Þjóðviljinn - 11.01.1986, Qupperneq 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348.
Raðsmíðaverkefnin
Skipin
boðin út
Lánahlutfall til þeirra
hefur verið hækkað úr
65% uppí80-85%.
Skipin kosta á bilinu 140-
150 miljónir króna eftir
að ríkissjóður hefur tekið
á sig allanfjármagns-
kostnað eins og sam-
þykkt hefur verið
Loks er komið að því að hin
mjög svo umdeildu raðsmíðaskip
sem hafa staðið fullbúin að kalla í
3 ár vegna þess að Halldór As-
grímsson kom í veg fyrir mögu-
lega sölu á þeim með því að neita
um lán til kaupanna, verði boðin
út. í fyrra haust samþykkti ríkis-
stjórnin að lánað yrði 65% af
andvirði skipanna væntanlegum
kaupendum. Það er of lítið og hef-
ur nú verið ákveðið að sögn
Gunnars Ragnars hjá Slipp-
stöðinni á Akureyri að hækka
lánahlutfallið í 80-85%.
Alþingi samþykkti í haust að
ríkissjóður tæki á sig fjármagns-
kostnað vegna sölubannsins sem
á skipunum hefur verið en hann
skiptir miljóna tugum á mánuði
að sögn Jóns Sveinssonar í Stál-
vík. Eftir það munu skipin kosta
á bilinu 140-150 miljónir króna,
en tvö þeirra eru 250 tonna en
tvö, þau sem smíðuð voru á Ak-
ureyri 330 tonn, þar sem þau voru
lengd á sínum tíma.
-S.dór.
Helgarsími:81663.
DJÓÐVIUINN
Laugardagur 11. janúar 1986 8. tölublað 51. örgangur
Grandi hf.
í lausu lofti
Ellefu eftirlitskonur meðal þeirra 190 sem sagt hefur verið
upp: Nú vantar bara að viðförum að vinna kauplaust
Við höfum beðið um að ekki
yrði komið aftan að okkur ef
til breytinga kynni að koma, en
ekkert tillit hefur verið tekið til
þess. Okkur var öllum sagt upp
og það hangir allt í lausu lofti, við
vitum ekki hverjar verða endur-
ráðnar og hverjar verða látnar
fara, sagði Elína Hallgrímsdóttir
eftirlitskona hjá Granda hf. í
samtali við Þjóðviljann í gær, en
hún er ein 11 eftirlitskvenna hjá
fyrirtækinu sem sagt var upp um
áramótin.
Þær stöllur auglýstu í gær eftir
vinnu í einu dagblaðanna, segjast
vera öllu vanar, vilji vinna saman
og geti mælt hver með annarri.
Starfsreynsla þeirra hjá BÚR sál-
uga er á bilinu 10 ár og allt upp í
26 ár. Þær eru meðal 190 starfs-
manna sem sagt hefur verið upp
hjá Granda.
„Við viljum helst af öllu halda
áfram að vinna saman. Andinn
hér hefur verið mjög góður og
það er ekki víst að hann flytjist
með okkur yfir í ísbjörninn.
Okkur finnst við ekki eiga skilið
að svona sé farið með okkur eftir
alla þessa þjónustu við fyrirtæk-
ið. Nú vantar bara að við förum
að vinna fyrir þá kauplaust,”
sögðu þær í samtali við blaðið í
gær.
-gg
Þær voru þungorðar í garð forráðamanna Granda eftirlitskonurnar 11 þegar Þjóðviljamaður hitti þær í gær. Konurnar á
myndinni eru Stella Stefánsdóttir, Addbjörg Sigurðardóttir, Erna Arnardóttir, Sóley Magnúsdóttir, Díana Ragnarsdóttir,
Hrefna Guðmundsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir og Elína Hallgrímsdóttir. Mynd Sig.
Flugumferðarstjórar:
Pétur
víki
Flugumferðarstjórar
hafa samþykkt að
annað hvort víki Pét-
ur Einarsson flugum-
ferðarstjóri eða að
þeir hefji skœru-
hernað. Hernaðar-
áœtlun þeirra er þegar
tilbúin
Svo mikil harka er komin í flug-
umferðarstjóra-deiluna að á
fundi félags þeirra í fyrrakvöld,
þar sem 40 flugumferðarstjórar
voru mættir var samþykkt að
annað hvort yrði Pétur Einarsson
látinn víkja úr starfi, eða að þeir
hæfu skæruhernað, eins og þeir
komast að orði. Hefur „hernað-
aráætlun” þegar verið samþykkt.
Að sögn Þorsteins Sigurðs-
sonar flugumferðarstjóra, sem
Þjóðviljinn ræddi við í gær sjá
menn ekki að önnur lausn sé til,
vegna sambúðarörðugleika við
Pétur. Eins halda flugumferðar-
stjórar því fram, að Pétur hafi
brotið lög á þeim og eru lögfræð-
ingar félagsins með það mál í at-
hugun.
Ekki náðist í Pétur í gær, ekki
heldur Matthías Bjarnason sam-
gönguráðherra, þar sem þeir
voru báðir staddir úti á landi.
Matthías segir í samtali við eitt
dagblaðanna í gær að flugum-
ferðarstjórum verði vikið úr
starfi láti þeir ekki af mótmælum
sínum við nýtt skipulag sem tók
gildi um áramótin.
-S.dór.
VerÓur tilsýnis
laugardag og sunnudag
frá 10-17 báða dagana
SUÐURLANDSBRAUT 16 — SÍMI 35200