Þjóðviljinn - 08.10.1985, Síða 14
HEIMURINN
íbúðir aldraðra
félaga V.R.
Útboð á heimilistækjum og brunasiöng-
um.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur óskar eftir tilboð-
um í heimilistæki fyrir 60 íbúðir aldraðra félagsmanna
að Hvassaleiti 56-58 í Reykjavík.
Um er að ræða heimilistæki úr postulíni og ryðfríu stáli,
blðndunartæki og brunaslöngur og er heimilt að bjóða
í einn verkþátt eða fleiri.
Útboðsgögn eru afhent hjá Hönnun h/f, Síðumúla 1,
Reykjavík.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu V.R. þriðjudaginn 22.
október næstkomandi kl. 16.00.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Tilmæli til þeirra sem eru
í vanskilum við Áburðar-
verksmiðju ríkisins
Til að mæta þeirri fjárþörf, sem skapast af útlánum til
viðskiptavina Áburðarverksmiðjunnar, og til að mæta
þeirri fjárþörf, sem skapast af vanskilum þeirra, hefur
Áburðarverksmiðjan þann einn kost að taka erlend
lán.
Nú eru blikur á lofti í gengismálum.
Áburðarverksmiðjan beinir þeim eindregnu tilmælum
til skuldunauta sinna, og þá sérstaklega til þeirra sem
eru í vanskilum, að þeir greiði skuldir sínar sem allra
fyrst.
Með því að standa í skilum stuðla viðskiptavinir Áburð-
arverksmiðjunnar að lægra áburðarverði.
Kæru viðskiptavinir. Greiðið skuldir ykkar svo að við
getum greitt okkar. Það dregur úr gengistapi fyrirtæk-
isins.
Áburðarverksmiðja ríkisins
Bændaskolinn á Hvanneyri
Styrkir til framhaldsnáms
í loðdýrarækt
Landbúnaðarráðuneytið og Framleiðnisjóður land-
búnaðarins auglýsa til umsóknar tvo styrki til fram-
haldsnáms í loðdýrarækt.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið kandidatsprófi í bú-
fræði (a.m.k. B.Sc. 90) vera reiðubúnir til að stunda
framhaldsnámið sem svarar einu námsári (skólaári)
hið minnsta og að starfa að leiðbeiningum í loðdýra-
rækt að námi loknu.
Hvor styrkur er að upphæð kr. 250.000,00.
Námið verður skipulagt af Búvísindadeild Bænda-
skólans á Hvanneyri, og er miðað við að það fullnægi
kröfum um fjórða árs nám í búvísindum (B.Sc.-120)
samanber 38. grein reglugerðar um búnaðarfræðslu.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Bændaskólanum á
Hvanneyri, sími 93-7500.
Umsóknir þurfa að hafa borist fyrir 20. október
næstkomandi.
Berent Magnússon
frá Krókskoti, Sandgerði,
andaðist á elliheimilinu Garðvangi 5. október.
Jarðarförin fer fram laugardaginn 12. október kl. 14.00 frá
Hvalsnesi.
Fyrir hönd aðstandenda
Sveinbjörn Berentsson
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma
Jóhanna Katrín Magnúsdóttir
Einarsnesi 33, Reykjavík
lést á Borgarspítalanum 4. október.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ingvar Hallgrímsson
Brynhildur Ingvarsdóttir Magnús Ingimundarson
Ósk Ingvarsdóttir Ragnar Jónsson
Elísabet Valgerður Ingvarsdóttir
og barnabörn
Hermenn úr Pesh Merga skoða sprengjubrot.
írak
Kúrdar með írönum
Gleymt stríð inni ígleymdu stríði- Synir Barzanis teknir við -
Barátta Kúrda milli austurs og vesturs
Gleymt stríð í öðru stríði,
sem fjölmiðlar sinna með
hangandi hendi, er barátta
Kúrda í írak gegn stjórninni í
Bagdad. En á dögunum gerð-
ist það, að blaðamenn sem
staðsettir eru íTeheran höfuð-
borg írans, heimsóttu leiðtoga
uppreisnar Kúrda, sem nú
berst við Iraksher við hlið ír-
anshers. Hann segir að barátt-
an við þann „glæpamann",
Saddam Hussein, sé erfið, en
að Kúrdar hafi á nægu liði að
skipa til að gera írökum lífið
mjög leitt.
Masúd Barzani heitir herfor-
ingi uppreisnarmanna Kúrda en
bróðir hans Idriss fer með pólit-
íska leiðsögn í samtökum þeirra,
Lýðræðisflokki Kúrdistans. Peir
hafa tekið í arf forystu fyrir Kúr-
dum í írak af föður sínum hinum
sögufræga Múlla Mústafa Barz-
ani, sem lést árið 1979. Þeir hafa
líka tekið í arf þá skelfilega erfiðu
aðstöðu Kúrda, að geta aldrei
kosið sér bandamenn sjálfir -
þeir hafa í margra áratuga bar-
áttu sinni orðið að fara eftir því,
hverjir voru helstu erlendir and-
stæðingar þeirra stjórnvalda sem
sátu í Bagdad hverju sinni.
Sovéskur
bakhjarl
Saga kúrdísku uppreisnarinnar
í írak er einmitt mjög sterk
áminning um það, hve hæpið það
er að lýsa öllum þeim deilum,
átökum og staðbundnum styrj-
öldum sem upp koma í þriðja
heiminum sem endurspeglun
átaka austurs og vesturs. Venju-
lega koma risaveldi austurs og
vesturs við sögu þeirra átaka,
beint eða óbeint, - en það væri
mikill misskilningur að ætla, að í
hverju dæmi ættu þau sér erind-
reka sem væru fyrst og síðast að
sinna þeirra hagsmunum.
Mulla Mustafa Barzani gerði
rétt eftir stríð uppreisn gegn
íhaldssamri stjórn í Bagdad, sem
var mjög höll undir Breta. Hún
var bæld niður og Barzani leitaði
hælis í Sovétríkjunum og gekk
þar á herskóla. Þar með var þjóð-
ernishreyfing Kúrda vitanlega
kommúnísk í augum Vestur-
velda. Árið 1958 var gerð bylting
í írak og til valda kom stjórn, sem
tók upp vinsamleg samskipti við
Sovétríkin og hafði um skeið
kommúnista innan sinna vé-
banda. Nú gat Barzani snúið
heim og horfði um skeið allvæn-
lega fyrir verulegri sjálfstjórn
Kúrda í landinu og að tunga
Skástrikaða svæðið sýnir nokk-
urnveginn hvar Kúrdar eru búsettir.
Þeir eru fjölmennastir í Tyrklandi.
þeirra (sem er skyld persnesku en
ekki arabísku) og menning
fengju að njóta sín. En þær við-
ræður runnu út í sandinn, hinir
arabísku þjóðernissinnar í Bag-
dad héldu fast um sitt og síst vildu
þeir að olíuauðug héruð í írakska
Kúrdistan (Kirkuk) yrðu viðuk-
ennd sem hluti hinna kúrdísku
svæða.
Hver vill
hjálpa?
Kúrdastríðið hefst aftur upp úr
1960 og stóð þá í nær tíu ár.
Stundum var sagt að Sovétmenn
styddu víð bakið á Kúrdum, en
stundum Bretar - sannleikurinn
mun hinsvegar sá að enginn vildi
mikið á sig leggja fyrir þessa
merku fjallaþjóð, sem dreifð er
um stórt svæði frá Tyrklandi til
írans. Friður var saminn árið
1970 og þá gert aftur ráð fyrir
viðtækum réttindum Kúrda -
m.a. skyldi Kúrdi jafnan vera
varaforseti landsins. En enn þótt-
ust Kúrdar illa sviknir og gerðu
uppreisn árið 1974. Og með því
að nú var allnáið samstarf á al-
þjóðavettvangi milli íraks og So-
vétríkjanna sneri Barzani sér
beinlínis til Vesturveldanna og
var reiðubúinn að taka við vopn-
um frá ísraelum.
í reynd fengu Kúrdar nokkra
aðstoð frá íranskeisara, sem þá
var m.a. einskonar gæslumaður
Vesturveldanna á svæðinu. En
bæði hafði keisarinn áhyggjur af
sínum eigin Kúrdum og
draumum þeirra um að sameinast
bræðrum sínum, og svo vildi
hann nokkuð vinna til að semja
við írak um umdeild landamæra-
svæði. Það fór því saman, að her
íraks gerði grimma sókn gegn
skæruher Kúrda, Pesh Merga, og
að franir hættu stuðningi sínum
við Kúrda og sömdu um friðsam-
lega sambúð við frak árið 1975.
Barátta Kúrda var kæfð í blóð-
baði.
Staðan nú
Og þótt klerkabyltingin í íran
hafí ekki fært þarlendum Kúrd-
um neinn ávinning, þá hefur Pesh
Merga enn tekið upp vopn í þágu
þess draums að tryggja 2,5 milj-
ónum Kúrda í írak sjálfstjórn og
mannréttindi. Og þeir berjast nú
við hlið írana, þótt ekki séu að-
gerðir herjanna beinlínis sam-
ræmdar undir sömu yfirstjórn.
Erlendir fréttamenn, sem
heimsóttu Barzani yngri á dögun-
um, hittu hann í bækistöð íran-
skra fallhlífarhermanna skammt
frá Lúlan, gömlu Kúrdaþorpi
innan landamæra íraks. Masúd
Barzani skýrði fréttamönnum frá
því, að Lúlan væri eitt þeirra tvö
þúsund Kúrdaþorpa sem íraks-
her jafnaði við jörðu, þegar síð-
asta uppreisn var bæld niður fyrir
um það bil tíu árum.
Fyrir tveim árum var talið að
Pesh Merga (nafn þessa frelsis-
hers Kúrda mun þýða, að þar fari
menn sem berjast fram í rauðan
dauðann) hafi nú um tíu þúsundir
manna undir vopnum. Ekki var
því svarað hver herstyrkurinn er
nú, en augljóst þykir að íranir
hafa veitt Pesh Merga verulega
hergagnaaðstoð. Um leið er það
framhald af hinni þverstæðufullu
stöðu Kúrda, að þeir fá fjárhags-
aðsto frá Sýrlendingum, sem eru
um margt mjög á öndverðum
meið við Klerkavaldið í íran - en
líta um leið á írakstjóm sem eins-
konar keppinaut sinn í arabískum
heimi.
Barzani yngri heldur því fram,
að liðsmenn hans hafi nú á valdi
sínu landræmu í írak, alla leið frá
íran til landamæra Sýrlands. Auk
þess sé talsvert um skæruhernað
að baki víglínunnar.
18 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 8. október 1985