Þjóðviljinn - 06.10.1985, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 06.10.1985, Blaðsíða 11
keypt sér vellíðan fyrir peninga. Þeir eru smám saman að sjá í gegnum allt þetta sem íslending- ar eru á kafi í ennþá.” - Þú finnur þér zen-meistara sem kennara. í hverju er kennslan svo fólgin? „Þér er hjálpað til að finna þær aðferðir sem henta þér best. Þér er hjálpað til að rata út úr þeim sjálfsblekkingum sem þú vefur þig í aftur og aftur. Og síðast en ekki síst lærirðu skjótt á því að umgangast kennarann og aðra sem eitthvað eru komnir á leið. Þú finnur illilega fyrir takmörk- unum eigin sjálfs. Og þannig styrkist hjá þér löngunin til að láta múrana hrynja. Til þess er líka leikurinn gerður. Trúar- brögðin í sinni bestu mynd eru ekki annað en undursamlegar brellur til að lokka þig út úr sjálfs- vitundinni. „Hver sem týnir lífi sínu mun finna það,” sagði Krist- ur. Þetta er aðalatriðið.” Ögrandi Kristur - Þú vitnar aftur og aftur í Krist en aldrei í Búdda. Fyrst þú dast í trúna á annað borð - þú fyrirgef- ur orðalagið - af hverju varðstu þá ekki kristinn? „Til að komast í tæri við góðan kennara og alvarlega trúariðkun hefði ég sennilega þurft að ganga í klaustur. Og klausturlíf er ekk- ert fyrir mig þó ég álíti klaustur annars nauðsynlegar stofnanir. Leikmaðurinn í mér er munkin- um yfirsterkari. Við þetta bætist að kristin kirkja er ekkert sér- staklega kristin. Eins og hún hafi aldrei alminlega náð sér á strik eftir að hún lenti í samkrulli með yfirstétt hins hnignandi Róma- veldis. Hún á það vonandi eftir. En það er rétt, Kristur er alltaf jafn ögrandi og heillandi. Og mörg perlan er í kristni. Meister Eckhart, Heilög Teresa, Jóhann- es af Krossi, þetta eru sannkölluð Guðs eftirlæti. Og það var banda- rískur kaþólikki og afburða höf- undur, Thomas Merton, sem fyrstur lauk upp fyrir mér zen- heiminum.” - Eru einhver líkindi með ka- þólsku og zen-búddisma? „Já, kaþólskunni í sinni bestu mynd. Hvort tveggja krækir hjá þeirri tilfinningasemi sem víða einkennir trúarlíf manna. Auk þess voru í kaþólskunni notaðar ýmsar aðferðir sem minna á zen. Þær hafa að mestu glatast. Enda eru sumir zen-kennarar vestra önnum kafnir við að kenna ka- þólskum. Það er eins og búdd- isminn fylli upp eitthvert að- ferðarlegt tómarúm sem skapast hefur í kristninni síðustu aldirn- ar.” - Getur þetta endað mcð því að búddisminn komi í stað deyjandi kristni? „Ég ætla að vona ekki.” - Nú, ertu ekki zen-búddisti? „Það þýðir ekki að ég vilji önnur trúarbrögð feig. Fjöl- breytnin er góð. Sjáðu til, hafið er eitt, en árnar sem renna í það eru óteljandi og hver og ein hefur sinn hátt á því að koma sér til sjávar. Hugsaðu þér sprænu norður í Þingeyjarsýslum sem stendur í þeirri trú að hennar rennsli sé hið eina rétta. Trúar- bragðasagan er fleytifull af svona ofstæki. Og það er ekki til eftir- breytni. Zen er aðeins smáfljót, lúterskan annað o.s.frv. Og í augum hafsins eru þessi rennsl- ismál auðvitað hreinn hégómi. Nei, ég vil þvert á móti að kristnin dafni. f henni eiga Vest- urlandabúar sínar rætur. Og í henni er nóg púður. Eða hvað yrði um einstaklings-, efnis- og markaðshyggjuna ef allir lifðu í Kristi?” - Áttu við að lifandi kristni gæti orðið frjálshyggjunni erfið? „Og ekki bara henni. Eða hvað yrði úr blaðinu þínu, sem boðar sæluna í formi þess eins sem mölur og ryð fá grandað, ef hér væru allir raunverulega kristnir? En það er eitt atriði í sambandi við frjálshyggjuna sem vinstri menn átta sig illa á en kristnir eru víða að skilja betur og betur. Ein meginstoðin í vesturlenskum húmanisma er úr gyðingdómi og kristni og felst í orðunum: Þú skalt gæta bróður þíns. Eins og þú veist hefur mönnum gengið erfiðlega að lifa eftir þessu í gegn- um tíðina. En fram að þessu hafa ekki verið gerðar meiriháttar til- raunir til að kollvarpa þessu fræðilega. Hér kemur síðfrjáls- hyggjan til skjalanna. Hún segir skýrt og skorinort: Þú þarft ekki frekar en þú vilt að gæta bróður þíns; ef þig langar til að gefa skít í hann, þá gerðu svo vel. Best að skýra þetta með dæmi. í Banda- ríkjunum eru nú stjórnvöld sem óðast að draga fé út úr heilbrigð- iskerfinu. Þetta er í anda frjáls- hyggjunnar. Hið opinbera á ekki að vera að vasast í því sem ein- staklingar geta annast. M.a. er hvarvetna verið að loka geð- sjúkrahúsum eða draga úr starf- semi þeirra. Geðveikt fólk ersent heim til sín, ef það á þá einhvers staðar heimili. Annars á götuna. Einkastofnanir eru dýrar. Svo ef þetta veika fólk á ekki sæmilega efnaða ættingja sem vilja borga fyrir það, þá verður það að éta það sem úti frýs. Og það gerir það. Og setur orðið mikinn svip á bandarískar borgir. Ráfar um í stefnuleysi, oft í mikilli þjáningu, illa klætt og misjafnlega nært. Nú segja frjálshyggjumenn: Þeim sem vilja hjálpa bágstöddum er það auðvitað velkomið, en samfélagið getur ekki tekið sér þann rétt að neyða heilbrigða þegna sína til að borga fyrir þá sem glatað hafa heilsunni. Og gættu að því, að innan þess ramma sem frjálshyggjan setur sér er þetta fullkomlega rökrétt. Þú verður að fara út fyrir ramm- ann til að finna á þessu veikleik- ana. Og þá ertu kominn út í sið- fræði og jafnvel trú, en hvort tveggja á það til að kalla fólk til ábyrgðar, jafnvel að setja óþægi- legar kvaðir á þá sem hafa frelsi eigin buddu að leiðarljósi. Á þessu sviði eru vinstri menn oft lens, hafa ekki annað að koma með en almenna réttlætiskennd. Og ekkert skrítið. Áratugum saman hafa þeir takmarkað vit- undina við kaupgjald og verð- lag.” Minn minnsti bróðir - Áttu við að frjálshyggjan sé and-kristin? „„Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér.” Þarftu meira?” - Það gleður mig að þú skulir ekki með öllu hafa gerst fráhverf- ur hversdagsstússi okkar hinna. „Hvaðan kemur þér sú hug- mynd að trúaðir snúi baki við samfélaginu?” - Eru þess ekki mörg dæmi? „Þá er að spyrja hvers konar trú það sé, eða hvort það sé yfir- leitt nokkur trú. En við verðum líka að spyrja hvernig við séum, og út frá því hvað sé æskilegt að við gerum fyrir samfélagið. Það er t.d. ekkert sjálfgefið að allir séu á kafi í pólitík. Ef við þjáumst af því sem í búddisma er kennt við reiði, græðgi og fávísi - og það gera flestir- þá erum við ófær um að gefa heiminum það sem máli skiptir, getum m.a.s. verið heiminum stórhættuleg séum við mikið að skipta okkur af honum. Um það á sagan ótal dæmi, gömul og ný. Og þá er aðeins eitt sem við getum gert fyrir samfé- lagið, og það er að breyta okkur sjálfum. En það er einmitt þarna sem hnífurinn stendur í kúnni. í stað þess að horfast í augu við eigið ásigkomulag, höldum við dauðahaldi í sjálfsblekkinguna og teljum okkur trú um að við séum allt að því göfgin holdi klædd og allra manna færust um að leggja línurnar fyrir mannkynið. Þú þekkir þetta. Venjuleg pólitík í öllum flokkum er af þessu taginu. Eins og frum- stætt trúboð. Fólk reynir með öllum ráðum að troða því upp á aðra sem það finnur ekki hjá sjálfu sér en langar þó til að finna. Sá sem er ófær um að trúa getur breitt yfir það með því að boða öðrum trú af miklum ákafa. Og yfir græðgi og særðan metnað er auðvelt að breiða með því að berjast fyrir réttlátu þjóðfélagi af öllum kröftum. Líttu bara á alla þessa hugsjónamenn sem logandi af „mannkærleika” hafa barist fyrir frelsi þjóða og stétta og orð- ið að böðlum við fyrsta tækifæri. Þeir breyttu heiminum án þess að breyta sjálfum sér. Og breyttu þannig ekki heiminum nema á yfirborðinu.” - Ertu með þessu að segja að allir eigi að halda að sér höndum? „Þeir einir gefi sem eiga. Og guð gefi að allir hinir haldi að sér höndum.” - Nú hefur mér ailtaf skilist að búddisminn sé fremur innhverf- ur. „Þetta eru vesturlenskir for- dómar. Ekki ósvipaðir þeim sem fólk gengur með í Austur- löndum. Þar halda margir að kristnir geri ekki annað en að drepa fólk og græða peninga. Þó að jafn erfitt sé að setja allan búddisma undir einn hatt og að setja alla kristni á eina könnu, þá held ég að segja megi að afstaða. búddista hafi oftast nær verið eitthvað í átt við það sem við þekkjum úr frumkristni, frekju- laus virðing fyrir lífi annarra. Það eru engar trúarbragðastyrjaldir til í sögu búddismans og þjóð- rembingur sjaldgæfur, þó dæmi séu um hann, a.m.k. í Japan. Þvert á móti hefur rótgróin van- trú búddista á ofbeldi oft gert gerræðislegum stjórnvöldum auðvelt fyrir. Kínverskir komm- únistar hafa t.d. hagað sér mjög villimannlega í Tíbet. En Tíbet- ar, sem langflestir eru búddistar af einhverju tagi, grípa ekki til vopna. Þeir elska óvini sína, eins og sagt er í kristni. í búddisma er þetta orðað öðru vísi: Þú ert óvin- urinn. Sem er sama hugsunin. Þetta þekkjum við ekki lengur á Vesturlöndum nema hjá kvekur- um, mennonítum og öðrum mjög fámennum sértrúarflokkum. Og það eftir nærri 2000 ára kristni. En hugmyndirnar um inn- hverfu búddismans eru að mörgu leyti skiljanlegar. Þær eiga rætur að rekja til ólíkrar trúarafstöðu. Gyðingdómur og kristni eiga sér sína ritningu. Bókstafurinn er grundvallaratriði og álitinn guð- leg opinberun. En búddisminn á sér enga biblíu. Og bókstafurinn er þar fremur lágt skrifaður, jafnvel líka það sem allir eru sam- mála um að sé andríkið sjálft. Bókstafurinn er þar aðeins leiðarvísir. Eins og fingurinn sem bendir barninu á tunglið. Ef barnið sér aðeins fingurinn hefur það orðið vísbendingunni að bráð og farið á mis við tunglið. Þessi afstaða kallar á iðkun sem hefur trúarlega reynslu handan allrar hugsunar að markmiði. Og iðkunin, svo margvísleg sem hún getur verið, krefst þess að þú skoðir hug þinn og sjálf í ró og næði. Þó að sumir komist upp á lag með að gera þetta að ein- hverju leyti í dagsins önn, þurfa allir einhvern tíma til íhugunar (hugleiðslu) og hann jafnvel í þögn og einangrun. Þetta þykir okkur innhverft en er það ekki ef betur er að gáð. Við getum alveg eins kallað það úthverft. Þú stefnir inn, að rótum sjálfsins, til að komast út hinum megin, í sjálfsleysi, eða einfaldur og fá- tækur eins og Kristur orðaði það.” - Já, „sælir eru fátækir”. Þetta stendur í mörgum. Öðru vísi ríkidœmi „Öreigarnir hafa fram á þenn- an dag verið að ímynda sér að þetta og fleira í þessum dúr ætti við þá, t.d. líkingasögnin um ríka manninn, úlfaldann og nálar- augað. En þessi skilningur stenst ekki. Það er hægt að vera ríkur af mörgu öðru en eignum, t.d. skoðunum, þekkingu, áliti, til- finningum, samböndum, öryggi, vana og jafnvel dyggð. Sá sem getur látið þetta allt saman róa, þannig að hann haldi sér ekki í neitt, hann er fátækur - og sæll! Þetta er í kjarna allra trúar- bragða. Skilyrðislaus krafa um að láta hvers kyns eignarétt lönd og leið. Og segðu svo að þetta sé ekki pólitík. í rauninni er þetta róttækara en svo að hinir róttæku þori að koma nálægt því, ég tala nú ekki um háttsetta stjórnmála- menn. Þó eru undantekningar til. Menn eins og Gandhi og Ú Þant.” - En af hverju er svona æskilegt að komast út fyrir sjálfið? Hvað er að því? Og hvernig er sjálfslaus maður? „Sjálfslaus maður er ekki frá- brugðinn öðrum að öðru leyti en því að hann skynjar sig ekki sem afmarkað fyrirbæri. Hann er ekki hann sjálfur andspænis heimin- um. Ekki hann og þú. Hann er þú, umhverfið, lífið, alheimur- inn. Ekki svo að skilja að hann afsali sér funksjónum sjálfsins. Hann leggur saman tvo og tvo eins og hver annar. En hann bregst við á annan hátt en við hin. Heimurinn kemur honum meira við, eða á sannari hátt, en þeim sem hlaðið hafa háan vegg á milli sín og heimsins. Hann getur ekki drepið aðra án þess að drepa sjálfan sig. Og hann getur ekki níðst á náttúrunni án þess að níð- ast á sj álfum sér. Því hann er nátt- úran. Hann er aðrir. Og ber ábyrgð eftir því. Afdrifaríkasta blekking mannkynsins felst í því að halda að ég sé hérna og þú þarna. Við erum báðir hérna, þarna og alls staðar. Þótt birting- arformin séu óteljandi er aðeins til eitt líf. Og við erum þetta líf. „Mitt” líf, aðskilið frá „þínu” lífi, er ekki til. Það er skynvilla, blekking. Það er ekkert sjálf til í merkingunni innibúandi, sjálf- stæð tilvist. Hingað til hefur held- ur engum tekist að finna það þrátt fyrir mikla leit. Og ef þú heldur að þér muni takast það, þá gerðu svo vel. Spyrðu þig þúsund sinnum á dag, í fullri einlægni, hver þú sért. Og ef þér tekst að finna þennan „ég” og sýna heiminum hann svart á hvítu, þá verða það straumhvörf í sögu mannkynsins. Ef þú finnur það hins vegar ekki en heldur samt áfram að leita, þá verða það straumhvörf í lífi Ossurar Skarp- áéðinssonar. Fyrr eða síðar mun ritstjórinn ganga inn í mikinn fögnuð. En áður en þú nærð svo langt muntu finna pólitíkina í þessu. Sjá hættuna sem mannkyninu stafar af tæknivæddu sjálfi sem finnur ekkert handan veggsins sem það hefur reist á milli sín og alls hins, já hættuna sem því staf- ar af sjálfu sér svo lengi sem það getur ekki fundið til sem lífið á jörðinni heldur aðeins sem svo og svo margir einstaklingar af teg- undinni homo sapiens. Al- heimurinn gefur okkur allt sem við þurfum. Loftið sem við öndum að okkur, sólarljósið og jörð til að yrkja. Hvernig förum við svo með þetta? Ef við tökum okkur stöðu úti í geimnum og lítum til jarðar, þá sjáum við hnött í alvarlegum veikindum. Hvarvetna er náttúrulegu jafnvægi raskað af mannavöldum og aðeins af mannavöldum. Mað- urinn hefur tekið sér alræðisvald í lífríkinu og kann ekki með það að fara. í stað þess að lifa með nátt- úrunni, sem ætti að vera auðvelt með nútíma tækni, erum við ævinlega að sigrast á henni, þjösnast á henni. Og lokuð eins og við erum á bak við Ég-Mitt, finnum við ekki að í rauninni erum við að þjösnast á tilverunni allri og þar með okkur sjálfum. Heiðarlegir vísindamenn hafa fyrir löngu frætt okkur um hvert stefnir. Við vitum þetta allt sam- an. En það er greinilega ekki nóg að vita. Á meðan við einangrum okkur frá lífsheildinni og þar með okkar dýpsta eðli, þá finnum við ekki fyrir afleiðingum gerða okk- ar á þann hátt sem nægir til að tekinn sé annar kúrs. Og því sem óhjákvæmilega blasir við okkur Frá sósíalisma til zen ýtum við frá okkur með allra handa réUlætingum.” Hið seka sjólf - Ef sjálfið er þessi sökudólgur sem þú vilt vera láta, og ef sjálfið er þar að auki blekking, hvað er þá því til fyrirstöðu að við losum okkur við það? „Maðurinn hefur árþúsundum saman haldið í ýmsar blekkingar veigaminni en sjálfið. Sjáðu til, sjálfið er eins og ávöxtur sem fell- ur ekki af trénu fyrr en hann er orðinn sæmilega þroskaður, jafnvel ofþroskaður. í íhugun íeitar oft fólk með mjög veikt sjálf og heldur að fyrst svo sé, þá muni því reynast auðvelt að láta það fjúka og stökkva svo hreint inní guðsríki, nirvana eða hvað það nú kallar það. En þetta er misskilningur, og stundum mjög hættulegur. misskilningur. Ef mjög veikt sjálf brestur, tekur ekkert við nema geðveikin. Þeir sem valtir eru á geði eiga ekki að iðka íhugun nema undir hand- leiðslu hæfs kennara. Sú sálarfræði, sem finna má í austurlenskri trúspeki (og það er mjög auðvelt að líta á búddism- ann t.d. sem útvíkkaða sálar- fræði), segir margt um eðli sjálfs- ins en fátt um uppruna þess og mótun. Um þau efni er meira að sækja í vestræna sálarfræði, Fre- ud og hans fylgjendur, Piaget og fleiri. Um eitt eru þó allir smmála: Adam og Eva verða að yfirgefa aldingarðinn, maðurinn verður að leita skjóls í eigin sjálfi, hversu mikil blekking sem það kann að vera, eigi hann að vera siðmenntaður. Um hitt greinir menn á hvort hann geti ratað út úr því aftur, jafnvel hvort það sé æskilegt. Erfitt er það, svo mikið er víst. Hræðslan við hið óþekkta nær inn í merg og bein á hverjum manni. Og gegn henni duga rök skynseminnar skammt. Hræðsl- an á sér augljóslega rætur í þeirri óöryggistilfinningu sem öll börn eru haldin á því skeiði þegar sjálfsvitundin er að mótast. Og þessa óöryggistilfinningu sitjum við með, meira og minna ómeð- vitaða.” - Tekst þetta þá nokkrum? „Mjög fáum til hlítar. Mörgum að hluta til. Þú gerir baraþað sem þú getur, án alls rembings. Og hefur það í huga að sjálfsvitundin er ekkert óbreytanlegt eilífðar- fyrirbæri. í þeirri mynd sem við þekkjum hana er hún ekki nema u.þ.b. 4000 ára, sem er eins og stundarkorn í þróunarsögunni. Og þennan tíma hefur hún stöðugt verið að breytast. Það er m.a. auðvelt að sjá af listasög- unni.” - Þú minntist á Freud. Ef ég man rétt varstu á kafi í honum fyrir nokkrum árum. Hvernig kemur hann inn í zen-ið hjá þér, svarinn fjandmaður allra trúar- bragða? Hefurðu þurft að moka honum út? „Alls ekki. Freud var Snillingur á sínu sviði og lagði grunn, ekki aðeins að merkum aðferðum til sállækninga, heldur flestu því besta sem við vitum um tauga- veiklun nútímans. Fyrstu áratug- ina var sálgreiningin líka róttæk menningargagnrýni sem haft hef- ur mikil áhrif. Það verður svo ekki skrifað á reikning Freuds að þetta skuli allt hafa þynnst út. í dag er sálgreiningin fyrst og fremst þurr læknisfræði.” - Nú virðist manni að Freud hafi orðið fyrir mörgum skotum upp á síðkastið. „Það er gamla sagan, þegar börnin, einkum synirnir, upp- götva að pabbi var ekki alfuil- kominn, þá snúa þau við honum bakinu með látum. Gamli mað- urinn kímir að öllu saman í gröf- inni. Sérðu hann ekki fyrir þér? Við þetta bætist svo yfirborðs- mennska nútímans og alls kyns viðskiptasjónarmið. Þegar ótal manns um allar þorpagrundir tel- ur sig geta læknað taugaveiklun með örfáum viðtölum, og jafnvel með lyfjum, þá er ekki við því að búast að heiðarleiki og kröfur Freuds nái hátt á vinsældalistun- um. Auðvitað er enginn vandi að finna alvarlega vankanta á Fre- ud. Það breytir samt engu um stærð hans og mikilvægi á þessu sviði. Þetta svið var bara miklu þrengra en hann áleit sjálfur. Hann var mikill frádráttarmaður ekkert síður en Marx. Hvata- og tilfinningalífið var miðpunktur, og út frá því alhæfði hann villt og grimmt. Mér virðist hann hafa verið hræddur við hinar dýpri víddir, bæði af persónulegum og fræðilegum ástæðum.” - Svo við víkjum aftur að búdd- ismanum: Hvers konar fólk er það sem iðkar zen í Bandaríkjun- um? „Alls konar fólk á öllum aldri, úr öllum stéttum og af báðum kynjum. Fólk undir tvítugu er þó mjög sjaldséð. Án þess að geta stuðst við tölur, tel ég líklegt að konur séu í meirihluta. Zen- kennurum af kvenkyni fer líka . ört fjölgandi. Og það er nýtt í sögunni.” Kvenleiki - Það er kannski til búddískur femínismi? „Já, og veitir áreiðanlega ekki af. Feðraveldi Austurlanda hefur auðvitað sett mark sitt á búdd- ismann. Það hefur líka haftsitt að segja að fyrstu fylgjendur Búdda voru eingöngu betlimunkar. Nú, og svo drattast vesturlenskir búddistar með sama tilfinninga- arfinn og aðrir. En búddískur femínismi er töluvert frábrugð- inn þeim sem við eigum að venj- ast. Hann miðar að jafnrétti á grundvelli þess sem er handan karlleiks og kvenleiks. Þannig er siglt fram hjá mörgum skerjum tilfinningalegs eðlis. Umfjöllunin og úrvinnslan verða í senn beinni og breiðari. Hér og víðar á kvennahreyfingin á hættu að fest- ast í ýmsum kenndum sem gefa því ekkert eftir sem barist er gegn. Karlremba og fallosdýrkun verða ekkert skárri þó að höfð séu endaskipti á öllu saman. Og festist kvennahreyfingin í þessu vérður hún ófær um að takast á við vandann í allri sinni dýpt. Kúgun kvenna um allan heim er aðeins hluti af miklu víðtækari vanda, sem sé bælingu kven- leikans jafnt hjá körlum sem kon- um, mörg þúsund ár aftur í tím- ann.” -Hvað áttu við með kvenleika? „Kvenleiki er rými og móttæki- leiki. Karlleiki er virknin sem kvenleikinn fæðir af sér. í raun- inni eru þetta tvær hliðar á sama fyrirbæri.” - Er þetta ekki frumspeki? „Jú, auðvitað. En ef þú hliðrar þér hjá frumspekinni, þá hliðr- arðu þér hjá obbanum af tilver- unni, kemur þér fyrir útí horni. Og frumspeki kvenleika og karl- leika er auðvelt að reyna á sjálf- um sér. Þú þarft ekki að kafa djúpt til að komast að því hvernig þessu er háttað hjá þér. Og þegar þú hefur áttað þig á því tekurðu að skynja þetta hjá öðrum. Sé kvenleikinn bældur eða bæklað- ur, hvort sem er hjá karli eða konu, þá er karlleikinn það líka. Útkoman er ýmist þolandaháttur eða þessi kantaða óðavirkni sem við sjáum alls staðar í kringum okkur og þykir fín.” - Hvað tekur svo við hjá þér? Á að boða landanum zen? „Nei, virkt trúboð, eins og við þekkjumþað úr kristni, erekki til í zen, og sennilega ekki í búdd- ismanum yfirleitt. Og kennt get ég ekki af því ég er ekki fær um það. Ég er einfaldlega ekki nógu þroskaður. En ef einhver hefur áhuga á að þreifa sig áfram með zazen og vill fræðast um undir- stöðuatriðin, þá er ég auðvitað boðinn og búinn að veita mitt liðsinni.” - Hvað er zazen? „Zazen er sú tegund íhugunar sem iðkuð er í zen-búddisma. Og þú þarft ekki að vera zen-búddisti til að iðka zazen þér til gagns og ánægju. Þú getur verið kristinn, trúlaus með öllu, jafnvel upp- tendraður áhugamaður um fisk- eldi.” - Það er nú trúboði í þér. „Stundum tekst mér að skynja hvar neisti áhugans kviknar, og þá haga ég orðum mínum í sam- ræmi við það.” Ekki vildi spyrjandinn kannast við minnsta áhuga á þessu grufli öllu. - Og svo ertu að gefa út nýja bók um miðjan mánuðinn. Hvernig er að vera rithöfundur og vera kominn inn í trúarbrögð sem virðast ekki kunna að meta mikilvægi orðsins?” „Það er léttir. Öldungis ómögulegt að taka sig mjög há- tíðlega. Það gerði ég áður fyrr. Nú er stutt í að hver einasta fruma líkamans viti hvað þetta er mikill hégómi. Og þá er bæði skemmtilegra og erfiðara að skrifa. Maður verður að fara sparlega með orðin. Annars er ég búinn að fá mig fullsaddan af skáldskap, já og listum yfirleitt. Ef ég held áfram að skrifa ein- hvers konar skáldskap, þá er það vegna þess að mér hefur ekki tek- ist að vinna bug á gömlum kæk. Sjáðu til, ég er búinn að vera á kafi í þessu síðan ég var ung- lingur. Þetta er búin að vera stór- kostleg veisla. Og mikil gæfa er það fyrir öryggislaus ungmenni að lenda urfdir vængnum hjá ein- hverri listagyðjunni. Góð list stefnir alltaf út fyrir sjálfa sig. Góð list er þroskandi. Én er svo sjálfsagt að enda þarna eins og svo margir gera? Ég finn ekki betur en þá fyrst hefjist ævintýrið þegar listinni sleppir. Þetta hefur verið að smágerjast í mér. Ég hef t.d. ekki lesið skáldsögu til enda í mörg ár. Allur seinni tíma skáld- skapur er annað hvort of tilfinn- ingasamur eða of vitsmunalegur fyrir minn smekk. Sjálfsvitund skáldanna sem annarra er komin í hnút þar sem andríki, tilfinning- ar og vitsmunir fara ekki eðlilega saman. Hómer er góður. Þar er hátt til lofts og vítt til veggja. Heill kúltúr lagður undir. Ef við stökkvum svo u.þ.b. 2500 ár fram í tímann og komum niður á garð- inn þar sem hann er hæstur, sem sé hjá Cervantes og Shakespeare, þá sjáum við að það hefur heldur betur þrengst um. Þessi munur er þó barnaleikur hjá þeim sem blasir við ef við berum saman nú- tímaskáldskap og Shakespeare- Cervantes. í dag er allt í fingur- björg. Og ég dreg stórlega í efa að það geti verið öðruvísi. Bach og Goethe voru í rauninni síðustu skáldin sem gátu þanið sig um heima alla.” Oktavía - Og samt skrifarðu. „já, ég er að gera tilraun til að komast út úr skáldskapnum, út undir bert loft.” - Oktavía, hcitir nýja bókin. Um hvað er hún? „Ég veit það ekki. Þetta eru 96 stuttar sögur um einu og sömu konuna, sagðar af tólf manns. Meira vil ég ekki segja.” - Geta þá karlar skrifað um konur á þessum síðustu og verstu? „Nú skal ég ekki segja. En í Oktavíu er hvorki karl né kona. Þess vegna er hún hvorttveggja í ríkum mæli. Þess vegna get ég líka skrifað um hana. Með því er ekki sagt að ég skilji hana.” - Ég hef óljósan grun um að svona kona hljóti að vera áskrif- andi að Þjóðviljanum. „Ekki veit ég það. Ég veit bara að hún er áskrifandi að blaði blaða.” Hér lyftist forvitnisbrúnin á spyrjandanum. - Og hvaða biað er það? „Það hefur aldrei verið skrifað og verður aldrei skrifað. Einmitt þessvegna er það blað blaða.” -ÖS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.