Þjóðviljinn - 18.12.1985, Side 18

Þjóðviljinn - 18.12.1985, Side 18
BÆKUR Játvarður Jökull Júlíusson Galdrakonan og velferðarrithöfundurinn þar efni í sögu. Par hittir hann fyrir Sólu eða Sólrúnu, aldraða konu, sem er „eldhress", eins og allir eru farnir að segja, og rekur fyrir honum ætt og uppruna með þeim líflega hætti að hann er sem „bergnuminn". Hann gengur svo í bjargið til þessarar fornkonu af Ströndum, sem rekur ættir sínar til galdrafólks og hálftrölla á Ströndum, en hefur uppkomin lent í hörðum stéttaslag milli- stríðsáranna. Um leið fær lesand- inn fregnir af Hjálmari sjálfum og sambúð hans við konu hans, sem á von á barni. Bókin er svo stíluð sem sendibréf til barnsins ófædda (nokkuð í ætt við óléttuskýrslu Oriönu Fallaci) - og er þá tví- þætt. Annarsvegar fer saga af hnignun sambýlis ungs samtíma- fólks, sem lætur sér flest verða að vandamáli - hinsvegar er þjóð- sögukennd frásögn (höfð eftir Sólu) af forfeðrum gömlu kon- unnar og uppvexti hennar sjálfr- ar. Tilgangurinn með þessum sér- stæða samanburði er orðaður svo á einum stað í bókinni: „Mér finnst það óborganleg lífsreynsla, að heyra konu, sem fædd er árið 1900, þylja upp sögu forfeðra sinna á svo lifandi og eftirminnilegan hátt sem Sóla gerir. En þegar ég hlusta á hana tala um sitt eigið lífshlaup sit ég lamaður og skammast mín fyrir fákunnáttu mína, heimtufrekju, vankunnáttu og smáborgara- skap“. Sú hugmynd, sem felst í þess- um orðum og sögusmíðinni sjálfri, er í sjálfu sér ágæt. Það er satt og rétt að það er hollt að þekkja fortíð landsins barna og sú vitneskja um „ræturnar" er til þess fallinn að draga úr sjálfs- vorkunn nútímafólks sem finnst ekkert mannlíf nógu þægilegt, nógu auðvelt. En útfærslu þess- arar hugmyndar er í nokkrum greinum ábótavant. í fyrsta lagi er það til að taka, að þótt vesældómur Hjálmars rit- höfundar komist ótvírætt til skila, þá tekur hans þáttur óþarflega mikið rúm, sem stundum er fyllt með helst til forskrúfuðum frá- sagnarhætti. (Til dæmis þegar farið er í heimsókn til tengdafor- eldranna og hundskrímsli glefsar í skáldið). í annan stað verður mynd Sólu ekki nógu svipmikil til að Iesandinn geti sannfærst um að kynni við hana og frásögn hennar hafi orðið Hjálmari Hjálmarssyni sú skírsla og endurfæðing sem hann ítrekar. Frásögn af forfeðr- um Sólu er skrifuð í frísklegum þjóðháttastíl og ýmislegt gott má segja um frásögnina af því þegar hún er eftir skilin hjá vanda- lausum vegna fátæktar föður hennar. En þegar bernskuárum sleppir verður saga Sólu mjög á- gripskennd. Höfundur afsakar það með því, að gamla konan er á leið út úr heiminum og hann verður að styðjast við frásögn dóttur hennar. f stað beinnar lýs- ingar kemur endursögn, ágrip af stríðssögu kynslóðar. Höfundur játar vanmátt sinn eftir að Sólu nýtur ekki við - en lesandinn finnur ekki ástæðu til að taka slíka réttlætingu til greina. Því er það svo, að saga sem á sér góð tilþrif eins og raknar sundur í endann - stendur ekki við sín fyrirheit. ÁB Ættarsaga Sigríður stórráða Sagan af Sigríði stórráðu - Skarðverjaríki og Reykhólaauður. Látraætt og Skáleyjasystkin Játvarður Jökull Júlíusson. Víkurútgáfan. í upphafi sögu sinnar vekur Játvarður Jökull athygli á því að áum hvers og eins fjölgar um helming við hvern ættarlið sem rakinn er aftur í tímann. Það þýð- ir að afar og ömmur okkar í 20. lið á Sturlungaöld hafa verið rúm- lega miljón talsins, stærðfræðin segir það, þó svo farsóttir og fá- menni þjóðarinnar breyti þessari tölu. „Eigi að síður verður ætta- sagan heillandi þegar kemur í ljós að urmull ættgreina rekst aftur til eins og sama upphafsins," segir höfundur og rekur ættarsögu allt frá landnámi vestra til okkar aldar. Játvarður Jökull er fanginn af þessari sögu, breiðfirsku sögu- sviði, átökum ættarhöfðingja og leikfléttum sögunnar. Það er einkar athyglisvert hversu vel margt ógleymanleg. Hins vegar vekur sagan spurningar og for- vitni manna-og vilja til að vita meira um Sigríði stórráðu. Á köflum er saga Játvarðar Jökuls helsti upptalningasöm, - en áreiðanlega munu áhugamenn um sögu Breiðafjarðar telja mik- inn feng að útkomu hennar, sem og aðrir þeir sem unna ættvísi einsog Játvarður Jökull. Sigríður stórráða lærði fyrst að vinna mjólkurafurðir í Danmörku og kenndi landsmönnum þau fræði, Þegar hún fór utan öðru sinni varð hún hjúkrunarkona og gerð- ist aðventisti á sjötugsaldri. Ég hef fyrir satt að hún hafi verið fyrsti íslendingurinn sem gekk í trúfélag aðventista, - en þess er ekki getið í sögu hennar. Hún „antog Sandheden" 1894, komin á sjötugsaldur, en lifði til 86 ára aldurs, 1919. Játvarður Jökull hefur reist minningu frænku sinn- ar óbrotgjarnan minnisvarða með þessari sögu. -óg Guðlaugur Arason Guðlaugur Arason. Sóla, Sóla. Skáldsaga. Mál og menning 1985. Þar hefur þessa sögu að ungur rithöfundur, Hjálmar Hjálmars- son, fer í njósnaleiðangur á elli- heimili - hann ætlar að snapa sér systur rithöfundarins. Það er um margt mögnuð saga af lífsháttum á hinni öldinni, dæmafáa og ótrú- lega þrautseigju Sigríðar sem átti vingott við gifta karla og stóð í stríði við stórbokkaskap Einars í Nesi Ásmundssonar og sigldi útí heim. Og þau brot úr ævisögu þessarar sérstæðu konu, sem Ját- varður Jökull setur saman eru um ÓSKAR GUÐMUNDSSON höfundurinn gerir grein fyrir áhrifum og stjórnsemi ýmissa kvenna í ættarsögunni og margar þeirra verða minnisstæðar les- endum fyrir vikið. Síðasti kafli bókarinnar er Sag- an af Sigríði stórráðu, - ömmu- Lauflétt athuaasemd í Þjóðviljanumsunnudaginn 15. des. ertímaritsinsTen- ings að góðu getið. Er það sjálfur Össur ritstjóri sem spjallar um efni blaðsins, þar á meðal við undirritaðan, sendir mér pillur einsog við var að búast og er bara skemmtilegur. Svo bætir ritstjórinn við, og er þá hættur allri gamansemi: „En skilin sem Einar er að reyna að búa til milli sín og annara skálda af sömu kynslóð eru ósannfær- andi í mínum augum." Mér er kunnugt um að sumir þeir sem ekki hafa lesið áður- nefnt viðtal í Teningi skildu þessi orð Össurar svo að þar sé ég að upphefja sjálfan mig með því að niðurníða og lítilsvirða jafnaldra mína og kollega í faginu. Og þar sem lesendur Þjóðviljans eru enn sem komið er allmiklu fleiri en lesendur Tenings, langar mig hérmeð að koma þeim upplýsing- um á framfæri að mér hefur aldrei dottið í hug að gera lítið úr öðrum höfundum sjálfum mér til frant- dráttar, ég læt engin slík orð falla í viðtalinu við Tening, ég þoli ekki einu sinni menn sem gera slíkt. Ég vona að Össuri gremjist ekkert þessi athugasemd, en mér finnst hún alveg nauðsynleg. Einsog hann segir í nefndri grein um Tening þá höfum við kannast hvor við annan frá því við vorum að riðlast yfir garða og grindverk í Hlíðunum hér í gamla daga, og því hef ég lengi vitað að fátt vekur honum jafn einlæga gleði einsog þegar honum tekst með vel völd- um orðum á réttum stöðum að etja mönnum í hár saman, helst perluvinum. 17. des. '85. Einar Kárason Einar Kárason: Þoli ekki höfunda sem gera lítið úr öðrum höfundum 18 SÍÐA - ÞJOÐVILJINN Miðvikudagur 18. desember 1985

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.