Þjóðviljinn - 08.10.1985, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
Alþýðubandalagið
Endurskoðuð vinnubrögð
Kristín Ólafsdóttir: Markmiðin ekki nœgjanlega skýrt mörkuð. Parf
að vísa verkefnum tilfélaganna og taka mark áþeirra vinnu.
Eg tel að við þurfum að líta
nokkuð í eigin barm og endur-
skoða hvernig við vinnum í póli-
tíkinni og hvernig við komum
okkar málflutningi á framfæri.
Okkur þykir mörgum skorta á,
að markmið og leiðir okkar
sósíalista séu nægilega skýrt
mörkuð, segir Kristín Olafsdóttir
en hún flutti ásamt formanni Al-
þýðubandalagsins erindi á fundi
miðstjórnar um helgina um
starfshætti og starfsstfl flokksins.
„Það skortir einnig mikið á að í
flokknum fari fram rækileg um-
ræða um hugmyndafræðina,
markmið og leiðir. Starfshættir í
flokknum eru ekki þannig að
hinn almenni félagi geti unnið
þessa stefnumörkun. Bæði
flokksfélögin og flokksfélagar al-
mennt eru allt of lítið virk í mótun
flokksstefnunnar. Það þarf að
vísa verkefnum til félaganna og
taka mark á þeirra vinnu. Við
þurfum fleiri en atvinnupólitíkus-
ana til að koma okkar skoðunum
á framfæri. í dag er nær öll pólitík
flokksins mótuð og borin fram af
atvinnupólitíkusum og allt of lítið
af hinum pólitísku verkefnum
skilin eftir handa öðrum flokks-
mönnum.”
Menn greindi nokkuð á um
þessi mál, ekki satt?
„Jú, skoðanir voru mjög
skiptar á fundinum. Annars veg-
ar voru þeir sem finnst þessi um-
Jólabókaflóðið
Um 300
titlar í ár
Ég hef ekki nákvæma tölu yfir
fjölda bókatitla sem gefnir verða
út fyrir komandi jól, en eftir því
sem ég kemst næst eru þeir álíka
margir og í fyrra eða um 300,
sagði Eyjólfur Sigurðsson í Bók-
hlöðunni, formaður samtaka
bókaútgefenda í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Eyjólfur sagði að bóksala í
fyrra hefði gengið mjög vei eftir
nokkur döpur ár. Það hafi eink-
um verið verkfall bókagerðar-
manna sem takmarkaði fjölda
bókatitla í fyrra og hefðu menn
svo séð að markaðurinn þyldi
ekki fleiri titla en um 300. Arið
1983 voru bókatitlar um 500 og
hefðu allir tapað á svo mikilli út-
gáfu.
Ekki sagðist Eyjólfur búast við
að flóðið sjálft kæmi yfir fyrr en
um næstu mánaðamót. Sjálfsagt
myndi ein og ein bók koma á
markaðinn í þessum mánuði en
flóðið ekki fyrr en um mánaða-
mótin.
S.dór
ræða um innra skipulag algert
aukaatriði. Pólitíkin sé aðalat-
riðið. Stóru málin kalli. Sumir
telja jafnvel að þessi sjálfs-
gagnrýni sé neikvæð fyrir flokk-
inn. Síðan er hitt sjónarmiðið
uppi sem ég talaði fyrir og má
kannski til að einfalda hlutina
kenna við hugmyndir ’68 kyn-
slóðarinnar, að bæði pólitík og
starfshættir séu það nátengd að
þar verði ekki skilið í milli.
Annars fannst mér þessi fund-
ur frekar góður að því leyti að
menn voru opnari og hreinskiln-
ari í umræðunni en oftast áður,
þó kannski séu ekki allir hrifnir af
opnum umræðum.
Ég ætla að leyfa mér að vona
áfram, að það sé hægt að breyta
þessum hlutum til betri vegar.
Það er mikill misskilningur ef
menn halda að það gerist á ein-
hvern einfaldan hátt. Þetta verð-
ur að gerast hægt og hægt, með
því að breyta viðhorfum manna
til þess, hvað fólk sé almennt að
gera, með því að starfa í pólitísk-
um flokki”, sagði Kristín Ólafs-
dóttir. -Ig
Nú er að mestu búið að loka skurðum neðan við Klapparstíginn og fleirum orðið fært í verslanirnar en fuglinum fljúgandi.
Ljósm. E.Ól.
Laugavegs apótek
Lyfin send ókeypis heim
Oddur Thorarensen lyfsali: Sjálfsögðþjónusta sem gamlafólkið hefur ekki efni á að borga.
að er gífurleg þörf fyrir þetta,
ekki síst eftir að læknarnir
hættu að símsenda lyfseðla. Ga-
malt og lasburða fólk þarf þá að
sækja þá á stofu og bíða eftir þeim
í apótekinu. Ef það kemst ekki
sjálft verður það að nota leigubíla
sem kosta 5-600 krónur, sagði
Oddur Thorarensen lyfsali í
Laugavegs apóteki. Þar hefur nú
verið tekin upp sendingarþjón-
usta með lyfseðla og lyf og er hún
viðskiptavinunum að kostnaðar-
lausu.
„Kollegarnir voru ekkert
hrifnir af því fyrst að þetta væri
gert ókeypis, en þetta er engin
þjónusta nema hún sé ókeypis.
Gamla fólkið sem bara hefur elli-
lífeyrinn getur ekki borgað þetta.
Þeir eru núna farnir að sjá að
þetta er sjálfsögð þjónusta og ég
býst við að fleiri fari að bjóða
hana. Þetta gera apótekin í Dan-
mörku og þetta hefði átt að vera
komið miklu fyrr“.
Oddur sagði að þessi nýja
þjónusta væri ekki tilkomin
vegna samdráttar í verslun. „Ég
hef alltaf haft sendibíl og gert
þetta í nokkrum mæli fyrir fasta
viðskiptavini“, sagði hann. „Eftir
að læknarnir breyttu þessu með
símlyfseðlana þá varð þörfin bara
meiri“.
-ÁI
Grípum Geir-inn í hönd!
Kaupmennska
Kemur niður
ásölu
MagniR. Magnússon
kaupmaður: Gatna-
deildin kölluð rólega
deildin hér.
„Okkur hafa fundist þessar
framkvæmdir ganga hryllilega
hægt og það hefur komið veru-
lega niður á verslun hjá okkur”,
sagði Magni R. Magnússon,
kaupmaður á Laugavegi 15. „Það
eru helst unglingarnir sem leggja í
að klifra yfir skurðina en eldra
fólk og aðrir forðast það enda eru
vinnuvélar í gangi allan daginn og
iðulega hættuástand þess vegna”.
Magni sagðist reyndar hafa
lítið vit á svona framkvæmdum
en hægt gengju þær. Gatna-
deildin gengi undir nafninu ró-
lega deildin meðal kaupmanna
en auðvitað vonuðu menn að
þetta yrði til hins betra þegar upp
væri staðið.
Hann nefndi sem dæmi að fyrir
skömmu auglýsti hann grimmt
gott úrval af skemmtilegum spil-
um. „Ég gerði ekki annað en
svara í símann”, sagði hann.
„Fólk lagði ekki í að koma og
skoða spilin en ef ég gat lýst þeim
nógu fjálglega gegnum símann
var gerður út unglingur úr fjöl-
skyldunni til að nálgast þau.
Svona er þetta hér allt í kring um
mig og eins gott að þessu fari að
ljúka”. -ÁI
Laugavegurinn
Gatan opnuð
í nóvember
Ólafur Guðmundsson:
Gangstéttirnar tilbúnar
fyrir mánaðamót.
Kaupmcnn við Laugaveg eru
orðnir langeygir eftir verk-
lokum við endurgerð götunnar
neðan Klapparstígs en götunni
var lokað 10. júlí í sumar. Hafa
þeir haft á orði að krefjast endur-
greiðslu á aðstöðugjöldum sín-
um. Ólafur Guðmundsson yfir-
verkfræðingur á gatnadeild borg-
arinnar sagði í samtali við Þjóð-
viljann að þeim hefði fundist
verkið ganga heldur hægt síðustu
2-3 vikurnar en verklok yrðu
uppúr 20. nóvember í stað 10.-15.
eins og áætlað var í upphafl.
„Kaupmenn hafa meiri áhuga
á gangandi umferð en bílaum-
ferðinni", sagði Ólafur, „og vilja
að við leggjum megináhersluna á
gangstéttirnar. Þær verða að
mestu komnar fyrir mánaðamót.
Þeir eiga sjálfir að sjá um hita-
lagnir í gangstéttirnar en það hef-
ur ekki reynt á það ennþá. Sam-
bandið hefur ekki verið nógu
gott, en þó eru flestallir búnir að
svara“.
Áætlaður kostnaður gatna-
deildar við verkið er um 10 milj-
ónir króna. Þar við bætist svo
kostnaður hitaveitu og rafveitu
auk hluta kaupmanna sem er
hitalögnin. -Ái
2 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN
*
/