Þjóðviljinn - 11.01.1986, Síða 2

Þjóðviljinn - 11.01.1986, Síða 2
FRÉTTIR Hella Rekstrarerfiðleikar hjáÞór Eggert Haukdalstjórnarformaður: Þetta erþungt. Emil Gíslason kaupfélagsstjóri: Fjármagnskostnaðurinn skelfilegur Eggert Haukdal sagði að ekki menn vongóða um að hægt yrði vissulega væri fyrir hendi. lægi við rekstrarstöðvun og sagði að vinna sig út úr vandanum, sem -S.dór. Gjaldheimtan Aukin vanskil Vanskil borgarbúa jukust um 11% fráfyrra ári Kaupfélagið Þór á Hellu hefur átt í verulegum rekstrarerfið- leikum undanfarið og var afkom- an 1984 mjög slæm eða 9 miljón króna rekstrartap. Aftur á móti mun útkoma síðasta árs hafa ver- ið betri og útkoman réttu megin við strikið, eins og kaupfélags- stjórinn Emil Gíslason sagði í samtali við Þjóðviljann. Emil sagði að fjármagnskostnaðurinn væri skelfilegur og það sem verst færi með fyrirtækið. Það mun vera nýtt og myndarlegt verslun- arhús sem verst leikur kaupfé- lagið. Eggert Haukdal stjórnarfor- maður sagði í gær að það væri þungt fyrir fæti hjá Þór eins og fleiri fyrirtækjum í landinu um þessar mundir og nefndi hann til verðbólguna og fjármagns- kostnað sem höfuð fjandmann- inn. Eignir Kaupfélagsins Þórs á Hellu voru metnar á 102 miljónir í ársbyrjun 1985 og sagði Eggert að Kaupfélagið ætti eignir sem næmi 7,3 miljónum umfram skuldir, sem þýðir að Kaupfé- lagið skuldar um 95 miljónir króna. Á síðasta ári stóð til að fara út í fjársöfnun meðal félagsmanna með skuldabréfaútgáfu, en hætt var við það, þar sem félagar vest- an Rangár voru ekki jafn áhuga- samir og þeir austan megin. Heilsufar Aukin tíðni kynsjúkdóma 927 borgarbúar greindust með kynsjúkdóma árið!984. Klamidía algengust, þá lekandi, flatlús og herpes Kynsjúkdómar voru út- breiddari meðal borgarbúa árið 1984 en árið á undan samkvæmt yfirliti frá kynsjúkdómadeild heilsuverndarstöðvarinnar í Reykjavík. Alls heimsóttu 2017 einstaklingar deildina árið 1984 eða um 300 fleiri en árið á undan. Af þeim reyndist tæplega helm- ingur eða 927 hafa kynsjúkdóma en 859 árið á undan. Algengasti kynsjúkdómurinn var „chlamydia trachhomatis” sem orsakar þvagrásarbólgu en alls reyndust 458 sýktir af þeim sjúkdómi þar af nær 300 karlar. 216 voru með þvagrásarbólgu af öðrum orsökum, þar af 210 karl- ar. Með lekanda voru 203, þar af 127 karlar. 192 höfðu flatlús, þar af 127 karlar. 35 voru með herp- es, 15 með sárasótt, 6 höfðu maurakláða, 2 konur voru með höfuðlús og 80 greindust með aðra kynsjúkdóma eða nær helm- ingi fleiri en árið á undan. -»g- Reykvíkingar juku skuldir sínar við Gjaldheimtuna um 150 miljónir króna á nýliðnu ári, en þá jukust vanskil á útsvari og þinggjöldum um 11% og vanskil á fasteignagjöldum jukust um 31% miðað við árið 1984. Samkvæmt uppiýsingum Guð- mundar Vignis Jósepssonar, gjaldheimtustjóra, er áætlað að aðeins 72,16% hafi innheimst af útsvari og álögðum þinggjöldum í fyrra á móti 75% árið 1984. Van- skil á þessum gjöldum eru því tæplega 28% á móti 25% árinu áður, en hvert prósentustig jafngildir um 50 miljónum króna því álagningin nam tæpum 5 milj- örðum. Innheimta fasteignagjalda var talsvert lakari í fyrra en á árinu þar áður en þó langtum betri en álagning fyrrnefndra gjalda. í fyrra innheimtust 90% allra fast- eignagjalda á móti 92,4% á árinu 1984. Hvert prósentustig jafngildir tæpum 5 miljónum. Eini flokkur gjalda sem skil hafa batnað í eru eldri skuldir eða eftirstöðvar en þar hækkaði inn- heimtuhlutfallið úr 45,4% í 46,3% 1985. Telja kunnugir að þar komi m.a. til hækkun vaxta og þar með dráttarvaxta sem nú eru 3,75% á mánuði. Guðmundur Vignir sagðist í 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN | Laugardagur 11. janúar 1986 Togarakaup Þórshafnar- menn hættu við Útgerðaraðilarnir á Pórs- höfn sem nú viljafá Kol- beinseyfrá Húsavík báru víurnar í annan raðsmíð- atogarann á Akureyri og því varhann lengdurað þeirra ósk. Nú hafa þeir hœtt við kaup á þeim tog- ara Að sögn Gunnars Ragnars hjá Slippstöðinni á Akureyri báru út- gerðaraðilarnir á Þórshöfn ví- urnar í annan raðsmíðatogarann sem smíðaður var á Akureyri á sínum tíma. Vildu þeir fá skipið lengt og var þá ákveðið að lengja báða togarana sem þar voru smíðaðir og í stað þess að verða 250 lesta eins og til stóð eru þeir nú 330 lestir. En svo hættu Þórs- hafnarmenn við kaupin. Þetta vekur athygli í ljósi þess ofurkapps sem þeir leggja nú á að ná í Kolbeinsey ÞH, sem Húsvík- ingar misstu í haust en hafa boðið í 160 miljónir nú en Þórshafnar- menn 180 miljónir. Þórshafnar- menn eiga annan og vel rekinn togara fyrir en Húsvíkinga vantar togara til bolfiskveiða. Þórshafnarmenn hafa ekki í sjálfu sér þörf fyrir annan togara ef miðað er við atvinnu í landi. Þar er ekkert atvinnuleysi en aft- ur á móti er 250 manns atvinnu- laust á Húsavík vegna þess að Kolbeinsey fór á uppboð. -S.dór. gær ekki geta gefið nánari upplýs- ingar um þessi auknu vanskil, þ.e. hvort þau eru fremur hjá ein- staklingum eða fyrirtækjum en lagði áherslu á að skuldir manna við Gjaldheimtuna eru nær aldrei afskrifaðar. Þannig hafa frá 1962, þegar Gjaldheimtan var stofnuð, aðeins verið felld niður gjöld sem svara til 1,3% af heildarálagn- ingu liðinna ára. -ÁI

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.