Þjóðviljinn - 08.10.1985, Side 4
LEIÐARI
Heiðursforseta Nató sparkað
Þeir höföu gefið í skyn aö það yröi eitthvaö
aöeins meira en umtalsverð uppstokkun, eigin-
lega var ekki að skilja á þeim aö þetta yrði
nokkurs konar bylting á skipan ríkisstjórnarinn-
ar.
Og í raun og veru var forysta Sjálfstæöis-
flokksins búin að sýna almenningi í landinu
þann mælistokk sem ætti aö nota á styrk henn-
ar; þ.e. hversu miklar breytingar yröu á ráö-
herraskipan Sjálfstæðisflokksins. Og sjá: jpeir
geröu þaér róttæku breytingar aö nú fer einn
ráöherranna í þriggja mánaöa fríið og ekki er
útilokaö að utanríkisráðherrann sjái sér fært aö
hætta 1. janúar á næsta ári. Þetta er nú aldeilis
bylting!
Á blaðamannafundi í gær kváöu forystumenn
Sjálfstæðisflokksins atburðarásina hafa veriö á
þann veg, að einu sinni á ágústkvöldi hafi þeir
átt spjall saman Þorsteinn Pálsson og Geir Hall-
grímsson. Þar hafi Geir hvíslað að Þorsteini aö
hann væri til í aö stíga uppúr hægindi sínu í
ríkisstjórn „ef annarra kosta væri ekki völ“.
Og tunglið glotti viö tönn í bjartri ágústnóttinni.
Þagði yfir þessu litla leyndarmáli.
I millitíðinni samþykkti þingflokkur Sjálfstæö-
isflokksins fjárlögin en fékk vitrun 10 dögum
síðar um aö þau væru ómöguleg og því þyrfti
Þorsteinn Pálsson aö komast inní ríkisstjórnina.
Engu er líkara en karlinn í tunglinu hafi stjórnaö
þeim fundi.
Loks gefur forystan út yfirlýsingu um aö Þor-
steinn Pálsson hafi allsherjarumboö til aö
stokka upp í ríkisstjórninni einsog honum sýnist,
- þaö verði gert lýðum Ijóst á mánudaginn. Og
hver skyldi nú hafa veriö niðurstaöa formanns-
ins önnur en sú sem Geir Hallgrímsson hvíslaöi
að honum á ágústkveldinu foröum? Hvílík
niöurstaöa! Himinninn hristist af hlátri. Þor-
steinn kom ekki meö neina niöurstööu. Fjallið
tók jóðsótt, þaö fæddist mús einsog Friörik
Sophusson sagöi á Seltjarnarnesi um áriö!
Það er alkunna að innan Sjálfstæðisflokksins
hefur gætt mikillar óánægju meö utanríkis-
stefnu Geirs Hallgrímssonar. Þeir stuðnings-
menn Sjálfstæöisflokksins, sem hafa viljað fara
hógværar leiðir í „öryggis- og vamarmálum",
telja að undanlátssemi Geirs viö Bandaríkin,
flugstööin, flugvélarnar, ratsjárstöövarnar og
stuöningur hans viö Reagan-stjórnina, hafi fariö
út fyrir öll velsæmismörk. Og slíku fólki varö um
og ó þegar Geir var geröur aö heiðursforseta
Nató á dögunum. Á hina síðuna hafa frjáls-
hyggjugaukarnir í flokknum meö Björn Bjarna-
son í fararbroddi haft horn í síðu Geirs vegna
hinnar sameiginlegu utanríkisstefnu sem sam-
þykkt var á alþingi og stuönings Geirs viö hana.
Þessu fólki er engin eftirsjá að Geir. Og trúlega
mun hulduher Alberts Guðmundssonar ekki
gráta margar nætur ráðherrastólsmissi Geirs
Hallgrímssonar. Hann lá því vel viö höggi.
Heiðursforseta Nató var því sparkað í gær án
þess að margir felldu tár.
Á hinn bóginn er Geir sjálfur að vinna sig uppí
álit hjá flokkshollum meðbræðrum sínum, fá
samúö þeirra fyrir aö standa uppúr stólnum
mjúka. Þess vegna stendur hann betur aö vígi í
prófkjöri gagnvart Albert, sem heldur fast í stól-
armana.
En eru allir búnir að gleyma til hvers átti að
skipta um ráðherra í ríkisstjórninni? Þaö átti að
stokka upp í efnahagsmálunum. Ný fjárlög.
Engin erlend lán. Snarhækkaður kaupmáttur
launa. Enginn viöskiptahalli. Og nú hefur for-
ysta Sjálfstæðisflokksins skýrt landsmönnum
frá því hver átti sökina allan þennan tíma á
rýrnandi krónu, fallandi dal, lágum launum, viö-
skiptahalla, fjárlagaóreiðunni. Sökudólgurinn
hlýtur að heita Geir Hallgrímsson. Og nú er
Þorsteini Pálssyni ekkert aö vanbúnaöi, - þegar
Geir er á förum. Það fæddist mús.
-óg.
KLIPPT OG SKORIÐ
Um næstliðna helgi var í
Reykjavíkurbréfi Morgunblaðs-
ins fjallað um þá íslendinga sem
hafa flust úr landi og meðal ann-
ars komið við sögu ýmissa fyrir-
tækjaævintýra. Eins og fyrri dag-
inn er þá mjög vitnað til flug-
ævintýra íslendinga sem dæmi
um að við höfum bæði haft við-
bragðsflýti í lagi og framkvæmda-
semi og þar fram eftir götum.
Gott eða illt?
Bréfritarinn er ekki alveg viss
um það, hvort hann eigi heldur
að fagna því að íslendingar hafi
flust úr landi: stundum vill hann
helst vera stoltur af því landnámi,
hefur velþóknun á þeim sem
gerðu garðinn frægan eins og sagt
er. En í næstu andrá hefur hann
nokkrar áhyggjur af því, að hér sé
um „atgerfisflótta" að ræða, sem
hefur verið talsvert vandamál
með mörgum þjóðum. Kannski
hefur þetta fyrirbæri, segir í bréf-
inu, einhver neikvæð áhrif „fyrir
heildarhagsmuni í landinu".
Höfundur Reykjavíkurbréfs er
svo, þegar allt er saman dregið,
helst á þeim buxum, að ef íslend-
ingar verði fyrir því, sem hann
kallar atgervistap, þá sé það
sjálfskaparvíti pólitísks eðlis. ís-
lendingar, segir hann, hafa leitað
annað með menntun sína og
framtak vegna þess að í öðrum
löndum fundu þeir meira „við-
skiptafrelsi“. Meðan hér heima
hafí „skipulagshyggjan, hálfsós-
íalisminn" lokað ýmsum mögu-
leikum manna. Þegar aftur er
vikið að orsökum fyrir brottflutn-
ingi fólks síðar í greininni segir á
þessa leið:
„í þriðja lagi, og það kann að
vega þyngst þegar framkvæmda-
menn eiga í hlut, frjálsræði til
framtaks og umsvifa í atvinnu-
rekstri. Enginn vafi er á því, að
fjötrar skipulagshyggjunna'r þ.e.
opinberrar miðstýringar hvers
konar, sem hér halda velli lengur
en víðast annars staðar, hafa í
senn hægt á hagvexti (og þar með
lífskjörum) og ýtt undir atgervis-
flótta úr landi. Framkvæmda-
menn hafa leitað í frjósamari
jarðveg. Umsvif, sem við réttar
aðstæður gátu skapað grósku um-
hverfis sig hér á landi, gera það
þess í stað í fjarlægum löndum“.
Aðrar skýringar
Með öðrum orðum: íslending-
ar hafa búið við landflótta vegna
þess að frjálshyggjan er ekki
nógu öflug hér á landi.
Nú vita menn kannski ekki
nærri nóg um brottfluttna íslend-
inga. Allra síst hve mjög þeir hafa
haft sig í frammi í ýmislegum
bisness. En það eru margar
ástæður fyrir því, að íslendingar
setjast að erlendis og líklega er sú
sem mestu ræður blátt áfram
tengd því, hve margir hafa stund-
að sérnám í öðrum löndum og
mægjast við fólk í námslandinu.
Þeir sem hafa leitað starfa á
Norðurlöndum hafa einatt tekið
það fram, að það hafi freistað
þeirra að þar sé rneiri „hálfsósíal-
ismi“ en á íslandi - betri félagsleg
þjónusta, auðveldara og ódýrara
að verða sér úti um húsnæði og
þar fram eftir götum. Dæmi
Morgunblaðsins eiga ekki við um
það fólk.
Og ekki munum við betur en
að það hafí komið fram á skýrsl-
um, að landflótti hefur verið
meiri frá íslandi á tímum hægri-
stjórna en vinstristjórna!
Fegurðin
og skyrið
íslensk stúlka sigraði í norræni
fegurðarkeppni á dögunum og
var sýndur stórspaugilegur sjón-
varpsþáttur af þeim tíðindum í
fyrri viku.
En svo er margt sinnið sem
skinnið og fjölmiðlarýnir Morg-
unblaðsins hefur blátt áfram tek-
ist á loft yfir þessum tíðindum og
verður væntanlega langt þangað
til hann tyllir tánum niður aftur.
Hann sagði m.a. á þessa leið um
fegurðarsigurinn:
„Þjóð sem á slíka gersemi sem
Sif Sigfúsdóttur er rík. Hún þarf
ekki annað en kaupa handa dís-
inni gullsleginn skrautvagn til að
aka á um heimsbyggðina, og þá
selur hún alla sína þorskhausa og
hrútspunga. Því allir vilja jú eiga
hlutdeild í fegurðinni og
hreinleikanum, ekki bara skáldin
heldur ekki síður hversdagsmað-
urinn á götunni, sem mœnir á
upplýsta glugga tískuhúsanna og
veltir fyrir sér hvaða áhrif matur-
inn hafi á mýkt húðarínnar og
Ijóma augnsteinanna".
Við nánari umhugsun telur
hinn upphafni sölumaður fegurð-
arinnar þó óráðlegt að halda
mjög á lofti þorskhausum og
hrútspungum í því útflutningsæv-
intýri sem svífur honum fyrir hug-
skotssjónum. Hann vendir sínu
kvæði til mjólkuriðnaðarins með
svofelldri sveiflu:
„Nei, gefum heiminum þess í
stað nýja Mjallhvít og tengjum þar
með Island við heim œvintýrsins,
þarsem uppspretta fegurðarinnar
og œskunnar sprettur úr hamra-
vegg við minnstu snertingu. Og
svo þegar heimurinn stendur á
öndinni vegna hinnar tœru ís-
lensku fegurðar, þá köstum við á
borð alheimsneytandans leyni-
vopninu mikla: skyrinu".
Og þá rennur upp gullöld og
gleðitíð með lánstrausti og já-
kvæðri gjaldeyrisstöðu og atgerv-
isstöðu til líkama og sálar.
-ÁB
falðDVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandl: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergman, össur Skarphéðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Garðar
Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson, Þór-
unn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar Ólasón, Sigurður Mar Halldórsson.
Utlit: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Símvar8la: Sigríður Kristjánsdóttir.
Husmæður: Agústa Þórisdóttir, Ólöf Húnfiörð.
Bilstjórl: Jóna Sigurdórsdóttir.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Utbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjórl: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson,
Olga Clausen.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, augiýsingar, ritstjórn:
Sfðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Ðlaðaprent hf.
Verð í lausasöiu: 35 kr.
Sunnudagsblað: 40 kr.
Áskrlft á mánuði: 400 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þri&judagur 8. október 1985