Þjóðviljinn - 11.01.1986, Side 13

Þjóðviljinn - 11.01.1986, Side 13
HEIMURINN Vestur-Þýskaland Líbýu-deilan rekur fleyg í viðræður um Stjömustríð Bonn — Deilur þær sem risið hafa milli Bandaríkjanna og Vestur-Þýskalands vegna kröfu Reagans á hendur bandamönnum sínum um að þeir taki þátt í refsiaðgerðum gegn Líbýu gætu haft veruleg áhrif á viðræður ríkjanna um þátttöku vesturþjóðverja í stjörnustríðsáætlunum Reag- ans. Allt frá því Helmut Kohl komst til valda í Vestur- Þýskalandi árið 1982 hefur ekki gengið hnífurinn á milli hans og Reagans í utanríkismálum. Líbýu-málið er fyrsta ágreinings- efnið sem upp hefur komið og svo vill til að það ber upp á sama tíma og viðræður um hugsanlega þátt- töku þjóðverja í undirbúnings- rannsóknum fyrir Stjörnustríð Reagans eiga að hefjast í Was- hington. f dag, föstudag, heldur Martin Bangemann, efnahagsmálaráð- herra Vestur-Þýskalands, vestur um haf til viðræðna við banda- ríska ráðamenn. Reyndar er ekki fullljóst um hvað þær viðræður eiga að snúast því stjórnirnar hafa nokkuð ólíkar skoðanir á væntanlegri tæknisamvinnu. Vesturþýska stjórnin vill ræða samvinnu ríkjanna um hátækni- þróun á breiðum grundvelli þar sem Stjörnustríðið er aðeins hluti af stærri heild. í vesturþýska sjónvarpinu hef- ur því verið haldið fram að bandarískir embættismenn séu ekki beinlínis í skapi til að ræða samstarf ríkjanna með Líbýu- málið hangandi yfir höfðum sér. Nokkuð hvöss orðaskipti hafa orðið milli ríkjanna, Kohl neitaði ákveðið að taka þátt í refsiað- gerðum Reagans og bandaríski sendiherrann í Bonn, Richard Burt, svaraði samstundis og sagði að það væri siðferðileg skylda bandamanna að fylgja Reagan í þessu máli. Reyndar ríkir ekki full eining um málið heldur í Vestur- Þýskalandi. Flokkur Kohls er fylgjandi Stjörnustríði en frjálsir demókratar hafa uppi ýmsar efa- semdir. Og frá atvinnurekendum sem koma til með að taka þátt í rannsóknunum mátti í gær heyra þau varnaðarorð að þátttaka í Stjörnustríðinu gæti skaðað við- skipti vesturþjóðverja og sovét- manna sem hafa verið í örum vexti að undanförnu. Tékkóslóvakía Nóbelskáldið Jaroslav Seifert er látinn Prag - Tékkneska Nóbelskáld- ið Jaroslav Seifert lést í fyrri- nótt á sjúkrahúsi í Prag. Sei- fert, sem hlaut bókmennta- verðlaun Nóbels árið 1984, hafði átt við vanheiisu að stríða árum saman og gat ekki tekið við verðlaununum í eigin persónu af þeim sökum. Hann var 84 ára að aldri. Seifert er þekktur fyrir ljóð, sem lofuð eru fyrir næma og ferska skynjun, hugkvæma myndvísi og frelsisanda. Seifert gerðist ungur kommúnisti, en komst upp á kant við flokksfory- stuna þegar árið 1929 og gekk ekki í flokkinn aftur. Á stríðsár- unum orti hann kvæði sem hin þjóðlega andspyrnuhreyfing taldi sér til tekna. Eftir stríð var hann ritstjóri bókmenntaritsins Kytice og gekk á ýmsu með birtingu á ljóðum hans. Um skeið var tekið fyrir birtingu verka hans í Tékk- óslóvakíu vegna gagnrýni hans á opinbera menningarstefnu, en á hlákuárunum á sjöunda áratugn- um voru verk eftir hann mikið gefin út og kom þá vel í ljós hví- líkrar hylli hann naut meðal fólksins. Yfirvöld kusu að taka þeirri fregn vel í hitteðfyrra, að Seifert hlyti nóbelsverðlaun, en hafði hann þó unnið sér það til óhelgi að skrifa undir mannréttinda- skjöl hreyfingarinnar Charta '11. Nú munu flest verka hans fáanleg í heimalandi hans, en sum kvæði eru þó í banni. Mikla athygli hef- ur vakið sjálfsævisaga hans, þar sem greinir frá mönnum og merk- istíðindum tékknesks menning- arlífs í sextíu ár. Fjörkippur í fjölmiðlunum Sovéskirfjölmiðlar taka sjálfa sig á beinið — íhófiþó. Kvartað um leiðindi ogþögn um stórslys Sovétríkin Þótt kvartað sé undan leiðindum sovéskra blaða eru sovétmenn miklir blaðalesendur. Alls koma blöðin út í 150 miljónum eintaka á degi hverjum. Hér má sjá fólk í biðröð við blaðasjálfsala á neðanjarðarstöð í Moskvu. Moskvu — Hlutverk fjölmiðla í Sovétríkjunum hefur löngum einskorðast við að varpa Ijóma á alvisku Kommúnistaflokks- ins og forystu hans. í dálkum sovéskra blaða hefur ávallt verið ansi þröngt um gagnrýni, þar hefur yfirleitt ekki verið birt neitt sem hægt væri að túlka á þann veg að eitthvað sé að kerfinu. Fyrir bragðið hafa so- véskir fjölmiðlar glatað trún- aðartrausti almennings sem reynir að verða sér úti um frétt- ir af atburðum innan og utan Sovétríkjanna með öðru hætti, svo sem að hlusta á erlendar útvarpsstöðvar. Einnig hefur þetta fyrirkomulag hleypt miklu lífi í gróur landsins. Nú virðist eitthvert los komið á þetta kerfi. í sovéskum blöðum hefur að undanförnu mátt lesa bréf frá lesendum og ritstjórnar- greinar þar sem þögnin um ágalla kerfisins er gagnrýnd. Nú í janúar birtu tvö dagblöð, Sovietskaya Rossiya og stjórnarmálgagnið Is- vestía, sama lesendabréfið þar sem stjórnvöld eru sökuð um að dylja fólk sannleikanum. „Þeir verða að koma sér upp nægu hug- rekki til að segja almenningi frá óvæntum og neikvæðum atburð- um,“ segir í þessu bréfi. Vantraust á lesendum f sumum þessara bréfa er gagnrýndur sá siður fjölmiðla að segja sem allra minnst og helst ekkert frá stórslysum, eldsvoðum og náttúruhamförum sem verða í Sovétríkjunum. í einu slíku bréfi er bent á misræmið í fréttaflutn- ingi sovéskra fjölmiðla sem birt- ist í því að þeir sögðu mjög ítar- lega frá jarðskjálftunum í Mex- íkó og eldgosinu í Kólumbíu sl. haust en þögðu næstum alveg um mannskæðan jarðskjálfta sem varð í miðasíuhluta Sovétríkj- anna á síðasta ári. „Þessi þögn virðist mér stafa af algerum skorti á trausti fjölmiðla á lesendum og áhorfendum — eins og hætta sé á að þeir misskilji eitthvað," segir bréfritari. í öðru slíku bréfi sem birtist í Ísvestía gagnrýnir bréfritari þögn blaðsins um mörg dauðsföll sem urðu í Moskvu í nóvember eftir að fólk hafði fengið eitrun af að drekka ólöglega fengið áfengi. „Þeir tala um að hreinskilnin eigi að sýna traust fjölmiðla í garð al- mennings en í verunni halda þeir mörgu leyndu," segir í bréfinu. í öðrum bréfum er kvartað yfir tilraunum til að þegja í hel mistök sem verða í sovésku efnahagslífi meðan aðrir eru hlaðnir lofi fyrir árangur sem oft orkar tvímælis. „Hlutirnir batna ekkert við slíkan lúðrablástur," segir í einu bréfi. Losað um böndin Þessi bréf og ýmis önnur skrif sovéskra blaða benda til þess að eitthvað sé að slakna á því taumhaldi sem forysta flokks og ríkis hefur hingað til haft á fjöl- miðlunum. Fréttamenn hafa tekið eftir því að blaðið Soviet- skaya Rossiya virðist vera í farar- broddi þeirra blaða sem vilja opnari fjölmiðlun. Benda þeir á mjög óvanalega atburðarás sem blaðið hratt af stað seint á síðasta ári. Þá gekk blaðið fram fyrir skjöldu og gagnrýndi starfshætti tveggja hæstsettu stjórnenda Moskvuborgar, Viktor Grisjin formann flokksdeildarinnar og Vladimir Promyslof borgar- stjóra. Báðir misstu þeir embætti sín og stoðaði það lítt þótt Grisjin ætti sæti í Politbíróinu, æðstu stofnun flokksins. En þótt fjölmiðlar vilji hleypa nýju lífi í fréttamennskuna eru því takmörk sett hve langt þau geta gengið í gagnrýni sinni. Re- uter hefur það td. eftir vestræn- um sendimönnum í Moskvu að það væri óhugsandi að blöðin færu að gagnrýna hlutverk so- véska hersins í Afganistan. Margt bendir þó til að fjölmiðl- ar fari fram með samþykki nýja flokksleiðtogans, Gorbatsjofs. Hann hefur sjálfur sett fram ósk um opnari umfjöllun fjölmiðla um sovésk málefni og það sem miður fer í samfélaginu. Og hann hefur gefið fordæmi með því að sitja fyrir svörum erlendra frétta- manna. En vitaskuld velkist eng- inn í vafa um hollustu hans við kerfið og vald flokksins. Forysta flokksins virðist hins vegar hafa gert sér grein fyrir nauðsyn þess að efla traust al- mennings á fjölmiðlunum. Sjálft aðalmálgagn kommúnistaflokks- ERLENDAR FRÉTTIR ER ins, Pravda, gagnrýndi fyrir skömmu sovéska fjölmiðla fyrir leiðinlegt yfirbragð sem væri ekki til þess fallið að vekja áhuga al- mennings á þeim. Hvatti blaðið fjölmiðla til að hætta leiðindun- um og reyna frekar að virka hvetjandi og uppörvandi á al- menning. Nauðsyn á heiðarleika Þrátt fyrir þessi frýjunarorð treysti Pravda sér ekki til að birta ræðu sem skáldið Évgení Évtús- énkó hélt yfir sovéskum rithöf- undum skömmu fyrir jól án þess að beita skærunum. í ræðu sinni vitnaði skáldið til orða Gorbat- sjofs um meiri hreinskilni og sak- aði svo ritstjóra og úgefendur um lygar, rangtúlkanir og sjálfsá- nægju. Hann hélt áfram og sagði að heiðarleg fréttamennska væri nauðsynleg til varnar sovésku þjóðskipulagi. Að öðrum kosti lægi það vel við höggum andstæð- inga sinna erlendis sem sjóða upp andsovéskar fréttir „úr því sem við felum og þöggum niður“. Hann klykkti út með því að segja að þjóð sem leyfði sér að skil- greina eigin mistök slægi vopnin úr höndum óvina sinna. haÍwldsson/R E U1 Bretland Áfall fyrir Thatcher London — Afsögn Michael Heseltine úr embætti varnar- málaráðherra er talin líkleg til að skaða ríkisstjórn Margaret Thatchers og þó einkum ímynd forsætisráðherrans í augum kjósenda. Athygli almennings hefur nú verið beint að starfsstíl Thatc- hers. Framan af ferli hennar þótti hann einkennast af röggsemi og stefnufestu en nú fjölgar þeim ört sem segja forsætisráðherrann stjórnast af hroka og valda- græðgi, hún stjórni Bretlandi eins og þar ríki forsetaveldi svipað því sem er í Bandaríkjunum. Þessir atburðir koma ekki á góðum tíma fyrir Thatcher. Hún hefur að undanförnu hamrað á því að gera Verkamannaflokkinn tortryggilegan í augum kjósenda og sagt að honum sé stjórnað af öfgamönnum til vinstri. Þessi hræðsluáróður var farinn að bera þann árangur að íhaldsflokkur- inn hefur mjakast fram úr Verka- mannaflokknum í skoðanakönn- unum að undanförnu. Roy Hattersley varaformaður Verkamannaflokksins sagði í gær að afsögn Heseltine væri áfall fyrir einstrengingslega frjáls- hyggjustefnu forsætisráðherrans. Svíþjóð Deiltum fjárlög Stokkhólmi — Stjórn jafnaðar- manna í Svíþjóð lagði í gær fram fjárlagafrumvarp sitt, það fyrsta eftir að flokkurinn lenti í minnihluta á þingi í kosning- um í haust. Síðan nýtt þing kom saman hefur Olof Palme og flokkur hans verið háður stuðningi Vinstri- flokksins-kommúnista og þegar frumvarpið lá fyrir gagnrýndu kommúnistar Palme harðlega fyrir að gera ekki ráð fyrir hækk- un atvinnuleysisbóta og að hækka ekki skatta á hátekjufólki. Kjell-Olof Feldt fjármálaráð- herra svaraði þessari gagnrýni á þann veg að hún væri á misskiln- ingi byggð. Fjárlagafrumvarpið gerði ráð fyrir lithim breytingum á skattheimtu og ríkisútgjöldum en drægi verulega úr halla á ríkis- búskapnum. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.