Þjóðviljinn - 08.10.1985, Qupperneq 7
Þær eru ekkitieint árennilegar tröppurnar að Þjóðleikhúsinu. Þar
' stendurþótilaögeraeinhverjarúrbætur. Ljósm. Sig.
Pallalyfta í Bíóhöllinni, ódýr og meðfærileg. Dæmi um það sem vel er gert í þessum málum. Ljósm. E.Ol.
Fatlaðir
I hjólastól á veitingahúsum
Oft ekki árennilegt. Rœttvið Theodór Jónssonformann Sjálfsbjargar
„Sumir veitingastaðir, bæði hér í
Reykjavík og úti á landi, fara dá-
lítið óvarlega með hjólastóla-
merkið í þessum bæklingi sam-
taka sinna, sumir staðir sem hafa
þetta merki undir sínu nafni geta
alls ekki staðið þanning undir
nafni".
Það er Theodór Jónsson, for-
maður Sjálfsbjargar sem er að
ræða um kynningarbækling sem
Samband veitinga- og gistihúsa
gáfu út í vor til kynningar sinni
starfsemi. Þar hafa ýmis hótel og
veitingastaðir víða um land sér-
stök merki til að gefa til kynna
hvaða þjónustu staðirnir bjóða
upp á, þar á meðal hjólastóla-
merki. Þjóðviljinn ræddi stutt-
lega við hann um hvernig aðstað-
an væri fyrir fatlaða á veitinga-
húsum, í víðri merkingu þess
orðs.
Aðstaðan
„Sumir veítingahúsaeigendur
virðast líta svo á að notast megi
við þetta merki á þann hátt að
þeir sem eru í hjólastólum séu
velkomnir, geti fengið aðstoð við
að komast áfram eða eitthvað
slíkt. Þetta er mikill misskilingur.
Til þess að nota megi þetta merki
verða veitingahúsin að hafa að-
stöðuna þannig að fólk í hjóla-
stólum geti sjálft komist þar að,
án nokkurrar aðstoðar. Mér dett-
ur í hug að á sumum stöðum sé
þetta byggt á einhverjum mis-
skilningi. Sem dæmi má nefna
Hótel Esju, þar er í raun ágætis
aðstaða í matsölum og á hótel-
herbergjum. En á Skálafell
kemst manneskja í hjólastól alls
ekki vegna þess að hin rúmgóða
lyfta fer ekki þangað upp. Skála-
fell auglýsir hins vegar í fyrr-
nefndum bæklingi að þar sé að-
staðafyrirfólkíhjólastólum! Nú,
pöbbarnir svo nefndu standa sig
geymslunni og þar sem óhreina
leirtauið er geymt. Annars er það
í raun Byggingarnefnd Reykja-
víkurborgar og byggingarnefndir
yfirleitt sem við er að sakast. Það
eru þessar nefndir sem eiga að sjá
um að eftir þeim regulgerðum sé
farið sem settar hafa verið. En
það vill nú oft verða misbrestur
þar á. Svo er það einnig varðandi
nýbyggingar að það er gert ráð
fyrir rými og tækjabúnaði til
hjálpar fyrir fatlaða á teikningum
en þegar verið er að ganga frá
þessum hlutum endanlega, eru
þeir látnir mæta afgangi. Þegar
þessaf byggingar eru síðan komn-
ar í notkun vill oft verða erfitt að
koma þessum hlutum í lag. Dæmi
um þetta er Þjóðleikhúsið. Við
byggingu þess var auðvitað ekki
reiknað með aðstöðu fyrir fatl-
aða. Það er aðeins fyrir báðum
endum lO. bekkjar sem nokkur
möguleiki er að koma fyrir hjóla-
stólum og þá er rétt með herkjum
að hægt er að loka þar dyrum.
Svo er það auðvitað aðkoman að
húsinu. Hún er ekki beint árenni-
leg. Þar hafa nú staðið til
breytingar í mörg ár. Það var á
fjárlögum ársins 1981 sem pen-
ingum var veitt til þess verkefnis.
Það verkefni hefur nú líka gengið
heldur seint. Auðvitað er þar erf-
| itt um vik, mig grunar þó að þar
sé verið að ráðast í miklu dýrari
Theódór A.
Jónsson,
formaður
Sjálfsbjargar.
yfirleitt nokkuð vel, salerni og
rými almennt er þannig að yfirlett
getur fólk í hjólastólum athafnað
sig þar með nokkuð góðu móti.
Það er auðvitað oft nokkuð erfitt
að koma því við þegar verið er að
endurnýja gömul hús en mér sýn-
ist þessir staðir hafa komist nokk-
uð vel frá þessu. Talandi um
gömul hús, þá má nefna að Hótel
Borg er svo gömul að það hefur
verið í tísku þá að hafa breiðar
dyr. Þar er mjög rúmgott, bæði í
sölum og á herbergjum“.
Hlutverk
byggingarnefnda
- En hvað með nýrri veitinga-
hús?
„Já, það er nú dálítið upp og
ofan. Við gerðum nú svolítinn
hvell með Broadway stuttu eftir
að sá staður opnaði. Þar er hring-
laga stigi niður og inn á
skemmtistaðinn og ekki sérlega
gott að komast þar inn. Hins veg-
ar kemst maður inn hjá rusla-
framkvæmdir en þörf er á.
Nú, en það má auðvitað víða
sjá breytingar til hins betra.
Dæmi um það er aðkoman að
Tryggingastofnun Ríkisins á
Laugavegi. Einnig má nefna að-
komuna að Norræna húsinu.
Reyndar var hún lengi vel vanda-
mál vegna þess að ekki mátti
breyta heildarútliti hússins, ég
get þó ekki séð í dag að útlit húss-
ins hafi versnað við tilkomu
þeirrar skábrautar sem þar er
komin.
Bíóin
Ef við tökum bíóin sem dæmi,
þá má auðvitað finna góða og
slæma hluti þar. Mér finnst Bíó-
höllin í Breiðholtinu vera gott
dæmi um það sem vel er gert. Þar
er lítil og einföld lyfta sem gerir
fólki á hjólastólum auðvelt að
komast inn í suma salina sem síð-
an eru með gott rými. Svo er
einnig hægt að finna staði þar sem
allt er í fínasta lagi á sjálfum
stöðunum en há gangstéttarbrún
utan við húsin gerir fólki á hjóla-
stólum erfitt um vik. Dæmi um
þetta er Veitingahöllin, þar er allt
í góðu standi innanhúss en gang-
stéttarbrúnin þar fyrir utan er
þannig að það þarf sterkan karl-
mann til að ýta hjólastól þar upp.
Mér finnst að almenningur
mætti vera mun betur vakandi
varðandi þessa hluti og gæti vakið
á þessu athygli. Það mætti þá vera
með því að hafa samband við
okkur eða vekja athygli á þessu í
fjölmiðlum, t.d. með því að
benda á staði þar sem bæta þarf
úr þessum málurn. Þá má einnig
nefna að aðstaðan úti á landi í
þessum efnum er yfirleitt mjög
slæm. Það er t.d. ekki árennilegt
fyrir fólk í hjólastólum að fara í
ferðalag út á land,“ sagði Theo-
dór að lokum. -IH
Þriðjudagur 8. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7