Þjóðviljinn - 21.09.1985, Blaðsíða 15
Bœkur
Stjórn hinnar nýstofnuðu Islandsdeildar IBBY, Alþjóðlega barnabókaráðsins. Talið frá vinstri: Jónína Friðfinnsdóttir
varaformaður; Guðríður Þórhallsdóttir gjaldkeri; Gunnlaugur Ástgeirsson ritari; Gunnvör Braga aðstoðargjaldkeri;
Sigrún Klara Hannesdóttir formaður; og Margrét Gunnarsdóttir meðstjórnandi. Á myndina vantar Judith Gunnarsson
meðstjórnanda.
Nýstofnuð
samtök
um barnabœkur
Stofnfundur íslandsdeildar
innan IBBY samtakanna (Int-
ernational Board on Booksfor
Young People) var haldinn í
Norræna húsinu I sumar.
IBBY eru alþjóðleg samtök er
starfa nú í um 40 löndum víðs
vegar um heim og er markmið
samtakanna að sameina alla þá
aðila er vinna að framgangi góðra
bóka fyrir börn og unglinga.
Samtökin veita H.C. Andersen
verðlaunin annað hvert ár til rit-
höfundar eða myndskreytinga-
manns fyrir framlag til barnabók-
aritunar. Einnig sjá alþjóðlegu
samtökin um Heiðurslista, sem
kallast Hans Christian Andersen
Honor List, sem er úrval bestu
barnabóka frá hverju landi, gerð-
ur eftir tilnefningum hverrar
landsdeildar.
Hin nýstofnaða íslandsdeild
hyggst halda úti blaði, sem kallast
Börn og bækur og fjalla mun um
ýmsa þætti barnabókaútgáfu, s.s.
fréttir af nýjum barnabókum,
umsagnir um barna- og unglinga-
bækur, upplýsingar um innlenda
og erlenda höfunda og ýmsan
annan fróðleik sem getur komið
að gagni þeim sem fást við barna-
bækur, hvort sem um er að ræða
þá er skrifa bækur, gefa þær út,
nota þær við kennslu eða lesa
þær. Islandsdeildin er öllum opin
sem áhuga hafa á málefnum er
tengjast barnabókum.
Stjórn hinnar nýstofnuðu ís-
landsdeildar IBBY skipa: Sigrún
Klara Hannesdóttir formaður,
Jónína Friðfinnsdóttir varafor-
maður, Gunnlaugur Ástgeirsson
ritari, Guðríður Þórhallsdóttir
gjaldkeri, Gunnvör Braga að-
stoðargjaldkeri, og Margrét
Gunnarsdóttir og Judith Gunn-
arsson meðstjórnendur.
PÓLITÍSKT KAFRHÚS
sunnudaginn 22. sept. frá kl. 14.00
• Hvað er að gerast í Suður-Afríku?
Mynd og saga um ástandið í Suður-Afríku.
• Um kynþáttahatur á íslandi. Lesari: Helgi
Hjörvar.
• Aðgerðir ÆF-félaga, Þóroddur Bjarnason
segir frá.
• Afríkudansar og músik túlkuð af sjífum
ABDOU DHOUR
ÞJÓÐVILJA-
RÁÐSTEFNA
Ráðstefna um stöðu Þjóðviljans í dag
verður haldin laugardaginn 21. sept.
að Hverfisgötu 105, Reykjavík.
Ráðstefnan hefst kl. 13.00 og stendur
til kl. 18.00. Öllum félögum Utgáfufé-
lags Þjóðviljans og Alþýðubandalags-
ins er velkomið að sitja ráðstefnuna.
Dagskrá:
1. Þjóðviljinn og ný viðhorf í fjölmiðlun.
Gísli B. Björnsson
2. Fjárhagur Þjóðviljans og útbreiðsla.
Guðrún Guðmundsdóttir
3. Blað og hreyfing. Össur Skarphéðins-
son
4. Þjóðviljinn og landsbyggðin. María
Kristjánsdóttir
Ráðstefnustjóri: Mörður Árnason
Útgáfufélag Þjóðviljans
Alþýðubandalagið
©JÓSEFSSPÍTALI,
LANDAKOTI
LAUSAR STÖÐUR
FÓSTRA óskast til afleysinga í vetur á dagheimili fyrir
börn á aldrinum 3ja til 6 ára.
Einnig vantar starfsmann á dagheimilið.
Upplýsingar í síma 19600 - 250, kl. 9:00-16:00.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast á lyflækninga-
deildir l-A og ll-A, handlækningadeildir l-B og ll-B,
barnadeild, svæfingardeild og gjörgæslu. Boðið er
upp á aðlögunarkennslu fyrstu vikurnar.
SJÚKRALIÐAR óskast til starfa á allar vaktir við eftir-
taldar deildir: Lyflækningadeild ll-A, handlækninga-
deildir l-B og ll-B. Umsóknir ásamt upplýsingum um
nám og fyrri störf sendist hjúkrunarforstjóra sem veitir
nánari upplýsingar í síma 19600 - 200 - 300, alla virka
daga.
Reykjavík 20/9 1985
Samtök aðstandenda
vímuefnasjúkra
SAVES
Kjörorð okkar: „Eítur af eyju"
Stofnað 9.5.1985. Gíró 63890-0 Áheita óskað
Nánari upplýsingar SAVES Post restante R-9 Reykjavík
Blaðberar óskast
Hjarðarhagi, Kvisthagi, Melhagi, Flyðrugrandi, Boða-
grandi, Skipasund, Efstasund.
Það er alltaf líf í Rauða risinu á sunnudögum.
Láttu sjá þig.
DJODVIUINN