Þjóðviljinn - 21.09.1985, Side 16
FRETK1R
Samstaða
Norðurlönd
styrkja
Winnie
Mandela
Stokkhólmi - Ríkisstjórnir
Norðurlanda afhentu í gær nefnd
Sameinuðu þjóðanna sem berst
gegn aðskilnaðarstefnunni í
Suður-Afríku ávísun að upphæð
900 þúsund íslenskar krónur sem
renna eiga til Winnie Mandela,
eiginkonu Nelson Mandela leið-
toga Afríska þjóðarráðsins sem
setið hefur í fangelsi í Suður-
Afríku í hartnær aldarfjórðung.
í yfirlýsingu sem fylgdi gjöfinni
segir að fyrir þetta fé geti Winnie
Mandela látið gera við heimili sitt
og heilsugæslustöð sem stór-
skemmdust í sprengingu fyrir
nokkru. „Féð mun einnig gera
henni kleift að halda áfram störf-
um sínum í þágu undirokaðra í
Suður-Afríku. Norðurlöndin
fimm vilja með þessu sýna sam-
stöðu sína með Winnie Mandela í
þeirri baráttu sem hún heyr í
þágu hins svarta meirihluta í
Suður-Afríku þrátt fyrir stöðugar
ofsóknir suðurafrískra yfir-
valdaV‘ segir í yfirlýsingunni.
- ÞH/reuter
Byggðastofnun
Malmkvist
fékk
stólinn
Tillaga Geirs Gunnars-
sonar vegna flutnings
stofnunarinnar tilAkur-
eyrar var felld
Guðmundur Malmkvist lög-
fræðingur Framkvæmdastofnun-
ar ríkisins til margra ára og dygg-
ur stuðningsmaður Sverris Her-
mannssonar var í gær ráðinn for-
stjóri hinnar nýju Byggðastofn-
unar. Um leið var Bjarni Einars-
son ráðinn aðstoðarforstjóri. Var
þetta niðurstaðan af samninga-
makki stjórnarliða síðustu dæg-
rin og felur í sér að hvorugur nú-
verandi forstjóra fékk endur-
ráðningu.
Þeir Guðmundur og Bjarni
fengu atkvæði allra stjórnar-
manna nema Geirs Gunnars-
sonar sem sat hjá eftir að tvær
tillögur hans um afgreiðslu máls-
ins höfðu verið felldar. „Ég lagði
til að forstjóri yrði ráðinn með
þeim fyrirvara að starfsemi
Byggðastofnunar kynni fljótlega
að verða flutt til Akureyrar,"
sagði Geir, „en það var fellt.
Þann fyrirvara tel ég nauðsyn-
legan svo ekki verði unnt að reisa
bótakröfu á stjórnina vegna
flutningsins norður. Þá gerði ég
athugasemd við ráðningu aðstoð-
arforstjórans á þessum fundi og
lagði til að henni yrði frestað. I
ráðningu hans felst ákvörðun um
innra skipulag stofnunarinnar
sem er órætt í stjórn og eðlilegt að
fjalla um með nýráðnum for-
stjóra. Eftir að báðar þessar til-
lögur voru felldar ákvað ég að
taka ekki þátt í afgreiðslu máls-
ins.“
Gallerí Borg
Nýstárleg sýning
til styrktar
tónlistarhúsl
Á fimmtudag var opnuð í Gall-
erí Borg við Austurvöll myndlist-
arsýning til styrktar byggingu
tónlistarhúss í Reykjavík og er
hún með nokkuð nýstárlegum
hætti.
Það eru myndlistarmenn sem
gefa verk á sýninguna og eru þau
á tilteknu lágmarksverði, síðan
geta gestir boðið í myndirnar og
fær sá sem hæst býður. Öllum til-
boðum verður skilað í þar til
gerðan pott og opnuð á mánu-
dagskvöld, þ.e. 23ja sept., en þá
lýkur sýningunni formlega.
Sýningin verður opin á laugar-
dag og sunnudag og munu ein-
hverjir tónar verða slegnir um
helgina milli kl. 14.00 og 18.00.
Um fjörutíu verk eru á sýning-
unni; grafík, teikningar,
vatnslita- og olíumyndir.
segir Dagbjartur Guðjónsson að Lyngum í Meðallandi sem setti
Barkar þakeiningar á fjárhúsið sitt
Burðarþol Barkar þak- og veggeininga er raikið og
uppsetning auðveld og fljótleg.
Barkar þak- og veggeiningar henta mjög vel í flestum
byggingum, einkum atvinnu- og geymsluhúsnæði, ekki
síst þar sem mikils hreinlætis er krafíst, s.s. í tengslum
við verslun, matvælaiðnað og landbúnað. Barkar hús-
einingar tryggja ótvíræðan sparnað í byggingu, viðhaldi
og rekstrarkostnaði.
„Við vorum aðeins tvo daga að smella þakeiningunum á og
unnum þó bara milli mjalta. Síðan er fjárhúsið allt miklu hlýrra
og fyrir vikið get ég vetrarrúið og fengið þannig greiða og fína
ull sem flokkast betur og gefur hærra verð. Ég er hæstánægður
með að hafa valið Barkar þakeiningar,“ segir Dagbjartur
Guðjónsson.
Hafið samband og kynnist af eigin raun kostum
Barkar þak- og veggeininga
BÚRKUR hf.
HJALLAHRAUNI 2 • SÍMI 53755 • PÓSTHÖLF 239 ■ 220 HAFNARFIRÐI
Augiýsingaþjónustan