Þjóðviljinn - 18.12.1985, Qupperneq 23

Þjóðviljinn - 18.12.1985, Qupperneq 23
ÍÞRÓTTIR Skíði Ársæll Kristjánsson Knattspyrna Arsæll skiptir Ársæll Kristjánsson, varnarmað- urinn sterki úr Þrótti, hefur skrifað undir félagaskipti yfír til Islands- meistara Vals. Skiptin hafa þó ekki enn verið samþykkt af Þrótti þar sem knattspyrnudeildin er formannslaus sem stendur. —VS Fyrsti sigur heimsmeistarans Stenmark og Girardelli féllu Sænski heimsmeistarinn í svigi karla, Jonas Nilsson, vann í gær sinn fyrsta sigur í heimsbikarn- um. Hann sigraði örugglega í svigi í Madonna di Campiglio á Ítalíu, hafði forystu eftir fyrri ferð og lét hana ekki af hendi. Júgóslavinn Bojan Krizaj varð annar og Paul Frommelt frá Liechtenstein þriðji. Þeir Ingemar Stenmark og Marc Girardelli féllu í síðari ferð- inni og Pirmin Zurbriggen hætti við þátttöku. Staða efstu manna í stigakepp- ni heimsbikarsins er óbreytt eftir þessa keppni. Peter Muller frá Sviss hefur 70 stig, Marc Girar- delii frá Luxemburg 68, Peter Wirnsberger frá Austurríki 65 og Karl Alpiger frá Sviss 55. Boran Krizaj er nú fimmti með 47 stig. —VS/Reuter Malta Guðmundi gengur vel Guðmundur Baldursson á góðu gengi að fagna á Möltu. Guðmundi Baldurssyni knatt- spyrnumanni úr Breiðabliki hef- ur gengið vel með Senglea Athlet- ics í l.deildinni á Möltu unda- nfarnar vikur. Þjóðviljanum hafa borist úrklippur úr blöðum á Möltu þar sem Guðmundi er hælt á hvert reipi og honum er þökkuð góð frammistaða Senglea sem nú er í öðru sæti l.dcildar. Hann skoraði t.d. annað mark liðsins í 2-1 sigurleik fyrr í mán- uðinum og sá sigur kom liðinu uppí annað sætið. í næsta leik á undan lagði hann upp markið í 1-0 sigri. í þeim leik var brotið mjög gróflega á Guðmundi og við það brutust út heiftarleg slagsmál meðal áhorfenda. Að sögn Guð- mundar er mikill munur á ís- lenskum og maltverskum áhorf- endum, þeir síðarnefndu eru mjög blóðheitir og æstir og lítið þarf til að átök brjótist út. Eins og áður hafði verið sagt frá höfðu öll úrvalsdeildarliðin á Möltu fyllt sinn kvóta af er- lendum leikmönnum þegar Guð- mundur kom þangað í haust en nokkur þeirra hafa sýnt mikinn áhuga á að fá hann til liðs við sig næsta vetur. —VS Körfubolti TvötÖpUSAH LJS AH tapaði tveimur leikjum í A-riðli 2.deildar karla á Vestur- landi um helgina. Fyrst í Borgar- nesi gegn Skallagrími, 88-56, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 43-38. Snemma í leiknum meiddist aðalskorari Húnvetn- inganna, Jón Gíslason, og hann iék ekki gegn ÍA á Akranesi dag- inn eftir. Þar var USAH yfir í hléi, 26-25, en ÍA vann síðan 74-52. Staðan í A-riðli: Skallagrímur..........5 4 1 383-325 8 Tindastóll............3 3 0 242-213 6 IA...................6 2 4 440-454 4 KFl................2 1 1 128-127 2 USAH...............4 0 4 253-327 0 í B-riðlinum vann HSK Esju á Selfossi 78-57 eftir hafa haft nauma forystu í hléi, 31-28. Stað- an í B-riðli er þannig: Snæfell............5 4 1 344-277 8 UlA................5 4 1 339-312 8 HSK................4 3 1 262-226 6 Léttir.............4 2 2 233-250 4 Esja...............5 1 4 258-323 2 Árvakur............5 0 5 296-344 0 Tvö efstu lið úr hvorum riðli fara í úrslitakeppni þar sem leikið verður um eitt sæti í l.deild. —VS England Tottenham vann Tottenham vann South- ampton í gær á útivelli, 3-1, í stóru bikarkeppninni. Einn leikur var í 1. deild, QPR tapaði heima 0-1 fyrir Aston Villa. f þriðju deild vann Rotherham Bourne- mouth 2-1. Jakob Jónsson hefur leikið mjög vel með Stavanger I vetur. Noregur Getraunir Alþýðublaðið efst Alþýðublaðið tók forystuna í Ijölmiðlakeppni Getrauna í 17.leikviku, var með 9 leiki rétta og er því með 30 rétta samtals. DV er með 28, Morgunblaðið 27, NT 26, Þjóðviljinn 25, Útvarpið 24 og Dagur rekur lestina sem fyrr mcð samtals 22 leiki rétta. Spá fjölmiðlanna fyrir 18.leikviku er þessi: •o ja > (— ra 5TS O Z O < Birmingham-Chelsea.............................2 2 2 2 2 2 Coventry-Everton................................ 2 2 2 2 2 Liverpool-Newcastle.............................1 1 1 1 1 1 Luton-West Ham..................................2 2 1 x 1 x Manch.Utd-Arsenal...............................1 11111 Sheff.Wed.-Manch.City...........................1 1 1 1 1 1 Tottenham-lpswich...............................1 11111 Charlton-Grimsby................................1 x 1 1 1 1 Fulham-Middlesboro..............................x 11111 Huddersfield-Oldham.............................x 1 2 x x x Stoke-Ðarnsley..................................1 x 1 1 1 1 Wimbledon-Sheff.Utd.............................2 12 112 Engin spá barst frá útvarpinu að þessu sinni. í 17.leikviku komu fram 26 raðir með 12 réttum leikjum og fær hver röð 54.745 krónur í vinning. Með 11 rétta voru 547 raðir og vinningurinn þar er 1.115 krónur. Vinningsupphæð var samtals 2.033.460 krónur. Kvennakarfa ÍBK vann ÍBK sigraði ÍA 67-33 í kvennadeildinni í körfuknatt- leik á laugardaginn en lcikið var á Akranesi. —VS Finnland Nykanen rekinn! Matti Nykanen, finnski heimsmeistarinn í skíðastökki, var í fyrrakvöld rekinn úr stökk- liði Finna og sendur heim. Heimsbikarkeppnin í skíðastökki stendur nú yfir í Norður- Ameríku. Nykanen á við áfengisvanda- mál að stríða og hegðun hans í ferðinni þótti slæm. Nykanen var fyrir nokkrum dögum kjörinn Iþróttamaður ársins í Finnlandi. Hann er 22ja ára garnall og hefur undanfarin nrisseri þótt besti skíðastökkvari heims. —VS/Reuter Keila Stavanger meistari Stavanger varð um síðustu helgi norskur meistari í hand- knattleik, sigraði Rapp auðvcld- lega, 19-13, í úrslitaleik. Jakob Jónsson átti stórgóðan leik með Stavanger, skoraði 4 mörk og átti 5 línusendingar sem gáfu mörk. Sveinn Bragason meiddist í upp- hafí leiks og lék ekki meira. Hafn- fírðingurinn Helgi Ragnarsson þjálfar Stavanger og hefur verið fljótur að skila góðum árangri. Þetta var úrslitaleikur bikar- keppninnar en sigurvegarinn í henni telst vera meistari — si- gurvegarinn í dcildakcppninni hinsvegar deildameistari. —VS Handbolti Tíu lið tilbúin Undirbúningsdeildum fyrir I. og 2.deildarkeppnina í keilu seni hefst eftir áramótin er lokið. Tíu lið munu skipa l.deild, þau tíu sem bestum ár- angri náðu í Timburmannadeild og Órólegu deildinni. Þessi lið cru: Víkingasveitin, P.L.S., Fellibylur, Keilubanar, Þröstur, Hólasniglar, Glennurnar, Kaktus, Keiluvinir og Gæjar og Píur. Öll önnur liö og þau sem bætast viö munu taka sæti í 2. og l.deild. P.L.S. varö Reykjavíkurmeistari en Reykjavíkurmótinu lauk um síð- ustu helgi. Víkingasveitin varð í ööru sæti og Fellibylur í þriöja. Dóra Sig- urðardóttir varö Reykjavíkur- meistari í einstaklingskeppni kvenna en Alois Rashhofer í karlakeppninni. Dóra varö einnig meistari í para- keppni ásamt Höskuldi Höskulds- syni. Þá fór fram um helgina Prcssu- keppni sem verður áflég héðan í frá. Valur Jónatansson, Morgunblaðinu, sigraði. V.Þýskaland Valur-Þróttur I kvöld verður leikinn einn leikur í l.deild karla í handknatt- leik í Laugardalshöllinni. Þetta er sem áður var frestað, leikur Vals og Þróttar og hefst hann kl.20. Jafntefli hjá Essen Essen, lið Alfreðs Gíslasonar, tap- aði dýrmætu stigi í baráttunni um meistaratitilinn í handknattleik í fyrr- akvöld. Dusseldorf og Essen skildu þá jöfn, 20-20, og skoraði Alfreð 3 mörk í leiknum. Eftir 10 umferðir hefur Grosswallstadt 18 stig, Essen 16, Schwabing 15, Dusseldorf 13 og Gum- mersbach 13 stig. Körfubolti Þvert á alla hefð Opið bréf KR-kvenna sem gefa ekki kost á sér ílandsliðið Þjóðviljanum hefur borist eftirfarandi opið bréf til stjórnar Körfuknattleikssambands Is- lands: Vegna fyrirhugaðrar þátttöku íslands í Norðurlandamóti kvenna sem haldið verður í Sví- þjóð á næsta ári vill kvennakörfu- knattleiksdeild KR taka eftirfar- andi fram: Við erum í hæsta máta óá- nægðar með þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við undirbún- ing að þátttöku í nefndu móti og sjáum okkur af þeim sökum ekki fært að vera með. Þegar boð barst um þátttöku ákvað stjórn KKÍ að taka því án þess að tryggja fjár- magn til verkefnisins eða leggja nokkrar línur uni fjármögnun. I stað þess að stjórnin sem heild tæki á málinu var því alíarið vísað til einu konunnar í stjórninni eins og þetta væri hennar einkamál. í erfiðri aðstöðu ákvað hún að skipa þrjár leikkonur í landsliðs- nefnd. Þær eru að vísu hver úr sínu liði þannig að ákveðin breidd er tryggð en liðin eru sex - ekki þrjú. Þessi skipan gengur þvert á'alla hefð í landsliðsmálum körfuknattleiksíþróttarinnar á ís- landi. Hjá körlum er landsliðs- nefnd aldrei skipuð leikmönnum. Því fáum við ekki að sitja við sama borð og þeir; Það er skoðun okkar að nefnd sem skipuð er á þennan hátt eigi erfitt með að gæta hlutleysis þar sem hætta er á að starf hennar markist um of af persónulegum tengslum. Af þeim ástæðum sem hér hafa verið raktar lýsir Kvennakörfu- knattleiksdeild KR yfir því að hún mun ekki við þessar aðstæð- ur taka þátt í margnefndum undirbúningi. Undir bréfið rita Sigrún Cora Barker, Guðrún Kr.Sigurg- eirsdóttir, Linda Jónsdóttir, Sig- ríður Baldursdóttir, Guðrún Gestsdóttir, Margrét Árnadóttir, Hrönn Sigurðardóttir, Ásta Kr.Sveinsdóttir, Kristjana Hrafnkelsdóttir, Dýrleif Guð- jónsdóttir og Erna Jónsdóttir. Miðvikudagur 18. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.