Þjóðviljinn - 08.10.1985, Page 16
Aðalsfmi: 81333. Kvóldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Þrlðjudaour 7. október 1985 231. tölublað 50. örganour
DJOfilflUINN
Vestmannaeyjar ^
Farandverkamenn segja upp
Deilur íEyjum vegna fœðiskostnaðar í mötuneyti frystihúsanna. Mun hœrrien annars staðar.
Við farandverkamenn munum
hætta störfum og fara héðan
um næstu helgi ef ekki verður
gengið að kröfum okkar um
lækkun fæðiskostnaðar fyrir
þann tíma. Krafa okkar er að
fæðiskostnaður lækki úr 399 í 234
krónur, sem er nokkuð i sam-
ræmi við það sem gengur og ger-
ist annars staðar, sagði Jóhannes
Jensson farandverkamaður í
Ráðherraskiptin
Niðurstaðan
er klúður
Svavar Gestsson
formaður
Alþýðubandalagsins:
Farsanum lauk með
aulalegri hœtti enflestir
reiknuðu með
Ég fæ ekki betur séð en að þessi
niðurstaða sé klúður. Þessi farsi
með „Steina og stólinn“, sem
staðið hefur yfir síðan hann varð
formaður flokksins, hlaut auðvit-
að að enda eins og allir farsar en
þó með aulalegri hætti en flestir
höfðu reiknað með, sagði Svavar
Gestsson formaður Alþýðu-
bandalagsins er Þjóðviljinn innti
hann álits á ráðherraskiptunum
innan Sjálfstæðisflokksins.
Svavar sagði þetta að sínum
dómi hroðalega meðferð á heið-
ursforseta Atlantshafsbandalags-
ins og að hann skuli verða að þola
þessa niðurlægingu sýni glöggt að
Sjálfstæðisflokkurinn þorir ekki í
kosningar.
Þá benti hann á að þessi skipti
myndu örugglega ekki breyta
stefnu ríkisstjórnarinnar til batn-
aðar. Hér væri framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambands-
ins kominn inní ríkisstjórnina og
fulltrúi harðari hægri sjónarmiða
en áður hafa verið inní stjórninni,
fulltrúi nýfrjálshyggjunnar og
Eimreiðar-hópsins.
Almenningur sem nú horfir á
eftir íbúðum sínum á nauðungar-
uppboð á áreiðanlega ekki betri
tíð í vændum, sagði Svavar Gests-
son að lokum. ^S.dór
Ráðherraskiptin
Þetta er
þeiira mál
Steingrímur
Hermannsson: Engar
breytingar í vœndum á
ráðherralista
Framsóknarflokksins
Ég hef ekkert nema gott um það
að segja að Þorsteinn Pálsson
komi inní ríkisstjórnina. Ég hef
alltaf haldið því fram að það
myndi styrkja ríkisstjórnina ef
formaður Sjálfstæðisflokksins
kæmiinní hana,sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
eftir að kunnugt varð að Geir
Hallgrímsson viki úr ríkisstjórn-
inni fyrir Þorsteini Pálssyni.
Aðspurður um hvort breyting-
ar yrðu á ráðherralista Fram-
sóknarflokksins, hikaði hann
andartak en sagði svo: Neeei,
það er ekki.
Engar tillögur komið fram um
það?
Ekki af minni hálfu, svaraði
forsætisráðherra. -S.dór
Vestmannaeyjum í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Um sextíu farandverkamenn í
Eyjum tilkynntu atvinnurekend-
um sínum uppsagnir á sunnudag-
inn og munu þær taka gildi um
næstu helgi ef fram fer sem horf-
ir. Fæðiskostnaður í mötuneyti
frystihúsanna í Eyjum er nú 399
krónur. Fyrir mánaðamótin var
viðskiptamönnum þess tilkynnt
að fæðiskostnaður myndi hækka
um 20% 1. október, en frá því var
horfið eftir mótmæli farand-
verkafólks. Ákveðið var að
hækkunin myndi ekki koma til
framkvæmda fyrr en um ára-
mótin. „Við tóicum okkur til og
athuguðum hver fæðiskostnaður
í tólf öðrum fiskvinnslumötu-
neytum er og meðalverðið
reyndist vera 234 krónur fyrir
fullt fæði. Verðið var hvergi í
námunda við það sem okkur er
boðið upp á. Lægst var það í Þor-
lákshöfn, 152 krónur.
Það er mikil samstaða um þetta
meðal okkar, og það er athyglis-
vert að mest er hún meðal útlend-
inganna, sem komnir eru víða að
úr heiminum. Fólk er þegar byrj-
að að yfirgefa staðinn”, sagði Jó-
hannes.
Murtuveiði í Þingvallavatni
Jú, þetta er skemmtilegra en að sitja á skrif-
stofu, að minnsta kosti þegar veðrið er svona
gott, sagði Sveinbjörn Jóhannesson, bóndi að
Heiðarbæ I, þegar við hittum hann að veiðum á
Þingvallavatni í gær. Sveinbjörn er einn bænda í
Þingvallasveit og Grafningi sem þessa dagana
keppast við að draga murtunetin úr vatninu, en
veiðin hófst 22. september. Minna hefur veiðst í
ár en oft áður og bjóst Sveinbjörn við að þetta
yrði síðasta vikan sem hann vitjar neta sinna.
Sum haust hefur veiðin í vatninu orðið ein 50
tonn samtals, en það er Ora sem sækir flskinn
austur daglega og leggur síðan niður. Nánar
verður sagt frá murtuveiðinni í helgarblaðinu.
-þs
Sveinbjöm og Tryggvi Guðmundsson etu allan daginn úti á vatni að vitja neta, greiða úr þeim og leggja þau aftur I vatnið. Með þeim á
„vertíðinni" er Helgi Guðmundsson sem er úr Kjósinni. Ljósm. Sig.
Höfn
Fast álag fyrir
Kaupfélagið hafnaði nú rétt
fyrir helgina kröfu okkar um
að reikna hækkunina á bónus-
grunni sem samið var um miili
VSÍ og VMSÍ sem fasta greiðslu
fyrir alla. Það er einróma álit
fiskverkunarfólks hérna að það
gangi ekki að láta bónusinn spila
meira inn í launin en orðið er,
sagði Björn Grétar Sveinsson
varaformaður verkalýðsfélagsins
á Höfn í Hornafírði í gær.
Áð sögn Björns var bónus-
samningur VSÍ og VMSÍ kol-
felldur á sínum tíma og krafðist
fiskverkunarfólk þess að dæminu
yrði snúið við, föst álagsgreiðsla
kæmi í stað hækkunar bónus-
grunns. Atvinnurekendur á
staðnum tóku ekki illa í það en
síðustu viku barst verkalýðsfé-
laginu neikvætt svar.
„Ég er mjög hissa á að þessu
skuli hafa verið neitað, þar sem
þarna er ekki um að ræða kostn-
aðarauka fyrir Kaupfélagið,
heldur aðeins tilfærslu á launum
milli launþega. Það var haldinn
fundur í verkalýðsfélaginu á
sunnudaginn og þar var greinilegt
að fólk ætlar ekki að bakka með
þesa áherslu á að minnka hlut
bónuss í launum. Fólk er hrein-
lega orðið leitt og þreytt á bónus
og vill jafna þetta meira út. Það
var ýmislegt rætt á fundinum og
„Frystihúsaeigendur hafa ekki
tekið afstöðu til uppsagnanna og
engir fundir voru haldnir um
þetta mál í dag, en ég býst við að
okkar niðurstaða muni liggja
fyrir á þriðjudag eða miðviku-
dag”, sagði Arnar Sigurmunds-
son talsmaður Samfrosts, sam-
taka frystihúsa í Eyjum, í gær.
-gg/m
Securitas
Verkfall
skall á
Samningafundir í gœr
báru lítinn árangur.
Verkfall Dagsbrúnar á öryggis-
þjónustuna Securitas skall á á
miðnætti í gær eins og boðað
hafði verið. Samningafundir
starfsmanna og Securitas hjá sátt-
asemjara í gær báru svo til engan
árangur. Fundir stóðu langt fram
undir miðnætti.
„Það hefur lítið gengið saman á
þessum fundum og ég á ekki von
á neinum veðrabrigðum í þessu í
kvöld. Ég skal aftur á móti ekkert
um það segja hvert verður fram-
haldið á þesari deilu“, sagði
Þröstur Ólafsson framkvæmda-
stjóri Dagsbrúnar í samtali við
Þjóðviljann í gærkvöldi.
Starfsmenn Securitas sem nú
eru komnir í verkfall er um 60
talsins. Krafa þeirra er að mánað-
arlaun verði lægst um 26 þúsund
krónur og er það veruleg hækkun
á töxtum Dagsbrúnar. Þess ber
að geta að öll þessi vinna er unnin
að næturlagi við næturvörslu og
öryggisgæslu. gg
Keflavík
Finnst
ekki
Enn hefur enginn árangur orð-
ið af leitinni að Eyjólfi Ben Sig-
urðssyni sem tók út af báti við
björgunaræfingu keflvísku
sveitarinnar Stakks við Helguvík
á laugardag.
Tiltækum leitarráðum hefui
verið beitt en allt kom fyrir ekki.
Eyjólfur var við þriðja mann í æf-
ingunni. Hann var um borð i
gúmbát og án björgunarvestis í
hryssingsveðri.
alla
m.a. samþykkt að athuga kröfur
Einingar á Akureyri. Það er ekki
loku fyrir það skotið að við setj-
um svipaðar kröfur fram hér,
enda eru þær meira í ætt við það
sem VMSÍ hugðist ná á sínum
tíma“, sagði Björn.
Bónussamningurinn hefur að-
eins verið tekinn fyrir á einum
stað á Austfjörðum auk Hafnar,
hann var samþykktur á Eskifirði.
gg