Þjóðviljinn - 08.10.1985, Blaðsíða 9
FISKIMÁL
Grænland
Rækjutogari, ísbrjótur og
kennsluskip í senn
Grænlendingar hafa nýlega
fengið rækjutogara, sem
smíðaður er í Danmörku, og
er hann afar vel útbúinn tækj-
um og svo sterkbyggður að
hann er á við ísbrjót. Tasilaq
heitir skipið og verður gert út
frá Angmagssalik á Austur-
Grænlandi og er skipinu ætl-
að að bæta lífskjör í fátækasta
hluta Grænlands og þjálfa
Grænlendingatil veiðameð
fullkomnustu veiði- og leitar-
tækni.
Skipstjórinn á Tasilaq er Ole
Basse Mortensen frá Borgundar-
hólmi, en hann hefur langa
reynslu af fiskveiðum við Græn-
land. Hann segist eiga Grænlandi
margt að þakka og vilji hann nú
eiga nokkurn þátt í að endur-
greiða sína skuld við landsmenn.
Sjálfur er hann hluthafi í rekstri
skipsins, en svo er ráð fyrir gert,
að hann hverfi smám saman útúr
fyrirtækinu. En árið 1995 verður
skipið alfarið í eign Grænlend-
inga og rekið af þeim.
Tasilaq kostaði 80 miljónir
danskra króna og er það hannað
með alla þá reynslu í huga sem
fengist hefur af veiðum við
Austur-Grænland á undanförn-
um tuttugu árum. Heimastjórnin
grænlenska telur, að smíði skips-
ins sé metnaðarfyllsta tilraunin
sem hingað til hefur verið gerð til
að örva efnahagsþróun í þeim
hluta Grænlands sem einna fá-
tækastur er. ísinn torveldar mjög
fiskveiðar þar og Angmagssalik
er t.a.m. ekki opin nema um
fjóra mánuði á ári. Tæplega þrjár
þúsundir íbúa Austur-Grænlands
hafa því verið heldur afskiptir og
notið lítils góðs af því að skammt
frá bæjardyrum þeirra eru ein-
hver auðugustu rækjumið í
heimi.
Kennsluskip
um leið
Skipið verður, vegna íssins, að
Hér situr skipstjórinn, Ole Basse Mortensen, og horfir með velþóknun á tækja búnað togarans grænlenska sem er einhver hinn fullkomnasti sem þekkist.
leggja afla sinn upp á ísafirði. En
um borð verða jafnan sjómenn
frá Angmagssalik og gert er ráð
fyrir því að fyrir bragðið tvöfald-
ist skattskyldar tekjur í því litla
plássi, sem nú telur um 1300 íbúa.
ÆSKULYÐSFYUdNGIN
ÆF-ingar athugið
Fréttabréfið okkar hún Rauðhetta kemur út bráðum. Nú er bara að setjast
niður og skrá hugrenningar sínar á blað, vélrita á A-4 og senda á H-105 fyrir
18. október, merkt: Framkvæmdaráð ÆFAB.
Kveðjur,
Framkvæmdaráð
Óskilamunir
frá landsþingi ÆFAB eru á H-105, s. 17500.
Mióvikudagur 9. okt.
Undirbúningsfundur
Á miðvikudaginn kl. 20 ætla fulltrúar ÆFR á landsfund AB að hittast að
H-105 og undirbúa sig fyrir fundinn. Þeir sem vilja taka þátt í þessu eru
velkomnir með tillögur og ábendingar.
Rauða risið
Á sunnudaginn mun kaffihús ÆFR aftur taka til starfa af fullum krafti. Ýmis
þekkt andlit munu kíkja inn og skemmta. Húsið opið frá kl. 13 - 19.
Klippið auglýsinguna út og látið hana ganga!
Verkalýösmálaráð ÆFAB
Opinn fundur verður í
Verkaiýðsmálaráði ÆFAB
fimmtudaginn 10. okt. nk. kl. 20.30. Einar Olgeirsson mun koma á fundinn
og ræða um sögu verkalýðshreyfingarinnar og tengsl flokksins við hana.
Fjölmennum og mætum öll hress og jákvæð til umræðu um ofangreint
málefm. st]órnin
Skipið mun hafa róttæk áhrif til
batnaðar á kjör þeirra 90-100
fjölskyldna sem skiptast á um að
hafa mann frá sér um borð í Tasil-
aq á ári hverju.
Allir viðurkenna að þessi tog-
ari, ísbrjótur og skólaskip sé erf-
iðari í rekstri en svo, að Austur-
Grænlendingar geti rekið Tasilaq
einir. Nokkur ár eru þangað til af
því getur orðið. Til dæmis er brú-
in full með svo fullkomnar tölvur
og leitartæki að það eru afar fáir
Grænlendingar sem hafa reynslu
af slíkri tækni - enda gerist hún
ekki framsæknari annars staðar í
heiminum.
Því er kennsla lykilorðið í þess-
ari útgerð. Fyrst munu Austur-
Grænlendingar teknir til háseta-
starfa. Síðar verða haldin um
borð fimm mánaða námskeið
fyrir sex unga Austur-
Grænlendinga undir stjórn kenn-
ara frá sjómannaskólanum í
Frederiksháb.
Eitt markmiðið er, að sú þróun
sem nú er hafin verði til þess að
annað vel búið skip sé gert út frá
Austur-Grænlandi.
Hluta af aflaverðmæti Tasilaq
verður ráðstafað til að halda
áfram tilraunaveiðum í sjónum
við Austur-Grænland.
Ole Basse Mortensen er bjart-
sýnn á að geta fundið skelfisk og
krabbamið við Austurströn
Grænlands, ekki síst í námunda
við Scoresbysund.
Tólf Grænlendingar frá Ang-
magssalikhéraði voru með strax í
fyrstu ferð rækjutogarans sterk-
byggða. Ef að vel fiskast geta þeir
búist'við 1,6-2 miljón króna hlut
(íslenskra) á ári. En ekki er gert
ráð fyrir því að menn séu allt árið
að heiman, og því munu hlutir
skiptast í fleiri staði í reynd. _áb
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Kjördæmisráðstefna á Hvammstanga
Aðalfundur kjördæmisráðs
Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi vestra verður haldinn i félags-
heimilinu á Hvammstanga nk. laugardag og sunnudag 12.-13. október.
Fundurinn hefst kl. 14.00 á laugardag en lýkur um kaffileytið á sunnudag.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Gestur fundarins verður Helgi Seljan alþingismaður.
Stjórnln.
Ráðstefna um
Framhaldsskólann
verður haldin laugardaginn 19. október n.k. kl. 10-17 að Hverflsgötu
105, Reykjavík.
Ráðstefnan er liður í stefnumótun Alþýðubandalagsins um framhalds-
menntun.
Dagskrá:
Kl. 10-12 Skólamálahópur AB kynnir hugmyndagrunn að:
markmiðum og
námsskipan,
stjórnun og
fjármögnun
framhaldsskóla.
Fyrirspurnir og
almennar umræður.
Léttur hádegisverður á staðnum.
Kl. 13-17 Starfshópar ræða hugmynda-
grunninn.
Kaffihlé.
Niðurstöður hópa.
Næstu skref ákveðin.
Ráðstefnan er opin öllu stuðningsfólki Alþýðubandalagsins. Til þess að
auðvelda undirbúning eru væntanlegir þátttakendur vinsamlegast hvattir til
að skrá sig á skrifstofu AB í síma: 1 75 00.
Skólamálahópur AB