Þjóðviljinn - 14.12.1985, Page 1
MENNING
SUNNUDAGS-
BLAÐ
Hafskipsmálið
Þórður neitar Albert
Ríkissaksóknari hafnar heiðni iðnaðaráðherra um
opinbera rannsókn á þœtti hans í Hafskipsmálinu.
Þórður Björnsson: Vœri skýlaust brotgegn einum af
hornsteinum íslenskrar réttarskipunar
órður Björnsson ríkissak-
sóknari hafnaði í gær beiðni
Alberts Guðmundssonar iðnað-
arráðherra um að fram fari opin-
ber rannsókn á þætti hans í Haf-
skipshneykslinu til að hreinsa Al-
bert af ásökunum um, að hann
hafl misbeitt aðstöðu sinni sem.
formaður bankaráðs Útvegs-
bankans til að greiða fyrir við-
skiptum Hafskips.
í bréfi til ráðherrans í gær segir
ríkissaksóknari m.a.: „Ef reynt
yrði að skilja þátt yðar frá þáttum
annarra, sem hér eiga hlut að
máli, í því skyni að flýta málalok-
um, að því er yður einan varðar,
væri það ekki aðeins ógerlegt af
málefnaástæðum heldur einnig
skýlaust brot gegn jafnréttisregl-
unni, sem er einn af hyrningar-
steinum íslenskrar réttarskipun-
ar.“
Þar sem ekki hefur komið fram
rökstuddur grunur um að Albert
hafi gerst sekur um refsivert at-
hæfi telur Þórður að ekki sé hægt
að hefja opinbera rannsókn á
hendur honum. Albert verði því
að rannsaka ásamt öðrum þeim
er hugsanlega eiga hlut að Haf-
skipshneykslinu. Vilji ráðherr-
ann hvítþvo sig af ásökun eða
orðrómi verði hann að höfða
meiðyrðamál.
Síðdegis í gær barst Þjóðviljan-
um yfirlýsing frá Albert Guð-
mundssyni vegna ákvörðunar
saksóknara. Þar segist iðnaðar-
ráðherra skilja ákvörðunina á
þann veg að fyrst ekki sé fyrir
hendi rökstuddur grunur um
refsivert athæfi þá séu „fullyrð-
ingar þeirra manna sem sett hafa
þessar ásakanir fram ekki mark-
tækar".
Iðnaðarráðherra segir enn-
fremur að hann hafi sent málið til
saksóknara í því skyni að hraða
rannsókn þess. Hann verði að
una því að hún taki lengri tíma en
nauðsynlegt væri, Hitt standi
eftir „sem auðvitað skiptir mestu,
að ríkissaksóknari telur ekkert
marktækt tilefni hafa komið fram
sem réttlæti opinbera rannsókn,”
segir í yfirlýsingu iðnaðarráð-
herra.
-gg/-ÞH ■
10 dagar til jola!
Teikning: Vignir Rafn 7 ára, Furu-
grund 76 Kópavogi.
Qkurmálið
Lokið
fyrir
jól
Þórir Oddsson: Hátt á
annað hundrað manna
verið yfirheyrðir
Við stefnun enn ákveðið að því
að Ijúka rannsókh okurmálsins
fyrir jól og senda það til ríkissak-
sóknara og við erum bjartsýnir á
að það takist, sagði Þórir Odds-
son vararannsóknarlögreglu-
stjóri ríkisins í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
Að sögn Þóris er rannsóknar-
lögreglan ekki með önnur okur-
mál í rannsókn og engin rökstudd
kæra hefur borist síðan þetta mál
Hermanns Björgvinssonar kom
upp. Hátt á annað hundrað
manna hafa verið yfirheyrðir í
þessu umfangsmesta okurmáli
okkar sögu. Dæmi eru um að
menn hafi v.erið með á þriðja tug
milljóna króna í veltu hjá Her-
manni og sögur segja að skuldar-
ar hafi farið allt upp í 15 milljpnir.
Fólk úr öllum stigum þjóðfélags-
ins er viðriðið málið, beggja
enda. Lögreglan hefur lagt hald á
rúmar 200 milljónir króna í seðl-
um og ávísunum.
-gg
Hafskipsmálið
Skiptaráðandi
farinn til
Bandaríkjanna
Ragnar Hall skiptaráðandi er
farinn til Bandaríkjanna til að
rannsaka mál Hafskips í því
landi, en sem kunnugt er rak Haf-
skip h.f. þar dótturfyrirtæki all
nokkur og ýmis skúffu- og papp-
írsfyrirtæki.
-Sdór
El Salvadornefndin á íslandi stendur nú að söfnun til að styðja rekstur félög einsog t.d. ASl og BSRB styðja þessa söfnun. Jólasöfnunin fer fram [
heilsugæslustöðvar í Santa Barbara. Er stefnt að því að safna 400 þúsund Reykjavík og var þessi mynd af söfnunarmeisturum og stuðningsmönnum
krónum, sem myndi duga til að reka stöðina í þrjá mánuði. Mörg samtök og tekin á nýja Laugaveginum í gær. Ljósm: Sig
Fjárlagafrumvarpið
Stjomarandstaöan vill frestun
Geir Gunnarsson: Minnihlutifjárveitinganefndar alþingis leggur til að
fjárlagafrumvarpið verði unnið uppá nýtt. 2500 miljón króna halliá
ríkissjóði íár. 107% hœkkun á erlendum lántökum. Áfellisdómuryfir
efnahagsstefn u stjórnarinnar
Stjórnarandstaðan telur ekki
stætt á því að afgreiða fjárlög
á næsta ári með þeim halla sem
við blasir, síst af öllu í kjölfar
2000-2500 miljóna rekstarhalla
ríkissjóðs á þessu ári með tilhcyr-
andi skuldasöfnun, fjármagns-
kostnaði, viðskiptahalla og verð-
bólgu sem af honum leiðir.
Klukkan 10 fyrir hádegi í dag
verður gengið til atkvæða um til-
lögu stjórnarandstæðinga um að
vísa frumvarpinu frá og hefja
gagngera endurskoðun þess með
það fyrir augum að afgreiða
hallalaus fjárlög fyrir næsta ár.
Geir Gunnarsson mælti í gær
fyrir þessu áliti stjórnarandstæð-
inga og benti m.a. á að allar for-
sendur frumvarpsins um afkomu
ríkissjóðs á þessu ári væru rangar
og sömu sögu væri að segja um
áætlanir um tekjur og gjöld á
næsta ári. Halli ríkissjóðs á þessu
ári verður ekki 743 miljónir eins
og ráð var fyrir gert í fjárlögum
og ekki 1860 miljónir eins og segir
í forsendum frumvarpsins fyrir
næsta ár, heldur 2000-2500 milj-
ónir króna. Hann benti einnig á
að fjárlaga- og hagsýslustofnun
telur nauðsynlegt að hækka áætl-
uð útgjöld á næsta ári um 5-6%
að því er tekur til allra verðlags-
og launaþátta. Fyrirsjáanlegt er
því að fjárlagahallinn á næsta ári
verður ekki tæpar 500 miljónir
eins og segir í frumvarpinu, held-
ur mun meira.
Geir gerði niðurskurð á félags-
legum framkvæmdum, síauknar
erlendar lántökur og seðlaprent-
un að umræðuefni. Hann benti
m.a. á að frumvarpið gerir ráð
fyrir 107% hækkun á lántökum á
næsta ári eða 3.164 miljónum í
stað 1526 miljóna á þessu ári.
Þessar lántökur verði hins vegar
mun meiri ef tekið er tillit til þess
að fjárlagahallinn í ár er vanáætl-
aður í frumvarpinu.
Stjórharandstaðan er einróma
í þessum harða dómi yfir fjárlaga-
gerð ríkisstjórnarinnar og flytur
engar breytingartillögur við
frumvarpið sem hún telur mark-
leysu.
-IA
Sjá Innsýn bls 5.