Þjóðviljinn - 18.12.1985, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 18.12.1985, Qupperneq 5
Alþýðubandalag Vil Iflca geta spilað frítt Skúli Alexandersson mótmœlir afstöðu flokksins í kvótamálinu með úrsögn úr iðnaðarnefnd efri deildar „Með þessari afstöðu sinni í kvótamálinu hefur flokkurinn raunverulega stigið skref í þá átt að þingmenn eigi að spila frítt með sínar skoðanir. í samræmi við það vil ég losna undan þeirri bindingu að vera málsvari flokks- ins í iðnaðarnefnd og tel mig hafa betri möguleika til að vera óháð- ari flokksstefnu utan nefndarinn- ar og geta þá við vissar aðstæður skipt um skoðun rétt eins og for- ingjarnir“, sagði Skúli Alexand- ersson, þingmaður Alþvðu- bandalagsins í Vesturlandskjör- dæmi í samtali við Þjóðviijann í gær. Um miðnæturbil í fyrrakvöld lýsti Skúli, sem er eindreginn andstæðingur kvótans, því yfir í efri deild að hann hefði óskað eftir því að láta af störfum í iðn- aðarnefnd deildarinnar vegna óá- nægju með breytta afstöðu ein- stakra þingmanna AB til kvót- ans. Mun hann hafa nefndabýti við Helga Seljan og taka sæti hans í landbúnaðarnefnd og hef- ur þingflokkurinn fallist á það. Skúli sagði í gær að afstaða flokksins í neðri deild hefði kom- ið sér mjög á óvart einkum að ekkert mótatkvæði hafi komið fram þegar málið var afgreitt til þriðju umræðu. Tveir fyrrver- andi ráðherrar flokksins hefðu þar breytt afstöðu sinni; Hjör- leifur Guttormsson sem studdi frumvarpið og Svavar Gestsson sem sat hjá. Þingmennirnir Guð- rún Helgadóttir og Garðar Sig- urðsson hefðu hins vegar stutt frumvarpið rétt eins og í fyrra. „Eftir höfðindu dansa limirn- ir“, sagði Skúli í gær. „Ég hef í iðnaðarnefnd litið á mig sem málsvara Alþýðubandalagsins og sem formaður nefndarinnar í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar sem málsvara stjórnarstefnunnar. Ég vil losna undan þeirri bindingu og geta við vissar aðstæður skipt um skoðun rétt eins og foringjarnir“. - Nú gera menn því skóna að þetta sé einhvers konar hefndar- Skúli: Breytt afstaða Hjörleifs og Svavars kom mér mjög á óvart. ráðstöfun gagnvart Hjörleifi Guttormssyni og stefnu hans sem fyrrverandi iðnaðarráðherra. Értu á öndverðu máli við hann í iðnaðarmálum? „Ég er ekki að leita eftir neinu uppgjöri um iðnaðar- og orku- mál, heldur fyrst og fremst eftir umræðu, einkum um sjávarút- vegsmálin. Það hefur ekki verið mikill skoðanaágreiningur milli mín og Hjörleifs þó ekki hafi ég t.d. verið mjög áhugasamur um stóriðju við Hvalfjörð og Eyja- fjörð. Ég hef t.a.m. getað stutt stóriðju við Reyðarfjörð til að forða byggðarösicun. Við þurfum hins vegar að gera það upp við okkur að það er ekki stóriðjan sem kemur til með að skapa ný atvinnutækifæri í framtíðinni og því er nærtækast að snúa sér að sjávarútveginum. Þannig tengj- ast þessi mál í mínum huga“. -ÁI Þyrlukaupin Ráðherrar svara ekki fyrirspumum Guðrún Helgadóttir: Osannindi að ekki sé vitað hver hafi verið umboðsmaðurfrönsku þyrlannafrá 1980-1983 Eg tek ekki minnsta mark á þessu skjali. Mér er gjörsam- lega óskiljanlegt hvernig tveir ráðherrar leyfa sér að bera fram slík ósannindi á þingskjali og ég gef þeim kost á að draga skjalið til baka, sagði Guðrún Helgadóttir í umræðum utan dagskrár á al- þingi í gær. Tilefnið var skriflegt svar fjár- málaráðherra, unnið í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu við fyrir- spurnum hennar um kaupin á frönsku Dauphin-þyrlunni. f svari við 9. lið fyrirspurnarinnar um umboðsmann Aero- spatiale-verksmiðjanna hér á landi segir að ekki sé vitað hver hann hafi verið á árunum 1980- 1984. „Þetta er lygi“, sagði Guðrún. „f ritinu íslensk fyrirtæki er um- boðsmannsins getið á árinu 1980, 1981,1982 og 1983 og það skiptir ekki máli í þessu sambandi að það er núverandi iðnaðarráð- herra, Albert Guðmundsson. Það sem skiptir máli er að þing- menn geti treyst því að svör við dæma hvort skjöl væru rétt eða röng. Hins vegar myndi hann ræða við ráðherra um athuga- semdir hennar. Jón Helgason dóms- og kirkjumálaráðherra sagði að gengið yrði úr skugga um fullyrðingar Guðrúnar varðandi umboðsmanninn en þingmenn- irnir Svavar Gestsson og Eiður Guðnason tóku undir gagnrýni hennar á vinnubrögð ráðherr- anna. _ái Fiskveiðistefnan Kvótinn kominn í efri deild Viðskiptaráðherra greiddi atkvœði gegn sjávarútvegsráðherra Fyrsta umræða í efri deild um kvótafrumvarp Halldórs Ás- grímssonar stóð fram undir klukkan tvö í fyrrinótt. Fyrr um daginn hafði neðri deild sam- þykkt frumvarpið með 24 at- kvæðum gegn 9 og greiddu þrír stjórnarliðar atkvæði gegn Hali- dóri, þeirra á incðal Matthías Bjarnason viðskiptaráðherra. Landsbyggðarbönd reyndust flokksböndum yfirsterkari í af- stöðu einstakra manna til kvóta- frumvarpsins.' Stjórnarliðarnir Ólafur Þ. Þórðarson, Guðmund- ur H. Garðarsson og Matthías Bjarnason lögðust gegn frum- varpinu og Ingvar Gíslason var fjarstaddur. Friðjón Þórðarson og Ellert Schram sátu hjá. Sex þingmenn Alþýðubanda- lagsins tóku þátt í atkvæða- greiðslunni en Hjörleifur Gutt- ormsson sem lýst hefur stuðningi við kvótann var fjarstaddur. At- kvæði þeirra skiptust 2-2-2. Geir Gunnarsson og Guðmundur J. Guðmundsson greiddu atkvæði gegn kvótanum, Garðar Sigurðs- son og Guðrún Helgadóttir greiddu atkvæði nteð honum en Steingrímur J. Sigfússon og Svav- ar Gestsson sátu hjá. I greinar- gerð með atkvæði sínu sagði Svavar Gestsson að þó margt hefði breyst til batnaðar í frum- varpinu væri eðlilegt að ríkis- stjórnin bæri ein ábyrgð á því og með því að taka ekki þátt í at- kvæðagreiðslunni væri hann að mótmæla sjávarútvegsstefnu stjórnarinnar. 3 þingmenn Alþýðuflokks, Jó- hanna Sigurðardóttir, Jón Bald- vin Hannibalsson og Sighvatur Björgvinsson voru á móti kvótan- um en Kjartan Jóhannsson sagði já. Kristín S. Kvaran Bandalagi jafnaðarmanna var á móti en Guðmundur Einarsson var fjar- staddur. -ÁI Alið Guðrún: Ótækt að geta ekki treyst skriflegum svörum ráðherra. fyrirspurnum þeirra séu rétt, en ekki röng“. Forseti sameinaðs þings, Þor- valdur Garðar Kristjánsson á - taldi Guðrúnu fyrir að nota orðið „lygi“ úr ræðustóli og sagði það ekki í verkahring forseta að Albert og Þorvaldur í hár saman útaf álinu Ekki œtlast til neinnar umfjöllunar í efri deild. Þorvaldur Garðar ósáttur við ýtni ráðherra Framsókn á ferð og flugi Síðdegis í gær flugu Steingrím- ur Hermannsson og Halldór Ásgrímsson utan í fylgd Páls Pét- urssonar forseta Norðurlanda- ráðs. Förinni var heitið til Helsing- fors í Finnlandi til fundarhalda á vegum Norðurlandaráðs auk þess sem þremenningarnir munu taka þátt í fagnaði Finna í tilefni þess að 30 ár eru liðin frá því þeir óskuðu setu í Norðurlandaráði. Þeir félagar eru væntanlegir heim á morgun, fimmtudag, með flugvél Flugmálastjórnar sem flýgur með þá báðar leiðir og bíjð- ur eftir þeim ytra. -ÁI Albert Guðmundssyni iðnað- arráðherra og Þorvaldi Garðari Kristjánssyni formanni iðnað- arnefndar efri deildar lenti saman í fyrrinótt vegna afgreiðslu máls- ins. I framsögu sinni lagði ráð- herra áherslu á að málið yrði af- greitt fyrir helgi en því mótmæltu þingmenn stjórnarandstöð- unnar. Þorvaldur Garðar sagðist ekki sjá að þetta mál væri svo brýnt að ekki mætti gefa deildinni góðan tíma til að fjalla um það. Helgi Seljan benti á að með þessu móti gæfist ekki tóm til að fjalla efnislega um málið í efri deild eða sannreyna þær nýju hagnaðartölur sem stjórnarliðið fleygði inn á borð neðri deildar við lokaafgreiðslu ntálsins þar. Þorvaldur Garðar fullyrti að sér hefði ekki verið uppálagt að afgreiða málið fyrir jól. Ef það hefði staðið til hefðu iðnaðar- nefndir beggja deilda átt að starfa saman að málinu. Albert Guðmundsson sagði hins vegar að nýr skattsamningur Miðvikudagur 18. við Alusuisse væri meðal for- gangsverkefna sem ríkisstjórnar- flokkarnir hefðu samþykkt að af- greiða fyrir jólaleyfi. Það ætti því ekki að koma Þorvaldi Garðari á óvart. Iðnaðarnefndin hittist í gær- morgun en náðist ekkert sam- komulag um hvernig staðið verð- ur að umfjöllun og afgreiðslu málsins. Annar fundur er fyrir- hugaður í dag. -ÁI 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.