Þjóðviljinn - 08.10.1985, Blaðsíða 15
HEIMURINN
Portúgal
Fylgishmn sósíalista
POLICE
7
' wesr fiVDLANDS
POl/CB
/mucEi
Eftir óeirðirnar í Birmingham á dögunum teiknaði breski teiknarinn JAK þessa mynd en textinn er lagður í munn
herramanninum í hægra horninu: - Sælir veriði, ég er frá Suður-Afríku og sé að það sem ykkur vantar er almennileg
aðskilnaðarstefna.
Bretland
Lögreglumaður felldur
Og þetta
líka...
...Yfirvöld í Florida rannsaka nú
hvort rétt sé að læknir hafi þegið
að gjöf án tilskilinna leyfa og vit-
undar aðstandenda heilabu af-
brotamanna sem teknir hafa verið
af lífi í ríkinu. Læknirinn, sem er
sérfræðingur í taugalíff ræði, falað-
ist eftir þessum líffærum í því
skyni að athuga hvort heila-
skemmdir, t.d. eftir slys, hefðu
valdið afbrotahneigðinni...
...Fólksfjölgun í Kína hefur ekki
verið minni en í fyrra frá því bylt-
ingin var gerð í landinu árið 1949 ef
undan eru skilin árin 1960-62 þeg-
ar hungursneyð geisaði í landinu.
Viðkoman í fyrra var 1,08% sem
þýddi að fólksfjöldinn í þessu fjöi-
mennasta ríki heims var 1.035 milj-
ónir í árslok. Kinverjar hafa sett
miklar hömlur á fólksfjöigun en
markmið þeirra er að íbúafjöldinn
verði ekki meiri en 1,2 miljarðar um
aldamót...
...10 manns létust og 43 slösuðust
í gífurlegum árekstri sem varð á
hraðbraut i Kaliforníu á sunnudag-
inn. 39 bílar komu við sögu í
árekstrinum en ástæðan fyrir hon-
um er talin vera sú að reyk frá eldi í
kjarri lagði yfir akbrautina...
London - Enn kom til mikilla
óeirða í London um helgina og
er þetta í fimmta sinn á einum
mánuði sem upp úr sýður hjá
blökkumönnum og fólki af as-
ískum uppruna í Englandi.
Óeirðirnar um helgina voru
hatrammari en þær sem orðið
hafa fram til þessa og í þeim
lést einn lögregluþjónn, sá
fyrsti sem hlýtur þau örlög í
óeirðum undanfarinna ára.
Óeirðirnar áttu sér stað í hverf-
inu Tottenham í London og hóf-
ust með sama hætti og lætin í
Brixton fyrir rúmri viku. Lög-
regluþjónar í leit að ungum
blökkumanni skutu móður hans
til bana. Þegar það spurðist út
streymdu hundruð ungmenna út
á götur hverfisins og hófu að velta
bílum og kveikja í húsum. f fyrsta
sinn síðan óeirðir af þessu tagi
hófust í Bretlandi beittu upp-
reisnarmenn skotvopnum.
Lögregluþjónn var stunginn
niður með sveðju og 220 manns
slösuðust í óeirðunum, þar af
hlutu fimm manns skotsár undan
haglaskotum óþekktrar leyni-
skyttu. . Þegar lögreglumenn
hugðust gera innrás í miðhluta
hverfisins þar sem óeirðirnar
voru harðastar var þeim mætt
með eldsprengjum og grjótkasti.
Tók það lögregluna fleiri klukku-
stundir að ná stjórn á hverfinu.
Yfirmenn lögreglunnar sögðu
að þess hefðu sést greinileg merki
að óeirðunum hefði verið stjórn-
að af utanaðkomandi fólki, an-
arkistum og trotskíistum.
Óvenjumikil grimmd hefði ríkt í
þessum óeirðum og þyrfti lög-
reglan nú að endurskoða aðferðir
sínar við að bæla þær niður.
Helstu ráðin sem þeir sáu var að
fjölga í sveitum lögreglunnar og
beita táragasi og gúmmíkúlum
gegn uppreisnarmönnum.
Flokksþing
Heath ræðst að Thatcher
Enginn starfhæfur meirihluti á þinginu eftir kosningar
Lissabon - Tveir sigurvegarar
standa með palmann í hönd-
unum eftir þingkosningarnar í
Portúgal á sunnudag. Mesta
athygli vekur þó afhroð það
sem Sósíalistaflokkurinn mátti
þola. Helsti leiðtogi hans frá
því einræðinu var steypt árið
1974, Mario Soares, er talinn
hafa rýrt mjög möguleika sína
á sigri í forsetakosningunum í
janúar á næsta ári.
Fráfarandi stjórnarflokkar,
sósíalistar og sósíaldemókratar,
fóru mjög misvel út úr kosning-
unum. Þeir fyrrnefndu hröpuðu
úr 36% atkvæða í uþb. 21% og
hafa nú aðeins 55 þingmenn en
höfðu 101. Sósíaldemókratar
bættu hins vegar við sig, fóru úr
27% í 30% og bættu við sig 10
þingsætum, hafa nú 85 og eru
stærsti flokkurinn á þingi.
Mest kom þó á óvart glæsileg
innreið Lýðræðislega endur-
reisnarflokksins með 18% at-
kvæða og 44 menn kjörna í fyrstu
kosningunum sem flokkurinn
tekur þátt í. Stofnendur þessa
nýja flokks eru fylgismenn Ean-
esar forseta sem lætur af embætti
í vetur. Flokkurinn boðar
hreingerningu í portúgölskum
stjórnmálum en er að öðru leyti
heldur óþekkt stærð.
Fylking vinstriflokka undir for-
ystu kommúnista tapaði 2-3%, er
nú með 15-16% og 37 þingmenn
en hafði 44 áður. Kristilegir
demókratar töpuðu ámóta
miklu, eru nú með tæp 10% at-
kvæða og 20 þingmenn en höfðu
30 áður.
Sósíaldemókratar undir for-
ystu Anibal Cavaco Silva hafa
sagt að þeir hyggist mynda nýja
stjórn en óvíst er hvernig það
gengur. Ekki kemur til greina
samstarf við sósíalista, um það
eru báðir flokkar sammála. Sam-
starf við kristilega demókrata er
líklegast en slík stjórn hefur ekki
meirihluta á þingi Portúgals þar
sem 250 manns eiga sæti. Þeir
yrðu því að tryggja sér stuðning
eða í það minnsta hlutleysi ann-
arra flokka og kemur þar Lýð-
ræðislegi endurreisnarflokkurinn
helst til greina.
WELCOME
TO
BIRMIN6HAM
...Japönsku bílaverksmiðjurnar
Mitsubishi hafa fallist á að láta kín-
verja fá 5.824 nýja vörubíla í stað
annarra sem seldir voru kínverjum
í fyrra. Bílar þessir reyndust gall-
aðir og hafa framleiðendurnir fall-
ist á að greiða kínverjum skaða-
bætur. Nokkuð hefur verið um
svipaðar uppákomur að undan-
förnu, td. þurfti japönsk sjón-
varpsverksmiðja að greiða kín-
verjum skaðabætur í síðustu viku
vegna 15 þúsund gallaðra sjón-
varpstækja...
REIITER
Umsjón:
ÞRÖSTUR HARALDSSON
Blackpool - í dag, þriðjudag,
hefst landsfundur breska
íhaldsflokksins í baðstrand-
arbænum Blackpool. í gær
kom fyrrum forsætisráðherra
flokksins, Edward Heath, fram
í sjónvarpi og réðst harkalega
á starf og þó einkum aðgerðar-
leysi stjórnarinnar frammi fyrir
þeim alvarlegu vandamálum
sem þjóðin á við að glíma.
Heath sagði að flokknum væri
meira umhugað um að koma vel
Edward Heath mátti sjá af for-
mennskunni í [haldsflokknum í hend-
ur járnfrúarinnar en nú er hann kom-
inn aftur og vex stöðugt fylgi í
gagnrýni sinni á frjálshyggju stjórnar-
innar.
fram í fjölmiðlum en að leysa
vandamál. Heath hefur ásamt
öðrum fyrrverandi ráðherrum
flokksins gagnrýnt frjálshyggju-
stefnu Thatcher sem birtist í
miklum niðurskurði á ríkisút-
gjöldum. Hafa þeir hvatt stjórn-
ina til að stórauka ríkisútgjöld til
þess að hleypa nýju lífi í efnahag
þjóðarinnar og draga úr atvinnu-
leysi.
Fylgi fhaldsflokksins hefur far-
ið mjög dvínandi að undanförnu
og kjósendur hans hópast til
vinstri. í skoðanakönnun sem
birt var í Englandi um helgina
kom í ljós að Verkamannaflokk-
urinn naut stuðnings 39% að-
spurðra, 32% fylgdu íhaldinu að
málum en 27% kváðust myndu
kjósa Miðjubandalagið.
Þriðjudagur 8. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
Norðursjór
Eldsvoði
á borpalli
Osló - Einn maður fórst og átta
slösuðust í eldsvoða sem kom
upp í olíuborpalli úti fyrir vest-
urströnd Noregs í fyrrinótt. 79
manns björguðust.
Óhappið varð þegar verið var
að bora eftir gasi og skyndilega
opnaðist gaslind. Þrýstingurinn
varð of mikill svo gasið var
óbeislað og síðan kviknaði í því.
Loguðu eidar á borpallinum og á
svæði sem var hundrað metrar í
þvermál þar til lindin var þornuð
um níuleytið í gærmorgun.
í gær var ekki hægt að komast
nærri pallinum vegna hita og
reyks en eigandi hans, ríkis-
olíufélagið Statoil, taldi líklegt að
unnt yrði að bjarga honum. Mað-
urinn sem lést var 28 ára gamall
norðmaður.
Líbanon
Tripoli
í rústum
Tripoli - Kyrrð hefur nú færst
yfir hafnarborgina Tripoli í
norðurhluta Líbanons eftir að
sýrlenskar hersveitir héldu inn
í borgina um helgina. Hafa þær
verið að styrkja tök sín á borg-
inni og yfirtekið hernaðarlega
mikilvæga staði eftir því sem
sveitir sunni-múslima yfirgefa
þá.
Sveitir frá Rauða krossinum
fóru inn í borgina í kjölfar sýr-
lenska hersins og lýsa þær að-
komunni sem dapurlegri. Fjöldi
húsa er í rústum eða illa farinn
eftir skothríð, borgin er vatns- og
rafmagnslaus og þúsundir manna
hafa ekkert núsaskjól. Alls mun
um hálf miljón af 700.000 íbúum
hafa flúið borgina meðan á bar-
dögunum stóð.
Ekkert hefur enn frést af so-
vésku sendiráðsmönnunum
þremur sem haldið er í gíslingu af
hópi sunni-múslima en ránið á
þeim átti sinn þátt í að binda endi
á bardagana í Tripoli.
Evrópa
Fjolþjoda
sjonvarpi
misveltekið
Amsterdam - í fyrrakvöld gafst
hollenskum sjónvarpsáhorf-
endum í fyrsta sinn kostur á að
horfa á útsendingar frá nýjum
sjónvarpsgervihnetti sem
nefndur hefur verið Europa.
Að þessum hnetti standa sjón-
varpsstöðvar í Vestur-
Þýskalandi, Hollandi, Portú-
gal; írlandi og Ítalíu.
Útsendingar hnattarins voru á
þremur tungum, ensku, frönsku
og hollensku, og stóðu yfir í fjóra
tíma. Tungumálafjölbreytnin
ásamt með tíðum auglýsingainn-
skotum mæltist misvel fyrir hjá
hollenskum áhorfendum sem og
að ýmsir þættir sem auglýstir
höfðu verið birtust ekki. Send-
ingin náði til kapalkerfa í 15 hol-
lenskum borgum.
Ætlunin er að sendingar Eur-
opa breiðist smám saman út til
allrar Vestur-Evrópu en því tak-
marki hyggjast eigendur hnattar-
ins ná á næsta ári. Reksturinn er
fjármagnaður með auglýsingum
og vonast eigendurnir til að hann
standi undir sér í lok þessa ára-
tugar.