Þjóðviljinn - 08.10.1985, Blaðsíða 1
október
1985
þriðju-
dagur
231. tölublað 50. örgangur
DJOÐVIUINN
MANNLÍF
Ríkisstjórnin
Geir fómað
HEIMURINN
Geir Hallgrímsson
víkur úr
ríkisstjórninni um
áramót. Þorsteinn
Pálsson kemur
inní ríkisstjórnina
strax. Matthías A.
Mathiesenfer ífrí
til áramóta en
verður þá
utanríkisráðherra.
Engin önnur lausn
fannst á málinu.
Að loknum stuttum þingflokks-
fundi hjá Sjálfstæðisflokkn-
um í gær var fréttamönnum til-
kynnt niðurstaða hans um ráð-
herrastól handa Þorsteini
Pálssyni. Geir Hallgrímssyni
utanríkisráðherra var fórnað,
hann víkur úr ríkisstjórninni um
áramót. Fram að þeim tima mun
einn af hinum ráðherrum flokks-
ins taka sér frí og Þorsteinn taka
við ráðherrastólnum strax.
Á fréttamannafundinum var
látið líta svo út sem allt hefði
þetta gerst í sátt og samlyndi, en
greinilega var þungt í Geir Hall-
grímssyni. Hann sagðist hafa
boðið Þorsteini að standa upp í
ágústmánuði sl. EF ANNARRA
KOSTA VÆRI EKKI VÖL,
eins og Geir sagði orðrétt. Þá tók
hann það fram að hann saknaði
starfa sinna í utanríkisráðu-
neytinu.
Geir var spurður hvers vegna
þetta hefði tekið svo langan tíma
fyrst hann bauðst til að standa
upp í ágúst. Hann svaraði því til
að þennan tíma hafi menn verið
að velta fyrir sér hvort annarra
kosta væri völ, en svo hefði ekki
verið. Geir lýsti því yfir að hann
myndi halda áfram í pólitík og
ætlaði sér í prófkjör fyrir næstu
kosningar.
Þorsteinn Pálsson sagði að sér
hefði verið falið að gera tillögur
um breytingar á embættum ráð-
herra flokksins innan ríkisstjórn-
arinnar. Sagðist hann myndi gera
það alveg næstu daga en vildi
ekki skýra frá hverjar þær
breytingar yrðu.
Þjóðviljinn hefur fyrir því ör-
uggar heimildir að Þorsteinn
muni strax fá þann stól sem hann
mun verma meðan stjórnin situr,
en að það verði Matthías Á.
Mathiesen sem fær 3ja mánaða
fríið, en taki við embætti utan-
ríkisráðherra.
Sjá bls. 20.
/
Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra og heiðursforseti NATO leysti kreppuna í ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins. Hann mun láta af embætti utanríkisráð-
herra 1. janúar nk., Þorsteinn fer strax inn í ríkisstjórnina en Matthías Mathiesen viðskiptaráðherra fær 3ja mánaða frí. Ljósm. E.ÓI.
Alþýðubandalagið
Róttækar umræður í róttækum flokki
Svavar Gestsson: Hreinskilnar umræður umflokksstarfið. Samþykkt ímiðstjórn
að leggjaflokksráðið niður og landsfundur kjósi héreftir framkvœmdastjórn.
essi fundur einkenndist af því
að menn voru að brjóta heil-
ann um hvaða starfshættir eru
heppilegastir til að skila flokkn-
um árangri í þeirri baráttu úti í
þjóðfélaginu sem hann þarf að
heyja. Þegar slíkar umræður fara
fram þá koma auðvitað fram mis-
munandi áherslur eins og gengur,
því það er allt á dagskrá. Þetta
eru róttækar umræður, í róttæk-
um flokki, þær eru frísklegar og
opinskáar, segir Svavar Gestsson
formaður Alþýðubandalagsins
um þær umræður sem urðu á
miðstjórnarfundi flokksins um
helgina um starfshætti og starfs-
stfl Aiþýðubandalagsins.
„Þetta voru hreinskilnar um-
ræður og menn töluðu af fullri
alvöru um hlutina og svona
skoðanaskipti geta verið jákvæð
og skilað flokknum áleiðis. Það
er 8 manna nefnd í gangi, sem
ræðir um starfshætti flokksins,
m.a. í framhaldi af ályktum síð-
asta flokksráðsfundar. Þessi
nefnd fer líka yfir umræður á
miðstjómarfundinum og mun
skila áliti til framkvæmdastjórnar
flokksins", sagði Svavar Gests-
son.
ítarlegar umræður urðu einnig
á miðstjórnarfundinum um utan-
ríkismál sem þingmennirnir Guð-
rún Helgadóttir og Hjörleifur
Guttormsson höfðu framsögu
um. í þeim málum varð einróma
niðurstaða og verður henni vísað
til landsfundarins til frekari um-
ræðu.
Þá var samþykkt á fundinum
tillaga um að taka lög flokksins til
umræðu á landsfundi. Samþykkti
miðstjórnin tvær breytingartil-
lögur fyrir sitt leyti. í fyrsta lagi
að flokksráð verði lagt niður og
miðstjórnin komi algerlega í stað
þess og í öðru lagi var samþykkt
tillaga um að framkvæmdastjórn
verði kjörin beint á landsfundum
framvegis. -Ig.
Sjá bls. 2.
Portúgalskt granrt
í Laugaveginn
Dýrara en íslenskt grjót en auðveldara í vinnslu segir gatnadeildin
Ætla mætti að ekki væri nóg
grjót til á landinu því Nes-
port hf. er að flytja inn 140 tonn af
portúgölsku graníti fyrir Reykja-
víkurborg. Verður granítið notað
í andlitslyftingu Laugavegarins: í
kantstein, á bflastæðin og á bletti
þvert yflr akreinina.
Valur Guðmundsson hjá
Áhaldahúsi borgarinnar hefur
séð um efnisöflun fyrir gatna-
deildina vegna þessa verkefnis.
Hann sagði í samtali við Þjóðvilj-
ann að í sumar hefði granítblokk-
in kostað um 1000 krónur hver
fermetri en verð á steyptum
blokkum hér heima væri um 600
krónur.
„Það var Borgarskipulagið
sem hannaði yfirborð götunnar",
sagði Valur „og það var þrennt
sem kom til greina. í fyrsta lagi
gamli rennusteinninn og kant-
steinninn sem voru fyrir, í öðru
lagi steyptir steinar eins og í
Þórsgötunni og loks granítið.
Hönnuðirnir vildu hafa sem fæst-
ar tegundir efnis í götunni og þó
steinninn sem fyrir var kostaði
ekki neitt, þá er miklu meiri
vinna við að nota hann. Þarna
verða hitalagnir undir stéttum og
kantsteinninn sem er stór og
þykkur þarf að standa djúpt. Það
hefði kallað á aðrar tæknilegar
lausnir og dýrari. Það er líka
mjög erfitt að fá gott yfirborð
með gamla rennusteininum -
hann er mjög misjafn og mikil
vinna við að velja steinana saman
og hreinsa þá“.
Áætlaður kostnaður við
Laugaveginn neðan Klapparstígs
var í sumar um 10 miljónir króna.
Verklok eru áætluð fyrir lok nóv-
ember.
-ÁI
Sjá bls. 2.
BJað
lognast
útaf
Sjá bls. 6.