Þjóðviljinn - 20.12.1985, Side 9
BÆKUR
Tex
Tex heitir skáldsaga eftir
bandaríkjamanninn Susan E.
Hinton og er nú komin út hjá
Bjöllunni.
„Þetta er saga um ungan pilt,
bróður hans, föðurog vini,“ segir
í kynningu útgáfunnar, „svo
margt verður öðruvísi en maður
átti von á. Og þegar fram sækir
kemur meira að segja í ljós að
ekkert hefur nokkurn tíma verið
eins og maður hélt.“
Susan E. Hinton skrifaði fyrstu
bók sína sautján ára, og varð sú
brátt kunn um Bandaríkin. Eftir
henni var gerð kvikmyndin
Outsiders/Utangarðsfólk sem
hér hefur verið sýnd.
Þýðandi er Heimir Pálsson.
miimii
ÆVl&ÁSTIR
Kvendjöfull
Forlagið hefur nú gefið út nýja
skáldsögu eftir Fay Weldon og
heitir hún Ævi og ástir kvend-
jöfuls. Fay er hér einkum kunn
fyrir söguna Praxís.
Eiginmaðurinn kallar konu
sína kvendjöful og tekur á rás
með annarri, - en söguhetjan
beitir hugkvæmni sinni og misk-
unnarleysi til að ná fram hefnd-
um. En til hvers? og með hvaða
fórnum?
„Meinfyndin og djöfulleg sat-
íra“ kallar útgefandi bókina.
Bókin kemur út samtímis í
bandi og sem kilja. Þýðandi er
Elísa Björg Þorsteinsdóttir.
Ekki
hugsanimar
En hugsanir mínar færðu
aldrei heitir bók um vændiskonur
og veröld þeirra eftir norðmann-
inn Sverre Asmervik. Iðunn gef-
ur út.
Bókin segir frá lífi og örlögum
tveggja vændiskvenna, og byggir
á raunverulegum atburðum. Hún
fékk lofsamleg ummæli norskra
ritdómara á sínum tíma: „frábær-
ar myndir af stúlkunum" sagði
Arbeider-bladet, „sannar, óhefl-
aðar og miskunnarlausar, en þó
ekki lausar við kímni“.
Hildur Finnsdóttir þýddi.
UNAÐUfl ÁSTflfllNNflf
uúfflfi og smmm minningbi
RNNe-MRRié viaeffiflNCHe
SŒIUSTUNDIR í Pflflíf
Erótík
Sælustundir í París heitir safn
erótískra sagna eftir frakkann
Anne-Marie Villefrance, og er
nú komin út hjá Forlaginu.
„Það kann að virðast harla
óvenjulegt viðfangsefni fyrir
unga, vel uppalda konu af góðum
ættum, að skrifa frásagnir af kyn-
ferðislegum uppátækjum náinna
vina og ættingja," segir dóttur-
dóttur höfundar í formála bókar-
innar. „Ég hef aldrei áður séð
jafn opinskáar lýsingar á sam-
böndum manna og kvenna - og
það frá hendi minnar fáguðu
ömmu“.
68Í333mer 0 DJÓÐVIUINN
ESENDUR
Beinið viðskiptum ykkar
til þeirra sem augiýsa í
Þjóðviljanum
REYKJAVÍKURKORT DAGATAL 1986
GOMUL
REYKJAVÍKUR
KORT
I
ru
m
»1
vrtmJBkXi
liltj
%
e
Árbæjarsafn og 200 ára Afmælisnefnd Reykja-
vikur hafa gefið út stórmerkilegt litprentað
dagatal fyrir árið 1986.
Á dagatalinu eru 12 kort frá árunum 1715 til
dagsins í dag, auk bráðfallegs korts Benedikts
Gröndal frá 1876. Árbæjarsafn hefur dregið
þessi kort fram í dagsljósið og haft umsjón með
útgáfunni. Sum þessara korta hafa ekki fyrr
verið birt almenningi þ.m.t. áðumefnt kort
Ben. Gröndal.
Hér er um stórmerka og forvitnilega útgáfu að
Árbæjarsafn
ræða. Fróðlegt er að sjá á kortunum Reykjavik
þróast úr þorpi í þá borg sem hún er í dag. Skýr-
ingartextar eru á íslensku og ensku og því til-
valin gjöf til kunningja og viðskiptavina hér
heima sem erlendis.
Dagatalið fæst í bókaverslunum, hjá Sögu-
félaginu og á Árbæjarsafni, en safnið sér um
dreifingu. Utsöluverð er kr. 400.-.
Einstaklingar og fyrirtæki: Tryggið ykkur ein-
tökáðurenupplagþrýtur. Sími 84412
✓ VJ Afmælisnefnd
Reykjavíkur
Þannig hefst hin hugvitssamlega flétta Dick
Francis I Hrossakaupum, bóksem heldurvöku
fyrir lesanda sinum.
Hrossakaup er eitt frægasta verk þessa dáða
spennusagnahöfundar og hvalreki fyrir unnend-
ur góðra spennubóka.