Þjóðviljinn - 21.09.1985, Blaðsíða 5
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
löngum haft á orði að vinstri
menn ástunduðu óábyrga fjár-
málapólitík og þess vegna mætti
ekki treysta þeim fyrir ríkisfjár-
málum. Og þegar flokkurinn
myndaði núverandi ríkisstjórn sá
hann þann kost vænstan að velja
sjálfan holdgerving hinnar
ábyrgu fjármálastjórnar íslenskra
kapitalista, hans hátign, konung
hinna nýríku, Albert Guðmunds-
son fjármálaráðherra.
Þó hrópin í leiðurum Morgun-
blaðsins um ábyrga fjármála-
stjórn Sjálfstæðisflokksins hafi
hljóðnað nokkuð um stund, er
engin ástæða til að hætta að fylgj-
ast með því hvemig uppskriftin
lítur út.
Svo virðist sem Albert sé
undanþeginn aðhaldi almenn-
ings, fjölmiðla og flokka einsog
aðrir stjórnmálamenn amk. í
flestum lýðræðisríkjum verða að
þola. Að hluta til er skýringin sú
að fleiri líta á hann sem eins kon-
ar jóiasvein en ekki venjulegan
stjórnmálamann, en það breytir
fjármálaráðherra Sjálfstæðis-
flokksins. Það er athyglisvert, að
ráðherrann hefur ekki fremur en
flokkur hans staðið við neinar yf-
irlýsingar um framkvæmd stefnu
Sjálfstæðisflokksins í embætti
fjármálaráðherra. Stundum
fagna Sjálfstæðismenn því á há-
tíðastundum að þeim hafi tekist
að skera niður útgjöld ríkisins, en
meira að segja það er rangt. Geir
Gunnarsson sýndi fram á það
með samanburði við afgreiðslu
fjárlaga fyrir árið 1985, að út-
gjöld ríkisins hefðu á föstu verð-
lagi aldrei verið hærri. Því hefur
ekki verið mótmælt, en samt
halda þeir áfram að gorta sig af
því að útgjöld báknsins hafi verið
skorin niður.
Pólitísk kúnst ráðherrans hefur
í því embætti verið sú sama og
skilaði honum inná þing á sínum
tíma. Hann varpar vandamálun-
um yfir á aðra. Fjárveitinganefnd
og flokksbræðrum hans er gert að
starfa innan ákveðins ramma, út-
gjöld mega ekki fara fram úr til-
teknum upphæðum. Þessir aðilj-
Jólasveinninn f ráðherrastólnum
víst ekki því að Framsóknar-
flokkurinn og Sjálfstæðisflokkur-
inn hafa gert manninn að ráð-
herra og það að valdamesta ráð-
herranum.
Oft hefur verið ýjað að því að
vinsældir Alberts nái langt yfir
flokkamörk og hann sé „maður
litla mannsins“. Það segir hann
sjálfur líka og honum er tamt að
minna á snilld sína í fótknattleik
þannig að bæði hann og almenn-
ingur geti séð hliðstæðuna í
leiknum og alvöru stjórnmál-
anna. Albert er klár, segja menn
og fréttamenn þora ekki að
spyrja ráðherrann almennilega
útí samræmi milli orða og at-
hafna. Það er heldur ekkert og
enginn ætlast til þess. Eða hvað?
Einsog skoðana-
könnun?
Þegar Albert svarar ekki
spurningum einsog í sjónvarps-
þættinum á dögunum, þá er sagt
að almenningi finnist það bara
sniðugt. Það var afþví að í stað
þess að svara t.d. spurningu Stef-
áns Benediktssonar alþingis-
manns, þá sagði hann málfunda-
brandara um að þingmaðurinn
hefði verið efnilegt barn og væri
enn. Efnislega var engu svarað og
allir hlógu.
Eftir þennan þátt þá spurði ég
marga hvernig þeim hefði þótt
Albert standa sig, einsog maður
gerir gjarnan eftir svona sjónleiki
og svarið var nær því á eina lund:
„Hann stóð sig svaka vel, var
fyndinn og skemmtilegur, ég held
að hanrí hafi skorað mörg prik
hjá kjósendum." En enginn taldi
hann hafa haft neitt pólitískt bita-
stætt fram að færa, það ætlaðist
heldur enginn til þess. Okkur
þykir nefnilega vænt um jóla-
sveina og við viljum ekki þrefa
um pólitík við þá.
Þó skar sig einn dálítið útúr
þessum viðmælendum mínum.
Sá sagði eftir dálitla umhugsun:
„Ég nenni ekki lengur að tala
einsog skoðanakönnun, - mér
fannst hann lélegur.“
Aðrir gjalda
En víkjum nú ögn frá jóla-
sveininum og snúum okkur að
ar taka á sig óþægindin af því að
synja beiðnum um hækkanir og
ný framlög. Ráðherrum í fag-
ráðuneytum er sömuleiðis gert að
halda sig innan rammans. Sjálf-
sagt og eðlilegt.
Þegar líður svo fram á fjárlaga-
árið, fara fregnir að berast að því
að aukafjárveitingar streymi frá
fjármálaráðherra sjálfum. Hon-
um rennur til rifja hvað fjárveit-'
inganefnd hefur verð hörð við
skólanefndina (samkvæmt fyrir-
skipun fjármálaráðherrans) og
bregður sér í gervi jólasveinsins
vinsæla og sjá: það er til peningur
í skólabygginguna.
Aðstoðarmenn fjármálaráð-
herra geta ekki samið við opin-
bera starfsmenn um kauphækk-
anir, af því „ramminn" leyfir það
ekki og við svo búið situr. En Jón
Jónsson fulltrúi guðhræddur
maður og hversdagsprúður á ekki
fyrir tryggingum á bílinn sinn og
fer til ráðherrans og biður um að-
stoð við litla manninn, Jón Jóns-
son. Og sjá hjarta hans er stórt og
eyrir ekkjunnar syngur í ríkis-
kassanum. Jón er snarlega hækk-
aður um 2 launaflokka, fær bíl-
astyrk og snúð hjá ráðherranum.
Og: Jón og fjölskylda hans er
bundin ráðherranum ævarandi
tryggðarböndum og ætlar að sýna
hug sinn í verki í næsta próf-
kjörsslag hjá Sjálfstæðisflokkn-
um. Jón á von á strípu í Huldu-
hernum. Aðrir gjalda ráðslags-
ins.
í stríðinu
Jólasveinn almenningsins á
hins vegar í stöðugu olnboga-
stríði í gervi fjármálaráðherrans
við flokkssystkini sín. Herkostn-
aðinn borgar almenningur sam-
kvæmt siðvenju. Hvað sem segja
má um stjórnvaldsákvarðanir
ráðuneyta einsog iðnaðarráðu-
neytisins, þá verður að takast á
‘við þær samkvæmt einhverjum
leikreglum. Þegar Sverrir Her-
mannsson fær það útúr rannsókn-
um sinna manna, að ekki megi
setja tugmiljónir í Saltvinnslu og
Stálbræðslu, þá væri eðlilegt að
skiptast á skoðunum um það mál,
kalla á ýtarlegri rannsóknir og
þvíumlíkt. Albert gerði það ekki,
hann setti bara fjármagnið í fa-
brikkurnar einsog ekkert hefði í
skorist. Höfðu ekki flestir gaman
af? Var Albert ekki bara að stríða
flokksforystunni sinni? Eða var
þetta enn eitt dæmið um að ég og
þú borguðum herkostnað Al-
berts Guðmundssonarí forystu-
mannastríði Sjálfstæðisflokks-
ins?
Afsögn
annarsstaðar
Samkvæmt fjárlögunum fyrir
1985 var gert ráð fyrir 700 milj-
óna króna halla á ríkissjóði. Þessi
halli verður trúlega yfir 2 milj-
arða króna; fjármagn í skuld sem
safnar á sig vöxtum sem við borg-
um.
Aukafjárveitingar eru ekki lít-
ill hluti af hallanum. Auðvitað
eru margar slíkar aukafjár-
veitingar óhjákvæmilegar, en
samkvæmt þingsköpum og lögum
eru línur lagðar af lýðræðislega
kjörnu alþingi í fjárveitingum á
fjárlögum. Um það er deilt á al-
þingi og við afgreiðslu og ákvarð-
anatöku þess ræður afl atkvæð-
anna.
Aukafjárveitingar Alberts fram
í miðjan júlí námu rúmlega 880
miljónum króna samkvæmt á-
reiðanlegum upplýsingum Þjóð-
viljans.
Meðal þeirra eru t.d. Bygg-
ingasjóður Þjóðarbókhlöðu 10
miljónir, Kvikmyndasjóður 10
miljónir, Afreksmannasjóður ÍSÍ
2 miljónir, Grænfóðurverk-
smiðja Ölafsdal 2 miljónir, Fram-
kvæmdasjóður aldraðra 7 miljón-
ir, Hafnarbótasjóður 2 miljónir,
Breiðafjarðarferja 1.5 miljónir,
stofnkostnaðarframlög 73 milj-
ónir. Annar rekstur 129 miljónir.
Fjölmörg þessara atriða höfðu
komið fram í tillöguformi m.a. í
Alþýðubandalaginu við af-
greiðslu fjárlaganna. Svo er til
dæmis um Kvikmyndasjóð, Þjóð-
arbókhlöðu, framkvæmdasjóði
aldraðra og fatlaðra, byggingu
grunnskóla (aukafjárveitingin 50
miljónir). Albert lét stjórnarlið-
ana, Framsóknarþingmenn og
þingmenn eigin flokks fella allar
þessar tillögur sem hann síðan
gengst inná í raun. Hvað þýðir
svona stjórnarathöfn í venjulegu
lýðræðisríki?
Hún myndi þýða það, að
stjórnarþingmennirnir, bæði í
Framsóknarflokki og Sjálfstæðis-
flokki, sem gerðir hafa verið að
fíflum með athöfnum ráðherrans
krefðust afsagnar hans. En það
gera þeir ekki, ekki heldur Ingvar
Gíslason sem er búinn að gleyma
stuðningi sínum við Albert eftir
blaðagreinum að dærna, því þeir
óttast vinsældir jólasveinsins,
þeir líta heldur ekki á hann sem
stjórnmálamann.
En stjórnarandstaðan? Ekki
getur hún kvartað undan því að
tillögur um fjárveitingar sem hún
lagði til, hafi verið samþykktar í
raun? Eða vilja menn kannski
halda í eðlilega starfshætti? Vilja
kannski allir að fjármálaráðherra
sé fjármálaráðherra en ekki jóla-
sveinn? Þá verður að skipta um
ráðherra.
Þögnin keypt?
Albert hafði fyrirskipað emb-
ættismönnum sínum að þegja um
aukafjárveitingarnar, og blaða-
menn hafa ekkert fengið opin-
berlega útúr þeim um þetta
hneyksli. Það er nefnilega búið
að gleyma loforðunum um
samráð við stjórnaraðstöðuna
hvað þá þegar hann sagði við al-
menning þegar „gatið“ var til um-
ræðu: komiði, sjáiði, kassinn er
tómur.
Jólasveinninn hefur ekki bara
stórt hjarta, hann hefur líka stórt
nef, sem er næmt á það sem gjöra
skal. Allir vita að Albert lætur
ekki flokksskírteini í Sjálfstæðis-
flokknum ráða því hvort Jón full-
trúi fær kauphækkun eður ei,
hann lætur ekki róttækni skálds-
ins aftra sig frá því að veita styrk,
hann lætur ekki karlrembu sína
koma í veg fyrir að kvennahreyf-
ingin fái smáaura. Alls staðar
hefur jólasveinninn með stóra
hjartað velvild. Hann lætur ekk-
ert koma í veg fyrir smá rausn við
verklýðsfélagið þó hann sé á móti
verklýðsfélögum, - og verður
hylltur fyrir vikið á næsta fundi,
félagsins, sem hann vill feigt.
Morgunblaðið skrifar ekki
leiðara þarsem það krefst afsagn-
ar ráðherrans. Ekki af því að
Mogginn sé ekki jafn hneykslað-
ur og aðrir á athöfnum ráðherr-
ans, heldur vegna hins að það ótt-
ast vinsældir jólasveinsins. Og af
því skoðanakannanir hafa tekið
völdin af heilbrigðri skynsemi,
þingbundinni ríkisstjórn og
venjulegri réttlætiskennd, þá
verður að beygja sig undir það.
Eða hvað?
Stefnufestan
í fyrradag sagði Albert á ríkis-
stjórnarfundi að hann myndi
leggja til að stjórnarsamstarfið
yrði rofið ef Framsóknarmenn
héldu stóreignaskatti til streitu.
Framsóknarmenn beygðu sig
fyrir skoðanakönnunum.
Albert hefur verið harður á
einu grundvallaratriði. Skattarn-
ir mættu ekki hækka um krónu í
hans ráðherratíð. Þæreru orðnar
margar ræðurnar sem hann hefur
haldið gegn sköttum og þau eru
orðin mörg loforðin um skatta-
lækkanir. En við fjárlagagerðina
eru lagðir á nýir neysluskattar
uppá nær 2 miljarða króna. Litli
maðurinn er látinn borga. Var
einhver að biðja um prinsipp?
Á jólunum
Nú er það svo, að einsog marg-
ir aðrir hef ég gaman af jóla-
sveinum. Þykir dálítið vænt um
þá líka. Og ég hef meiraðsegja
heldur ekkert á móti því að þeir
séu líka á alþingi. í öllum flokk-
um. Nauðsynlegir með. En æðstu
embætti þjóðarinnar, og ábyrgð-
ina á rekstri ríkisbúskaparins er
ekki hægt að setja á jólasveina.
Þeir eru til gamans fyrir börnin á
jólunum og fyrir blaðamenn í
gúrkutíð.
Þeir sem gerðu Albert að fjár-
málaráðherra eru þingflokkar
Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins. Þeir eru ábyrg-
ir, og þeir sem sagt hafa frá því
hneyksli eru á engan hátt ábyrgir.
Albert Guðmundsson er vafa-
laust vænsti maður og hann er
gamansamur. Hins vegar er mað-
urinn vanhæfur að gegna embætti
fjármálaráðherra hvað sem skoð-
anakannanir segja. Og af því ég
nenni ekki heldur að tala einsog
skoðanakönnun - Albert verður
að fá orlof frá ráðherradómi.
Óskar Guðmundsson.
Laugardagur 21. september 1985 ÞJÓÐVILjlNN — SÍÐA 5