrir vitjanir. Vaktir á
tveimur heilsugæslustöðvum í
Reykjavík lögðust af í vor vegna
kjaradeilu og samkvæmt samn-
ingnum er ekki gert ráð fyrir að
þær verði teknar upp aftur. Þetta
gagnrýndi Adda harðlega og
sagði engan hafa betri forsendur
til að annast vaktþjónustu en ein-
mitt lækni á hverfisstöð.
Eggert G. Þorsteinsson for-
stjóri TR sagði í gær að sam-
kvæmt útreikningum samninga-
nefndar TR væri ekki um 60%
launahækkun að ræða samkvæmt
bráðabirgðasamningnum. Hann
hafði ekki tölur á reiðum hönd-
um en sagði þetta aðeins almenna
kauphækkun frá síðustu samn-
ingum svo og hækkun vegna kjar-
adóms BHM frá í júlí. Trygging-
aráð hefur samninginn nú til um-
fjöllunar og sagði Eggert að þar
væri verið að skoða hann nánar
hvað varðaði kostnaðarhliðina
og ekki síður varðandi heilsu-
gæslukerfið. „Spurningin er
hvort það á að komast í fram-
kvæmd í Reykjavík eða hvort það
er búið mál,“ sagði hann.
Ragnar Árnason formaður
stjórnar Sjúkrasamlags Reykja-
vílcur vildi ekki segja neitt um
innihald samningsins í gær. Hann
sagði aðeins að stjómin myndi af-
greiða athugasemdir sínar við
hann til tryggingaráðs ekki síðar
en á þriðjudaginn kemur.
A ukafjárveitingar
881 miljón
um miðjan
júlímánuð
Albert Guðmunds-
son ekki staðið við
neinfyrirheitsín um
meðferð fjárlaganna
Aukafjárveitingar Alberts
Guðmundssonar námu 881 milj-
ón króna frá áramótum fram í
miðjan júlí. Aukafjárveitingarn-
ar eru til ýmissa hluta, en skatt-
lagningaráform ríkisstjórnarinn-
ar fyrir næsta ár nema 1.7 milj-
arða króna.
Við afgreiðslu fjárlaganna í
fyrra var gert ráð fyrir 700 miljón
króna halla en hann mun verða
yfir tveimur miljörðum króna.
Ríkisbáknið hefur aldrei verið
jafn kostnaðarsamt og á yfir-
standandi ári, einsog Geir Gunn-
arsson sýndi fram á við afgreiðslu
fjárlaga í fyrra. Albert hefur ekki
staðið við nein fyrirheit sín um
meðferð fjárlaganna eða stefnu-
mið í starfinu. Um þetta er m.a.
fjallað í Innsýnargrein í dag.
Sjá bls. 5
Snákur á
dag kemur...
Peking — Ungur kínverskur
bóndi þjáðist af tíðum krampak-
östum þar til hann brá á það ráð
að borða lifandi eitursnáka.
Bóndinn hefur étið slíka snáka
daglega í tvö ár og hefur það dug-
að gegn krampanum. En þá rann
það upp fyrir Wang Biao að hann
var orðinn háður snákum. Hann
verður bókstaflega að sporð-
renna eins og einum snák fyrir
hverja máltíð. Við þessu brást
hann með því að koma sér upp
snákarækt því snákar sjást ekki á
hans heimaskóðum allan vetur-
inn. Nú þykist hann hólpinn því
hann á 200 stykki í búri en það
ætti að nægja fram eftir vetri. Og
væntanlega eðla kvikindin sig í
búrinu. -ÞH/reuter
Quömundur Baldursson og eiginkona hans, Maria Pisani frá Möltu, í brúðarkossi og í vinstri hendi Guð-
mundar eru verðlaun hans sem Þjóðviljinn afhenti honum rétt fyrir brúðkaupið í gær. Mynd: Sig.
Knattspyrna
Sá besti giftir sig
og flytur til Möltu
Það er mikið um að vera hjá heilaga. Brúðhjónin ungu eru Ómar Torfason var í gær út-
Guðmundi Baldurssyni, knatt- síðan á leið til Möltu nú á næstu nefndur Stjörnuleikmaður Þjóð-
spyrnumanni úr Breiðabliki, dögum. Þar ætla þau að setjast viljans 1985 og Guðmundur Har-
þessa dagana. í gær tók hann við að, a.m.k. um stundarsakir, og aldsson Stjörnudómari Þjóðvilj-
viðurkenningu frá Þjóðviljanum Guðmundur leikur sennilega ans. Þá fengu lið Fram og Skall-
sem besti leikmaður 2. deildar- með Sliema Wanderers í vetur. agríms sérstakar viðurkenningar
innar í knattspyrnu 1985, og í Hann stefnir samt að því að verða sem lið ársins í 1. og 2. deild.
næstu andrá var hann mættur útí mættur í slaginn með Breiðabliki
Árbæjarkirkju til að ganga í það á ný næsta vor.
Sjá bls. 6
Blindrafélagið
Fjársvikin
mun verri
en haldið
var í fyrstu
Fyrrum framkvœmda-
stjóri dró sérfé alltfrá
1981. Um margar miljón-
iraðrœða. Halldór
Rafnar formaður Blind-
rafélagsins: Snertir nán-
ast alla rekstrarþœtti
Rannsókn á misferli fyrrver-
andi framkvæmdastjóra Blindaf-
élagsins hefur leitt í ljós mun um-
fangsmeiri fjársvik og fjárstuld
en talið var í fyrstu. Ná fjársvikin
allt aftur til ársins 1981 og hafði
framkvæmdastjórinn dregið til
sín minnst 3 miljónir í
grunntölum úr sjóðum félagsins
þar til upp komst um svikin nú í
vor.
„Þetta er ansi fjölbreytt og
kemur nánast víðast við í okkar
starfsemi. Misferli þessa manns
snertir að pví að ég get sagt nán-
ast alla rekstrarþætti félagsins en
ekki eingöngu happdrættið eins
og talið var í fyrstu," sagði Hall-
dór Rafnar formaður Blindrafé-
lagsins en hann gegnir nú jafn-
framt stöðu framkvæmdastjóra
að ósk stjórnar félagsins.
Rannsóknarlögregla ríkisins
hefur verið með þetta fjársvik-
amál til rannsóknar í sumar og er
rannsóknin komin á lokastig.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans var það eitt fyrsta verk
framkvæmdastjórans fyrrverandi
eftir að honum var sleppt úr gæsl-
uvarðhaldi, að stofna heildsölu
og senda erindi til allra viðskipta-
aðila Blindrafélagsins erlendis,
þar sem tilkynnt var að félagið
ætlaði sjálft að hætta öllum inn-
kaupum og hann byðist til að taka
þau mál í sínar hendur.
Forráðamenn Blindrafélagsins
komust að þessu og sendu öllum
viðskipta og samstarfsaðilum sín-
um erlendis þegar skeyti þar sem
greint var frá stöðu mála og þeirri
lögreglurannsókn sem stendur
yfir á misferli framkvæmdastjó-
rans. -4g.