Þjóðviljinn - 06.10.1985, Blaðsíða 12
Skrýtlan
um smáa
letrið
Rœtt við Inga R. Helgason forstjóra
Brunabótafélags fslands
Iðgjöld tryggingafélaga hafa
verið all mikið í sviðsljósinu að
undanförnu eftir að Samvinnu-
tryggingar lækkuðu iðgjöld húsa-
trygginga í Hafnarfirði með til-
boði og Brunabótafélagið kom í
kjölfarið og gerði samning við
Garðabæ um samsvarandi lækk-
un, sem tekur jafnframt til allra
annarra sveitarfélaga sem tryggja
hjá félaginu. Ingi R. Helgason
forstjóri Brunabótafélagsins
sagði í samtali við Þjóðviljann í
síðustu viku, að hafið væri verð-
stríð milli tryggingafélaganna,
ekki ósvipað því sem geysað hef-
ur á milli bankanna um langt
skeið. í tilefni þessa óskaði Pjóð-
viljinn eftir viðtali við Inga um
þessi mál og fleira, sem við kem-
ur tryggingastarfsemi í landinu.
Það fyrsta sem Ingi var spurður
að var, hvort tryggingafélögin
hefðu safnað svo digrum sjóðum
á liðnum árum og þá vegna of
hárra iðgjalda, að þau gætu nú
allt í einu lækkað iðgjöld af húsa-
tryggingum um 30%-70%.
Höfum safnaö
í sjóð
Sjáður til, það er aðall hvers
tryggingafélags að vera fjárhags-
lega sterkt, annað væri óeðlilegt.
Við hjá Brunabótafélaginu höf-
um safnað eigin fjársjóðum í
gegnum tíðina, býsna vel. Þó er
það svo, að Brunabótafélagið
hefur jafnt og þétt lækkað ið-
gjöldin, og jafnframt greitt til
sveitarfélaganna til uppbygging-
ar brunavarnar háar upphæðir, af
mismuni tjóna og iðgjalda. Við
höfum í áratugi verið í farar-
broddi með að lækka iðgjöld
húsatrygginga og erum það enn.
Samt höfum við gætt þess að
ganga ekki á eigið fé okkar. Þetta
eru þær leiðarstjörnur, sem
Brunabótafélagið hefur í sínum
rekstri. Félagið er ekki rekið með
ábatasaman atvinnurekstur í
huga eða til að skila einhverjum
eigendum gróða. Við tökum inn
iðgjöld og við greiðum tjón og
kostnað. Við greiðum sveitarfé-
lögunum ágóðahlut eftir því
hvernig tjónatíðni þeirra var árið
á undan og ef þá verður afgangur
eru iðgjöld lækkuð einhliða.
Þetta er vegna þess að enginn á
Brunabótafélagið nema þeir sem
tryggja hjá því. Svona einfalt er
það.
En þessi mikla iækkun iðgjalda
nú, er hún raunhæf, þola trygg-
ingafélögin þetta?
Ég veit það ekki, ég þori engu
að spá um hvort félögin þola
þetta eða ekki. Ef lítið verður um
tjón, má vera að þetta takist, en
það þarf heldur ekki mörg með-
altjón til að setja allt úr skorðum.
Má gera ráð fyrir því að þetta
verðstríð muni ná tii annarra
greina trygginga en húsatrygg-
inga?
Það getur vel verið, maður veit
það ekki, jú það kann að fara svo.
Að mínum dómi er samkeppni af
hinu góða og ég kveinka mér ekki
undan henni, Brunabótafélagið
mun taka þátt í henni á öllum
sviðum, enda höfum við til þess
alla burði, þar sem eigið fé félags-
ins er um það bil 35% af saman-
lögðu eiginfé allra tryggingafé-
laga í landinu. Hitt er svo annað
mál, hvort tryggingafélögin eru
þannig í stakk búin fjárhagslega
að þau þoli gegndarlaus niðurboð
á iðgjöldum hvert fyrir öðru. Um
það leyfi ég mér að efast.
Þú vilt ekki samþykkja að svo
mikill hagnaður hafi verið af
húsatryggingum á liðnum árum,
að þess vegna sé nú hægt að lækka
iðgjöldin svona mikið?
Nei, það samþykkti ég ekki,
enda er það fjarri lagi. Það sem
gerðist í Hafnarfirði er hreint
undirboð, ekkert annað. Þar er
ekki höfð til hliðsjónar tjóna-
prósentan á öllu landinu utan
Reykjavíkur, þar hefur aðeins
verið litið til lítillar tjónatíðni í
Hafnarfirði einum sl. 5 ár. Ég tel
það mjög óeðlilegt að gera tilboð
sem þetta og byggja á tjóna-
reynslu í aðeins einu sveitar-
félagi, það verður að hafa landið í
huga í því sambandi vegna þess
hve hrikaleg tjón geta orðið.
Tökum dæmi af brunanum á Sel-
tjarnarnesi í síðustu viku. Það
nemur á bilinu 6-8 miljónum
króna og telst því meðaltjón.
Samt étur það upp öll iðgjöld
húsatrygginga á Seltjarnarnesi
næstu 10 árin. Þetta þýðir auðvit-
að það, að öll þau tjón sem þar
kunna að verða á næstu 10 árum
verður að greiða af brunaiðgjöld-
um frá öðrum.
Hefur brunatjónum ekki fækk-
að verulega eftir því sem hita-
veitur hafa komið í fleiri hús?
Jú vissulega, tjónatíðni í
heimahúsum hefur snar minnkað
með tilkomu hitaveitna. Og ein-
mitt það er orsökin fyrir því að
við höfum getað lækkað iðgjöldin
jafnt og þétt síðan 1955, ásamt
því að greiða ágóðahlut til
sveitarfélaganna. Svo virðist sem
fólk sé mjög vel á verði í heima-
húsum hvað eldvörnum viðvíkur
og það er hreint slys ef upp kemur
eldur í heimahúsi. Opin eldstæði
eru að mestu horfin og miklar
framfarir hafa orðið í gerð raf-
magnstækja.
Undirboð
Samvinnutrygginga
1955
Allt fram til ársins 1955 var
Brunabótafélagið með húsa-
tryggingar utan Reykjavíkur og
var eitt með þær allar. Það ár
komu Samvinnutryggingar inná
þann markað og buðu 40% lækk-
un á iðgjöldum. Brunabótafé-
lagið gerði það þá einnig. Árið
Tjón ársins í hlutfalli við iðgjöld ársins 1974-1983
Almenn félög
1974 1975 1976 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983
% % % % % % % % % %
Alm. Tryggingar hf. 92,0 102,8 86,0 93,5 98,8 85,8 81,0 92,3 98,9 114,8
Ábyrgð hf. 83,9 79,7 69,0 71,6 75,7 79,9 85,0 93,8 81,0 85,2
Brunab.fél. íslands 82,4 83,9 71,8 68,6 70,2 91,1 81,0 93,8 87,5 105,4
Hagtrygging hf. 78,1 94,9 83,8 83,1 89,1 96,7 93,1 84,7 76,8 71,4
Reykv.endurtr. hf. 42,5 41,2 108,6 46,3 50,2 98,3 69,4 407,4 101,2 75,7
Samvinnutr. g.t. 83,4 107,1 75,4 72,9 75,1 67,2 75,9 86,2 80,8 83,2
Sjóvátr.fél. ísl. hf. 79,3 102,4 83,9 88,6 89,8 95,8 97,7 105,0 126,6 136,7
Trygging hf. 112,3 128,3 73,8 98,3 150,4 164,8 141,7 148,9 190,0 154,6
Tryggingamiðst. hf. 96,6 90,9 87,5 94,3 103,0 100,6 94,9 145,4 100,5 127,6
Samtals 89,1 103,1 79,6 85,5 100,4 101,3 93,6 102,9 105,5112,2
Taflan sú arna er frá T ryggingaeftirliti ríkisins og sýnir tjónagreiðslur tryggingafélaganna í öllum greinum trygginga miðað
við að iðgjöldin séu 100.
Ingi R. Helgason forstjóri Brunabótafélags íslands (Ljósm. Sig.).
1954 bauð Reykjavíkurborg
undir forystu Gunnars Thorodd-
sen út húsatryggingar í borginni.
Ég átti þá sæti í borgarstjórn og
fylgdist vel með málinu. Þá buðu
Samvinnutryggingar í brunatryg-
gingar húsa og íbúða í borginni,
og fóru með iðgjöld niður úr öllu
valdi. Þá ákvað Gunnar að stofna
Húsatryggingar Reykjavíkur til
þess að forða því, að Samvinnu-
tryggingar fengju tryggingarnar á
þessu undirboði. Þetta undirboð
þeirra í Hafnarfirði nú er af sama
toga. Samvinnutryggingar eru að
reyna að ná fótfestu með stór-
felldu undirboði.
Ef þetta verðstríð kcmur til
með að ná til fleiri greina trygg-
inga, hvernig eru minni trygg-
ingafélögin í stakk búin til að
mæta þeirri samkeppni, til að
mynda þau sem rekin eru á und-
anþágu?
Ef farið verður útí allsherjar
verðstríð í öllum greinum trygg-
inga og vissulega getur það gerst,
þá veit ég ekki til hvers það getur
leitt. Það má ef til vill segja að
tryggingafélögin séu of mörg hér,
samanlagður kostnaður þeirra
meiri en þyrfti að vera til að halda
uppi þessari starfsemi í landinu.
Það getur vel verið að þetta sé sú
Hér má sjá hvað iðgjöld brunatrygginga hjá Brunabótafélagi íslands hafa
lækkað á árunum 1972 til 1984. Árið 1972 var iðgjaldið 0,80 promill af bruna-
bótamati en árið 1984 0,23 prómill. Nú hafa iðgjöldin lækkað enn og eru komin
niður í 0,14 prómill.
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 6. október 1985