Þjóðviljinn - 13.10.1985, Síða 17
Nunn og Caird leikstjórar Nikulásar Nickelby vinna nú nýtt stórvirki með söngleik byggðum á „Vesalingum" Hugos. Hér
eru þeir að leikstýra David Threlfall sem lék Smike í fyrrnefndu sýningunni, sem íslenskir sjónvarpsáhorfendur muna
eftir.
Brotið blað í söngleikjagerð
„Vesalingarnir“
sungnir í London
-frumsýning Royal Shakespeares Company s.l.
þriðjudag á „Vesalingum" Hugos í nýrri söngleikjagerð
vekur gífurlega athygli - ekki talað orð í verkinu
„Engu líkt - stefnubreyting í
söngleikjagerð - stefnubreyting í
leiklist" þannig eru umsagnirnar
um nýjasta söngleikin í London
sem byggir á „Vesalingum“ Vict-
ors Hugo, en hann varfrumsýnd-
ur s.l. þriðjudagskvöld hjá Royal
Shakespeare Company í
London. Leikstjórar, leikmynda-
hönnuður og Ijósahönnuður eru
þeir sömu og gerðu Nikulás Nick-
elby (sem sýndur var hér í sjón-
varpinu) og margar frægar söng-
leikjauppsetningar í London.
Pað er Trevor Nunn leikhús-
stjóri RSC sem leikstýir ásamt
John Card, en þeir hafa endur-
unnið franskan söngleik sem
byggir á hinni frtégu sögu Hugos.
J»að sem er sérstakt við þessa sýn-
ingu öðru fremur, er að ekki er
eitt talað orð í sýningunni og er
það í fyrsta sinn sem RSC sýnir
verk af því tagi. Auk þess er,
samkvæmt bláðaumsögnum í
London á miðvikudag, söng-
leikurinn (eða óperan öllu held-
ur), ólíkur öllum öðrum söng-
leikjum bæði að efni og umfangi.
Hér eru ekki glæsilegir búningar
og kristall í lofti, heldur gerist
verkið í fátækt og eymd á fyrri
hluta 19. aldar. „Og það er viss-
ara að hafa með sér vasaklút eða
bara heilan borðdúk, svo mikið
var grátið í salnum“ segir einn
gagnrýnandinn og gagnrýnandi
„The Financial Times“ segir:
„Verkið er tímamótaverk í söng-
leikjagerð. Það reisir brú á milli
óperu og söngleikja og sameinar
rokksöngvara og Shakespeare-
leikara í stórfenglegri sýningu
RSC“.
RSC tekur forystuna
Sýningin er sviðsett á stærsta
sviði í hinu nýja Barbican
Gúrú frjólsra
ásta gefur
upp trúna
Indverski kynlífsgúrúinn, sem
svohefurstundumverið
nefndur, Baghwan Shree
Rajneesh, lýsti því yfir um
helgina að hann gæfi hér með
öll trúarbrögð upp á bátinn, að
því er Sunday Times hermir.
En hinn 53 ára gúrú hafði boð-
að meðal annars frjálsar ástir,
og unnið sér þúsundir fyl gj-
enda. Margir jusu hann
gjöfum, þannig áskotnuðust
honum þó nokkrar Rolls
Royce bifreiðar.
Rajneesh hefur nú sagt áhang-
endum sínum að þeir verði að
brenna hina helgu bók með
kennisetningum sínum. Hinn
gráskeggjaði gúrú hefur ásakað
klofningshóp úr stuðnings-
mannaliði sínu um að hafa stolið
eða eytt miljónum dollara og gert
úr hinu sex þúsund manna samfé-
lagi aðdáenda sinna „fasískan
söfnuð“. En allur þessi fjöldi bjó
saman á búgarði hópsins í Oreg-
on.
Til að efla andlega gift sína
hafði gúrúinn lifað í þögn sfðustu
árin, og ekki látið sjá sig á meðal
fylgjenda sinna, ef frá er talin
daglegur ökutúr um búgarðinn,
þar sem hinn ágæti gúrú lét sér
nægja að veifa guðræknislega til
safnaðarins. Reksturinn lét hann
hins vegar í hendur annarra for-
ystumanna, en í síðustu viku
stungu þeir af.
Talið er að rifrildi milli gúrús-
ins og hinna hafi byrjað þegar rit-
ari hans vildi flytja AIDS sjúkl-
inga inn í söfnuðinn og hjúkra
þeim á búgarðinum. Gúrúinn var
sumsé ekki sammála því.
Meðan gúrúinn var í þagnar-
bindindi sínu fékk enginn að
koma nálægt honum nema
tannlæknirinn og læknir. Nú segir
Rajneesh að hinir forystumenn-
irnir í hópnum hafi reynt að eitra
fyrir lækna sína.
leikhúsi og segja ensku blöðin í
vikunni að nú hafi RSC tekið for-
ystuna af Þjóðleikhúsi Breta
(sem einnig er í nýrri og glæsilegri
byggingu á Thamesárbökkum).
Nunn, sem áður hefur sýnt að
hann er djarfur í ákvörðunum,
sagði í upphafi að þessi sýning
yrði leikhúsinu mjög erfið, ekki
síst vegna fjársveltis bresku
leikhúsanna í stjórnartíð Thatc-
hers. Þegar leikhúsið var að fara
á hausinn 1980 réðist hann í
stærstu og dýrustu sýningu þess,
„Nikulás Nickelby“ og árangur-
inn er öllum kunnur; sýningin fór
m.a. á Broadway og naut fádæma
vinsælda þar sem í London. Og
nú tekur hann aftur áhættu:
„Þetta verk er ólíkt öllu sem
við höfum gert. Og ég tel
fullkomlega samboðið RSC að
taka það til sýninga, enda byggir
það á einni fegurstu perlu
heimsbókmenntanna, „Vesa-
lingum“ Hugos. Strax á æfinga-
tímanum var mér ljóst að þessi
sýning yrði öðru vísi en annað
sem við höfum glímt við, - og ég
hef aldrei orðið vitni að öðrum
eins gráti á æfingum. Og það í
söngleik!“.
Fagleg vinnubrögð
Nunn sætti sig ekki við fjár-
svelti bresku nkisstjórnarinnar
og fékk fjármálamann með í
uppsetninguna með það í huga að
fá fjármagn annars staðar frá.
Þannig var hægt að tryggja fagleg
vinnubrögð og peningarnir sem
voru lagðir í uppsetninguna virð-
ast ætla að ávaxta sig.
„Ég var ákveðinn í að slaka
hvergi á listrænum kröfum, enga
einfalda stílfærslu af því þetta er
söngleikur, heldur vinnubrögð af
því tagi sem hér eru viðhöfð þeg-
ar um Shakespeare harmleiki er
að ræða“, sagði Nunn ennfrem-
ur.
Aðalhlutverkið, Jean Valjean,
leikur Colm Wilkinsson, sem
söng Che Guevara í upphaflegu
Evitusýningunni, en móður Co-
sette leikur Patti Lupone, sem
fékk Tony verðlaunin fyrir sjálfa
Evitu á Broadway. Þekktir
Shakespeare leikarar eru í öðrum
stórum hlutverkum, en þegar er
farið að undirbúa að fara með
sýninguna vestur um haf á Broad-
way, þegar hægt verður að
koma því við.
(byggt á Reuter o.fl. Þs.).
ALÞYÐU BAN DAUVGHD
AB Norðurlandi eystra
Kjördæmisþing Alþýðubandalagsins í Norðurlandi eystra verður haldið
dagana 19.-20. október í orlofshúsum verklýðsfélaganna aö lllugastöðum i
Fnjóskadal.
Dagskrá laugardaginn 19. október: 13.00 þingsetning. Venjuleg aðalfund-
arstörf Adda Bára Sigfúsdóttir segir frá frumvarþi Alexanders um sveitar-
stjórnarlög og þeirri umræðu og umfjöllun sem það hefur fengið í Alþýðu-
bandalaginu. Jón Björnsson félagsmálastjóri Akureyri fjallar um félagslega
þjónustu sveitarfélaga, Finnbogi Jónsson fjallar um atvinnumál, m.t.t. þátt-
töku sveitarfélaga, Jóhannes Sigfússon oddviti ræðir sérstöðu minni
sveitarfélaga. Fyrirsþurnir og umræður verða að framsögum loknum.
Starfshópar. Að loknu dagsverki verður kvöldvaka sem hefst með sam-
eiginlegu borðhaldi.
Sunnudagurinn 20.: Hópar starfa til hádegis. Skila af sér eftir málsverð.
Þá verður tekið til við almenna stjórnmálaumræðu og mun Steingrimur J.
Sigfússon hefja umræðuna. Ragnar Arnalds heimsækir þingið á sunnu-
dag. Þingslit áætluð kl. 1700. Með kærri kveðju og von um að sjást á
lllugastöðum. Stjórn kjördæmisráðsins
Kvennafylkingin
Rabbfundur og morgunkaffi laugardaginn 12. október kl. 11.00 að Hverfis-
götu 105.
Þurfum að ræða:
1. Undirbúning fyrir landsfund AB.
2. Sýningu á störfum og kjörum kvenna sem hefst 24. október.
3. Vetrarstarfið.
Fjölmennum.
AB Borgarnesi og uppsveitum
Félagsfundur
Mánudaginn 14. októberkl. 20.30 í Röðli verðurhaldinnfélagsfundurum
vetrarstarfið, kosningu fulltrúa á landsfund Alþýðubandalagsins. Kosin
stjórn félagsmálaráðs, - og önnur mál.
Stjórnin
AB Akureyri
Fundur í bæjarmálaráði AB verður haldinn mánudaginn 15. október kl.
20.30 í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18.
Dagskrá: 1) Skipulag vetrarstarfsins 2) Ræddar hugmyndir að breytingu á
stjórnkerfi bæjarins. 3) Dagskrá bæjarstjórnar. 4) Önnur mál.
Stjórnin.
AB Neskaupstað
Félagsfundur
Alþýðubandalagið í Neskaupstað heldur félagsfund í Egilsbúð miðviku-
daginn 16. október kl. 20.30.
Dagskrá:
1) Kosning fulltrúa á landsfund
2) Undirbúningur bæjarstjórnarkosninga. Framsögumaður Kristinn V. Jó-
hannsson
3) Önnur mál. Stjórnin.
Ráðstefna um
Framhaldsskólann
verður haldin laugardaginn 19. október n.k. kl. 10-17 að Hverfisgötu
105, Reykjavík.
Ráðstefnan er liður í stefnumótun Alþýðubandalagsins um framhalds-
menntun.
Dagskrá:
Kl. 10-12 Skólamálahópur AB kynnir hugmyndagrunn að:
markmiðum og
námsskipan,
stjórnun og
fjármögnun
framhaldsskóla.
Fyrirspurnir og
almennar umræður.
Léttur hádegisverður á staðnum.
Kl. 13-17 Starfshópar ræða hugmynda-
grunninn.
Kaffihlé.
Niðurstöður hópa.
Næstu skref ákveðin.
Ráðstefnan er opin öllu stuðningsfólki Alþýðubandalagsins. Til þess að
auðvelda undirbúning eru væntanlegir þátttakendur vinsamlegast hvattir til
að skrá sig á skrifstofu AB í síma: 1 75 00.
Skólamálahópur AB
Frá Verkalýðsmálaráði
Alþýðubandalagsins
Stjórn Verkalýðsmálaráðs Alþýðubandalagsins boðar til vinnufundar með
flokksfélögum miðvikudaginn 16. október kl. 17.30 í flokksmiðstöð Alþýðu-
bandalagsins að Hverfisgötu 105.
Fundarefni: Staða verkalýðsmála og undirbúningur fyrir landsfund. -
Stjórn Verkalyðsmálaráðs AB.
AB Keflavík
Aðalfundur
Alþýðubandalagið í Keflavík boðar til aðalfundar þriðjudaginn 15. október
kl. 20.30 í húsi Verslunarmannafélagsins að Hafnargötu 28.
Dagskrá:
1) Umræður um sameiningu Alþýðubandalagsfélags Keflavíkur og Alþýðu-
Pandalags Njarðvíkur.
2) Venjuleg aðalfundarstörf.
3) Bæjarmál: Framsaga Jóhann Geirdal.
4) Kosning nefndar til uppstillingar fyrir komandi Pæjarstjórnarkosningar.
5) Önnur mál.
Félagar fjölmennið. - Stjómin.
Sunnudagur 13. október 1985 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17