Þjóðviljinn - 20.12.1985, Qupperneq 15
ÍÞRÓTTIR
Handbolti
Endurtekiö
á Akranesi?
ísland og Danmörk leika þrjá landsleiki
hér á landi milli jóla og nýárs
Þann 28. desember eru fjögur
ár liðin frá einum besta og sætasta
sigurleik fslands í landsleikjasög-
unni í handknattleik. Þann dag
voru sjálfir Danir lagðir að velli
með 11 marka mun í íþróttahús-
inu á Akranesi — úrslitin voru
sæt og eftirminnileg fyrir
landann, 32-21. Úrslitanna var
rétt svo getið í dönskum blöðum,
svo mikil þótti niðurlægingin þar í
Guðmundur Guðmundsson og fé-
lagar í handknattleikslandsliðinu eiga
þrjá leiki gegn Dönum framundan.
Skólamót
Seljaskóli
sigraði
/ landsbankamótinu
í körfubolta
Fimmti bekkur SJ Seljaskóla
bar sigur úr býtum í hinu árlega
Landsbankamóti IR í körfuknatt-
leik sem lauk um síðustu helgi.
Alls tóku 34 lið þátt í kcppninni en
fjögur komust í úrslit.
5.SJ Seljaskóla vann alla leiki
sína í úrslitakeppninni með mikl-
um yfirburðum og hlaut 6 stig. í
mótinu í heild skoraði liðið alls
121 stig en fékk aðeins 20 á sig.
5.BÁ Seljaskóla varð í öðru sæti
með 4 stig, 5.ÓL Seljaskóla fékk
2 stig og 5.KJ Langholtsskóla
ekkert stig.
Leikmenn mótsins voru valdir
þeir Jónas Valdimarsson úr SJ og
Ómar Hannesson úr BÁ. Sigúrl-
iðið skipuðu þeir Jónas Valdi-
marsson, Ólafur Theodórsson,
Ágúst Auðunsson, Hermann Sig-
urbjarnason, Jón Másson og
Hjálmar Hafsteinsson.
landi. En á sama degi á þessu ári
mætast þjóðirnar á sama stað,
miðleikurinn af þremur í þessari
jólaheimsókn Dana verður
leikinn á Akranesi.
ísland og Danmörk léika þrjá
landsleiki hér á landi milli jóla og
nýárs. í Laugardalshöllinni verð-
ur leikið föstudagskvöldið 27.
desember kl. 20, á Akranesi laug-
ardaginn 28. desember kl. 13.30
og í Höllinni aftur sunnudags-
kvöldið 29. desember kl.20.
ísland mun tefla fram sterku
liði í þessum leikjum. Þó er ljóst
að Atli Hilmarsson og Alfreð
Gíslason geta ekki leikið með og
Einar Þorvarðarson er sennilega
úr leik vegna meiðsla. Einar er|
samt í 19 manna hópi sem Bog-
dan Kowalczyck landsliðsþjálfari
hefur valið og er þannig skipað-
ur:
Markverðir:
Kristján Sigmundsson, Víkingi
Brynjar Kvaran, Stjörnunni
Ellert Vigfússon, Val
Aðrir leikmenn:
Þorbjörn Jensson, Val
Þorgils Óttar Mathiesen, FH
Guðmundur Guðmundsson, Víkingi
Bjarni Guðmundsson, Wanne-Eickel
Steinar Birgisson, Víkingi
Jón Árni Rúnarsson, Fram
Guðmundur Albertsson, Víkingi
Sigurður Gunnarsson, Tres de Mayo
Páll Ólafsson, Dankersen
Kristján Arason, Hameln
Egill Jóhannesson, Fram
Geir Sveinsson, Val
Júlíus Jónasson, Val
Jakob Sigurðsson, Val
Valdimar Grímsson, Val
íslenska landsliðið hefur leikið
fimm leiki hér á landi í þessum
mánuði, gegn Vestur-
Þjóðverjum og Spánverjum. Þrír
af þeim hafa unnist, og verður
það að teljast góður árangur gegn
það sterkum þjóðum. Nú bætast
við þrír gegn Dönum, en það hef-
ur lengstum verið kappsmál ís-
lendinga að bera sigurorð af
gömlu herraþjóðinni, og sömu-
leiðis hafa Danir ávallt talið það
hneyksli að tapa gegn íslandi.
Það er þvt' ljóst að íslenskir
handknattleiksáhugamenn mega
búast við þremur hörkuleikjum
hér um jólin. —VS
Hafnarfjöröur
Haukar-Valur 88-84
(77-77) (71-71) (47-37)
14-9, 35-22, 37-29, 47-37, 53-43, 59-
59, 71 -67, 71 -71,75-77, 77-77, 83-77,
88-82, 88-84.
Stig Hauka: Ólafur Rafnsson 29,
Ivar Webster 24, Viðar Vignisson 16,
Pálmar Sigurðsson 13, Ivar Ásgríms-
son 4 og Henning Henningsson 1.
Stig Vals: Leifur Gústafsson 22,
Tómas Holton 17, Jón Steingrímsson
12, Sturla örlygsson 12, Torfi
Magnússon 10, Kristján Ágústsson 6,
Einar Ólafsson 3 • og Jóhannes
Magnússon 2.
Dómarar: Kristján Albertsson og
Sigurður Valur Halldórsson - slakir.
Maður leiksins: Ólafur Rafnsson,
Haukum.
Úrvalsdeildin
Tvær fram-
lengingar
Haukar unnu Val í Firðinum
Staöan
í úrvalsdeildinni í körfuknattleik:
UMFN......12 10 2 1023-920 20
Haukar.....13 9 4 1033-981 18
ÍBK.........13 7 6 996-1015 14
Valur.......13 6 7 1019-1006 12
KR..........13 4 9 1004-1090 8
IR..........12 2 10 954-1017 4
Stigahæstir:
Valurlngimundarson, UMFN......303
PálmarSigurðsson, Haukum......283
BirgirMikaelsson, KR...........263
RagnarTorfason, ÍR.............242
Jón Kr.Gíslason, IBK...........233
Valur Ingimundarson er langstig-
ahæstur í úrvalsdeildinni.
Það munaði ekki miklu að
Haukar töpuðu fyrir Val eftir að
hafa haft yfirhöndina allan
lcikinn. Valsmenn náðu tvívegis
að knýja fram framlengingu og
voru ekki langt frá sigri en
Haukar unnu 88-84.
Haukarnir höfðu gott forskot
lengst framan af leiknum, en þeg-
ar 7 mínútur voru til leiksloka
náðu Valsmenn að jafna og héldu
því. Leiknum var því framlengt
og voru Valsmenn klaufar að
tryggja sér ekki sigur þá.
Leiknum var svo framlengt aftur
og þá gerðu Haukar útum leikinn
með því að skora 3 körfur í röð.
Valsmenn reyndu allt hvað þeir
gátu til að jafna, en Haukar léku
af skynsemi síðustu mínúturnar
og héldu boltanum til leiksloka.
Haukarnir voru mjög góðir í
fyrri hálfleik. Ólafur Rafnsson
átti stórleik í sókninni, skoraði
fimmtán stig í röð, og ívar Web-
ster átti sinn besta leik í langan
tíma og virðist nú vera að koma
til í sókninni. í síðari hálfleik
voru Haukarnir aftur á móti slak-
ir, ekkert gekk upp í sókninni og
þeir voru heppnir að tapa ekki.
En síðan náðu þeir upp góðum
leik í síðari framlengingunni og
náðu að tryggja sér sigur. Þeir
Ólafur og Webster voru bestir í
liði Hauka, en auk þeirra áttu
þeir Pálmar og Viðar ágætan leik.
Valsmenn náðu sér ekki á strik
fyrr en í síðari hálfleik, en þá var
vc.-n þeirra mjög sterk, sóknin
var góð og leit lengi vel allt út
fyrir Valssigur, en þeir klúðruðu
því síðan í síðari framlenginunni,
en þá gekk ekkert upp hjá þeim.
Þeir Tómas og Leifur voru bestir
hjá Val og Sturla átti einnig ágæt-
an leik, þó verður hann að reyna
að hafa hemil á skapinu.
Það var afskaplega leiðinlegt
að sjá hve fáir áhorfendur voru á
leiknum því hann var bæði spenn-
andi og skemmtilegur. -Logi
Úrvalsdeildin
Keflavík 19.des.
ÍBK-KR 84-77 (43-34)
9-12, 22-22, 34-24, 41-36,
43-34 - 48-40, 57-51,63-63,
77-69, 84-77.
Stig IBK: Sigurður Ingimundarson
23, Guðjón Skúlason 15, Jón Kr.Gísla-
son 13, IngólfurHaraldsson 11, Ólafur
Goftskálksson 10, Hreinn Þorkelsson
8, Magnús Guðfinnsson 4.
Stig KR: Birgir Mikaelsson 36, Páll
Kolbeinsson 18, Garðar Jóhannsson
10, Ástþór Ingason 4, Þorsteinn Gi nn-
arsson 4, Guðmundur Jóhannssc n 3,
Samúel Guðmundsson 2.
Dómarar: Kristinn Albertsson og
Bergur Steingrímsson — ágætir.
Maður leiksins: Birgir Mikaelsson,
KR.
ÍBK ömggt?
Vann þýðingarmikinn sigur á KR
Margir urðu til þess að spá
Keflvíkingum falli áður en
keppnin í úrvalsdcildinni í körfu-
knattlcik hófst í haust. Úr þessu
er víst að þær spár rætast ekki.
ÍBK er nokkuð öruggt með sæti í
4-liða úrslitunum eftir góðan
sigur á KR í gærkvöldi, 84-77, og
KR, sem margir spáðu meistara-
titli, verður að taka á öllu sínu úr
þessu til að forðast fall.
ÍBK hafði undirtökin, nema
rétt í byrjun og þegar KR náði
með góðum kafia að jafna metin
eftir miðjan seinni hálfleik. í
heild var leikurinn heldur slakur
og talsvert var af mistökum, eink-
um hjá KR-ingum.
ÍBK er með ungt lið en það sést
varla lengur, núorðið veikir það
ekkert liðið þótt reyndari menn
hvíli. Liðsheildin var góð, helst
að Sigurður Ingimundarson stæði
uppúr, en Guðjón og Jón Kr.
stjórnuðu spilinu vel.
Birgir Mikaelsson hélt KR al-
gerlega á floti og hittni hans var
með eindæmum. Páll lék ágæt-
lega en í heild var lið KR mjög
slakt og þarf greinilega að halda
vel á spöðunum til að halda sér í
deildinni. —SÓM/Suðurnesjum
Handbolti
Verða þrjú lið efst og jöfn í
1. deildarkeppninni?
Pá myndu Stjarnan, Valur og Víkingur leika úrslitakeppni um meistaratitilinn
að lokinni A-keppninni íSviss
Þarf að fara fram þriggja liða
úrslitakeppni um íslandsmeistar-
atitilinn í handknattlcik karla?
Talsverðar líkur eru á því — Val-
ur, Víkingur og Stjarnan gætu
orðið jöfn og efst með 22 stig
hvert að lokinni 1. deildarkeppn-
inni.
í reglugerð HSÍ segir að ef tvö
lið verði efst og jöfn í l.deild
karla og kvenna skuli stofnað til
aukaleiks um íslandsmeistaratit-
ilinn. Ekkert er sagt um hvað skal
gera ef þrjú lið eru jöfn en sama
hlýtur að gilda. (Þetta er undan-
tekning á reglunni um að ef lið
eru jöfn að stigum ráða úrslit inn-
byrðis leikja röð þeirra.) „Ég
þarf að fá staðfestingu stjórnar
HSÍ um það en ég tel það eðlilega
túlkun“ sagði Jón Erlendsson
starfsmaður HSÍ í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Þremur umferðum er ólokið í
l.deild og fara þær fram dagana
4,-12.janúar. Þar eru eftirtaldir
leikir:
12. umferð: KA-Fram, FH-
Víkingur, Þróttur-Stjarnan, KR-
Valur.
13. umferð: KA-Þróttur,
Stjarnan-FH, Víkingur-Valur,
Fram-KR.
14. umferð: FH-KA, Þróttur-
Fram, KR-Víkingur, Valur-
Stjaman.
Valur og Víkingur eru með 18
stig hvort en Stjarnan 16. Stjarn-
an vinnur Þrótt og ætti að sigra
FH. Víkingur ætti að vinna FH og
KR og Valur ætti að vinna KR.
Þá standa eftir tveir úrslitaleikir:
Víkingur-Valur og Valur-
Stjaman. Ef Valur vinnur Víking
og Stjarnan vinnur Val eru liðin
þrjú öll jöfn að stigum. En það er
aðeins einn möguleiki af mörgun,
hið vaxandi lið FH og reynt lið
KR sem berst í bökkum við að
halda sér í 1 .deild gætu gert topp-
liðunum skráveifu.
Komi þessi staða upp er ljóst
að úrslit um íslandsmeistaratiti-
linn ráðast ekki fyrr en seinni
partinn í mars, að lokinni A-
keppninni f Sviss. Enginn mögu-
leiki er á að koma úrslitakeppni
fyrir fyrr en þá vegna undirbún-
ings og þátttöku landsliðsins í
Sviss.
Það er eins og margir hafi ekki
áttað sig á að keppni í 1 .deild er
að ljúka, það er engin úrslita-
keppni eins og síðustu ár, nema
ofangreind staða komi upp. Það
má því búast við hörkukeppni í
síðustu þremur umferðum
l.deildarinnar, keppnin um
meistaratitilinn hefur ekki verið
svona tvísýn lengi.
—VS
Föstudagur 20. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15