Þjóðviljinn - 12.10.1985, Side 7
Konur, konur, konur: úr myndinni Systur... eftir Margréti von Trotta.
Kvikmynaahátíð kvenna
Algert óráð
á hjara veraldar
Stjörnubíó hernumið: myndir eftir konur íyrir alla
Klukkan tvö í dag setjast bíó-
gestirí Stjörnubíói niöurað
horfa á myndina Algertóráð
eftir Þjóðverjann von T rotta
og hefst með því upphafið að
endinum á Listahátíð kvenna:
kvikmyndavika full af mynd-
um eftir konur og um konur,
en fyrir alla; Kvikmyndahátíð
kvenna virðist við fyrstu yfir-
sýn ekki standa „venjulegum"
kvikmyndahátíðum neitt að
baki um listrænan metnað og
fjölbreytni í viðfangi og efnis-
tökum.
Sterkastan svip á hátíðina setja
gestirnir Margareth von Trotta
og Agnes Varda, en íslenskum
kvikmyndavinum er einnig betri
akkur en enginn að Frakkanum
Marguerite Duras sem eftir hana
eru sýndar tvær myndir, India
song (1974) og Agatha (1981).
Duras á stutt í sjötugt og er auk
kvikmyndunar þekkt fyrir skáld-
skap; þykir hafa rutt áður ókunn-
ar götur með myndavélinni.
Frá Venesúela berast tvær
myndir, Por los caminos verdes
/Til hinna grænu vega (1984) eftir
Marilda Vera, og El mar del tiem-
po perdido / Haf hins horfna tíma
(1977) eftir Solveig Hoogesteijn.
í bandaríska skammtinum eru
myndirnar First comes courage /
Hugrekkið ofar öllu (1943) eftir
Dorothy Arzner, Tell me a riddle
/ Leggðu fyrir mig gátu (1981)
eftir Lee Grant, Old Enough /
Nógu gömul (1984) eftir Dina og
Marisa Silver.
Auk Trotta-mynda koma frá
Þýskalandi Peppermint Frieden /
Piparmyntufriður (1984) eftir
Martianne S.W. Rosenbaum og
Dorian Gray im Spiegel der Boul-
evardpresse / Dorian Gray á síð-
um gulu pressunnar (1984) eftir
Ulrika Ottinger.
Og frá Noregi kemur myndin
Forfölgelsen / Nornaveiðar
(1981) eftir Anja Breiden sem er
einn af bestu kvikmynda-
mönnum granna vorra, og vakti
mikla athygli innan og utan
landsteina með fyrstu myndum
sínum Voldtekt / Nauðgun (1971)
og Hustruer / Húsfreyjur (1976).
Síðast en ekki síst er kvik-
myndahátíðin hátíð íslenskra
kvenna. Sýndar verða þær mynd-
ir þrjár sem íslenskar konur hafa
búið til í fullri lengd: Sóley Rósku
(1982), Á hjara veraldar Kristín-
ar Jóhannesdóttur (1982) og
Skilaboð til Söndru frá Guðnýju
Halldórsdóttur og Kristínu Páls-
dóttur (1983). Að auki tvær stutt-
ræmur eftir Eddu Sverrisdóttur,
þrjár eftir Rúrí, og ein eftir
Sörmu, og hafa fæstar þessara
verið áður á almennum boðstól-
um. Enn: mynd efrír Svölu Hann-
esdóttur frá 1954.
Hátíðin stendur fram á næstu
helgi í Stjömubíó, í báðum
sölum.
- m.
Laugardagur 12. október 1985 ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 7