Þjóðviljinn - 08.10.1985, Side 6
FLÓAMARKAÐURINN
Flóamarkaður
Dýraverndunarsambandsins
að Hafnarstræti 17, kjallara, eropinn:
mánudaga, þriðjudaga og miðviku-
daga frá 2-6 eftir hádegi. Fjölbreyttur
varningur á boðstólum. Gjöfum veitt
móttaka á sama stað og tíma.
Ykkar stuðningur - okkar hjálp.
Samband dýraverndunarfélaga ís-
lands.
Ættfræði
Tekaðméraðrekjaáatöl. Upplýsing-
ar í síma 74689.
Til sölu - gólfteppi
Til sölu er 20 fermetra ónotað, drapp-
lita, Álafoss ullarteppi, með filti og list-
um. Selst á 14000 krónur, kostar í
búð 30780 krónur. Upplýsingar í síma
611036.
Dúkkurúm til sölu
hvít með handmáluðum rósum í
tveimur stærðum. Rúmin eru skrúfuð
og límd saman og er óhætt að fullyrða
að þau endast í mannsaldur. Auður
Oddgeirsdóttir, sími 611036.
Volkswagen 1200
árgerð 1976, til sölu. Lélegt boddý,
selst ódýrt. Upplýsingar í síma 99-'
6144 eða í síma 10545 á kvöldin.
Laust húsnæði
Erum par í Háskólanum sem vantar
meðleigjanda í lítið hús í miðbænum.
Upplýsingar í 22715 og 25131.
Til sölu
ný Johnson Motorolla talstöð, pluss
sófasett og nýir varahlutir í Mercury
Comet árgerð 1977, (stýrisendi og
mótorfestingar). Upplýsingar í síma
42368.
Barnavagn vantar
Yngissveinninn Finnur vill út að aka,
en vagninn vantar. Getur nokkur selt
félitlum foreldrum hans léttan, með-
færilegan barnavagn, sem auðvelt er
að taka í sundur, t.d. burðarrúm á
grind? Þarf ekki að vera nein lúxus
kerra, einungis í góðu lagi.
Olga Guðrún og Guðmundur, sími
36356.
Nýtt Gallerí - Textíll
Módelfatnaður, myndvefnaður,
tauþrykk, skúlptúr, smámyndir og
skartgripir. Gallerí Langbrók - Textíll
á horni Laufásvegar og Bókhlöðu-
stígs. Opið frá kl. 12-18 virka daga.
Til sölu
sterkbyggð jeppakerra fyrir krók.
Dekk 16" nýsóluð og eitt varadekk,
sterkar fjaðrir, demparar. Einnig 3
notuð dekk á felgum fyrir Renault R 4.
Upplýsingar í síma 31197.
Píanó
Vil kaupa notað en gott píanó - ekki
með sprungnum hljómbotni. Verð-
hugmynd: 25 þúsund krónur stað-
greitt. Hringiðísíma 19545 eftirkl. 18.
Dýnur í hjónarúm
Óska eftir 2 dýnum í hjónarúm. Á
sama stað er ryksuga til sölu. Sími
71712.
Stúlknareiðhjói
Óska eftir að kaupa vel með farið
stúlknareiðhjól. Upplýsingar í síma
37925.
Óska eftir að kaupa
geirskurðarvél og hefti-naglabyssu.
Upplýsingar í síma 621083.
Til sölu
ýmis tæki til bjór- og víngerðar.Verð
ca. 4-5 þúsund. Upplýsingar í síma
621309.
Góður bíll
Til sölu Mazda 616, árgerð 1978, ek-
inn 73 þúsund km. Góð kjör. Upplýs-
ingar í síma 76667.
Til sölu
Frystiskápur, grillofn og prjónavél
(Singer) til sölu. Á sama stað fæst
ísskápur gefins. Hringið í síma 78781
eftir kl. 15.
Skodabíll
Óska eftir að kaupa Skodabíl sem
þarfnast viðgerðar. Ekki eldri en ár-
gerð 1977. Upplýsingar í síma 44465
næstu daga.
Til sölu
Svört karlmanna leðurstígvél nr. 42
og drapplitur rúskinnsjakki nr. 50.
Mjög lítið notað. Gott verð. Upplýs-
ingar í síma 24988.
ísskápur óskast
Vantar ódýran og góðan ísskáp.
Vinsamlegast hringið í síma 31097.
Til sölu
frystikista, Electrolux, ca. 400 I.
Lengd 1,32 m, breidd 63 cm. Upplýs-
ingar í síma 32397 eftir kl. 18 næstu
daga.
Til sölu
nýlegur barnavagn. Uppl. í síma
32618.
Til sölu
vel með farið skrifborð og stóll. Uppl. í
síma 15778, eftir kl. 17.
Til sölu
er notað hjónarúm ásamt tveim nátt-
borðum. Einnig til sölu svefnbekkur á
sama stað. Uppl. í síma 18590.
Til sölu Skoda 120 L
árg. '78 (kom á götuna ’79). Ágætur
bíll. Tilboð óskast. Uppl. í síma
26551.
Til sölu
2 góð negld snjódekk og 4 felgur
undir Lödu 1500-1600 eða Lödu Lux.
Upplýsingar í síma 39691 eftir kl. 17
næstu kvöld.
Sófasett
til sölu á krónur 3 þúsund. Upplýsing-
ar í síma 83446.
Góður bíll á góðu verði
Til sölu erToyota Corolla station árg.
'79. Keyrður 88 þús. km. Símar:
30630 og 22876.
Kópavogsbúar
- hesthús
Tómstundaráð og hestamannafélagið Gustur vilja hér
með gefa ungum Kópavogsbúum, allt að 18 ára, kost
á að hafa hest á fóðrum í sameignarhesthúsi sínu.
Umsóknarfrestur er til 17. október n.k. og skal um-
sóknum skilað á Félagsmálastofnunina, Digrane-
svegi 12, en þar eru jafnframt veittar nánari upplýsinq-
ar í síma 41570.
Félagsmálastofnun Kópavogs
A
Fóstrur -
Kópavogur
Staða fóstru við skóladagheimilið Dalbrekku er laus til
umsóknar. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
41750.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðiblöðum,
sem liggja frammi á Félagsmálastofnun Kópavogs,
Digranesvegi 12.
Félagsmálastofnun
Kópavogs
Auglýsið í Þjóðviljanum
FRÉTTASKÝRING
Klofningurinn var staðfestur með stofnun félags jafnaðarmanna í sumar, en Ijósmyndin var tekin á stofnfundinum.
Um helgina virtist vera óbrúanleg gjá milli manna og hópa innan BJ. Mynd E.ÓI.
BJ
Logandi átök
Opinn landsnefndarfundur BJ um helgina:
Ágreiningur um öll mál. Úrsagnir. Afsagnir. Brigsl.
Olestur ífjármálum. Synjað umfundi um
ágreiningsefnin. Leikreglurnar hrotnar. BJáförum?
Það var þrútið loftið á lands-
nefndarfundi Bandalags
iafnaðarmanna þarsem
bjartsýnustu menn höfðu von-
ast til að gert vrði út um ág-
reiningsmalin. Peim varð ekki
að ósk sinni, þvert á móti sló i
brýnu í nær ölium málum sem
tekin voru til umfjöllunar.
Fyrr f sumar virtist BJ vera ein-
faldlega tvískipt. Annars vegar
þeir sem keyrðu upp við hliðina á
Sjálfstæðisflokknum í málflutn-
ingi sínum, oftast kallaðir frjáls-
hyggjuliðið, og svo hins vegar
jafnaðarmenn, sem vilja leggja
áherslu á sósíaldemókratíska
stefnu. Þeir stofnuðu svo félag
jafnaðarmanna innan BJ í sumar.
Á landsnefndarfundinum virtust
fleiri armar vera í uppsiglingu.
Þingflokkurinn skiptist þannig
í sumar, að Kolbrún Jónsdóttir
og Kristín Kvaran voru meðal
stofnenda félags jafnaðarmanna
en þeir Stefán Benediktsson og
Guðmundur Einarsson voru
fremur taldir á „frjálshyggjulín-
unni“, engu að síður duldi Guð-
mundur afstöðu sína þegar
gengið var á hann í fjölmiðlum.
Á landsnefndarfundinum virt-
ust þeir Guðmundur og Stefán
vera uppá kant við hægri arminn
og flugu hnútur milli þeirra og
hægri armsins í ræðum. Á hinn
bóginn greiddu-þeir atkvæði með
hægri arminum í atkvæða-
greiðslum, en þær Kolbrún Jóns-
dóttir og Kristín S. Kvaran
greiddu atkvæði með jafnaðar-
mönnum.
Innan þingflokksins og lands-
nefndar hefur verið ágreiningur
um ráðstöfun fjár, eitthvað yfir
tvær miljónir króna (útgáfustyrk-
ur), sem notað hefur verið í
auglýsingar og starfsmannahald.
Jafnaðarmenn gagnrýndu harka-
lega á fundinum um helgina að
hafa ekki fengið ítarlegar upplýs-
ingar um fjármálin. Þeir
gagnrýndu það og að formaður
landsnefndar, Kristófer Már
Kristinsson, hefði fengið um 80
þúsund króna mánaðarlaun, en
Jónína Leósdóttir og aðrir starfs-
menn hefðu ekki fengið í laun
nema sem svarar helmingi þess
fjár.
Þá kom fram að Kristófer Már
hefði á síðasta þingflokksfundi
sagt upp störfum, enda væri BJ
orðið uppiskroppa með fé. Ekki
var annað að skilja en þingflokk-
urinn hefði knúið á um uppsögn
Kristófers, með því að vísa til lé-
legrar fjárhagsstöðu.
Á fundinum var borin fram til-
laga um að halda sérstakan lands-
nefndarfund um fjármálin - og
notuðu gagnrýnendur stór orð
um málið, „siðleysi“ og fleira í
þeim dúrnum. Tillagan var felld
með atfylgi hægri armsins og
þingmannanna Guðmundar Ein-
arssonar og Stefáns Benedikts-
sonar.
Valgerður Bjarnadóttir, Ragn-
heiður Ríkharðsdóttir og fleiri
vönduðu ekki jafnaðarmönnum
eða karlþingmönnunum kveðjur
í ræðustól og með frammíköllum.
Valgerður kvað „eintómar kerl-
ingar vera í þingflokknum og gilti
einu hvort þær migju sitjandi eða
standandi“. „Þið eruð bara krat-
ar“ kölluðu þau frammí fyrir
jafnaðarmönnum í ræðustól og
sögðu þeim nær að vera í Alþýðu-
flokknum og Alþýðubandalaginu
en í BJ.
Á sunnudaginn kom fram til-
laga frá Hallgrími Ingólfssyni um
að halda landsfund í nóvember,
til að ákveða stefnuáherslur á
næstunni. Og var bent á að þingf-
lokkurinn yrði að leggja meiri
áherslu á jafnaðarmennskuna,
ella tækju leiðir að skiljanst.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
kvaðst á hinn bóginn myndu
hætta í BJ ef áhersla kæmi á jafn-
aðarmennskuna. Þannig stóð
málflutningurinn járn í járn. Val-
gerður Bjarnadóttir, Ragn-
heiður, Kristófer Már, Guð-
mundur Einarsson og fleiri mæltu
á móti því að landsfundur yrði
haldinn um stefnuáherslur í nóv-
ember. Þorlákur Helgason,
Garðar Sverrisson og fleiri bentu
á að samkvæmt lögum BJ bæri að
halda landsfund árlega á hverju
hausti, þannig að lagalega væri
ekki einu sinni hægt að komast
hjá fundinum, hvað þá pólitískt.
Það breytti samt engu um það,
að tillagan var felld og verður
enginn landsfundur haldinn í
haust. Kristín S. Kvaran benti á
að það væri alvarlegt mál, að
þingflokkurinn skiptist í tvennt í
öllum atkvæðagreiðslum á þess-
um landsnefndarfundi, og
auðvitað þyrfti að gera út um
málin innan BJ. Sigurður Jóns-
son frá Akureyri kvaðst ekki telja
það verjandi að þingmenn
flokksins neituðu að halda sér-
stakan landsnefndarfund um
fjármálin og að þeir tækju þátt í
að fella tillögu um að fara að
lögum BJ um árlegan haustfund.
Hann væri því hættur í BJ eftir
þennan fund.
Og þannig standa þá málin
eftir landsnefndarfundinn um
helgina sem var illa sóttur en log-
andi: Kristófer Már Kristinsson
formaður landsnefndar hefur
sagt upp störfum sínum sem
starfsmaður, Sigurður Jónsson
einn helsti máttarstólpi BJ á
Norðurlandi er hættur, fjármálin
í ólestri, skrifstofan væntanlega
lokuð á næstunni, þingflokkurinn
tvískiptur, landsnefndin tvíklofin
á milli hugmyndaheima, þar sem
himinn og haf skilur á milli, hót-
anir um úrsagnir ganga frá öllum
örmum, karlþingmennirnir
komnir uppá kant við sinn arm,
ákveðið að halda ekki fundi með
félögunum um ágreiningsmálin,
jafnvel þótt lög kveði á um það,
og andrúmsloftið einsog sekúnd-
ubroti fyrir loftárás. BJ er greini-
lega að undirbúa brottför sína....
-óg
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 8. október 1985